Morgunblaðið - 04.09.1990, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1990
23
Róttækar efnahagstillögur lagðar fyrir þing Rússlands:
Jeltsín boðar uppgjör við til-
skipanaveldi Sovétkerfísins
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, stærsta lýðveldis Sovétrílganna,
hvatti til þess í ræðu á þingi í gær að samþykkt yrði áætlun um
úrbætur á vettvangi efnahagsmála sem gera myndi að engu „ein-
ræði“ Sovétstjórnarinnar. Jeltsín veittist að Míkhaíl S. Gorbatsjov,
leiðtoga sovéskra kommúnista, og umbótastefnu hanns. Kvað hann
reynslu síðustu fimm ára hafa sannfært Rússa um nauðsyn þess að
horfið yrði frá miðstýrðu tilskipanaveldinu, sem kallað hefði örbirgð
og ömurleika yfir þjóðina
Jeltsín, sem er þekktasti leiðtogi
róttækra umbótasinna í Sovétríkj-
unum, og ívan Sílayjev, forsætis-
ráðherra Rússlands, lögðu báðir á
það áherslu í ræðum sínum á þingi
lýðveldisins í gær að þingheimur
samþykkti nýja áætlun um efna-
hagsumbætur.Áætlun þessari væri
ætlað að skapa grundvöll fyrir
fijálsu hagkerfi í Russlandi, sem
innleitt yrði á næstu 18 til 24 mán-
uðum. Sögðu báðir að ástæðulaust
væri að bíða eftir því að ráðamenn
í Kreml hefðu frumkvæði að slíkum
uppskurði á öllu hagkerfí Sovétríkj-
anna.
Sílayjev forsætisráðherra lagði
fram áætlun um fráhvarf frá mið-
stýrðu tilskipanakerfi, sem hópur
sérfræðinga, undir stjórn hagfræð-
Kanada:
Hermenn mættu engri
mótspyrnu Mohawk-
indíána við virkistöku
Montreal. Reuter.
KANADÍSKIR hermenn tóku
virki Mohawk-indiána í bænum
Oka í Quebec á sunnudag og
bundu þar með enda á 53ja daga
langa deilu sem spratt af fyrir-
hugaðri lagningu golfvallar við
bæinn. Þyrlur sveimuðu yfir 350
hermönnum þegar þeir tóku
virkið en um 40 vígamenn Mo-
hawk-indíána yfirgáfu virkið án
þess að veita hermönnum viðnám
og hurfu inn í skóginn.
Mikið spennuástand hefur ríkt
síðan 11. júlí þegar bæjaryfirvöld í
Oka tilkynntu að þau hygðust
leggja golfvöll á landi sem Mo-
hawk-indíánar telja heilagt. Indíán-
arnir reistu virki og einn lögreglu-
maður beið bana þegar lögreglulið
reyndi að framlylgja dómsúrskurði
um að rífa þau niður.
Deilurnar mögnuðust og indíánar
víða í Kanada reistu vega- og járn:
brautatálma til stuðnings Mo-
hawk-indíánum. Fyrir um tveimur
mánuðum breiddust deilurnar út til
Kahnawake-vemdarsvæðisins fyrir
sunnan Montreal, en Kahnawake-
indíánar féllust á miðvikudag á að
virki á landi þeirra yrðu tekin niður
friðsamlega. Talsmenn Kanadahers
sögðu á laugardag að herinn hefði
náð yfirráðum yfir Mercier-brúnni,
Reuter
Hermenn leita að sprengjum í
tálma sem Mohawk-indíánar
settu upp. Síðar (jarlægðu her-
mennirnir tálmann.
en um hana liggur ein af aðalum-
ferðaræðunum til Montreal, sem
Mohawk-indíánar hafa haldið og
ekki hleypt umferð á í sjö vikur.
Ríkissjóður Kanada hefur keypt
landið umdeilda af bæjaryfirvöldum
í Oka en ekki er enn ljóst hvað um
landið verður.
Svíþjóð:
Háttsettir lögreglu-
menn dregnir fyrir rétt
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunbla'ðsins.
SEX háttsettir lögreglumenn í Svíþjóð hafa verið dregnir fyrir rétt,
sakaðir um að bijóta landslög í tengslum við rannsóknina á morðinu
á Olof Palme forsætisráðherra 1986. Einn mannanna er Hans Holm-
er, sem var lögreglusljóri í Stokkhólmi og hafði yfirumsjón með
rannsókninni en var síðar settur af. Hann hyggst steinþegja við
réttarhöldin til að mótmæla því að notuð verða Ieynileg skjöl við
þau og nær útilokað að hindra að efni þeirra leki út.
Fyrrverandi yfírmaður sænsku
öryggislögreglunnar, Sápo, er með-
al ákærðra ásamt þremur næst-
æðstu undirmönnum sínum. Menn-
irnir eru ákærðir fyrir að hafa heim-
ilað ólöglegar hleranir, m.a. er
kannaðir voru möguleikar á þátt-
töku samtaka Kúrda og Palestínu-
manna í morðinu. Fyrrverandi yfir-
maður sænsku ríkislögreglunnar er
einnig á bekknum en allir vísa sak-
borningar ákærunum á bug. Þeir
segja ýmist að um neyðarrétt hafi
verið að ræða ög áthæfið því ekki
ingsins Staníslavs Shatalíns, lauk
við í síðustu viku. Tillögur þessar
voru ræddar á fundum þeirra
Jeltsíns og Míkhaíls S. Gorbatsjovs,
í síðustu viku. Gorbatsjov kvaðst
þá telja áætlunina viðunandi ef tek-
in yrðu upp ákveðin atriði úr ann-
arri efnahagsáætlun sem unnin var
á vegum Sovétstjórnarinnar og Nik-
olajs Ryzhkovs forsætisráðherra.
Jeltsín lýsti hins vegar yfir því á
laugardag að málið þyldi enga bið
og hvatti til þess að þing Rússlands
samþykkti tillögur Shatalíns. Þær
munu m.a. gera ráð fyrir því að
ríkisfyrirtæki verði seld hið fyrsta
og að tilskipanaveldið verði fært
úr höndum embættismannakerfis-
ins í Moskvu. Þannig munu yfirvöld
í Sovétlýðveldunum 15 fá vald til
að ákvarða skattheimtu og móta
stefnu á sviði félags- og landbúnað-
armála. Sagði Jeltsín að áætlanirn-
ar tvær væru ósamrýmanlegar og
kvaðst hlynntur því að áætlun Ryz-
hkovs yrði varpað fyrir róða. Jafn-
framt krafðist Jeltsín afsagnar Ryz-
hkovs forsætisráðherra. Tillögum
Shatalíns var dreift á þingi Rúss-
lands í gær og þykir líklegt að
greidd verði um þær atkvæði í
næstu viku.
í ræðu sinni í gær gerði Jeltsín
hagstjórn Gorbatsjovs að umtals-
efni. Sagði hann sovéska kommún-
istaflokkinn hafa lagt efnahagslíf
Rússlands í rúst. Fátækt væri al-
menn í lýðveldinu og lífskjörin
versnuðu sífellt. Móta þyrfti nýja
stefnu hverrar markmið væri end-
urreisn Rússlands og frelsun þjóð-
arinnar undan alræði Sovétstjórnar-
innar.
Dúett úr
The Dubliners
frá írlandi
miúvikudaa, fimmtudag, fdstudag og laugardag.
Húsið opnað kl. 18.00.
Nýi íiskur matseúill á írsku verði.
Miðaverð eftir kl. 21.00 aðeins kr. 500,-.
OLVER
refsivert ellegar þeir hafi ekki vitað
neitt um áðurnefndar hleranir.
Gera má ráð fyrir því að ekki
hefði komið til þessara réttarhalda
ef yfirvöldum hefði heppnast að
finna morðingja Palme. Holmer
hefur krafist þess að málið verði
látið niður falla af tilliti til öryggis
ríkisins og hefur ákærandinn í
málinu farið fram á að 46 af 51
vitni verði yfirheyrt fyrir luktum
dyrum. Buist er við að réttarhöldin
vari f þijá mánuði. -----
XAFTRAR-
v im i i\rin
STARFIÐ
UFP.QT 10 fíFPT
I I Iml I I W ■ Vkil I ■
INNRITUN í ALLA FLOKKA HAFIN
★ Líkamsrækt og megrun fyrir konur á öllum aldri
★ Kúrinn 28 + 7
★ Morgun-, dag- og kvöldtímar
★ Rólegirtímar
★ Lokaðirflokkar (framhald)
★ Púltímar fyrir ungar og hressar
★ „Lausirtímar" fyrirvaktavinnufólk
NÝTT
■ÍÝTT
Sér flokkar fyrir 17-23 ára
f kúrinn
28+7
Suðurveri,
s. 83730
Hraunbergi,
s. 79988