Morgunblaðið - 04.09.1990, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B
I
1L
STOFNAÐ 1913
199. tbl. 78. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Kóreuríkin:
Söguleg-
ir fundirí
S-Kóreu
Seoul. Reuter.
SÖGULEGIR fundir Kangs Yo-
ung-hoon og Yons Hyong-muk,
forsætisráðherra Kóreuríkj-
anna tveggja, hefjast í Seoul,
höfuðborg Suður-Kóreu, í dag
og er það í fyrsta sinn frá skipt-
ingu Kóreu að jafn háttsettir
fulltrúar ríkjanna hittast.
Embættismenn í Seoul vöruðu í
gær við of mikilli bjartsýni um
árangur af fundum Kangs og Yons
vegna djúpstæðrar tortryggni sem
ríkt hefði milli leiðtoga ríkjanna
frá öndverðu.
Yon hélt í gær með lest frá
Pyongyang, höfuðborg Norður-
Kóreu, ásamt 90 manna fylgdarliði
og var búist við að hópurinn færi
yfir vopnahléslínuna milli ríkjanna
tveggja í landamæraþorpinu Pan-
munjon í nótt að ísl. tíma. Hersing-
in heldur til baka nk. föstudag.
Ráðherrarnir munu eiga tvo
formlega fundi og Yon mun einnig
hitta Roh Tae-woo, forseta Suður-
Kóreu. Búist er við að forsætisráð-
herrarnir hittist að nýju í Pyongy-
ang 16.—19. október. Vonast er
til að fundimir í Seoul verði til
þess að draga úr pólitískri og hern-
aðarlegri spennu milli ríkjanna en
herir þeirra hafa horfst í augu
gráir fyrir járnum yfir vopna-
hléslínuna. Einnig að þeir marki
upphaf gagnkvæmra samskipta og
samstarfs ríkjanna í milli.
Reuter
Landgöngnliðar úr bandariska flotanum reyna sérstakan búnað sem á að gera þeim kleift að veijast
hugsanlegri efnavopnaárás Iraka. Myndin var tekin í flugstöð Bandaríkjahers einhvers staðar í eyði-
mörk Saudi-Arabíu í gær.
Grænland
gangi í EB
á nýjan leik
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jorgen Bruun,
fréttaritara Morgunblaðsins.
ATASSUT, borgaralegi stjórnar-
andstöðutlokkurinn á græn-
lenska landsþinginu, vinnur nú
að því öllum árum að koma
Grænlandi inn í Evrópubanda-
lagið á nýjan leik.
Formaður flokksins, Konrad Ste-
enholdt, segir að Grænlendingar
geti ekki gert sér vonir um að fá
endurnýjaðan fiskveiðisamning sinn
við EB þegar þorskur verði horfinn
af miðunum eftir nokkur ár og
rækjuveiðar hafi stórlega dregist
saman. Fær landið jafnvirði 2,6
milljarða ÍSK á ári fyrir samning-
inn. Steenholdt segir að Grænlend-
ingar séu ófærir um að standa ein-
ir undir fjárfestingarþörfinni vegna
hafna, flugvalla, rafvæðingar o. s.
frv. og möguleiki sé á að þeir fái
styrki úr svæðasjóðum EB.
Grænland sagði sig úr Evrópu-
bandalaginu 1. janúar 1985.
Vonir um pólitíska lausn Persaflóadeilunnar fara dvínandi:
Bretar senda laugferða-
bíla eftir fólki í Kúvæt
Nikósíu. London. Moskvu. Washington. Reuter.
BRETAR hafa sent 10 langferða-
bíla eftir breskum þegnum í
Kúvæt og var búist við að þeir
flyttu um 500 manns til Bagdad
í dag. Sendiráð Breta í Kúvæt
skipulagði flutningana og út-
varpaði breska útvarpið, BtíC,
fyrirmælum til þeirra sem kom-
ast eiga með rútunum. Vonast
er til að fólkið fái að halda heim
frá Bagdad þegar þangað kem-
ur. Var bresk breiðþota send til
Amman í gærkvöldi til að sækja
Vesturlandabúa sem komist hafa
síðustu daga til Jórdaníu. írakar
hafa bannað flug erlendra flug-
félaga til landsins. Vonir um að
leyst yrði úr stríðsástandinu við
Persaflóa eftir pólitískum leiðum
dvínuðu í gær og hækkaði olíu-
verð m.a. af þeim sökum. Úr
þessu er eina vonin um að takast
muni að knýja Iraka til að draga
innrásarheri sína frá Kúvæt
bundin við leiðtogafund George
Bush Bandaríkjaforseta og
Míkhails Gorbatsjovs, leiðtoga
sovéska kommúnistaflokksins, í
Helsinki nk. sunnudag.
írakar sögðu að útlendar flugvél-
ar fengju ekki að lenda í Irak nema
horft yrði framhjá því ákvæði refsi-
aðgerða Sameinuðu þjóðanna er
bannaði flug íraska flugfélagsins
til Vesturlanda. Breskir og franskir
embættismenn sökuðu íraka um að
hafa enn einu sinni gengið á bak
orða sinna og sögðu þá flækja og
tefja brottflutning útlendinga frá
Iandinu af ásettu ráði. Talsmaður
breska utanríkisráðuneytisins sagði
síðar, að til athugunar væri að leigja
flugvélar íraska flugfélagsins til að
flytja útlendingana frá Irak. Rúm-
lega 2Ó Vesturlandabúar fengu að
fara með íraskri flugvél til Jórdaníu
í gær og 120 komust þangað land-
leiðina. Neyðarástand er að skapast
í Jórdaníu þar sem nú eru þar um
90 þúsund flóttamenn frá írak.
Aðbúnaður þeirra fer versnandi og
vegna skorts á lyfjum, vatni og
hreinlætisaðstöðu er mikil hætta
talin á alvarlegum sjúkdómum.
Douglas Hurd, utanríkisráðherra
Breta, sagði á sunnudag, að til at-
hugunar væri að koma í veg fyrir
alla loftflutninga til og frá írak.
Vonast væri hins vegar til að refs-
iaðgerðir SÞ bæru þann árangur
að Irakar hefðu ekki mikið lengur
efni á að borga fyrir matvæla- og
vopnaflutninga með flugvélum og
flugi þangað yrði þannig sjálfhætt.
Svo virðist sem sovéska ráða-
menn og herforingja greini á um
hvernig bregðast skuli við mikilli
hernaðaruppbyggingu Bandaríkja-
manna við Persaflóa. Herforingj-
arnir telja að í henni felist ógnun
við öryggi Sovétríkjanna og hafa
þrýst á Gorbatsjov að mótmæla
henni. Málgagn Sovétstjórnarinnar,
Izvestía lofaði hins vegar fram-
göngu Bandaríkjaforseta í Persa-
flóadeilunni í forystugrein í gær.
Javier Perez de Cuellar, fram-
kvæmdastjóri SÞ lýsti vonbrigðum
sínum er viðræðum þeirra Tareks
Aziz, utanríkisráðherra íraks, lauk
á sunnudag og sagði að Irakar
hefðu ekkert slakað á afstöðu sinni.
Sjá fréttir á bls. 22.
Eystrasalt:
Reuter
Páfi vill að Afríkuríki verði að-
stoðuð
Jóhannes Páll páfi er nú i sinni sjöundu Afríkuferð. Að þessu sinni
heimsækir hann Tanzaníu, Burúndí, Rúanda og Fílabeinsströndina.
Var myndin tekin í borginni Songei í suðurhluta Tanzaníu í gær þar
sem 25.000 manns sóttu útimessu páfa. Við það tækifæri hvatti
páfi ríkari þjóðir heims til þess að hjálpa Afríkuríkjum út úr fátækt
og örbirgð. Skoraði hann á leiðtoga kaþólskra og múslíma í Afríku
að temja sér bræðralag og gagnkvæma virðingu í stað þess að klóra
augun hver úr öðrum í k'apphlaupi um nýja fylgjendur.
Samstarf gegn mengun
Stokkhólmi. Frá Erik Lidén, fréttaritara
í FYRSTA sinn í sögunni hefur
tekist að fá öll Iöndin sjö, sem
eiga land að Eystrasalti, til að
starfa saman að mengunarvörn-
um. Æfingar til að samræma
boðskipti verða haldnar í dag,
leitað verður að olíuflekkjum og
taka m.a. þrjár sænskar flugvél-
ar þátt í æfingununi. Svipað sam-
Morgunblaðsins. Reuter.
starf er nú í burðarliðnum við
Norðursjóinn og Kattegat.
Hvert ríki á framvegis að fylgj-
ast með mengun á ákveðnu haf-
svæði og verða notuð jafnt skip sem
flugvélar.
Fulltrúar ríkjanna sjö og auk
þess frá Noregi og Tékkóslóvakíu
sitja nú umhverfisráðstefnu í
Ronneby í Svíþjóð þar sem fjallað
er um ástandið. Sænskir vísinda-
menn álíta að hlutar Eystrasalts séu
þegar dauðir. Eystrasaltstríkin
þijú, Eistland, Lettland og Litháen,
segjast ætla að nota það fé sem
spfirast vegna Iækkaðra herút-
gjalda til að sporna við mengun.