Morgunblaðið - 22.09.1990, Side 32

Morgunblaðið - 22.09.1990, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1990 Mirming: Ingimundur Gísla- son á Hnappavöllum Fæddur 7. mars 1921 Dáinn 13. september 1990 Afi okkar er dáinn, nei, hvernig getur það verið. Hann sem oftast var svo hress og kátur. Okkur börn- unum er öllum brugðið. Hann afi sem fagnaði okkur alltaf þegar við komum í heimsókn og sagði þá allt- af: „Nei, eruð þið nú komin, það er nú gott.“ Hann afí var mikill dýravinur og átti alltaf svo skemmtilega hunda, sem við börnin höfðum mikið yndi af. Eins hafði hann mikinn áhuga á að við kæmumst á hestbak. En við eigum margar góðar og skemmtilegar minningar sem við geymum í huganum. Við þökkum afa okkar samfylgdina. „Láttu nú Ijósið þitt ioga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti signaði Jesús mæti.“ (Sálmur) Barnabörnin Þegar ég var 7 ára drengur heima í Vestmannaeyjum kom til dvalar á heimili foreldra minna Bjami Gíslason frá Hnappavöllum í Öræfum. Hann var ráðinn í skip- rúm hjá föður mínum. Oft sat ég inni í herbergi hjá Bjarna og fræddi hann mig um sveitina í Öræfunum. Sú veröld var mér ákaflega fram- andi þar sem ég ólst upp við sjávar- síðuna. Bjami var svo vinsamlegur að bjóða mér að dvelja á heimili sínu á Hnappavöllum. Þá þótti mér það harla langsótt að fara í sveitina og yfirgefa æskustöðvarnar. En nokkrum ámm seinna var ég reiðu- búinn til slíkra ævintýra. Og það var sannarlega ævintýri. Það mun aldrei mást úr huga mínum þegar ég lenti á Fagurhólsmýri í Öræfum og leit jökulinn, ámar og sveitina í fyrsta sinn. Þegar við komum akandi í hlað á Hnappavöllum komu á móti mér yndisleg hjón. Þar voru komin hjón- in á Hnappavöllum, Guðrún Bergs- dóttir og Ingimundur Gíslason, sem í dag verður til moldar borinn frá Hofskirkju í Öræfum. Allt frá þeirri stundu þegar ég stóð á hlaðinu á Hnappavöllum hafa góð kynni mín af Ingimundi og fjölskyldu hans ekki rofnað. Eg var í sveit hjá Ingimundi í tvö sumur en ekkert ár hefur liðið að ég hafi ekki komið í Öræfín og dvalið í lengri eða skemmri tíma á Hnappavöllum. Eftir að ég kvæntist og eignaðist börn og heimili þá hef ég farið með börnin í sveitina til Ingimundar og hefur það verið þeim til mikillar gleði og verið þeim ævin- týri. Dætur mínar tvær áttu þar góðar stundir og einnig kynntust þær Ingimundi vel þegar hann kom á vertíð til Eyja og dvaldi á heimili okkar veturinn 1978 og vann í ísfé- lagi Vestmannaeyja hf. Þar minnist starfsfólk Ingimundar sem sérlega góðs og skemmtilegs vinnufélaga. Fyrir hálfum mánuði kom ég í heim- sókn til Ingimundar vinar míns í síðasta sinn. Þá fengu drengirnir mínir tveir að fara í útreiðartúr á gæðingum Ingimundar og munu þeir alla tíð minnast þess. Mjög var af Ingimundi dregið þegar ég sá hann í síðasta sinn í hjúkrunarheimilinu á Höfn. Vissum við báðir að þetta yrði í síðasta sinn sem við myndum hittast í þessu lífi. Kveðjustundin var trega blandin því að vinátta okkar var mikil og hafði staðið lengi. Það var margs að minnast og margt að þakka. Ingimundur steig gæfuspor þeg- ar hann kvæntist Guðrúnu Bergs- dóttur frá Hofí í Öræfum í maí 1960 en þá hafði Guðrún búið með Ingimundi á Hnappavöllum í fímm ár. Foreldrar hennar eru Bergur Þorsteinsson, f. 1903, og Pála J. Pálsdóttir, f. 1906. Þau sjá nú á bak kærum tengdasyni. Ingimund- ur og Guðrún eignuðust fímm börn. Þau eru: Ingibjörg, f. 9. mars 1956, gift Gunnari Bjarnasyni frá Hofi en þau búa nú á Höfn í Hornafirði. Inga og Gunnar eignast þijú börn, sem eru Guðrún Bára, Helga Sigurbjörg og Ingi Björn. Guðjón, f. 2. janúar 1958, og býr hann í foreldrahúsum en sækir at- vinnu til Hafnar og vinnur við akst- ur sendibifreiðar fyrir kaupfélag Austur-Skaftfellinga. Sigurður, f. 22. janúar 1960, og býr með Maríu Rós Newman og eiga þau eina dóttur, Katrínu Líf. Þau hafa nýlega hafíð búskap á Hnappavöllum. Einar er yngstur, f. 26. mars 1966, og dvelur hann enn í foreldra- húsum. Guðrún og Ingimundur misstu barn árið 1961. Ingimundur var fæddur á Hnappavöllum, sonur hjónanna Ingunnar Þorsteinsdóttur og Gísla Bjarnasonar bónda. Ingimundur var 7 ára þegar faðir hans lést árið 1928 en móður sína missti hann árið 1954. Systkini Ingimundar eru Steinunn, f. 1917 og d. 1963. Hún dvaldi alla sína tíð á Hnappavöllum; Bjarni, f. 1918, d. 1967. Hann dvaldi sömuleiðis alla sína ævi að Hnappavöllum; Guðlaug, f. 1920 og býr á Hnappavöllum (Vestur- Hjáleigu); Jóhanna er yngsti systk- inanna og er hún f. 1923 og býr í Reykjavík. Af þessari upptalningu má sjá hvað Öræfasveitin var heillandi og hvað átthagarnir voru fólkinu kærir og mikils virði. Ingimundur var mikill bóndi. Það var lærdómsríkt að fylgjast með því þegar Ingimundur kallaði á féð þar sem það var dreift úti í haganum og spjallaði við það eins og kæra vini og einnig að hann var sérlega glöggur á fé og þekkti það úr mik- illi ijarlægð. Oft fórum við Ingimundur saman í útreiðartúra og ekki þurfti hann að eltast við hestana sína því að þeir hlýddu kalli hans. Það var alltaf sérlega ánægjulegt að vera með Ingimundi því að hann var glaðsinna og léttur í lund. Hann var söngelskur og honum var iagið að sjá ávallt björtu hliðarnar á til- verunni. Koma upp í huga minn minningabrot eins og t.d. að einu sinni fyrir mörgum árum henti það óhapp Ingimund að bijöta múgavél (vél til að raka saman heyi). Þótti mörgum hann hafa farið ógætilega og fékk hann bágt fyrir. En Ingi- mundur lét ekki slá sig út af laginu og sagði hlægjandi að nú yrði þetta eins og áður fyrr að allir yrðu að taka sér hrífu í hönd og bjarga töð- unni í hlöðu og þá yrði gaman úti á engjum. Einnig er mér minnis- stætt þegar við Ingimundur fórum til kirkju á Hofí og síðan inn. í Bæjarstaðarskóg sem enn í dag þykir mjög einangraður. Það er og verður eftirminnilegt ferðalag. Ófáar ferðir fórum við niður í ósa og lögðum net og veiddum oft vel. Ekki munaði Ingimund um að vaða út í straumharðann ósinn þó að hann væri ósyndur. Seinna smíðaði hann sér bát og sigldi á honum um ósinn. Seinni árin hefur Ingimundur látið drengjum sínum eftir búrekst- ur á Hnappavöllum en ekki hefur hann setið auðum höndum. Hefur hann t.d. stundnð minkaveiði ásamt hundum sínum með góðum árangri enda Ingimundur mikill veiðimaður í eðli sínu en jafnframt mikill dýra- vinur. Það er áreiðanlegt að húsdýrin á Hnappavöllum sakna nú vinar þeg- ar Ingimundur er allur. Ingimundur hafði gaman af að koma til Vestmannaeyja og kom í síðasta sinn í júnímánuði sl. Þá var hann eins og endranær hrókur alls fagnaðar en þó fannst okkur hjón- um að honum væri brugðið og fór hann fyrir okkar orð í rannsókn. Fannst þá ekkert athugavert en í ágúst sl. uppgötvaðist hjá honum krabbamein sem leiddi hann til dauða. Elsku Guðrún mín. Söknuður þinn er sár en ég treysti því að góður Guð veiti þér og börnum þínum styrk og huggun og blessi minningamar um kæran eiginmann og föður. Magnús Kristinsson og fjölskylda, Vestmannaeyjum. Mig langar í örfáum orðum að minnast eiginmanns móðursystur minnar, Ingimundar Gíslasonar frá Hnappavöllum í Öræfum. Hann lést þann 13. september síðastliðinn af völdum sjúkdóms. Ingimundur fæddist á Hnappa- völlum, sonur bændahjónanna Ing- unnar Þorsteinsdóttur og Gísla Bjarnasonar á Hnappavöllum. Ung- ur missti hann föður sinn, en upp frá því ólst hann upp hjá móður- bróður sínum Jóni Þorsteinssyni. Arið 1960 kvæntist hann móður- systur minni Guðrúnu Bergsdóttur frá Hofí í Öræfum. Hófu þau bú- skap að Hnappavöllum og bjuggu þar alla tíð. Eignuðust þau 5 börn, 4 þeirra eru á lífí. Eru þau öll dugn- aðarfólk eins og foreldrar þeirra. Guðrún og Ingimundur eiga 4 bamaböm. Sem krakki var ég í sveit á sumr- in hjá Guðrúnu og Ingimundi. Það var gott að vera hjá þeim og tóku þau mér opnum örmum eins og fleiri krökkum sem hafa dvalist hjá þeim í gegnum tíðina. Það var allt- af eitthvað að sýsla hjá krökkunum á Hnappavöllum og ekki var vinnu- þrælkuninni fyrir að fara. Ingi- mundur var góður við okkur krakk- ana og þó að við værum stundum að stríða honum þá gat hann aldrei orðið reiður við okkur heldur skellti alltaf uppúr. Mikið fannst manni gaman að fara með Ingimundi í silungsveiði. Ingimundur var enginn logn- mollumaður og var ófeiminn við að segja sínar skoðanir á hlutunum. Alltaf var hann léttur í lund og til í að gera að gamni sínu. Hann var mikill söngmaður og söng alltaf í kirkjukórnum. Fráfall hans er mik- ill sjónarsviptir fyrir sveitunga hans. Fjölskylda hans studdi hann vel í hans erfíðu veikindum. Guðrún kona hans stóð eins og klettur við hlið hans þó sjálf væri hún nýkom- in af sjúkrahúsi og augljóst hafí verið að hveiju stefndi. Að lokum langar mig og fjöl- skyldu minni að senda innilegar samúðarkveðjur til Guðrúnar og fjölskyldu hennar. Valgerður Bjarnadóttir t Hjartkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, séra BJARTMAR KRISTJÁNSSON, andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, fimmtudaginn 20. september. Hrefna Magnúsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Móðir mín, VILBORG JÓNSDÓTTIR frá Kalastöðum, Víðimel 44, andaðist 14. september. Útför hennar var gerð 21. september. Jóna Ólöf Jónsdóttir. t Eiginkona mín, ALMA MAGNÚSDÓTTIR, Dalseli 13, Reykjavfk, lést í Landspítalanum fimmtudaginn 20. september. Jón V. Ottason og fjölskylda. t Maðurinn minn og faðir okkar, ÓSKAR ÁSKELSSON frá Bassastöðum, Öldugötu 44, Hafnarfirði, lést í St. Jósefsspítála 20. september. Jóhanna H. Elíasdóttir og börn. t Eiginmaður minn og faðir okkar GREIPUR SIGURÐSSON, landgræðsluvörður, Haukadal, Biskupstungum, er látinn. Kristín Sigurðardóttir, Hrönn Greipsdóttir, . Sígurður H. Greípsson. t Móðir okkar, tengdamóðir, stjúpmóðir, amma og langamma, VALBORG HARALDSDÓTTIR frá Kolfreyjustað, Langagerði 22, lést í Borgarspítalanum 20. september. Jónas Haraldsson, Sigrún Haraldsdóttir, Ragnar Haraldsson, Jenný Haraldsdóttir, Þórey Haraldsdóttir, Rannveig Haraldsdóttir, Haraldur Haraldsson, Björgvin Haraldsson, Hilmar Haraldsson, Helga Haraldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Hjörtur Haraldsson, Sigrún Einarsdóttir, Davfð Kr. Jensson, Pálmi Kárason, Hilmar Björgvinsson, Ingibjörg Tómasdóttir, Arndís Magnúsdóttir, t Útför föður okkar, stjúpföður, tengdaföður, afa og langafa, HJÖRLEIFS DIÐRIKSSONAR, Hverfisgötu 87, Reykjavík, ferfram frá Bústaðakirkju mánudaginn 24. september kl. 13.30. Börn, stjúpsonur, tengdabörn, barna- börn og barnabarnabörn. t Alúðarþakkir fyrir samúð og hlýhug við fráfall mannsins mfns, föður, tengdaföður og afa, GEIRS HALLGRIMSSONAR. Erna Finnsdóttir, Hallgrímur B. Geirsson, Aðalbjörg Jakobsdóttir, Kristín Geirsdóttir, Freyr Þórarinsson, Finnur Geirsson, Steinunn Þorvaldsdóttir, Áslaug Geirsdóttir, og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.