Morgunblaðið - 04.09.1990, Síða 21

Morgunblaðið - 04.09.1990, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1990 21 BHMR-félagar reistu ríkisstjóm- inni níðstöng með þorskhausi STARFSEMI ríkisstofnana rask- aðist nokkuð í gær þegar á milli 300-400 félagar í aðildarfélögum BHMR söfnuðust saman fyrir utan launaskrifstofu ríkisins í gær- morgun og kröfðust skýringa á 4,5% launalækkun sem þeir urðu fyrir um nýliðin mánaðarmót vegna bráðabirgðalaga ríkis- stjórnarinnar. Fyrir utan stjórnar- ráðið reistu BHMR-menn rikis- stjórninni níðstöng með þorsk- hausi. Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðlierra hefur óskað eft- ir fundi með fulltrúum aðildarfé- laga BHMR til að ræða um saman- burð á kjörum háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna og þeirra sem hafa sambærilega menntun og vinna hliðstæð störf á almennum markaði. Sendinefnd aðildarfélaganna freistaði þess að ná fundum Ólafs Ragnars Grímssonar fjármálaráð- herra og Steingríms Hermannssonar. forsætisráðherra og fá skýringar þeirra á kjaraskerðingunni en emb- ættismenn í ráðuneytunum urðu fyr- ir svörum í fjarveru ráðherranna. Fyrir utan stjórnarráðið var svo- felld ályktun BHMR-manna til for- sætisráðherra lesin: „Félagsmenn í aðildarfélögum BHMR krefjast þess að þú dragir bráðabirgðalögin þegar til baka og efnir þann kjarasamning sem þú ásamt öðrum ráðherrum ríkisstjórnarinnar gerðir við starfs- menn. Við minnumst nú sérstaklega bréfa þinna frá fyrri árum með lof- orðum um leiðréttingu launa sem öll voru svikin Tímabil biekkinganna er liðið. Krafa okkar er: Samningana í gildi.“ BHMR-menn reistu síðan ríkis- stjórninni níðstöng fyrir utan stjórn- arráðið og í hádeginu var fjölmennur Morgunblaðið/Bjami Ólafur Karvel Pálsson, formaður aðgerðarnefndar BHMR, reisir ríkisstjórninni níðstöng á lóð stjórnarráðsins. MorgunblaOið/iSinar í'alur BHMR-félagar ijölmenntu í Templarahöllina í gær að lokinni athöfn við stjórnarráðið. Á fundinum var meðal annars ljallað um bréf Qár- málaráðherra til aðildarfélaga BHMR. Fremstan á myndinni má sjá Pál Halldórsson, formann BHMR. fundur BHMR-félaga í Templarahöll- inni. Stjórn Prestafélags íslands hefur lýst því yfir að hún harmi þann þátt í mótmælum aðildarfélaga BHMR að reisa níðstöng. í yfirlýsingunni segir að þessi ógeðfellda athöfn hafi komið stjóm Prestafélags íslands í opna skjöldu og hún firri sig allri ábyrgð á slíku athæfi. í bréfi sem íjármálaráðherra hefur sent forystumönnum aðildarfélaga BHMR harmar hann að nauðsynlegt hefði reynst að setja bráðabirgðalög 3. ágúst síðastlinn. í bréfinu segir jafnframt: „Það er skýr vilji ríkis- stjórnarinnar að haldið verði áfram til loka því starfi sem hafið er við samanburð á kjörum háskólamennt- aðra ríkisstarfsmanna og þeirra sem hafa sambærilega menntun og vinna hliðstæð störf en taka ekki laun sam- kvæmt launakerfi ríkisstarfsmanna.“ Birgir Björn Siguijónsson hag- fræðingur BHMR sagði að bráða- birgðalög giltu til 15. september 1991 um efni samnings BHMR. „Þess vegna er ekki ljóst hvað við- ræður geta haft upp á sig meðan þessi ríkisstjóm situr nema þá til þess að draga bráðabirgðalögin til baka. Eg átta mig því ekki á olnboga- rými ráðherrans til að semja,“ sagði Birgir Bjöm. Ljósmyndastofurnar : Barna- og fjölskyldumyndir Reykjavik sími: 12644 • Mynd Hafnarfirði simi: 54207 • . Ljósmyndastofa Kópavogs Sími: 43020 • Öllum okkar tökum fylgja tvær prufustækkanir 20x25 cm. Óbreytt verð í heilt ár Þú svalar lestrarþörf dagsins ásjdiim Moggans! y Fáanlegur með framhjóladrifi eða sítengdu aldrifi Ingvar Helgason hf. Sævarhöfða 2 sími 91-674000

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.