Morgunblaðið - 22.09.1990, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 22.09.1990, Blaðsíða 44
VOLVO PENTA Besti vinur sjómannsins! LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1990 VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR. Verðlagsstofnun: Morgunblaðið/Þorkell Dick Tracy kominn í bæinn Óviðbúnum vegfarendum á Snorrabraut kann að hafa brugðið í brún í gærkvöldi er illilegir náungar með vélbyssur og pístólur komu æðandi á fornfálegum bílum og hófu skotbardaga á götunni. Engin alvara var þó á ferðum; þar voru komnir leikarar, sem sviðsettu atriði úr kvikmyndinni „Dick Tracy“, sem frumsýnd var í Bíóborginni í gærkvöldi. Fjöldi ungmenna fylgdist með og skemmti sér hið bezta. Seðlabankinn gerir ekki tillög- ur um afnám lánskjaravísitölu I bréfí til ríkisstj órnarinnar er lýst efasemdum bankans um afnám verðtryggingar SEÐLABANKINN telur að markmið ríkisstjórnarinnar með afnámi lánskjaravísitölu sé óljóst, en ríkisstjórnin hefur óskað eftir tillögum frá Seðlabankanum þar um, í samræmi við ákvæði í stjórnarsáttmál- anum uin að lánskjaravísitala verði afnumin þegar verðbólga hafi verið innan við 10% á sex mánaða tímabili. Úthafsrækjuveiðar svokallaðar miðast við að heimilt er að veiða upp að vissum grunnlínum utan fjarða og flóa. Rækjuskipstjórar hér hafa tekið eftir því að rétt utan línu sem lokar Skjálfanda fyrir veiðum var síst minni veiði en utar, svo þeir fengu áhuga fyrir því að veiðihorfur innan línu á Skjálfanda yrðu frekar athug- aðar og að frumkvæði Guðmundar A. Hólmgeirssonar skipstjóra á Aron kom fiskifræðingur frá Haf- rannsóknastofnun til að kanna þessi mál frekar. Gaf sú athugun þar það góða raun að þrem bátum var gef- ið leyfi til veiða í Skjálfanda í 3 vikur. Hafa þær tilraunir gefið vonir um að framhald verði á þessu í inn- anverðum Skjálfandaflóa. Nú á næstunni mun Hafrannsóknastofn- un vera að fara í leiðangur til rann- sókna á innfjarðarækjumiðum við strendur landsins og í þeim leið- angri mun Skjálfandaflói athugaður frekar um leið og Öxarfjörður, en hann hefur verið friðaður undanfar- in ár. Að lokinni þeirri athugun verður tekin ákvörðun um hvort frekari veiði á rækju verði leyfð við Skjálfandaflóa. - Fréttaritari Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins hefur Seðlabankinn gert ríkisstjórninni skriflega grein fyrir því að mjög óljóst sé eftir hveiju sé verið að sækjast með því að af- nema verðtryggingu lána. Eru þar rakin nokkur hugsanleg markmið, sem ekki eru talin myndu nást. Fyrst bendir Seðlabankinn á, að ef færa eigi verðtryggingarmál til samræmis við það sem gerist í ná- grannalöndunum, þá eigi að afnema hömlur og leyfa vísitölubindingu við allar mögulegar viðmiðanir. Sá háttur sé hafður á í flestum aðild- arríkjum OECD, og verðtrygging sé aðeins bönnuð í tveimur þeirra, Þýskalandi og Hollandi. Þá telur bankinn, að ef markmið- ið sé að auka langtímasparnað, geti ekki verið æskilegt að afnema lánskjaravísitöluna, sem hafi frekar hvatt til slíks sparnaðar. Og ef markmiðið sé að lækka raunvexti, sé ólíklegt að afnám lánskjaravísi- tölunnar leiði til þess. Ekki sé von til þess að samskonar ástand skap- ist aftur og var fyrir daga verð- tryggingar, að raunvextir verði nei- kvæðir. Þá er spurt hvort markmiðið sé að koma í veg fyrir misgengi launa og lánskjara. Bent er á að slíkt misgengi gæti myndast, hver sem verðtryggingarviðmiðunin sé, og geti jafnvel orðið meira en ella, væru lánskjör bundin við gengi. Loks er bent á, að afnám verðtrygg- ingar dragi ekki úr áhættu banka- kerfisins, sé það markmiðið. Seðlabankinn telur hins vegar, að ef markmiðið sé að veita meira aðhald að peningamálum, kunni það að nást með þessu, því að greiðslu- byrði óverðtryggðra lána sé mun meit'i á fyrstu gjalddögunum, en verðtryggðra. Hins vegar er bent á, að ólíklegt sé að markmið ríkis- stjórnarinar sé að þyngja greiðslu- byrði lána. Seðlabankinn gerir því í bréfinu ekki ákveðnar tillögur um breytingu á verðtryggingarmálum, en telur að verðtryggingarmál verði að þró- ast, m.a. í viðræðum við ríkisstjórn og bankakerfið. Verðjöfnunarsjóður fískiðnaðarins: Tillag botnfiskaf- Fyrirtæki kærð vegna lélegra verðmerkinga VERÐLAGSSTOFNUN hefur kært þrjú fyrirtæki, Hárgreiðslustof- una Cleo, Týli hf. og Fókus, til rannsóknarlögreglu ríkisins, þar sem þau hafa ekki orðið við tilmælum stofnunarinnar um bætta verðmerk- ingu. Samkvæmt reglum Verðlagsstofnunnar um verðmerkingar ber að verðmerkja alla vöru og þjónustu sem seld er beint til neytenda, en viðurlög við brotum geta numið sektum, og einnig varðhaldi eða fangelsi allt að fjórum árum ef um ítrekuð brot eða miklar sakir er að ræða. Verðlagsstofnun kannaði verð- merkingar í um 500 fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu og 100 fyrir- tækjum á landsbyggðinni í ágúst- mánuði, og kom þá í ljós að hjá 65 fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu og 21 fyrirtæki úti á landi var verð- merkingum ábótavant. Var þessum ■Tyrirtækjum veittur tveggja daga Ný rækjumið í Skjálfanda? Húsavík. TILRAUNAVEIÐI á rækju i Skjálfanda er nú lokið og verður síðar tekin ákvörðun um hvort leyfðar verði þar frekari veiðar í framtíðinni. frestur til að bæta verðmerkingar, en að þeim fresti loknum var farið í fyrirtækin á ný til að kanna hvort orðið hefði verið við því. Þá reynd- ust 33 fyrirtæki ennþá með ófull- nægjandi verðmerkingar, þar aftvö utan höfuðborgarsvæðisins. Sendi Verðlagsstofnun þessum fyrirtækj- um bréf þar sem enn var veittur tveggja daga frestur til úrbóta, en ella yrðu mál þeirra send rannsókn- arlögreglunni til meðferðar. Þtjú fyrirtæki, Hárgreiðslustofan Cleo, Garðatorgi 3, Týli hf., ljós- myndavöruverslun, Austurstræti 6 og Fókus, Lækjargötu 6B, hafa ekki enn orðið við tilmælum Verð- lagsstofnunar um bætta verðmerk- ingu, og hafa þau því verið kærð til rannsóknarlögreglunnar. Hækkun olíuverðs frest- að fram í lok næstu viku Eitthvað farið að bera á hamstri eintakra aðila reikningi olíufélaganna. Inn- kaupajöfnunarreikningurinn er nú jákvæður um rúmlega 40 milljón- ir króna, og er búist við að í lok næstu viku verði staða hans kom- in í um 17 milljónir. Nýir farmar af bensíni koma ekki til landsins fyrr en í bytjun október, og því verður að öllum líkindum ekki tekin ákvörðun um nýtt verð á bensíni á fundi Verð- lagsráðs í næstu viku þar sem forsendur til þess verða ekki fyrir hendi þá. ÁKVÖRÐUN um nýtt verð á gasolíu og svartolíu verður væntan- lega ekki tekin fyrr en á fundi Verðlagsráðs í lok næstu viku, en fundi, sem boðaður hafði verið í ráðinu í gær til að fjalla um olíumálin, var frestað. Nýir olíufarmar á hærra verði eru farnir að berast til landsins, en talið er að eldri birgðir muni endast eitthvað fram í október. Eitthvað mun vera farið að bera á því að einstakir aðilar séu þegar farnir að safna olíubirgðum á gamla verðinu. Nýtt verð á olíu tekur gildi um næstu mánaðamót. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var gert ráð fyrir um eða yfir 30% verðhækkun í erindi olíufélaganna sem taka átti fyrir á fundi Verð- lagsráðs í gær. Ljóst er að um enn frekari hækkun verður a< ræða vegna frestunar verðákvörð unarinnar, en nýja verðið verðui þeim mun hærra eftir því sen gengið er á ódýru birgðirnar, oj. þess útstreymis, sem verður a þeim sökum úr innkaupajöfnunar- urða hækkað í 2,5% STJÓRN Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins ákvað á fundi í gærmorgun að hækka tillag vegna botnfiskafurða í sjóðinn úr 1,7% í 2,5%. Ástæðan er hækkandi verð á mörkuðum fyrir þessar afurðir. í ágústmánuði síðastliðnum var tillagið 1% af fob verðmæti afurð- anna. Það var síðan hækkað í 1,7% í september og í október á að greiða 2,5% af fob verði útflutn- ings í þeim mánuði. í ágústmánuði var greitt 5% framlag úr sjóðnum til rækjufram- leiðenda, í september var lítilræði greitt og framlag til rækjufram- leiðenda hverfur alveg í október. Verðmæti allra útfluttra sjávar- afurða var um 50 milljarðar króna í fyrra, en vegna verðhækkana og gengisþróunar er gert ráð fyrir að það verði eitthvað hærra í ár, þrátt fyrir minni afla. y Oddfellow: Vilja byggja við Vonarstræti 10 ODDFELLOW-REGLAN hefur sótt um leyfí til borgaryfirvalda til að byggja við hús sitt nr. 10 við Vonarstræti í Reykjavík. Tillögur um stækkun hússins eru enn á frumstigi en samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins er gert ráð fyrir stækkun hússins til norðurs og vesturs þar sem nú standa skúra- byggingar. Málið verður kynnt í Borgar- skipulagi Reykjavíkur næstkom- andi mánudag og síðan verður fjall- að um umsóknina í Borgarráði á þriðjudag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.