Morgunblaðið - 22.09.1990, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 22.09.1990, Blaðsíða 30
:l(l STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) Þú eyðir aðeins oí miklum pening- um í dag, en gleðst yfir velgengni þinni á vinnustað. Þú endui-skoðar fjármálaáæíiun þína og breytir henni að nokkru leyti. Naut (20. apríl - 20. maí) Eyddu ekki meira fé í breyting- amar sem þú vinnur að heima fyrir. Samband þitt við maka þinn dýpkar og þið þjónín eruð upptek- in við að gera skemmtilegar ferðaáætlanir. Tvíburar (21. maí - 20. júní) Þú ferð seint af stað í dag og reynir að vinna það upp síðdegis. Það verða jákvæðar breytingar heima fyrir. Þeir sem eru að leita sér að nýjum samastað hafa heppnina með sér. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Þú eyðir einum of miklu ( afþrey- ingu um þessar mundir. Þú kemst að samkomulagi við nákominn ættingja eða vin. Leggðu áhersiu á samveru. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Þú kannt að fá gesti þegar illa stendur á þjá þér. Þú dettur niður á lausn á verkefni scm þú hefur með höndum núna. Taktu ákvörð- un sem skiptir miklu fyrir heimil- ið. Meyja (237ágúst - 22. september) Einum vina þinna hættir til að vera ýkinn í dag. Hjón eru afar nátengd hvort öðru þessa dagana. Sumir ættu að nota tækifæ.rið og leita sátta. Þú færð innblástur við skapandi verkefni sem þú ert að vinna að. V°g ^ (23. sept. - 22. október) Viðræður sem þú tekur þátt i reynast þér mikil hjálparhella Qárhagslega, en samt verður þú að gæta þess að halda vel utan um buddunaþína. Þú finnur lausn á vandamáli sem lengi hefur vald- ið þér antá. • Sporddreki (23. okt. - 21. nðvcmber) Kappkostaðu að standa þig vel í vinnunni. Þú blómstrar í félags- skap sem þú hefur starfað með lengi. Ástarsamband getur komist á milli þín og eins af vinuin þinum. Bogmaóur (22. nóv. - 21. desember) Sff) Þú rökræðir ákveðin atriði sem varða framtíðarhagsmuni þína. Sumir fá gjöf frá ættingjum sínum. Pjárhagshorfumar eru á uppleið. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Ferðalag gæti leitt til ástarsam- bands. Skapandi einstaklingar fá nú góðar hugmyndir sem snerta viðfangsefni þeirra. Talaðu við ráðgjafa þina og taktu þátt í fé- lagslífinu. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) Það verða einhveijar minni háttar breytingar á áætlunum þínum í dag. -Stattu við loforð sem þú hefur gefið nákomnum ættingja eða vini. Fiskar (19. febrúar - 20. inars) í5£ Þú stofnar til nýs ástarsambands eða farsæjlar vináttu í dag. Eitt- hvað vekur hjá þér áhuga á heim- spekilegum málefnum. Taktu þátt I félagslífinu í kvöld. AFMÆLISBARNIÐ er hugmynd- arikt, viðkvæmt og hástemmt. Það et meiri hugsjónamaður en almennt er um fólk í þessu stjör- numerki og ætti að læra að treysta innsæi sínu. Það getur náð langt í Hstum eða vísindum, en best vegnar því þar sem það hef- ur ríkulegt frelsi til að tjá sig. Það er framsækið í hugsun og setur sér háleit markmið. Stjörnuspána á að lesa sem dœgradv'ól. Sþár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni visindalegra staðreynda. MORGUXRLADIÐ LAUOARDAGUR 52. SKPTKMBltR 1990 DÝRAGLENS TOMMI OG JENNI /UJÐut rytÐJ po séree> snöe-Mue. etcey SATT ? LJOSKA 06 OSr/BO#<S4/ew* £■£ LÍTCA FgeiST/tNO/-, C£<S6UR. ÞÚT/L ? f>AE> F/eetS w* rh/N ífjBsf FERDINAND \WMV - ■ ) . /r _ 1 / ■ —- | Am\v. J ci\/iÁr/Si i/ 1-3 / . -. 1 \ olVIArLlLK BELIEVE l'VE FORGOTTEN MOWTOTIE MVOWN HOU START BY 5ITTIN6 AR0UNPIN Y0UR 50CK5! Eg trúi því ekki að ég hafi gleymt Ég veit að maður byrjar á ... að Maður bytjar á að sitja á sokkaleist- því hvemig ég á að reima mína eig- maður byrjar á ... unum! in skó ... BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Bandaríkjamennimir Marty Bergen og Larry Cohen þykja með alsnjöllustu spilurum heims. Styrkur þeirra liggur ekki hvað síst í sögnum, eins og við sjáum i eftirfarandi spili. Austur gefur, enginn á hættu. Norður ♦ KD108 ¥K4 ♦ ÁKG10 + D52 Vestur ♦ 762 ♦ ÁG10873 III ♦ Á1094 Austur ♦ Á ¥ D952 ♦ 874 ♦ KG873 Suður ♦ G9543 ¥6 ♦ D9632 ♦ 6 Vestur Norður Austur Suður - - Pass Pass 3 hjörtu Dobl 5 lauf 5 tíglar 5 hjörtu Dobl Pass 5 spaðar Dobl Pass Pass Pass Útspil: lauffjarki. Opnun Bergens á þremur hjörtum er ekki beint eftir bók- inni, en á móti pössuðum makk- er má leyfa sér ýmislegt. Cohen sá að andstæðingarnir myndu ekki segja minna en 4 spaða og stökk því strax í 5 lauf til að sýna laufstyrk og hjartasam- legu. Bergen gældi við að segja 6 hjörtu yfir 5 spöðum en sá möguleika á góðri uppskeru í 5 spöðum dobluðum og tók því þann kostinn. Cohen fékk fyrsta slaginn á laufgosa og spilaði auðvitað tígli, sem Bergen trompaði. Bergen fékk síðar aðra tígul- stungu og niðurstaðan varð því 3 niður, 500 í AV. Sex hjörtu vinnast með svíningu fyrir laufdrottingu, svo það var óvíst hvort sveit þeirra Bergens og Cohens myndi græða eða tapa á spilinu. Þegar til kom græddu sveitin 10 IMPa, því hinu megin hafði suður spil- að 5 spaða ódoblaða, einn niður. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Á millisvæðamótinu í Manila í sumar kom þetta endatafl upp í skák stórmeistaanna Leonid Judasin (2.615), Sovétríkjunum, sem hafði hvítt og átti leik, og Kiril Georgiev (2.580), Búlgaríu. Hvítur á undir högg að sækja í þessu endatafli, en Sovétmaðurinn þvingaði fram jafntefli með mjög laglegum leik: 48. c6! - Rxc6 (Auðvitað ekki 48. - Kxc6?, 49. Bxb4 eða 48. Hxd6?, 49. c7 - Hc6, 50. Hc3 og hvítur vinnur) 49. Hb3+ - Kc4, 50. Hc3+ og hér var samið jafn- tefli því hvítur þráskákar. Judasin kom rnjög á óvart með því að komast áfram í áskorenda- einvígin, sem fram fara í Jakarta í Indónesíu í febrúar-marz á næsta ári. Hann hefur nú sezt að í Bandaríkjunum, en að þessu sinni er pólitík ekki með í spilinu. Allar aðstæður þar eru einfaldlega betri en í Sovétríkjunum að hans mati.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.