Morgunblaðið - 04.09.1990, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 04.09.1990, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1990 35 Keflavíkurflugvöllur - áfangastaður í innanlandsflugi eftir Skúla Þ. Skúlason Þrátt fyrir gríðarlegan kostnað við byggingu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar var ekki gert ráð fyrir því í hönnun flugstöðvarinnar að innanlandsflug kæmi til með að rúmast á svæðinu. Þó svo að aðeins séu tæpir 50 kílómetrar til Reykjavíkur frá Keflavík tel ég að Keflavíkurflugvöllur ætti sem fyrst að verða áfangastaður í innanlands- flugi og jafnvel miðstöð innanlands- flugsins. Aðstaða er góð Öll aðstaða við Keflavíkurflug- völl er eins og best verður á kosið. Þar er einn af fáum flugvöllum Evrópu sem opinn er allan sólar- hringinn fyrir flugumferð. Öryggis- þjónusta er til fyrirmyndar. Þar er starfandi almannavarnanefnd sem stendur fyrir reglulegum og kerfis- bundnum æfingum, t.d. við björgun slasaðra, slysagreiningu og fleiri þætti. Slökkvilið Keflavíkurflug- vallar er margverðlaunað fyrir starfsemi sína og gott skipulag. í nóvember 1989 var jafnframt tekin í notkun ný slökkvistöð skammt frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Skipu- lag þjónustusvæðis umhverfis flug- stöðina hefur þegar verið gert og er þar tekið tillit tii þeirrar stað- reyndar sem staðsetning íslands er, milli stærstu markaða heims. Jafn- framt tekur skipulag svæðisins tillit til nýrra atvinnugreina sem tengj- ast fluginu. Auk ofangreindrar þjónustu hef- ur Póstur og sími aðsetur í Flug- stöðinni og Landsbanki Islands sömuleiðis. í Keflavík og Njarðvík eru síðan glæsileg hótel og öll al- menn þjónusta. Samkeppnisaðstaða þarf að styrkjast Að mínu viti eru það einnig sterk rök í málinu að reyna með öllum ráðum að bæta samkeppnisaðstöðu íslensks útflutningsiðnaðar. Það mætti stytta leiðina að mörkuðum Evrópu og Ameríku fyrir fyrirtæki á landsbyggðinni. Framleiðslufyrir- tæki á landsbyggðinni eru háð land- flutningum, oft um langa vegu, í millilandaflugið. Þessa leið er hægt að stytta mjög ef Keflavíkurflug- völlur yrði áfangastaður í innan- landsflugi eða jafnvel miðstöð inn- anlandsflugsins. Auk þess eru það rök í málinu að stór hluti flugumferðar fólks af landsbyggðinni til Reykjavíkur er vegna áframhaldandi ferðalaga til útlanda, ýmist vegna viðskiptaferða eða ferðalaga fjölskyldunnar. Því er það mjög til hægðarauka fyrir það fólk eða geta flogið innanlands til Keflavíkurflugvallar og síðan þaðan til útlanda. Og þó svo að einhver bið yrði eru hótel og öll þjónusta skammt frá eða við Flug- stöð Leifs Eiríkssonar. Staðsetning til vandræða Reykjavíkurflugvöllur hefur ver- ið miðstöð innanlandsflugs og þjón- ustuflugs (sjúkraflugs, landhelgis- gæslu og fleira) síðan á stríðsárun- um. Enda byggði breski herinn flugvöllinn upp á þeim tíma, þrátt fyrir mótmæli þáverandi bæjar- stjórnar. 1978 gerði borgarskipulag ráð fyrir því að íbúðarbyggð myndi rísa í Vatnsmýrinni en borgaryfir- völd hafa ákveðið að flugvöllurinn verði áfram á sínu svæði a.m.k. til 2004. Skúli Þ. Skúlason „Öll aðstaða við Keflavíkurflugvöll er eins og best verður á kosið. Þar er einn af fáum flugvöllum Evr- ópu sem opinn er allan sólarhringinn fyrir flugumferð." Hætta sökum nálægðar við íbúabyggð Stigvaxandi vandi og óánægja hefur skapast vegna staðsetningar Reykjavíkurflugvallar. Litlir mögu- leikar eru til að stækka flugvöllinn og aukin umferð síðari ára, vegna flugskóla, einkaflugs og hins al- menna innanlandsflugs hefur af og til ýtt af stað mikilli umræðu og tillögugerð í borgarstjórn um framtíð Reykjavíkurflugvallar, bæði sökum ónæðis íbúa í nágrenni vallarins og hættunnar sem skapast • vegna þrengsla og nálægðar við íbúðarbyggð. Hver man ekki eftir flugslysinu í ágúst 1988 þegar tveggja hreyfla Casa 212 vél fórst og 3 menn létust er vélin stakkst niður milli Hringbrautar og norður-suður flugbrautarinnar? Takmarkanir á lendingum Vegna þessa ástands hafa ein- mitt verið miklar takmarkanir á lendingum á Reykjavíkurflugvelli, t.d. hefur næturumferð eftir kl. 23.30 verið bönnuð síðan 1980 nema í undantekningartilfellum. Flugvallarsvæðið er þar að auki fullnýtt, framboð af flugskýlum er ekkert og svæðið í heild rúmar ekki fleiri mannvirki. Hugmyndir manna um lausn Tvær leiðir hefur verið bent á til að létta umferð um Reykjavíkur- flugvöll og lengja líftíma vallarins. A. Að gera austur- og vestur- brautina jafn tæknilega góða og norður- og suðurbrautina og beina umferð síðan meira á hana. B. Að byggja nýjan flugvöll fyrir einkaflugið í nágrenni höfuðborgar- innar, og hefur þá helst verið horft til Obrynnishólabruna í landi Hafn- arfjarðar. Það myndi fækka hreyf- ingum um Reykjavíkurflugvöll um liðlega helming. Harma að menn hafi ekki horft til Keflavíkurflugvallar Báðar þessar leiðir eru kostnað- arsamar og tæplega ódýrari en að útbúa aðstöðu við Flugstöð Leifs Eiríkssonar, sem þjónaði innan- landsflugi, því staðreyndin er sú að sú gríðarlega fjárfesting sem er í flugstöðinni og svæðinu í kring er vannýtt í dag. Það er jafnframt staðreynd að við érum sífellt að færast nær alþjóðaviðskiptum og samkeppni og þjónusta við stóru markaðssvæðin erlendis eykst jafnt og þétt. Gjaldeyristekjur okkar eru ein af undirstöðum hagsældar í landinu, þess vegna er það hagsýni og horft til framtíðar að huga að Keflavíkurflugvelli sem áfangastað í innanlandsflugi eða jafnvel mið- stöð innanlandsflugsins. Ilöfundur er Keflvíkingur. ALLT GLUGGANN úrval, gæöi, þjónusta Rúllugluggatjöld sérsniöin fyrir hvern glugga eftir máli. Margar gerðir af dúk í mörgum litum. Sendum í póstkröfu um land allt Einkaumboð á íslandi Síöumúla 32 - Reykjavík - Sími: 31870 - 688770. Tjarnargötu 17 - Keflavík - Sími: 92-12061. Bridsskóim Námskeið í byrjenda- og framhaldsflolkki hefjast 24. og 25. sept. Byrjendaflokkurinn er á mánudagskvöldum. Ekki er gert ráð fyrir neinni kunnáttu og ekki er nauðsylegt að hafa með sér spilafélaga. Framhaldsflokkurinn er á þriðjudagskvöldum. Hann er sniðinn fyrir spil- ara sem hafa nokkra reynslu, en vilja ná betri tökum á sögnum eftir Stand- ard-sagnkerfinu, úrspili og vörn. VÖNDUÐ NÁMSGÖGN FYIGJA BÁÐUM NÁMSKEIÐUM. Upplýsingar og innritun í síma 27316 daglega milli kl. 15.00 og 18.00. Hraðlestrarnámskeið Vilt þú margfalda lestrarhraða þinn? Vilt þú lesa meira af fagurbókmenntum? Vilt þú hafa betri tíma til að sinna áhugamálunum? Vilt þú auðvelda þér námið með auknum lestrar- hraða og bættri námstækni? Svarir þú játandi, skaltu skrá þig á hraðlestrarnám- skeið. Næsta námskeið hefst mánudaginn 10. september. Skráning í síma 641091. HRAÐLESTRARSKÓLINN mn 10 ára ehí I aðhafafengið /X / •• . 1989. ÞúvQtlíka góða ávöxtun 1990! KJARABRÉF eru lausnin. KJARABRÉF-5 ára örugg reynsla. * KJARABRÉF-19% ársávöxtun. * KJARABRÉF—8,1% raunávöxtun. * Miðað við 6 fyrstu mánuði þessa árs. (22? VERÐBREFAMARKAÐUR FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF - Löggilt verðbréfafyrirtæki - HAFNARSTRÆTI28566 • KRINGLUNNI689700 • AKUREYR111100 nýi mNSStcóLm SKILAR BETRI ARANGRI TAKMARKAEnjR NEMENDAFJÖL.DM í MVERJUM TÍMA BARNADANSAR SAMKVÆMISDANSAR (STANDARD, LATIN) GÖMLUDANSARNIR INNRITUN KL. 13 -19 REYKJAVÍK: 38830, - HAFNARFIRÐI: 652285 KENNSLA HEFST 15. SEPTEMBER.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.