Morgunblaðið - 04.09.1990, Qupperneq 44
44
MORQUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1990
P1981 Universal Prest Syndicote
/f t/Ctr rekinn rétt i þecso, SOO ég t>íS~
eftrr þjórfénu ftjrir atart ctyrruar. "
Ekki gerði ég svona ráðstaf-
anir þegar hún móðir þín
átti að vera hjá okkur
nokkra daga?
Það stendur hér sextán hæð-
ir ekki níutiu og sex.
Lítið andlegt sjálfstæði
Til Velvakanda.
„Og út í öll skip!“ kallaði Þor-
steinn úr Bæ, cand. theol. sinni
þrumandi röddu á eftir vinkonu, sem
hann var að senda í söluleiðangur á
ýmsa staði. Þetta var úti á miðri
götu, fjölfarinni eftir því sem þá
var, og þar sem orð lék á því að
fáeinar ættu það til að bregða sér út
í skip, var þetta ekki beinlínis þægi-
legt fyrir aumingja stúlkuna að fá
slíka „tilskikkun“ í allra áheyrn.
Jafnvel þær sem lausastar voru á
kostunum kunnu svolítið að skamm-
ast sín í þá daga.
Um brókarsóttaræðið sem greip
um sig meðal reykvískra smápíkna
við það að sjá ítalska sjóherinn á
götum Reykjavíkur hefur mikið ver-
ið rætt, og furða sigi margir á því,
hvemig komið er. Hafa sumir viljað
slá þessu í glens og gaman, en aðr-
ir segja; ekki ný bóla. Væri ég spurð-
ur, mundi ég þó hvorugt geta tekið
undir, því að mér þykir ekkert gam-
an að þessu, og mér sýnist þetta (og
annað álíka!) vera komið á miklu
aumlegra og sjúklegra stig en
nokkru sinni hefur áður verið. -
Aðalskýring mín er sú, að andlegt
sjálfstæði sé nú orðið hérumbil ekki
neitt; fólk er á þönum eftir ein-
hveiju öðru en sínu eigin - leitandi
að einhveijum þyngdarpunkti langt
fyrir utan sig og sitt, og nær honum
aldrei; veit ekki að það sjálft er
miðdeplar alheimsins hvert um sig;
vanmetur sjálft sig. En það var nú
einmitt ítali sem betur skildi þetta
en nokkur annar á undan honum:
Giordano Brúnó á 16. öld - og
reyndar voru þeir líka þarlenskir sem
myrtu hann á svívirðilegasta hátt
árið 1600, og ekkert vita smápíkur
Köttur
Þessi köttur, sem er bröndótt og
hvít læða, kom inn á heimili í Þing-
holtunum fyrir nokkru. Hún er
ómerkt en gæti hafa verið með ól.
Eigandi eða þeir sem vita hvar hún
á heima eru vinsamlegast beðnir
að hringja í síma 10539 eða 32877
eða hafa samband við Dýraspítal-
ann.
um það, en hinsvegar ættu lærðir
menn að vita þetta og leiðbeina al-
menningi í samræmi við það.
Eymd og niðurlæging íslenskra
karlmanna stendur í sambandi við
niðurlægingu íslenskrar menningar
yfirleitt. Hvern grunar hvílíku afli,
hugviti og peningum hefur verið
varið hér á landi til þess að beija
niður hvern vísi til þess að vera
íslenskur! Hvað halda menn að ungu
kynslóðinni hafi til dæmis verið
kennt um uppruna kjörorðsins: „ís-
lendingar viljum vér allir vera?“ Og
þegar einn fór á „nasistaveiðar"
gegn Einari Benediktssyni (sem
hætti að yrkja um 1930!) í blöðunum
um daginn, fannst mér eins og ekki
yrði lengra komist. Ég setti saman
smágrein ti! mótvægis - og var birt,
mér til undrunar nærri því. Það bal-
ir furðulengi a þessu frelsi til að
hugsa og tala sem þeir Ari og Snorri
festu hér í sessi um 1100-1200,
meðan slíku var ekki til að dreifa
um mestalla Evrópu. Og svo eru
sumir íslenskir hinna síðustu tíma
að kenna slíkt við „miðaldamenn-
ingu“, sem þeir halda að hafi gefið
okkur þessa tvo og nokkra aðra! Ein
sagði, að íslenskar fornbókmenntir
mundu vera skrifaðar upp úr evr-
ópskum munkabókum á latínu, sem
enginn hefur lesið (og ekki hann
sjálfur); annar að Hávamái væru
skrifuð upp úr Jesú Sýraks Bók. Og
svo framvegis.
En hvað sem slíku líður kynnu
nú að vera bjartari tímar framund-
an. Hvaðanæva berast fréttir af
nýjum uppgangi íslenskra forn-
fræða, norrænna, víkinglegra. Til
er einnig annar framgangur, og enn
annar, sem síðar verður af sagt.
Menn munu hreint og beint ekki
komast hjá því að taka vit sitt að
nýju, og jafnvel betur en nokkni
sinni. Og með vitinu kemur líf, sem
lífgar.
Þorsteinn Guðjónsson
O fy rirge fanleg
aðför stjómvalda
Til Velvakanda.
Forráðamenn þjóðarinnar hafa
sem fyrr ástæður til samviskubits
út af mörgu um þessar mundir. Eitt
hið dapurlegasta, sem nú brennur á
baki, er áreiðanlega heimrekstur
sjúkra og farlama gamalmenna af
öldrunar- og bæklunardeildum
ríkisspítalanna. Sú ófyrirgefanlega
aðför mun aldrei sem nú hafa beinlín-
is verið ákveðin og skipulögð vitandi
vits af stjórnvöldum heilbrigðisþjón-
ustunnar. Ná engin forsvaranleg orð
yfir þann verknað. Hann er einn
svæsnasti bletturinn á starfsferli
núverandi ríkisstjórnar og enguin
stjórnvöldum sæmandi, síst þeim sem
kenna sig við félagshyggju. Má mik-
ið vera ef herforingjar aðfaranna
heyra ekki óaflátanlega spurt í eyra
sér: „Heyrirðu ekki hrópað á þig?“
Tæplega var samt svo að sjá á
glaðbeittum heilbrigðismálaráðher-
ranum þegar hin fríða ásjóna hans
birtist þjóðinni nýlega á sjónvarpsskj-
ánum. Kvað hann ekkert geta hjálp-
að nema fúsleik landsmanna til sérs-
takrar skattálagningar í þessu skyni,
sem skilja mátti þá að ráðherra þótti
sérstaklega óálitlegur kostur og þá
sem sagt útilokað að aðhafast nokk-
ur til leiðréttingar og úrbóta.
Ég er þó einn þeirra sem sann-
færðir eru um hið gagnstæða, að
almenningur í landinu myndi bregð-
ast óvenju vel við hvenær sem lands-
stjórnin hefði einurð og manndóm í
sér til þess að ganga ærlega til verks
tii leiðréttingar á óhæfuverki gang-
vart þeim sem síst skyldi, „án þess
að stela úr eigin hendi" (samb. rök-
studda grein Friðriks Éinarssonar
iæknis í Mbl. 21. þ.m.). Það er að
segja í þessu tilfelli, að láta innheimt
fé fara beint í þágu þeirra sem sak-
lausir voru hraktir frá sjúkrabeði
sínum út í meiri og minni erfiðleika
og óvissu um samastað og lífsnauð-
synlega hjúkrun og aðhlynningu.
Nokkuð sem viðkomandi áðstand-
endur í fjölmörgum tilfellum voru
óviðbúnir og vanmáttugir að veita.
Svo harðbijósta eru íslendingar
ennþá ekki að þeir vilji láta sjúk,
hjálparvana gamalmenni gjalda ann-
ars verðskuldaðs áfellisdóms yfir
gengdarlausu stjórnarfari í landinu.
Þjóðin vill áreiðanlega ekki láta for-
svaranlega framkomu „hins opin-
bera“ við.þurfandi meðbærður sitja
á hakanum í niðurröðun forgangs-
verkefna landstjórnarinnar, heldur
hafa það efst á blaði, hvað sem líður
aflabrögðum og ófyrirgefanlegu
stjórnleysi í landinu.
B.Þ.K.
HÖGNI IIRKKKVÍSI
//Wamn eZABFh &éiz MöÓLKueHeisrihiG."
Yíkverji skrifar
Fyrir nokkrum kvöldum sat
Víkveiji fyrir framan sjón
varpstæki og hugðist horfa á mynd
í Stöð 2. Þá kom konurödd í sjón-
varpið til þess að kynna kvölddag-
skrá stöðvarinnar og hóf kynning-
una á þessu orðum: kvöldið rúllar
af stað með kvikmyndinni o.sv. frv.
Hvað er að gerast hér? Hvernig
dettur fólki í hug að tala svona?
Bandaríska dagblaðið Wall Street
Journal birti fyrir nokkru grein um
baráttu Islendinga fyrir tungu sinni
og menningu. Blaðið sagði, að
helzta vandamál okkar um þessar
mundir væri tungumál, sem blaðið
kallaði Icelish, þ.e. íslenzk enska.
Konan í Stöð 2 talaði svo sannar-
lega þetta' nýja tungumál.
XXX
að er ekki orðið neitt gaman-
mál fyrir fólk að sækja vinnu
í gamla njiðbæinn, eftir þær hækk-
anir á bílastæðagjöldum, sem til-
kynntar voru fyrir helgina. Vafa-
laust kemur meirihluti fólks, sem
vinnur á þessu svæði á eigin bíl.
Að vísu er erin hægt að finna bíla-
stæði, sem ekki þarf að borga fyr-
ir, en það er ákaflega erfitt og ekki
hægt að vetri til nema komið sé til
vinnu um eða upp úr kl. 8.00.
Starfsmaður hjá fyrirtæki í
gamla miðbænum, sem á ekki ann-
arra kosta völ en láta bíl sinn standa
við stöðumæli allan daginn, borgar
fyrir hádegi 150 krónur þ.e. frá
9-12. Fari hann heim til sín eða
reka önnur erindi í hádeginu og
kemur svo aftur til vinnu kl. 13.00
borgar hann 200 krónur til viðbótar
fram til kl. 17.00. Þetta eru 1750
krónur á viku eða 7000 krónur á
mánuði. Geymi hann bílinn á
Bakkastæði eða í bílastæðahúsi
borgar hann 30 krónur fyrir fyrsta
klukkutímann en síðan 50 krónur.
Fari þann 'af stæðinu í hádegi og
komi aftur kl. 13.00 borgar hann
aftur 30 krónur fyrir fyrsta klukk-
utímann en síðan 50 krónur. Sam-
tals á dag 310 krónur eða 1550
krónur á viku og 6200 krónur á
mánuði. Þá fer að borga sig að
greiða mánaðargjald, sem er 4500
krónur á Bakkastæði en 5500 krón-
ur í bílastæðahúsunum.
XXX
Varla fer hjá því, að bílastæða-
gjöldin í gamla miðbænum
kalli á kauphækkunarkröfur starfs-
manna þeirra fyrirtækja, sem enn
starfa í gamla miðbænum. Hvernig
í ósköpunum á fólk á venjulegum
launum að borga þessi bílastæða-
gjöld? Þetta fer að verða eins og í
New York, þar sem fólk hefur ekki
efni á því að eiga bíl vegna þess,
að bílastæðin og bílageymsluhúsin
eru svo dýr!