Morgunblaðið - 04.09.1990, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1990
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Búseti byggir raðhúsíbúðir
Heimir Ingimarsson formaður húsnæðissamvinnufélagsins Búseta á Akureyri tók fyrstu skóflustunguna
vegna framkvæmda við byggingu tíu raðhúsíbúða í Giljahverfi. í húsinu verða fjórar þriggja herbergja
íbúðir, fjórar fjögurra herbergja og tvær fimm herbergja. Búseti hefur gert samning við SS-Byggi um
byggingu íbúðanna og eiga þær að vera tilbúnar til afhendingar 1. nóvember á næsta ári. „Eg vona að þetta
sé lítill áfangi að stórri framtíð. Ég hef þá trú að þetta fyrirkomulag í húsnæðismálum sé komið til með
að vera,“ sagði Heimir.
Fjórðungssamband Norðlendinga:
Ingunn St. Svavarsdóttir
kjörin formaður sljórnar
Fjórðungsþing Norðlendinga á Sauðárkróki:
- segir Jón Þórðarson deildarsljóri í Háskólanum á Akureyri
INGUNN St. Svavarsdóttir odd-
viti á Kópaskeri var kjörin for-
maður stjórnar Fjórðungssam-
bands Norðlendinga á þingi þess
sem haldið var á Sauðárkróki um
helgina.
Varaformaður var kjörinn Hilm-
ar Kristjánsson á Blönduósi, en
aðalmenn úr Norðurlandskjördæmi
vestra voru kjörnir þeir Jóhannes
Björnsson á Laugabakka og Knútur
Aadnegard, Sauðárkróki. Sigríður
Stefánsdóttir, Akureyri, var kjörin
aðalmaður í stjórn úr Norðurlands-
kjördæmi eystra.
Á þinginu var kosin sérstök
nefnd sem gera á tillögur um verk-
efni og starfshætti sambandsins,
en í henni eiga sæti þeir Valgarður
Hilmarsson, Húnavatnssýslu, Björn
Sigurbjörnsson, Skagafjarðar-
skýslu, Bjarni Kr. Grímsson, Eyja-
fjarðarsýslu, og Björn Guðmunds-
son, Þingeyjarsýslu. Auk þeirra
mun stjórnin skipa einn mann í
nefndina á fyrsta fundi sínum.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Frá þingi Fjórðungssambands Norðlendinga sem haldið var á Sauðárkróki um helgina. Aðalmál þings-
ins var umhverfísmál og einnig var á dagskránni umræðufundur sem bar yfirskriftina: Snúum vörn í
sókn — Norðurland á tímamótum. Umræður á þeim fundi snérust að mestu um staðsetningu nýs álvers
á íslandi.
Spurningin væri því sú, hvar þessum
störfum yrði sinnt í framtíðinni. „Það
eina sem dugar til að stoppa fólks-
strauminn til Reykavíkur er að fá
þjónustuna út á landi, það er það sem’
við þurfum,“ sagði Jón. Hann nefndi
háskóla sem dæmi, en á þeim aldri
sem fólk stundar háskólanám, á milli
20-30 ára, væri það jafnframt að
stofna ijölskyldur og því mestar líkur
á að það héldi sig á þeim stað þar
sem það þegar væri búið að koma
sér fyrir. „Við vonum að höfuðáhrif
Háskólans á Akureyri verið einmitt
þau að okkar nemar setjist að hér í
byggðalaginu."
Allir staðirnir þrír koma
enn til greina
Það voru einkum þingmenn kjör-
dæmanna tveggja á Norðurlandi sem
þátt tóku í almennum umræðum að
loknum framsöguerindum og Pálmi
Jónsson alþingismaður gerði harða
hríð að iðnaðarráðherra. Hann sagði
að skort hefði á að yfírskrift fundar-
ins væri sómi sýndur og ráðherra
hefði ekki á neinn hátt komið inn á
tímamót í málefnum Norðlendinga.
Hann sagði ekki úr vegi að spyija
ráðherra hvort framundan væru
tímamóti í atvinnumálum Norðlend-
inga; búið væri að ýta undir vænting-
ar manna bæði fyrir norðan og aust-
an hvað varðaði staðsetningu álvers,
glæddar hefðu verið með mönnum
vonir og það leiddi til þess að enn
áhrifaríkara yrði en ella hver niður-
staðan yrði.
Halldór Blöndal alþingismaður tók
í sama streng og kvaðst hafa vænst
þess að gleggri upplýsingar hefðu
komið fram á fundinum um álmálið.
Þrálátur orðrómur væri í gangi um
að Eyjafjörður og Reyðarfjörður
kæmu ekki til greina lengur og finna
mætti ibrennandi kvíða í bijóstum
manna í kjölfar hans. Guðmundur
Bjarnason heilbrigðisráðherra taldi
upp ókosti þess að þjappa sífellt
fleiri fólki saman á tiltölulega litlu
svæði og kvaðst hann vonast til þess
að þegar ályeri yrði valinn staður
yrðu þrengstu byggðahagsmunir
Suðurnesjamanna ekki efstir í huga
manna. Hann sagði Eyjafjarðar-
svæðið hafa alla burði til að taka við
verulegum fólksfjölda til viðbótar án
þess að mikil uppbygging þyrfti að
koma tii.
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra
fullyrti á þinginu að allir staðirnir
þrír, Keilisnes, Eyjafjörður og Reyð-
arfjörður kæmu enn til greina. „Allir
staðirnir þrír eru enn inn á borðinu,
Nprðurland er ekkert horfið.“
Kaffibrennsla
Akureyrar:
Nýr fram-
kvæmdasljóri
ÚLFAR Hauksson hefur verið
ráðinn framkvæmdasljóri
Kaffibrennslu Akureyrar hf. og
tekur hann til starfa í október.
Úlfar er 38 ára og viðskipta-
fræðingur að mennt. Hann starf-
aði hjá Akureyrarbæ á árinu
1977-1988 en síðustu tvö árin
hefur hann verið fjármálastjóri hjá
ístess hf.
Úlfar er kvæntur Hólmfríði
Andersdóttur og eiga þau tvö
börn.
ar og sagði m.a. að í kapphlaupinu
um hagkvæmnina yrði óneitanlega
byggðaröskun. Áður hafi verið hægt
að róa frá ýmum útræðum á árabát-
um, en nú hefðu blómlegar verstöðv-
ar lagst af. Fólk vildi hafa ákveðna
þjónustu í kringum sig og gerði það
óneitanlega að verkum að huga
þyrfti að samdrætti og samþjöppun
byggðar. Spurningin væri hÝort íbú-
ar flyttu milli staða, eða hvort þeir
gætu búið áfram þar sem þeir þegar
búa, en sótt þjónustuna á viðráðan-
legu verði þangað sem hún er veitt.
„Eg spái því að innan 10 ára verði
komið á íslandi öðruvísi mynstur
byggðar en er í dag,“ sagði Bjarni.
Ráðstefnuhúsnæði byggt í
stað hafnar
Helena Dejak framkvæmdastjóri
ferðaskrifstofunnar Nonna á Akur-
eyri ræddi um ferðamál og sagði
þjónustu við ferðamenn yera eina
efnilegustu kvígu í fjósi íslendinga
um þessar mundir. Hreint og
ómengað land, friðsæl og óspillt nátt-
úra væri sú ímynd sem verið væri
að selja útlendingum en spyija mætti
hvort verið væri að selja svikna vöru,
því víða væri pottur brotinn í um-
hverfismálum. Þá nefndi hún að allt-
of stór hluti ferðamanna kæmi á
vegum erlendra ferðaskrifstofa og
lagði til að virkar markaðsskrifstofur
yrðu settar upp í útlöndum sefti skili
þannig peningum heim.
Stóran möguleika varðandi upp-
byggingu ferðaþjónustu á Norður-
landi, sagði Helena vera ráðstefnu-
hald. Það sem ef til vill helst vantaði
fyrir norðan svo halda mætti stórar
ráðstefnur væri viðunandi húsnæði.
„Segjum svo að álver komi ekki norð-
ur. Væri það þá nokkuð vitlaust ef
þeim 4-500 milljónum, sem sveitarfé-
lögin á Eyjafjarðai’svæðinu hyggjast
leggja í hafnargerð þess vegna, yrði
varið í að byggja fullkomna ráðstef-
numiðstöð á Akureyri?“ spurði He-
lena.
Þjónustuna út á landsbyggðina
Jón Þórðarson deildarstjóri við
Háskólann á Akureyri ræddi um
byggðaþróun og á hvern hátt unnt
væri að sporna við fólksflótta til
Reykjavíkur og sagði það eina sem
dygði í þeim efnum væri að flytja
þjónustuna út á landsbyggðina.
Hann sagðist gera ráð fyrir að at-
vinnuþróun yrði með svipuðum hætti
hér á landi og í hinum Norðurlöndun-
um. Það þýddi að veruleg fækkun
ætti eftir að verða í undirstöðuat-
vinnugreinum, en fjölgunin yrði í
opinberri starfsemi og þjónustu.
STAÐSETNING nýs álvers var aðalumræðuefnið á umræðufundi sem
haldinn var á þingi Fjórðungssambands Norðlendinga á laugardag.
Yfirskrift fundarins var: Snúum vörn í sókn — Norðurland á tímamót-
um. Frummælendur voru fjórir, Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra,
Bjarni Kr. Grímsson bæjarstjóri í Ólafsfirði, Helena Dejak fram-
kvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar Nonna og Jón Þórðarson deildar-
stjóri við Háskólann á Akureyri. í almennum umræðum að loknum
framsöguerindum var greinilegt að staðsetning álvers brann heitast á
mönnum.
Jón Sigurðsson iðnaðan'áðheira
sagðist í upphafi ræðu sinnar vita að
í salnum væru sladdir menn sem
vildu að hann tæki af skarið um það
að hið nýja álver sem verið væri að
semja um yrði reist við Eyjafjörð.
„Það ætla ég ekki að gera,“ sagði
Jón, enda samningum um staðsetn-
ingu álvers og raunar ýmis önnur
atriði. álmálsins ekki lokið enn. Útlit
væri hins vegarfyrir að samkomulag
tækist um meginatriði álsamning-
anna í þessum mánuði.
Iðnaðarráðherra sagði að huga
þyrfti að fleiri atriðum en orkufrekri
stóriðju, hún væri ekki allsheij-
arlausn í atvinnumálum íslendinga.
Farsælast taldi hann að stjórnvöld
einbeittu sér að því að skapa al-
menna umgjörð um atvinnulífið, þar
sem framtak, dugnaður og forsjálni
einstaklinga fengi notið sín. Hann
lagði á það áherslu að hvar svo sem
álverið yrði reist myndi það efla at-
vinnu í landinu öllu og gæti orðið
lyftistöng fyrir atvinnulíf í byggða-
lögum fjarri álversstaðnum. „Það er
mikið í húfi að sundurlyndi í stjóm-
málum og rígur milli landshluta komi
ekki í veg fyrir að við nýtum kosti
landsins alls þjóðinni tii farsældar.
Við þurfum að nýta auðlindir lands
og sjávar með almannaheill fyrir
augum en ekki út frá. þröngum
by ggð asj ó n arm i ð u m. “
Oðruvísi mynstur byggðar
eftir 10 ár
Bjarni Kr. Grímsson bæjarstjóri í
Ólafsfirði ræddi í sínu erindi um
hvert fískveiðar og framleiðsla sjáv-
arafurða stefndu með tilliti til byggð-
FSA:
4.000 töflum af
diazepam stolið
Rannsóknarlögreglan á
Akureyri handtók fyrir helgi
mann sem brotist hafði inn í
Iyljageymslu Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri og
stolið þaðan 4.000 töfium af
lyfinu diazepam.
Lyfjageymslan er á neðstu
hæð nýbyggingar sjúkrahúss-
ins og komst maðurinn inn með
því að spenna upp opið glugga-
fag. Maðurinn tók síðan hurð
af lömum lyfjageymslunnar,
þar sem hann lét greipar sópa,
en hann virtist einungis hafa
áhuga á þessari tilteknu lyfja-
tegund.
Maðurinn hefur viðurkennt
stuldinn og skilað töflunum.
Það eina sem stöðvar fólksflóttann
er að flytja þjónustuna út á land