Morgunblaðið - 22.09.1990, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 22.09.1990, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1990 ISLENZKA SJAVARUTVEGSSYNINGIN Virkni - leið til aukningar framleiðni í frystihúsum ' Morgunblaðið/Sverrir Sigurgeir Steindórsson og Ari Axel Jónsson með dreggið. „VERKEFNIÐ Virkni er mjög gott dæmi um það, hvernig hægt er að vinna saman að því mark- miði að tæknivæða og þróa fisk- vinnslu svo þar náist betri árang- ur. Þarna taka höndum saman opinberir aðilar og atvinnugreinin í samvinnu v|ð erlenda aðila,“ sagði Halldór Asgrímsson, sjávar- útvegsráðherra, við kynningu á samvinnuverkefninu Virkni, en það er nú kynnt í tengslum við Islenzku sjávarútvegssýninguna. Virkni er samnorrænt verefni. Látlaus gestagangur á básnum „Dregg“ Ara Axels Jónssonar vekur athygli „DREGGIÐ okkar vekur mikla eftirtekt. Menn eru greinilega hrifn- ir af því að sjá eitthvað nýtt í botnfestibúnaði og það er látlaus gestagangur á básnum hjá okkur. Dreggið er öruggasta botnfest- ing, sem er á markaðnum og hefur reynzt mjög vel við tilraunir," segir Ari Axel Jónsson, uppfinningamaður. Ankeri óg netadrekar hafa verið með ýmsu móti frá örófi alda, en vandamál við notkun þeirra hafa verið á báða vegu í raun, ýmist hefur festan verið of mikil eða of lítil að sögn Ara. Með dregginu er botnfestan tryggð, en jafnframt er mjög auðvelt að losa það. Ari segir að kostir þess séu í megin atriðum fjórir; botnfesta sé örugg við ólík botnskilyrði, sérstakur öryggisbún- aður tryggi að dreggið náist alltaf upp ásamt veiðarfærum, dreggið byggist bæði á þyngd og virkni og það sé fyrirferðarlítið og auðvelt í notkun. Meðan Ari vann ennþá að full- mótun og fullkomnun á dregginu fékk hann tvo reynda skipstjóra til að prófa það við veiðar í marz og apríl í ár. Það voru Siguijón Óskars- son á Þórunni Sveinsdóttur VE og Brynjar Kristmundsson á Steinunni SH. Umsagnir þeirra beggja voru mjög jákvæðar að sögn Ara og ábendingum þeirra var haldið við hönnun endanlegrar gerðar. Tækni- leg atriði hafa verið unnin í sam- ráði við Iðntæknistofnun íslands. Þar hefur dreggið verið prófað og ákvarðanir um stálblöndur teknar á grundvelli prófana og útreikninga sérfræðinga. Markmið þess er að auka framleiðni með tilkomu sjálfvirkni í pökkun og frystingu í frystihúsum samhliða hagræðingu í fiutningakerfi og upp- lýsingastreymi í húsunum. Verkefnið skiptist í fjóra meginhluta: Fyrsti hlutinn fjallar um mat og endurbætur á núverandi umbúðum frystiiðnaðarins. Markmið þessa hluta er að bæta umbúðir fyrir fryst- an fisk þannig að þær henti betur á öllum stigum flutninga. Annar verkhlutinn fjallar um vöru- stjómun í frystihúsum. Meginmark- mið þessa verkhluta er er að greina og bæta vöru- og upplýsingaflæði í frystihúsum. Þriðji hlutinn lýtur að þróun sam- vals- og pökkunarbúnaðar fyrir frystihús. Markmiðið er að sjálf- virknivæða þennan hluta vinnslunnar með það í huga að minnka mannafla- þörf og bæta nýtingu og gæði. í síðasta hlutanum er stefnt að þróun sjálfvirks eða hálfsjálfvirks búnaðar við þau frystitæki sem eru í notkun. Markmiðið er að minnka mannaflaþörf og bæta vinnuaðstöðu. Skipulag verkefnisins er þannig að veruleg skörun er milli verkhluta. Skörunin er talin nauðsynleg og er henni stýrt að verkefnisstjórunum Karli Friðrikssyni hagfræðingi hjá Iðntæknistofnun Islands og Sveini Víkingi Ámasyni, vélaverkfræðingi hjá Rannsóknarstofnun fiskiðnaðar- ins. Heildarkostnaður við verkefnið Salan tvöfölduð á tveimur dögum Góður árangur Norm-X á sjávarút- vegssýningunni í Laugardalshöll „ÁRANGUR okkar er nánast ótrúlegur. Á tveimur dögum höf- um við selt eða samið um sölu á nær tvöfalt fleiri fiskikörum en við seldum allt síðasta ár. Þá fluttum við utan fyrir 10 milljón- ir, á þessu ári höfðum við þegar náð þeirri upphæð fyrir sýning- una, en nú höfum við tvöfaldað söluna," segir Sævar Svavarsson, framkvæmdastjóri Norm-X í samtali við Morgunblaðið. Það er nú gerð fiskikara, sem hefur vakið svona mikla athygli kaupenda á sýningunni og segir Sævar breytinguna frá fyrri gerð- um kera vera nánast byltingu og sótt hafi verið um einkaleyfi á fram- leiðslunni. Unnið hefur verið að þróun karanna um tveggja ára skeið, en Sævar segir að hún hafi eiginlega hafizt vegna framleiðslu upp í pöntun frá Bahrein. Fyrsta kerið í endanlegri útfærslu var steypt að morgni fyrsta sýningar- dagsins. Það er ólíkt fyrri gerðum að því leyti að það er hannað á nýjan hátt og farnar aðrar leiðir Nýja kerið kynnt á sjávarútvegssýningunni. Morgunblaðið/Sverrir , en áður hafa verið reyndar til að gera það léttara og ódýrara í fram- leiðslu. Nýja kerið er 30% ódýrara en sambærileg eldri fiskiker. Norm-X er tíu ára gamat fyrir- tæki og hefur aðalframleiðsla þess ætíð verið fískiker framleidd með svonefndri hverfísteypuaðferð. er áætlaður um 110 milljónir króna og á því að ljúka árið 1992. Verk- efnið er styrkt af Norræna iðnaðar- sjóðnum og rannsóknarráði ríksins, en aðrir þátttakendur standa einnig verulegan straum af kostnaði. Aðdragandi að verkefninu hófst í janúar 1988 þegar Norræni iðnaðar- sjóðurinn hélt fund í Kaupmannahöfn um upplýsingatækni í fiskiðnaði, Upp úr því var stofnuð samnorræn sam- starfsnefnd sem vinna skyldi að því að kanna möguleika á norrænni sam- vinnu á þessu sviði. Rannsóknaráð ríkisins, Iðnþróunarsjóður, iðnaðar- ráðuneytið og sjávarútvegsráðuneyt- ið styrktu vinnu íslenzku þátttakend- anna. Eftirtaldir aðiiar starfa við verkef- nið: Aalborg Industrial Corporation, Danmörk, Marel hf, Efli hf, N & R Consult, Danmörk, Verkfræðistofna Stefáns Ólafssonar, Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, Rannsóknastofn- un fiskiðnaðarins, Iðntæknistofnun íslands og Staðlaráð íslands. Við kynningu verkefnisins fluttu ræður þeir Halldór Ásgrímsson, sjáv- arútvegsráðherra og Geir A. Gunn- laugsson, framkvæmdastjóri Marels og lýstu þeir báðir skoðun sinni á mikilvægi verkefnisins og tæknivæð- ingar í sjávarútvegi, sem verið hefði mjög ör síðustu árin. Þá kynntu verk- efnisstjórar gang mála og Vilhjálmur Lúðvíksson, framkvæmdastjóri Rannsóknarráðs ríkisins, fjallaði um hlutverk íjármagnsaðila í stórum þróunarverkefnum. Hann ræddi meðal annars um nýsköpun, sem hann lýsti sem þyrnum stráðri braut og rakti einnig nýsköpunarferlið og sagði þá: „Að okkar mati þarf nú að gera miklu meira en áður til að tengja saman markaðsvitund atvinnulífsins við þá tækniþekkingu og hugvit sem er saman komið í rannsóknarstofn- unum og í Háskólanum. Hugarheim- ur vísinda og tækni annars vegar og viðskipta og markaðar hins vegar eru um margt ólíkir, og eiga aðilar erfítt með að ræða saman nema þeir séu settir í sama bát með sameigin- leg viðfangsefni. Bilið milli þessara hópa er breitt og þarf að brúa. Hug- arfóstur vísindamanna eiga ekki upp á pallborðið hjá framkvæmdamönn- um nema þeir fáist til að taka þátt í að móta þau, hafi áhrif á þroska þeirra og sjaí sér hag í að ala þau upp þannig að þau svari kröfum markaðarins og skili aðstandendum arði, að minnsta kosti þegar frá líður.“ Líftryggingafélag Islands stofnað: „Lífsbjörg“ send þorra Islend- inga á aldrinum 20-50 ára NÝTT líftryggingafélag, Líftryggingafélag íslands, hefur verið stofnað. Ætlar hið nýja félag m.a. að bjóða upp á nýjung í líftrygg- ingum á íslandi sem ber nafnið „Lífsbjörg". Fær þorri Islendinga á aldrinum 20-50 ára sent líftryggingarskírteini með öllum skilmálum á næstu dögum og nægir að greiða áfastan gíróseðil til að trygging- in taki gildi. Ingi R. Helgason hefur verið skipaður stjórnarformað- ur félagsins og Axel Gíslason hefur verið ráðinn forstjóri þess. Vá- tryggingarfélag Islands mun annast tryggingarekstur Líftrygginga- félags Islands í verktöku. Þegar Brunabótafélag íslands og Samvinnutryggingar sameinuðu vátryggingarekstur sinn í Vátrygg- ingafélagi íslands hf. var jafnframt ákveðið að vinna að því að sameina líftryggingarekstur BÍ Líftrygging- ar og Líftryggingafélagsins And- vöku. Hlutafé hins nýja félags, Líftryggingafélags íslands, er 40 milljónir og eru stofnendur þess og hluthafar áðurnefnd líftryggingar- félög auk Vátryggingafélags ís- lands. Er stefnt að því að líftrygg- ingafélögin flýtji lífíryggingásÚjfná sína í nýja félagið um næstu ára- mót og að Líftryggingafélag íslands taki nú þegar við öllum nýtrygging- um. Hafa aðstandendur Líftrygg- ingafélag s íslands látið vinna könn- un á íslenska líftryggingamarkaðin- um. Voru niðurstöður þeirrar könn- unar að 68,9% íslendinga eru án líftrygginga og að 53,99% þeirra sem ekki eru líftryggðir hafa áhuga á að fá sér slíka tryggingu. Sögðu aðstandendur Líftrygg- ingáfelágs Tslánðs á braðamanna- fundi á fímmtudag að þörf fólks fyrir líftryggingu væri nátengd fjár- hagslegum skuldbindingum þess, en að meðaltali eru skuldir fjögurra manna fjölskyldu 2-2,5 m.kr. Þá væri líka ljóst að mörgum hafi vax- ið í augum sú fyrirhöfn sem hingað til hafí verið í kringum líftrygging- ar. Hafí því vaknað sú hugmynd að fínna nýja leið til að ná tii þessa hóps. Niðurstaðan ber nafnið „Lífsbjörg“ og verður þorra Islend- inga á aldrinum 20-50 ára, alls 109.000 manns, sent líftrygging- arskírteini með áföstum gíróseðli á næstu dögum. Á skírteininu koma fram allar upplýsingar og skilmálar er gera hveijum einstaklingi mögu- iegt að sjá hvort hann uppfyllir skilyrði fyrir tryggingu án þess að koma þurfí til læknisskoðunar. Tek- ur tryggingin gildi á miðnætti sama dag og gíróseðillinn er greiddur. Morgunblaðið/RAX Ingi R. Helgason, stjórnarformaður Líftryggingafélags íslands, og Axel Gíslason, forstjóri. Bótagreiðslan er föst upphæð, ein milljón króna. Hún er verð- tryggð og breytist ársfjórðungs- lega. Kostnaður við líftrygginguna Lífsbjörg er breytilegur eftir aldri og kyni. Sem dæmi má nefna að sex mánaða líftrygging fyrir 35 ára karl kostar 1575 krónur en 1100 krónur fyrir jafngamla konu. Líftrygging fyrir 45 ára karl kostar 2600 krónur en 1820 krónur fyrir -jafngamla konu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.