Morgunblaðið - 22.09.1990, Blaðsíða 19
G07T FÓLK / SlA 5500-187
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1990
19
Morgunblaðið/Kristinn Pálsson
Höfði byggður 1 Japan
Þeir ferðalangar sem leið sína leggja til Japan í bæ
einn á vesturströndinni er Hyogo heitir geta augum
litið þessa eftirlíkingu af Höfða. Þar í bæ býr mað-
ur að nafni Sakuhana, en hann er rækjukaupandi
og hefur m.a. keypt alla þá rækju sem Oddeyrin
EA hefur veitt, auk þess sem hann kaupir mikið
af rækju annarra Samheijaskipa, Margrétar EA og
Hjalteyrar EA. Sakuhana hefur oft komið til íslands
vegna rækjukaupanna, að sögn Kristins Pálssonar
sem tók þessa mynd, en hann starfar hjá Samheija
hf. „Við vissum af því að hann hefði byggt þetta
hús, en óneitanlega var skrýtið að sjá nákvæma
eftirlíkingu af Höfða þarna úti í Japan,“ sagði Krist-
inn. Hann sagði að Sakuhana hefði ætlað sér að
byggja húsnæði undir skrifstofur fyrirtækis síns og
hugmyndina hefði hann að líkindum fengið í kjölfar
leiðtogafundarins, þegar þeir hittust í Höfða Gorb-
atsjov og Reagan.
Aflamiðlun úthlutar útflutningsleyfum:
Ekki framsal
valds ráðherra
- segir Jón Baldvin Hannibalsson
JÓN Baldvin Hannibalsson, ut-
anríkisráðherra, segir að lögfræð-
ingar, sem ráðuneytið hafi leitað
til, séu ósammála þeirri niður-
stöðu Jóns Steinars Gunnlaugs-
sonar, hæstaréttarlögmanns, að
utanríkisráðherra hafi verið
óhcimilt að fela Aflamiðlun úthlut-
un útflutningsheimilda á óunnum
fiski. Lögfræðingar ráðuneytisins
telji að hér sé ekki um valdafram-
sal að ræða.
Jón Steinar Gunnlaugsson, hæsta-
réttarlögmaður, hefur ritað álitsgerð
um starfsemi Aflamiðlunar að ósk
nokkurra útflutningsaðila. í greinár-
gerð hans, sem birtist í Morgunblað-
inu á þriðjudag, kemst hann meðal
annars að þeirri niðurstöðu, að ut-
anríkisráðherra hafi verið óheimilt
að framselja vald sitt til úthlutunar
útflutningsheimilda á óunnum fiski
til Aflamiðlunar, enda sé Aflamiðlun
aðili utan stjórnkerfisins.
Utanríkisráðherra segir, að hann
hafi falið lögfræðingum að fara ofan
í saumana á þessu máli í tilefni af
ályktunum fiskútflytjenda í Vest-
mannaeyjum. Niðurstaða þeirra hafi
verið þveröfug við niðurstöður Jóns
Steinars og studd mörgum fordæm-
um, auk þess sem aflamiðlun eigi sér
margar hliðstæður í stjórnkerfinu. ..
Það sé mat lögfræðinganna, að í
þessu máli hafi ekkert valdaframsal
farið fram.
„Aflamiðlun er á forræði utanrík-
isráðherra," segir Jón Baldvin. „Hún
var sett á laggirnar til reynslu í eitt
ár og ef sú reynsla verður slæm, sem
mér finnst ýmislegt benda til, þá er
það á valdi utanríkisráðherra að rifta
því samkomulagi, sem starfsemi
hennar er byggð á.“
Páli Flygenring
hættir störfum
FORSETI íslands hefur, hinn 3.
september sl., veitt Páli Flygen-
ring, ráðuneytisstjóra í iðnaðar-
ráðuneytinu, lausn frá störfum frá
og með 1. október 1990 að telja.
Birni Friðfinnssyni, ráðuneytis-
stjóra í viðskiptaráðuneytinu, hefur
verið falið að veita jafnframt iðnaðar-
ráðuneytinu forstöðu frá sama tíma
segir í frétt frá iðnaðarráðuneytinu.
NECIIMEFAX
MYNDSENDITÆKI
OP us
SIMKERM
cetelco
Farsímar
Við erutn ó sjávarútvegssjningunni
i
Póstur og sími kappkostar að veita útgerðarmönnum og skipstjórnar-
mönnum skjóta og örugga þjónustu. Auk þess hafa söludeildir okkar á
boðstólum traustan fjarskipta- og símabúnað frá viðurkenndum
framieiðendum. Öllum búnaði fylgja notkunarleiðbeiningar á íslensku og
íslenskur texti er á skjá tækja og lyklaborði myndsenditækja.
Vertu velkomin(n) í sýningafbás okkar,
E 110, á sjávarútvegssýningunni i
Laugardalshöll. Við tökum vel á móti
þér og komum þér á óvart með
góðum tilboðum.
Söludeildir i Kirkjustræti, Kringlunni, Ármúla 27
og á póst- og símstöðvum um land allt
PÓSTUR OG SÍMI