Morgunblaðið - 04.09.1990, Síða 41

Morgunblaðið - 04.09.1990, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1990 41 MANNAMOT Vel heitt í kolunum! Fyrir nokkru steig grillangan upp úr skógarreit einum í Gaul veijabæjarhreppi. Þar heita Timbur- hólar og eru þeir eign og undir umsjá Ungmennafélagsins Sam- hygðar. Þegar umrædd angan steig til himins, eftir mjaltir, höfðu sveit- ungar ungir sem aldnir ásamt vel- unnurum komið saman gersamlega að tilefnislausu að öðru leyti en því að þeir vildu hittast og eiga saman góða stund. Var kveikt í grillkolum og hópurinn snæddi saman kvöld- verð undir berum himni. Ung- mennafélagar sáu um matseldina og var orðið vel heitt í kolunum er gestir komu til leiks. Alls voru þarna um 100 manns og gekk allt að óskum, enda maður manns gaman. Var sammælst um það í dagslok að Bæhreppingar skyldu framvegis halda slíka sam- kundu ár hvert. Myndirnar eru frá grillveislunni. Valdem. G. VEIÐISKAPUR Nýliðinn fékk strax þann stóra Laxveiðin í sumar hefur yfirleitt verið heldur slök með einstaka undantekn- ingum. Það er þó víðast eitthvað af fiski og eitthvað veiðist, svo slæmt er það aldr- ei að enginn fiskur sjáist. Það er alltaf eitthvað um að nýliðar detti í lukkupottinn og hér er lítil slík saga. Einn af yfir- mönnum herliðsins á Keflavíkurflugvelli, Wayne Foshay höf- uðsmaður, hafði aldr- ei áður bleytt færi, en var mættur um mitt sumar upp í Norðurá í Borgarfirði. 18. júlí veiddf hann þar sinn fyrsta lax, ósköp venjulegan lax af ósköp venjulegri stærð. En daginn eft- ir, 19. júli, dró heldur betur til tíðinda. Fos- hay var þá staddur í Stekkjarfljóti og gríðarstór lax tók fluguna, rauða Fran- ces. Eftir 40 mínútna viðureign landaði ný- græðingurinn 21 Morgnnblíiðið/LÆÍfur Magnússon punds hæng, en F°shay höfuðsmaður með þann stóra. margirsem veitt hafa áratugum stundum í veiðiskapnum og eru saman hafa aldrei komist í tæri við sögurnar þar um svo margar að svo stóran fisk. Svona er þetta tölu verður aldrei komið á það. RAUNIR Michael Jackson brá sér í g’ervi hetju Michael Jackson var ekki öfunds- verður af hlut- skipti sínu um daginn er hann var á gangi í fjölskylduvill- unni og gekk beint í flasið á geðtrufluðum manni sem bað hann um að sækja fyrir sig LaToyu, systur Michaels, hann ætlaði nefnilega að drepa hana! Manni þessum hafði með ein- hveijum hætti tekist að smjúga fram hjá margmilljónkróna ör- yggiskerfi og var sem sagt mætt- ur með hníf í beltinu, til alls vís. Það kom að vonum mjög á Michael en hann hélt þó stillingu sinni og til að vinna tíma spurði hann hvað maðurinn teldi sig' eiga sökótt við LaToyu. Jú, hann hafði skrifað henni og hringt í hana daglega síðustu tvö árin. Hún svaraði aldrei bréfum hans og kom aldrei í símann til að meðtaka hrifningarorðin. Jack- son tjáði manninum að hann myndi sleppa því / að hringja í lögregluna ef hann legði niður skottið og hypjaði sig út, en sá truflaði taldi það af og frá, hann ætlaði að ljúka dagsverki sínu. Jackson smaug þá inn í nærliggj- andi herbergi og hringdi í lög- regluna, en hún sagði poppgoð- inu að þar sem maðurinn væri staddur á „einkalandi" gæti hún ekki handtekið hann, það yrði hann sjálfur að gera og þeir myndu bíða fyrir utan höllina og taka við honum í dyr- unum. Ekki leist Jackson á blikuna, en hann varð að hrökkva eða stökkva. Eina vopnið sem popparinn fann var stóll og með hann í höndunum lét Jackson til skarar skríða. Hann hélt stólnum fyrir framan sig og sagði við hinn óboðna gest: „Hér með ert þú handtekinn. Þetta er borgaraleg handtaka!“ Maðurinn átti ekkert sökótt við Michael og lét því undan síga, en lögreglan beið fyrir utan og þegar maðurinn kom aftur á bak í gættina, var hann gripinn, járnaður og stung- ið inn í lögreglubíl. Lögregluþjón- arnir hældu nú Jackson á hvert reipi, en það kom svo á hann, að hann féll í yfirlið þegar allt var yfirstaðið. Það fylgdi sög- unni, að LaToya Jackson hafi alls ekki verið heima við þetta tækifæri og raunar væri hún sárasjaldan þama til húsa. Michael Jackson A Bl LDSHOFÐA10 • • * STEINAR SAUMALIST FJOLDI FVRIRTSKJA - GIFURLEGT VORUURVAL Skór á alla fjölskylduna Hljómplötur - kasettur KARNABÆR Tískufatnaður herra og dömu HUMMEL Sportvörur alls konar Alls konar efni SKÆÐI Skófatnaður BLOMALIST Blóm og gjafavörur SONJA Fatnaður HENSON Sportfatnaður KAREN FATABÆR PARTY ITHEODORAI Tískuvörur Kventískufatnaður Fatnaður BOMBEY Barnafatnaður OTRULEGT VERÐ Fatnaður Fatnaður Fatnaður

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.