Morgunblaðið - 04.09.1990, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1990
Hækkun á getrauna-
seðlum dregin til baka
VERÐ a einni röð hjá Islenskum getraunum kostar frá og með deginum
í dag 10 krónur á ný. Verðið var hækkað í 15 krónur 20. ágúst en
fyrir síðustu helgi fór dómsmálaráðuneytið fram á að verðið yrði lækk-
að aftur. Akvað stjórn Islenskra getrauna að verða við því í gær.
Verð á getraunaseðli er með í
grunni framfærsluvísitölunnar og
mun það vera ástæða þessarar beiðni
ráðuneytisins. „Þessi afturköllun
hækkunarinnar kemur okkur mjög á
óvart enda höfðum við fengið leyfi
fyrir henni á sínum tíma,“ segir
Hákon Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Islenskra getrauna.
„Við höfum ekki hækkað verð hjá
okkur síðastliðin þijú ár en á meðan
hefur verðlag í landinu hækkað um
75%. Getraunir eru ódýrasti kostur-
inn sem menn hafa til að spila í
happdrætti og á þessu þriggja ára
tímabili hafa allir okkar keppinautar
hækkað verð á sinni vöru.“
Markarfljót ryðst að
vatnsleiðslmmi til Eyja
Stemmubrú á þurru.
Morgunblaðið/Einar Jónsson
Suðursveit:
VATNSLEIÐSLAN til Vestmannaeyja, sem liggur úr Eyjafjöllum niður
að strönd og neðansjávar til Eyja, er nú komin í talsverða hættu skammt
sunnan og neðan við Markarfljótsbrú. Þar hefur fljótið brotið land í
átt að leiðslunni og á nú aðeins eftir um 150 metra í lagnasvæðið, en
landbrotið á einu ári er á annað hundrað metra. Þá á állinn, sem hef-
ur verið að brjóta sér nýjan farveg, aðeins eftir sex metra í símaleiðslu
til Eyjaljallabæja á svæðinu. Vegagerðin mun kanna málið á næstu
dögum.
Gunnar Marmundsson á Hvols-
velli, starfsmaður Vatnsveitu Vest-
mannaeyja, sagði í samtali við Morg-
unblaðið, að straumurinn í Markar-
fljóti hefði jafnt og þétt rutt sér
nýja leið að undanfömu til vesturs,
sunnan við Markarfljótsbrú, þar sem
vatnsleiðslan Iiggur á um 70 senti-
metra dýpi í sandinum. Vatnsleiðslan
Bílastæðagjöld
hafa ekki hækk-
að 12 V‘z ár
- segir Ðavlð Oddsson
„ÞESSI gjöld höfðu ekki hækkað
í tvö og hálft ár og þau eru mjög
afmörkuð," segir Davíð Oddsson
borgarstjóri um allt að 50% hækk-
un bílastæðagjalda 1. september
síðastliðinn.
„Við lögðum mikið til þjóðarsáttar
áður en nokkur gerði þjóðarsátt og
höfum ekki hækkað neina taxta eins
og hitaveitu, rafmagnsveitu og þess
háttar. Það er svolítið kátlegt þegar
framkvæmdastjóri Vinnuveitenda-
sambandsins er að hóta mér verð-
lagsyfirvöldum. Það er eins og maður
sé kominn aftur í aldir,“ segir Davíð
Oddsson.
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bands íslands, segist hafa efasemdir
um að bera þurfi sérhvert atriði á
sviði verðlagsmála undir þá aðila,
sem gerðu kjarasamningana í vor
og að með gerð þeirra hafí ASÍ og
VSÍ ekki orðið að allsheijaryfirvaldi
í þeim efnum. Hins vegar væri það
persónuleg skoðun sín, að aðstæður
í miðbæ Reykjavíkur væru ekki með
þeim hætti, að ástæða væri til að
hækka bílastæðagjöld þar.
Stemmubrú á þurru
k’.-. if.,
er samsett úr rörum með tengihólk-
um, og ef grefur undan þeim, hiynur
leiðslan.
Gunnar sagðist fylgjast með þessu
frá degi til dags og ljóst væri að
grípa þyrfti til ráðstafana fljótlega
til þess að bægja frá stórhættu á
vatnsskorti íbúa og fiskvinnslufyrir-
tækja í Eyjum.
Fljótið er að ryðja sér leið á svæði
sem hefur verið að gróa upp síðan
um 1930, er Markarfljótsbrú var
byggð. Landbrot er mikið af völdum
fljótsins og þá sérstaklega nær
ströndinni. Samkvæmt upplýsingum
Helga Hallgrímssonar, aðstoðar-
vegamálastjóra, munu vegagerðar-
menn kanna málið á næstu dögum
og leggja á ráðin um viðbrögð til að
bægja hættunni frá.
Kálfafellsstað.
ÞAU tíðiudi gerðust um fimmleytið á laugardag að áin Stemma í
Suðursveit þornaði skyndilega upp og stendur brúin nú á þurru. Svo
háttar til að farvegur Stemmu hið efra liggur austanvert við Jökuls-
árlón á Breiðamerkursandi og skilur jökulsporður þar á milli. Mikl-
ir brestir og dynkir heyrðust frá lóninu um svipað leyti og stóðu
fram eftir kvöldi. í ljós kom að jökulsporðurinn hafði lyfst að hluta
og áin gyafið sig undir hann á nokkur hundruð metra kafla. Streym-
ir hún nú norðvestur í lónið undir jöklinum og sameinast Jökulsá
til sjávar. Þarna hafa átt sér stað óhemjulegar hamfarir og tjarnir
er voru þar austar höfðu tæmst.
Að sögn Fjölnis Torfasonar á
Hala sem hefur haft með höndum
bátsferðir á Jökulsárlóni, bjuggust
heimamenn reyndar við því að
Stemma myndi bijóta sig inn í lón-
ið á næstu misserum, enda hefur
jökullinn hopað mjög á þessum slóð-
um og brotnað úr honum. Enginn
átti þó von á þessu með svo skjótum
hætti, er nú varð raun á.
Stemma gat verið mikill farar-
tálmi og var löngum erfíð yfirferðar
áður en hún var brúuð. Samkvæmt
vegaáætlun skyldi ný brú yfír
Stemmu reist á næsta ári, en nú
er nokkuð ljóst að áin hefur tekið
það ómak af Vegagerðinni. Pening-
amir verða í staðinn notaðir tii að
leggja bundið slitiag á veginn á
Breiðamerkursandi.
Að vísu er tölfræðilegur mögu-
leiki fyrir því að Stemma fari aftur
í sitt gamla bæli, en heimamenn
telja slíkt ólíklegt. Jökullinn hopar
stöðugt, sem áður sagði og samspil
sjávar og lóns er orðið náið. Hiti í
Jökulsárlóni mældist í sumar 2,2
gráður og hefur ekki mælst hærri.
Ekki þarf þó að koma á óvart
að ár breyti farvegi sínum á þessum
slóðum, jafn stórfeildar breytingar
sem þar hafa átt sér stað á undan-
fömum áratugum.
Nýgræðakvíslar vestan Jökulsár
em nú horfnar svo og Veðurá er
áður rann austan við Stemmu og
lagði stórbýlið Fell í auðn á ofan-
verðri 19. öld, en sameinaðist
Stemmu fyrir um 60 árum. En nú
stefnir þetta vatnasvæði allt að ein-
um ósi við Jökulsá. - Einar
Félagsmálaráðherra kynnir frumvarp um breytta sljómsýslulega stöðu Húsnæðisstofhunar:
U mdæmisstj órnir taki við hluta
verkefna Húsnæðisstofnunar
JÓHANNA Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, lagði á ríkisstjómar-
fundi í gær fram lagafrumvarp um breytingar á sljómsýslulegri stöðu
Húsnæðisstofnunar, sem hún hyggst leggja fram á Alþingi í haust. í
frumvarpinu felst meðal annars að fulltrúum í húsnæðismálasljórn er
fækkað úr tíu í fimm og að aðilar vinnumarkaðarins missa fulltrúa sinn
í stjórninni. Þá á að stofna sex umdæmisstjómir sem að stómm hluta
taki við núverandi hlutverki Húsnæðisstofnunar.
Jóhanna segir ástæðu þess að hún
leggi þetta frumvarp fram vera að
stjómsýslustaða Húsnæðisstofnunar
sé mjög óljós í núverandi lögum. Þá
séu valdamörk milli húsnæðisstjóm-
ar, félagsmálaráðuneytis og félags-
málaráðherra einnig óskýr og hefur
Ríkisendurskoðun gert athugasemd
við það.
„Lagastofnun Háskóla íslands var
látin gera athugun á stjórnsýslustöðu
stofnunarinnar og leiddi sú athugun
í ljós að Húsnæðisstofnun er sam-
kvæmt lögum mjög sjálfstæð stofnun
og hefur óeðlilega mikil völd,“ sagði
Jóhanna. Félagsmálaráðherra gæti í
raun aðeins tekið á málum er vörð-
uðu stofnunina með reglugerðum og
lögum. Fjárhagsáætlanir, lánaáætl-
anir og skiptingar í lánaflokka væru
til dæmis algjörlega í höndum Hús-
næðisstofnunar og gæti ráðherra lítil
afskipti haft af þeim eins og lögin
væru.
málastjórn úthlutar fjármagni til
umdæma og skráning og kostnaðar-
eftirlit félagslegra íbúða.
„Með þessu breytist hlutverk Hús-
næðisstofnunar í það að hafa eftirlit
með fjárhagi og rekstri og gæta
þess að unnið sé í samræmi við iög
og reglugerðir. í þessu felst mikil
valddreifíng. Það er verið að færa
þjónustuna til fólksins úti á landi svo
að það þurfi ekki að sækja allt til
Reykjavíkur," sagði Jóhanna Sigurð-
ardóttir, félagsmálaráðherra.
Hörður Bjamason fv.
húsameistari látinn
HÖRÐUR Bjarnason, fyrrver-
andi húsameistari ríkisins, lézt í
Reykjavík síðastliðinn sunnudag,
á átttugasta aldursári.
Hörður var fæddur 3. nóvember
1910 í Reykjavík. Foreldrar hans
voru Bjarni Jónsson frá Galtafelli,
framkvæmdastjóri, og síðari kona
hans Sesselja Ingibjörg Guðmunds-
dóttir. Hörður varð stúdent frá
Menntaskólanum á Akureyri og
nam síðan byggingariist í Darm-
stadt og Dresden i Þýzkalandi.
Heim kominn frá námi rak hann
teiknistofu í félagi við aðra um stutt
skeið, en varð síðan fulltrúi skipu-
lagsnefndar ríkisins og skrifstofu-
stjóri nefndarinnar. Hörður varð
skipulagsstjóri ríkisins árið 1944
og gegndi því starfi til 1954, er
hann varð húsameistari ríkisins.
Hann lét af störfum 1979.
Hörður sat í ýmsum opinberum
nefndum og ráðum, var meðal ann-
ars í skipulagsnefnd ríkisins og
skipulagsstjóm 1954-1979, fram-
kvæmdastjóri Þingvallanefndar og
varaformaður Þjóðleikhúsráðs, auk
þess sem hann sat f byggingar-
nefndum ýmissa opinberra bygg-
inga. Einnig gegndi hann for-
mennsku í Stúdentafélagi
Reykjavíkur, Arkitektafélaginu og
íslandsdeild Norræns byggingar-
dags, svo dæmi séu nefnd.
Fjöldi bygginga liggur eftir Hörð,
meðal annars teiknaði hann Skál-
holtskirkju, Kópavogskirkju og
fleiri guðshús út um land. Þá teikn-
aði hann fjölda opinberra bygginga,
sem reistar voru í embættistíð hans
sem húsameistara ríkisins, Lög-
reglustöðina við Hverfisgötu og við-
bætur við Landspítalann, svo dæmi
séu nefnd.
Hörður kvæntist árið 1939 Kötlu
Hörður Bjarnason
Pálsdóttur og lifir hún mann sinn.
Böm þeirra eru Áslaug Guðrún
Harðardóttir og Hörður H. Bjama-
son.
„Hluverk ráðherra virðist því fyrst
og fremst vera að afla fjár til bygg-
ingarsjóðanna án þess að hafa nokk-
ur áhrif á ráðstöfun þess. Þetta er
mjög óéðlilegt þar sem ráðherra ber
ábyrgð á málum og er þessu breytt
með því frumvarpi sem ég kynnti í
ríkisstjórninni."
Aðrar breytingar sem í frumvarp-
inu felast eru m.a. að fækka á fulltrú-
um í húsnæðismálastjórn úr tíu í
fímm. Á Alþingi að tilnefna fjóra og
ráðherra einn. Nú tilnefnir Alþingi
sjö, ráðherra einn og aðilar vinnu-
markaðarins tvo.
Stærsta breytingin sem frumvarp
félagsmálaráðherra felur í sér er hins
vegar að lagt er til að stofnaðar verði
sex umdæmisstjórnir sem að hluta
til taki við verkefnum Húsnæðis-
stofnunar og húsnæðismálastjórnar.
Verða þessar umdæmisstjómir skip-
aðar fímm mönnum, tveim sem sam-
tök launafólks skipa, tveim sem
landshlutasamtök sveitarfélaga
skipa og einum frá ráðherra. í hönd-
um þessara umdæmisstjóma verður
m.a. almenn ráðgjöf og þjónusta við
fólk, úthlutun einstakra lánveitinga
til sveitarfélaga innan umdæmisins
innan þeirra marka sem húsnæðis-
Pressan:
Ritstjórar leyst-
ir frá störfum
RITSTJÓRAR Pressunnar voru í
gær leystir frá störfum að eigin
ósk en Blað hf., sem gefur út Al-
þýðublaðið og Pressuna, sagði upp
ritsljórum og blaðamönnum
Pressunnar síðastliðinn Fóstudag.
Hins vegar tók stjórn Blaðs hf.
ekki til greina ósk blaðamanna
Pressunnar um að verða leystir
strax frá störfum.
Jónina Leosdóttir, sem leyst var
frá störfum sem ritstjóri Pressunnar
í gær, ásamt Ómari Friðrikssyni,
segist harma að ósk blaðamanna á
Pressunni um að verða leystir strax
frá störfum, hafi ekki verið tekin til
greina. Jónína sagði að á fundi með
stjórn Blaðs hf. í gær hefði verið
iögð áhersla á að blaðamenn Press-
unnar fengju að vita ekki síðar en í
lok þessarar viku hvort þeir yrðu
endurráðnir.