Morgunblaðið - 04.09.1990, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1990
T
DÓMKIRKJAN
í REYKIAVÍK
Kuhmo-rallmótið:
Krislján Jónsson frá
Snorrastöðum látinn
KRISTJÁN Jórisson frá Snorra-
stöðum Hnappadalssýslu lést
föstudaginn 31. ágúst sl. á 94
aldursári.
Kristján gegndi ýmsum trúnað-
arstörfum fyrir hérað sitt. Hann
var alla tíð ungmennafélagshug-
sjóninni trúr og sat í stjómum
ungmennafélagsins Eldborgar og
Héraðssambands Snæf. og
Hnappadalssýslu um áratuga
skeið. Hann var í áfengisvama-
nefnd í fjölda mörg ár og mikill
áhugamaður um áfengisvamir.
Hann bar hag íslenskrar tungu
mjög fyrir bijósti og var einn af
heimildarmönnum Orðabókar Há-
skóla íslands í áratugi.
Kristján sinnti ýmsum fræði-
störfum til æviloka. Hann var
fæddur á Snorrastöðum og bjó þar
alla tíð ásamt bróður sínum Svein-
birni Jónssyni kennara og oddvita
og konu hans Margréti Jóhannes-
dóttur.
Síðustu æviárin dvaldi Kristján
á Dvalarheimili aldraðra, Borgar-
nesi.
Kristján Jónsson
Allt búið. Jón Ragnarsson og Halldór Jóhannesson viðgerðarmaður
í þungum þönkum eftir að hafa tapað rallinu á síðustu stundu. Dýr
yfirhalning á vél bílsins í Englandi fyrir keppni reyndist dýrkeypt
og handvömm þarlends fyrirtækis kostaði þá öruggan sigur.
að síður. Viðgerðarliðið skoðaði
vélina, en ekkert fékkst að gert.
Við héldum þá til baka með vélina
fretandi, en 5 km síðar fór olíu-
þiýstingurinn og þá var ekkert
annnað að gera en drepa á vélinni.
Rallið því búið.“
„Vélin bilaði vegna mistaka í
Englandi. Ég sendi vélina í dýra
yfirhalningu fyrir keppnina, en hún
kom til baka með lélegri hedd-
pakkningu. Það kom strax í ljós í
byijun keppninnar, en við reyndum
að láta dæmið ganga upp engu að
síður,“ sagði Jón Ragnarsson. Rall-
ið varð því þeim feðgum kostnaðar-
samt og sem dæmi má nefna að
þeir höfðu spænt upp 35 sóluðum
dekkjum á leið í toppsætið. Hedd-
pakkningin léiega var því dýrkeypt.
En sigurvegararnir, Ólafur og
Halldór, fóru framúr biluðum bíl
feðgana og óku áhyggjulaust til
endamarks. „Við vorum orðnir von-
litlir um sigur fyrir síðasta daginn.
Við höfðum ekið stíft en áhættu-
laust, en héldum okkur nógu ná-
lægt toppunum til að ná forystu
við óhapp eða bilanir. Það var hins-
vegar sárt fyrir feðgana að tapa
svona á endasprettinum eftir frá-
bæran akstur Rúnars,“ sagði Ólafur
Siguijónsson.
„Við fórum á fullu af stað, en
fundum að við vorum ekki í nægi-
legri þjálfun til að veita mótspymu,
ákváðum því að fylgja í kjölfarið. Á
endanum var það herbragð sem
virkaði. Leiðirnar voru skemmtileg-
ar, þó fannst mér Kjalvegur full
hættulegur, en Djúpavatnsleið hins-
vegar einstök rallleið. Keppnin var
mjög erfið en skemmtileg," sagði
Ólafur.
Lokastaðan í Kuhmo-rallinu:
1. Ólafur Siguijónsson/Halldór
Siguijónsson, Talbot 5:11,02
2. Þröstur Reynisson/Viktor
Sigurðsson, Escort 5:58,07
3. Jón E. Halldórsson/Birgir
Guðnason, Lanc'er 6:25,35
4. Pétur Guðjónsson/Magnús
Tryggvason, Escort 6:57,52
5. Phlip Goubert/Guðbjörn
Grímsson, Fiat 7:04,00
6. Úlfar Eysteinsson/Guðmundur
T. Gíslas., Camaro 7:44,57
- G.R.
Finnskar haustkápur,
þýskir ullarjakkar
v/Laugalæk, sími 33755.
Fríðjón Sveinbjömsson
sparísjóðsstjórí látínn
FRIÐJÓN Sveinbjörnsson spari-
sjóðsstjóri í Borgarnesi varð
bráðkvaddur 1. september
síðastliðinn, á æskuheimili sínu,
Snorrastöðum í Kolbeinsstaða-
hreppi.
Friðjón Sveinbjömsson var fædd-
ur 11. mars 1933, sonur Svein-
bjöms Jónssonar kennara á Snorra-
stöðum og Margrétar Jóhannsdótt-
ur. Friðjón bjó í Borgarnesi frá
tvítugsaldri og starfaði við Spari-
sjóð Mýrasýslu í 33 ár, þar af sem
sparisjóðsstjóri í 29 ár.
Friðjón sat í stjórn Sambands
íslenskra sparisjóða og var formað-
ur í 4 ár. Hann sat einnig í stjórn
Tryggingasjóðs sparisjóða. Friðjón
var forsvarsmaður Tónlistarfélags
Borgarfjarðar í 20 ár og var virkur
í kórstarfi. Hann starfaði mikið í
leikdeild ungmennafélagsins, og sat
í stjórn minningarsjóðs Guðmundar
Böðvarssonar skálds. Þá var Friðjón
fréttaritari Ríkisútvarpsins í fjölda
ára.
Friðjón Sveinbjömsson lætur eft-
ir sig eiginkonu, Björk Halldórs-
dóttur. Þau eignuðust þijár dætur.
Friðjón Sveinbjörnsson
Meistararnir nýttu
sér áfall feðganna
EF einhverntímann hefur komið
upp dramatískt atvik í rallkeppni
þá henti það í Kuhmo-alþjóðarall-
inu um helgina. Þegar aðeins 30
km af rúmlega 500 voru eftir á
sérleiðum missti feðgarnir Rúnar
Jonsson og Jón Ragnarsson af
sigri, þegar vélarbilun varð. Þeir
höfðu ekið snilldarvel alla keppn-
ina og náðu forystu á öðrum
degi af fjórum. Bræðurnir Olafur
og Halldór Siguijónssynir höfðu
fylgt þeim eins og skugginn, ekið
stíft en án áhættu. Þeir uppskáru
sigurlaunin á lokasprettinum og
unnu þv.í alþjóðarallið annað árið
í röð á Talbot Lotus.
Kuhmo-rall Hjólbarðahallarinnar
var rúmlega 1200 km og hófst um
miðja síðustu viku. Átján keppendur
lögðu af stað, en aðeins tveir erlend-
ir keppnisbflar voru með. Annar
þeirra, Fiat Uno Frakkans Philip
Gooubert, skilaði sér í endamark,
ásamt þeim fimm bílum öðmm sem
tókst að ljúka keppni. Strax í byij-
un annars dags féllu Ásgeir Sig-
urðsson og Bragi Guðmundsson á
Metro úr leik, þegar bfll þeirra fór
útaf á Kaldadal. Þá höfðu feðg-
amir Jón og Rúnar saxað verulega
Bæklingiir um Dóm-
kirkjuna gefínn út
DÓMKIRKJAN í Reykjavík hefur
gefið út litprentaðan bækling
með ágripi af sögu kirkjunnar
og lýsingu á kirkjuhúsinu og
gripum þess. Texti bæklingsins
er eftir sr. Þóri Stephensen, stað-
arhaldara i Viðey og fyrrverandi
dómkirkjuprest.
í bæklingnum er meðal annars
birt ný mynd af timburkirkjunni við
Aðalstræti, forvera kirkjunnar við
Austurvöll, eins og gizkað er á að
hún hafi litið út samkvæmt rituðum
heimildum, úttektum í biskupsvísit-
asíum. Rakin er stuttlega bygg-
ingarsaga Dómkirkjunnar og
stíleinkennum hennar lýst.
í bæklingnum er sagt frá lista-
verkum er kirkjuna prýða, altaris-
búnaði, skrúða og öðrum gripum
kirkjunnar. í ritinu er einnig að
finna upplýsingar um messutíma
og hvenær kirkjan er opin. Bækl-
ingurinn fæst í Dómkirkjunni og
kostar 100 krónur. Enn sem komið
er fæst hann aðeins á íslenzku, en
Forsíða bæklings um Dómkirkj-
una.
verið er að ganga frá enskri þýð-
ingu.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson.
Bræðumir Ólafur og Halldór Signrjónssynir frá Kelfavík óku af
öryggi alla keppni og unnu alþjóðarallið annað árið i röð.
á forskot þeirra og tóku við óhapp-
ið forystu í keppninni. „Við náðum
upp góðum akstri og samspili í
bílnum, sem skilaði góðum akst-
urstímum," sagði Rúnar í samtali
við Morgunblaðið. „Þegar við vorum
komnir með gott forskot ákváðum
við að aka af öryggi á leiðarenda.
Síðasta daginn var sigurinn í sjón-
máli og við ókum Dómadalsleið. Þá
kom eitthvað furðuhljóð úr vélar-
salnum, en við lukum leiðinni engu