Morgunblaðið - 04.09.1990, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1990
September
- Septem
________Myndlist_____________
Bragi Ásgeirsson
Það er mikil og merk sýning, sem
þessar vikurnar er uppi á Kjarvals-
stöðum og er úttekt á September-
hópnum svonefnda, sem starfaði frá
1947-52 og framhaldi hans Septem,
sem nú lýkur starfsemi sinni er
hófst 1974.
Septembersýningamar urðu
aldrei fleiri en fjórar, enda var und-
iraldan stríð- í hópnum, en hins veg-
ar tókst Valtý Péturssyni með
hörku sinni og dugnaði að gera
sýningar Septem-hópsins að árviss-
um viðburði.
Síðasta sýningin 1988 var helguð
Valtý og sýningin í ár er hin síðasta,
enda virðist vanta drifkraftinn í
hópinn eftir að hann féll frá sbr.
að engin sýning var haldin á sl. ári.
Segja má, að Septemberhópurinn
hafi átt það sammerkt með hinum
nafnkennda Cobra listhóp að starfa
stutt, en hafa þeim mun meiri áhrif
og vekja meira umtal og athygli,
en andstætt við Cobra hópinn þá
héldu þeir ekki áfram að þróa og
dýpka myndmál sitt, heldur breytt-
ist list þeirra flestra í takt við nýja
strauma að utan.
Astæðuna má í senn telja ein-
angrunina og svo, að þróun þeirra
var á annan veg, átti ekki jafn djúp-
ar rætur í hefðinni og því var niður-
rif fyrri gilda með nokkuð öðrum
hætti.
Hvað Cobra meðlimina snerti, þá
breyttist myndmál þeirra furðulítið
í tímans rás og ganga margir ennþá
út frá upprunalegum grímuformum
svo og frjálslegri mótun forma í
ætt við list barna og frumstæðra.
Enginn talar þó um endurtekn-
ingar í skrifum sínum um list þeirra,
enda er ekki um slíkt að ræða,
heldur þróun ákveðinna hugmynda
og myndstfls.
Greinarhöfundur fylgdist með
öllum Septembersýningunum í
gamla daga og hefur fjallað um
allar fímmtán undangengnar
Septem-sýningar hér í blaðinu,
nema að hann hafí einhvem tímann
verið í útlandinu, er þær bar að,
svo að hann ætti að vera vel kunn-
ur þessum listamönnum. Jafnframt
fylgdist hann grannt með þróuninni
hjá samherjum þeirra í Kaup-
mannahöfn á námsárum sínum
1950-52, en þá voru þessi viðhorf
í miklum blóma þar í borg, þótt
langt væri í það, að þau hefðu hlot-
ið viðurkenningu. Skoðaði t.d. allar
sýningar í Trefoldigheden, sem var
skáli abstraktmálaranna í nágrenni
Oslo Plads og Nybodeme.
Líti maður svo til baka, þá vom
þetta merkileg ár, mikilla sviptinga
°g getjunar, en því skal ekki neit-
að, að mikil harka var í mönnum
og á tímabili einsýni, sem á ekki
skylt við neitt annað en svörtustu
íhaldsemi. Það á amk. ekkert skylt
við fijálslyndi, eins og glöggt hefur
komið fram í Austur-Evrópu á
síðustu mánuðum, að halda fram
einni stefnu fram yfír allar aðrar
og gera það af ósveigjanleika og
óbilgimi.
Septembermenn og abstrakt-
málarar útlandsins lentu því seinna
ekki síður í andstöðu við nýjar hrær-
ingar en fyrirrennarar þeirra og
voru jafnvel á stundum ennþá harð-
ari í dómum sínum um framúr-
stefnulistir dagsins en þeir.
Menn mega vera minnugir þess,
að gerð var hörð ómerkingarhríð
að Septem-sýningunum af seinni
tíma núlistamönnum og handbend-
um þeirra.
En engin ein gild stefna í listum
er annarri æðri eins og fram hefur
komið, og fyrri tíma óhlutlægir
málarar hafa flestir ræktað sinn
garð á bak við tjöldin, hvað sem
því leið sem var efst á baugi í há-
borgum listanna. Það eru og ein-
mitt þeir, sem eru svo áberandi og
nafnkenndir í dag eftir að hafa
verið í skugga hugmyndafræði svo-
nefndra nýlista um langt skeið.
Skrifstofutækni er markvisst nám þar sem þú
lærir tölvugremar, viðskiptagreinar og tungu-
mál í skemmtilegum félagsskap. Sérstök
áhersla er lögð a notkun tölva í atvinnulífínu.
Námið tekur 3-4 mánuði og að því loknu
útskrifast nemendur sem slaifstomtæknai
Vandað nám og námsgögn sem hafa verið að
þróast síðastliðin 4 án Reyndir leiðbeinendur.
Sjón er sögu ríkari. Komau til okkar í Borgar-
tun 28 og líttu á aðstöðuna og námsgöenin eða
hringdu í síma 687590 og fáðu sendan bælding.
Innritun er hafin.
Ama Botg
xitari forstjóra
á Hrafnistu:
mga i að
laera aö
nbta PC-
Ijöijreytni skrif-
stofutaebmmar réði
því að ég settist á
daáahekk hjá TSvu-
skóla Reykjavílair og
svo ldst mér ljómandi
vd á skólarm.
Nándð var alit hið
gagnkgasta og mjflg
gaman aö setjast
Stur á skólabekk.
• •
É TOLUUSKOLI REVKJflWHUR
BORGARTÚNI 28 S:687590
Gríma — Verk eftir Valtý Pétursson.
Allt þetta er mikilvægt að athuga
við skoðun sýningarinnar að Kjar-
valsstöðum, því að fram kemur ein-
mitt að flestir meðlima samtakanna
fara mjög að dýpka listrænan
þroska sinn, er þeir taka upp sam-
felld vinnubrögð og hætta að eltast
við nýjungamar að utan, gerast
íhaldsamir, en á þann veg að það
losar einmitt um athafnafrelsi
þeirra á myndfletinum og almennan
tjákraft.
Allir, sem með myndlist fylgjast
hérlendis, vita hve hart var deilt á
Septembersýningamar í gamla
daga og aðra þá sem aðhylltust
sértæka listtúlkun. En það merki-
lega við þetta er að sjaldnast var
njögulegt að nefna þessa menn
hreina abstrakt-málara, því að þeir
studdust mjög við þekkjanleg fyrir-
bæri úr hlutveruleikanum. En með-
ferð þeirra á viðfangsefninu var
önnur og óhlutlægari en áður hafði
sést hér á landi og í því fólst um-
byltingin.
Sértæku málverkin lutu þó fyrir
margt sömu fagurfræðilegu lög-
málum og þau hlutlægu hvað upp-
byggingu forma og lita snerti svo
og myndrænt innsæi. Þannig em
mörg óhlutlæg málverk mun mark-
vissari í byggingu en þau hlutlægu
og á það bæði við um strangflata-
listina (geometríuna) og bygginga-
fræðilegu listina (konstmktivism-
ann).
Löngu hefur komið fram, að deil-
urnar voru um margt á misskilningi
byggðar, enda var almennur hugs-
unarháttur stærra atriði en mynd-
ræn lögmál og þannig vom sumir
málaranir jafnvígir á óhlutlæga list
sem hlutlæga sbr. Picasso, Picabia,
Hélion o.fl.
En satt að segja voru talsmenn
beggja jafn ósveigjanlegir og töldu
þá svikara sem bmgðu út af „réttri
stefnu“ og þannig voru þessir þrír
litnir hornauga af mörgum hrein-
trúarsinnum og jafnvel fordæmdir
og þá vel að merkja fyrir mynd-
rænt fijálslyndi sitt!
Þessar stríðandi fýlkingar eiga
þannig í ljósi þróunarinnar meira
sameiginlegt en þeim hefði nokkum
tíma dottið í hug eða viljað viður-
kenna.
Þannig er rökfræði tímans eins
konar æðsti dómstóll, hæstiréttur
og staðfestir vissulega þann forna
framslátt, að tíminn einn sker úr
um gildi listaverka.
Einkennandi var vissa ýmissa um
óskeikulleika og gildi hins nýja svo
að jaðraði við sértrúarbrögð, og að
hið eldra skyldi brennt og allra
helst sprengt í loft upp! Einsýnin
var svo mikil, að t.d. hinn mikli
danski myndhöggvari Robert
Jacobsen, sem dvaldi hafði í París
í 15 ár, ákvað þá fyrst fímmtugur
að aldri (1960) að skoða Louvre-
safnið með vini sínum franska mál-
aranum og rökfræðingnum Jean
Deyrolle, en sá hafði mun meiri
skilning á þeirri list fortíðarinnar,
sem það safn hefur að geyma.
Það eitt segir heilmargt um hugs-
unarhátt tímanna.
Hið mikilvægasta við þessa út-
tekt að Kjarvalsstöðum er kannski
ekki sýningin sjálf heldur hvernig
búið er að henni, en gefín hefur
verið út vegleg sýningarskrá, ríku-
lega myndskreytt og með ýmsum
heimildum um fortíðina. Mun það
vera gert með fulltingi Menningar-
málanefndar Reykjavíkurborgar,
sem þar hefur unnið gott og nyt-
samt verk, því að satt að segja eru
heimildir um hinar 15 sýningar
Septem-hópsins harla litlar vegna
hve lítið var hugað að því atriði.
Hins vegar voru sýningarskrár
Septembersýninganna forðum
Undirbúningur að borg-
aralegri fermingu
Á HÁIJSTI komanda hefst undirbúningur að borgaralegri ferm-
ingu í þriðja sinn. Alls hafa 26 ungmenni verið fermd síðastliðna
tvo vetur og nokkru fleiri sótt námskeiðin. Ráðgert er að hefja
starfið nú með ferðalagi í einn til tvo daga.
Síðan tekur við námskeið með
svipuðu sniði og verið hefur. Er
það einu sinni í viku í um 15 skipti
og verða eftirtalin efni rædd m.a.:
Siðfræði, lífsskoðanir, samskipti
foreldra og unglinga, réttur ungl-
inga í samfélaginu, jafnrétti,
mannréttindi, samskipti kynjanna,
friðarmál, umhverfismál og vímu-
efni.
Lögð er áhersla á að fá sem
hæfasta fyrirlesara um þessi efni.
Jafnframt er hvatt til skoðana-
skipta af hálfu unglinganna að
fyrirlestri loknum. Þátttakendur
greiða námskeiðsgjald. Ungmenn-
in og aðstandendur þeirra sjá um
að skipuleggja fermingarathöfn-
ina í samráði við undirbúningshóp.
Öll ungmenni fædd 1977 og fyrr
geta tekið þátt í námskeiðinu og
síðan ákveðið hvort þau vilja ferm-
ast.
Áhugafólk um borgaralegar at-
hafnir stofnaði í febrúar sl. með
sér samtök sem nefnast Siðmennt
og hafa þau veg og vanda að nám-
skeiðshaldinu nú.
Vegna skipulagningarinnar er
mikilvægt að fá sem fyrst nokkra
mynd af þeim fjölda sem verður á
námskeiðinu og því er þeim sem
hafa áhuga eða vilja skrá sig bent
á að hafa samband við Hope
Knútsson sem einnig veitir nánari
upplýsingar.
(Úr fréttatilkynningu frá Siðmcnnt.)