Morgunblaðið - 22.09.1990, Page 1

Morgunblaðið - 22.09.1990, Page 1
64 SIÐUR B/LESBOK 215. tbl. 78. árg. LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1990 Prentsmiðja Morgunblaðsins Norskt skip tekið við Novaja Zemlja Ósló. Reuter. SOVÉSKT herskip tók í gær rannsóknarskip norsku umhverf- isstofnunarinnar Bellona þar sem það var við sýnatöku á rúmsjó í nágrenni eynnar Novaja Zemlja. Rune Haaland, talsmaður Bell- ona, sagði að sovéskir sjóliðar hefðu Jeltsín slapp með skrámur Moskvu. Reuter. BORÍS Jeltsín, forseti Rúss- lands, slapp með skrámur þegar ellilífeyrisþegi ók Lada-bifreið sinni á Volgu- bíl hans á Tverskojstræti (áð- ur Gorkíjstræti) í miðborg Moskvu í gærmorgun. Sá orð- rómur komst á kreik að um mis- heppnað morðtilræði hefði verið að ræða en TASS- fréttastofan reyndiaðslá Borís Jeltsín a hann með því að flytja nákvæmar fréttir af árekstrinum og sagði að hann hefði orðið vegna umferð- arlagabrots Lada-bílstjórans. Hefði hann ekki veitt stöðvun- armerkjum lögreglumanns sem stjórnaði umferðinni eftirtekt með framangreindum afleið- ingum. farið um borð í skipið, sem heitir Genius, og væri áhöfnin nú fangi þeirra. Sjóliðarnir sovésku hefðu rofið allt fjarskiptasamband við skipið og tekið áhöfnina í yfir- heyrslu. Líklega yrði Genius dregið til hafnar í Múrmansk á Kólaskaga og áhöfnin sektuð. Norska rannsóknarskipið var tekið á alþjóðlegu hafsvæði. Hafði áhöfnin að engu haft fyrirmæli um að taka ekki vatns-, plöntu- eða dýralífssýni innan sovéskrar efna- hagslögsögu. Var tilgangur leið- angurs Genius að rannsaka hvort kjarnorkutilraunir Sovétmanna á Novaja Zemlja hefðu valdið um- hverfistjóni. Sovétmenn hafa gert tilraunir með kjarnorkusprengjur a Novaja Zemlja og segjast fulltrúar Bellona hafa fyrir því heimildir að ráðgert sé að sprengja kjarnorkusprengju þar í október nk. Reuter Míkhaíl Gorbatsjov var óþolinmóður á fundi Æðsta ráðs Sovétríkj- anna í gær og var myndin tekin er hann flutti eina ræðu af þremur um sama efni. Fæðingum fækkar stöð- ugt í Evrópu Ziirich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttarit- ara Morgunblaðsins. ÍSLAND er í hópi fjögurra Vestur-Evrópuríkja þar sem fæð- ingar voru fleiri en dauðsfölLárið 1988 og þjóðinni fjölgar af eigin rammleik. Hin ríkin eru Irland, Kýpur og Tyrkland. Fæðingum í Evrópu fækkaði að meðaltali um 5,5% á tímabilinu 1980 til 1988. Mest er fólksfækkunin í San Marínó, Vestur-Þýskalandi, Aust- urríki og á Ítalíu. Á fundi lýðfræðinga aðildarríkja Evrópuráðsins í Strassborg í vikunni kom fram að ekki sé beint samband á milli ijölda útivinnandi kvenna og barneigna. Daninn Poul Mathiessen benti á að meðalaldur þjóða verður æ hærri. Aðeins 15% íbúa Vestur-Þýskalands er undir 15 ára aldri og 17% íbúa San Marínó, Lúxemborgar, Aust- urríkis, Danmerkur og Sviss. Sjá „Gamla fólkið aftur út á vinnumarkaðinn" á bls. 20. Ákvörðun um efnahagsáætlun frestað í Æðsta ráðinu; Gorbatsjov hótar því að stíóma með tilskipunum Moskvu.^ Reuter. MIKHAIL Gorbatsjov, leiðtogi sovéska kommúnistaflokksins, sagði að svo stíft væri staðið gegn umbótastefnu hans að hann gæti þurft að nota vald forsetaembætt- isins til þess að stjórna með til- skipunuin og annarra neyðarráð- stafana. í gær var ráðgert að Æðsta ráðið samþykkti sljórnar- skrárbreytingu er fært hefði Bush segir tengsi íraka yið hryðjuverkamenn áhyggjuefhi írakar vísa erlendum sendimönnum úr landi Nikósíu, Washington. Reuter. GEÖRGE Bush Bandaríkjaforseti kvaðst í gær hafa af því áhyggjur að stjórnvöld í Irak hefðu treyst enn frekar tengsl sín við hópa alþjóðlegra hryðjuverkamanna og varaði stjórn Saddams Huss- eins íraksforseta við því að gang- ast fyrir ofbeldis- og óhæfuverk- um gegn Bandarikjamönnum. Sljórnvöld í írak gáfu í gær rúm- lega 20 erlendum sendimönnum tiltekinn frest til að hafa sig á brott frá höfuðborg landsins, Bagdad. Talsmaður Bush Bandaríkjafor- seta kvað hann hafa látið þessi orð falla á fundi með leiðtogum demó- krata og repúblíkana á Bandaríkja- þingi. Hefði forsetinn m.a. vísað til fullyrðinga þess efnis að leiðtogar 'tveggja hópa palestínskra hryðju- verkamanna, þeir Abu Nidal og Abu Abbas, héldu til í írak. Skömmu síðar skýrði talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins frá því að þremur íröskum sendimönnúm hefði verið vísað úr landi í Bandaríkjunum. í gær héldu 11 íraskir sendimenn frá París, höfuðborg Frakklands, til síns heima í samræmi við þessa ákvörðun Evrópubandalagsins. Samtímis skýrðu stjórnvöld í írak frá því að 11 frönskum stjórnarer- indrekum hefði verið vísað úr landi. Þrír bandarískir og jafnfmargir breskir sendiráðsmenn fengu viku frest til að hafa sig á brott sem og hermálafulltrúi Spánveija og aðstoð- armaður hans. Starfsbróður hans frá Ítalíu og þremur aðstoðarmönnum var fyrirskipað að hverfa frá írak innan tíu daga. Þá ákváðu Irakar einnig að láta til skarar skríða gegn Egyptum sem sent hafa herlið til varnar Saudi-Arabíu. Var tveimur háttsettum sendimönnum, hermála- fulltrúa Egypta og aðstoðarmönnum hans, skipað að hafa sig á brott inn- an viku. Þá lýstu írakar yfir því að ferða- frelsi fulltrúa bresku ríkisstjórnar- innar í Bagdad yrði framvegis tak- markað en í borginni eru nú 14 br- eskir stjómarerindrekar og nokkrir starfsmenn aðrir. Sjá ,;Viðræður hugsanlegar flytji Irakar ...“ á bls. 20. Gorbatsjov stóraukið fram- kvæmdavald en átkvæðagreiðslu var frestað. Sömuleiðis var frest- að til mánudags að greiða at- kvæði um tillögur um framtíðar- stefnu sovéskra efnahagsmála vegna þess hve fáir þingmenn sóttu síðdegisfund Æðsta ráðsins. Fyrr um daginn höfðu bæði Níkolaj Ryzhkov forsætisráð- herra og Gorbatsjov hvatt þing- menn eindregið til þess að af- greiða málið í gær. Aðeins 330 af 542 fulltrúum í Æðsta ráðinu komu til fundar að loknu hádegisverðarhléi. Anatólíj Lukjanov þingforseti bað þá þing- leiðtoga lýðveldanna að hafa uppi á sínum mönnum en það stoðaði lítt; Belgískur ráðherra: Barnaráðstefna SÞ rándýr sýndarmennska Brussel. Reuter. BELGÍSKUR ráðherra gagn- rýndi í gær það framtak að efna til barnaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem fyrirhuguð er í New York um aðra helgi, og sagði hana vera rándýra sýndar- mennsku sem væri einungis til þess fallin að þjóna ímynd Barnahjálpar SÞ (UNICEF). Ráðherrann, Andre Geens, sagði að barnaráðstefnan yrði mjög kostnaðarsöm og nefndi sem dæmi að öryggisgæslan ein og sér myndi kosta UNICEF sex milljónir doll- ara, jafnvirði 340 milljóna ÍSK. Munu um 90 þjóðarleiðtogar sitja ráðstefnuna. „Þetta verður skrautsýning sem missir alveg marks því börn heims- ins verða jafn illa stödd eftir sem áður. Ráðstefnan er einungis til þess að þjóna hégóma James Grants yfirmanns UNICEF," sagði Geens. Sagði hann að alþjóðlegar hjálparstofnanir stunduðu í aukn- um mæli ýmiss konar sýndar- mennsku er hefði ekkert með þarf- ir ríkja þriðjá heimsins að gera en væri eingöngu liður í innbyrðis valdastreitu þeirra sjálfra. aðeins 17 bættust við og vantaði því enn 13 til að ná lágmarksfjölda til atkvæðagreiðslu. Gaf hann til kynna að það hafi verið ásetningur þing- manna að knýja fram frestun at- kvæðagreiðslunnar með fjarveru sinni og eftir tveggja stunda umræð- ur frestaði hann fundi. Gorbatsjov sýndi óþolinmæði á fundinum, tók þrisvar til máls og endurtók sömu ræðuna um nauðsyn tafarlausra aðgerða til þess að af- stýra frekara efnahagshruni og stjórnleysi. Oft lamdi hann í borðið og greip fram í fyrir öðrum. Á morgunfundi Æðsta ráðsins hvatti Ryzhkov þingmenn til þess að sameina tvær tillögur um fram- tíðarskipan efnahagsmála. Önnur þeirra er kennd við hagfræðinginn Staníslav Sjatalín og kveður á um að markaðskerfi verði innleitt á 500 dögum en hin er lögð fram í nafni Ryzhkovs og þykir mun hófstilltari. „Við verðum að sameina þessar tvær tillögur í eina og ljúka þessu í dag. Annars komumst við í alvarlegan vanda,“ sagði Ryzhkov. Var litið á ræðu hans sem tilraun til þess að halda velli en hann hefur átt undir högg að sækja. Hefur rússneska þingið m.a. krafist afsagnar hans. Gorbatsjov tók síðan til máls og sagði að byggja þyrfti framtíðarskip- an efnahagsmála að mestu leyti á tillögum Sjatalíns. Sagði hann það ekki skaða þó inn í þær yrðu felld einhver ákvæði úr tillögum stjórnar- innar. „Þetta er söguleg stund því kosið verður í dag um það hvernig við viljum leiða þjóðina fram á við og í hvers kyns samfélagi við viljum búa,“ sagði Gorbatsjov.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.