Morgunblaðið - 22.09.1990, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1990
33
Minning:
_ *
EinarAg. Einars-
son frá Dynjanda
Fæddur 2. ágúst 1903
Dáinn 9. september 1990
Nú, þegar elsku afi okkar, Eipar
Ágúst Einarsson frá Dynjanda, hef-
ur fengið hvíldina, Ieita á hugann
ótal minningar. Þegar við Þór, dótt-
ursonur hans, kynntumst fannst
mér ég eignast afa. Hann var mér
strax mjög góður og mikill vinur
minn.
Sumarið ’78 fengum við herbergi •
hjá honum. Það var gaman að búa
í Fjarðarstrætinu þetta sumar og
kynnast hans lífi. Harkan hjá hon-
um, að róa á trillunni sinni, henni
Jóhönnu, var ekki lítil, þó fuilorðinn
væri. Gaman var að fylgjast með
því, þegar hann var að útbúa sig í
ferðina á æskustöðvarnar með hana
Sillu sína, Einar, Ragnar og Stínu,
en þangað fóru þau á hverju ári.
Honum þótti gaman í þeim ferðum
en ekki mátti stoppa þar lengi, því
það þurfti að renna fyrir fisk.
Um haustið fluttum við suður til
Reykjavíkur og heim aftur um vor-
ið, þá fengum við íbúðina á loftinu
hjá afa. Við áttum nú þriggja mán-
aða dóttur, sem langafi hélt mikið
upp á og kallaði alltaf „blómið sitt“.
Gústi afí kom til okkar á hverjum
degi meðan við bjuggum á loftinu.
Oft bauð hann mér að borða með
sér afsiginn bútung, sem var hans
uppáhaldsmatur. Hann sagði mér
margar skemmtilegar sögur frá
sínum yngri árum og búskapnum
hjá sér og Þórunni sinni í Aðalvík
og á Hesteyri. Mér fannst gaman
að heyra hann tala um hlutina, eins
og þeir voru þá.
Það var skemmtileg stund, þegar
Þór sagði afa sínum að „litla bló-
mið“ hans ætti að heita Þórunn
Ágústa og spurði hvort hann vildi
ekki halda henni undir skírn. Það
gladdi afa mjög.
Þegar Þórunn Ágústa var á öði-u
ári fluttum við til Bolungarvíkur.
Afa þótti erfitt að „litla blómið“
hans væri að flytja svona langt í
burtu, en það jafnaði sig. Við kom-
um oft í Fjarðarstrætið til hans og
hann kom stundum í heimsókn og
gisti í 2-3 nætur hjá okkur.
Afi sagði mér oft frá sinni sjó-
mennsku og gaf mér sjómannskon-
unni margar góðar ráðleggingar.
Honum þótti gaman að vera á Hest-
eyri og dvaldi hann þar oft með
Dúddý og Helga tengdasyni sínum.
Sumarið ’83 hélt öll fjölskyldan
til Hesteyrar, til að halda upp á 80
Minning:
Gestur O. Hallbjörns-
son verksljóri
Fæddur 15. ágúst 1920
Dáinn 14. september 1990
Að hryggjast og gleðjast,
hér um fáa daga.
Að heilsast og kveðjast,
það er lífsins saga.
Mig setti hljóðan þegar Brynhild-
ur Friðþjófsdóttir, vinkona mín,
hringdi og tilkynnti mér lát vinars
míns, Gests Hallbjörnssonar, manns
síns. Það kom að vísu ekki alveg á
óvænt en svona fljótt. Fyrir réttum
mánuði fórum við ísleifur, sonur
minn, í heimsókn til hans á Greni-
teig 22, Keflavík, og sá ég þá að
hann var meira en lítið sjúkur. Það
var gaman að sjá þegar lítill og
fallegur dóttursonur hans kom inn,
hvað hýrnaði yfir honum.
Gestur var ættaður af Snæfells-
nesi. Hét faðir hans Hallbjörn Þor-
valdsson. Var hann lengi kennari á
Snæfellsnesi. Móðir hans hét Stein-
unn Sigurrós Jónsdóttir. Böm Gests
og Brynhildar eru þtjú, Hafþór,
Hallsteinn og Hrönn.
Gestur er lagður upp í sinn himn-
eska leiðangur. Þjáningar allar að
baki. Við sjáum hann fyrir okkur
brosmildan og léttan í spori, leita á
vit hins óþekkta, ódeigan og hress-
an í viðmóti. Ég tel það gæfu að
hafa kynnst Gesti og hans góða
heimili. Heimilið hefur misst mikið
en minningin um góðan dreng
gleymist aldrei. Ég veit að gömlu
félagamir hans, sem í lengri tíma
hafa unnið undir hans stjóm, minn-
ast hans með söknuði: Guðmundur
Gíslason, Kristinn Gunnarsson, Sig-
valdi Kristinsson, Eyjólfur Einars-
son og Oddur Jónsson. Synir mínir,
Þorsteinn og ísleifur, sem unnu með
Gesti um tíma, senda kveðjur. Eig-
inkonu, börnum og barnabörnum
vottum við samúð okkar.
Hafdís Alfreðs-
dóttir - Kveðja
Mig langar að minnast Hafdísar
Alfreðsdóttur, vinkonu minnar, er
svo snögglega hefur kvatt þessa
jarðvist. Heidi, eins og hún var oft-
ast kölluð, veiktist skyndilega á
heimili sínu, missti meðvitund og
lést á Landakotsspítala nokkrum
dögum síðar.
Eg hef átt því láni að fagna að
vera umsjónarmaður leiklistar-
klúbbsins Perlufestarinnar frá upp-
hafi. Heidi var einn af stofnendum
Perlufestarinnar og ötull liðsmaður
alla tíð. Hún lét sig aldrei vanta á
fund félagsirls á Bústöðum, sótti
leikhús og hvað eina er félagsmenn
tóku sér fyrir hendur.
Það er margs að minnast á
kveðjustund og alls góðs er snértir
Heidi. Hún var svo óspillt og
hrífandi. Gleði hennar var rík og
þegar Heidi hló í leikhúsinu sínum
innilega hlátri tóku aðrir undir.
Hlátur hennar og gleði var svo
smitandi.
Ég minnist umhyggjusemi henn-
ar, jafnt í leikhúsi sem annars stað-
ar í lífinu. Þegar við Perlufestarfé-
lagar sáum Skugga-Svein í Þjóð-
leikhúsinu og búið var að leggja
Skugga-Svein í bönd heyrðist Heidi
segja stundar hátt: „Almáttur, að
fara svona með manninn, að binda
hann svona."
Einhveiju sinni er undirrituð var
að leika norn á mótorhjóli var Heidi
meðal áhorfenda og fannst henni
nornin hálf glannaleg á hjólinu, því
hún kallaði upp þessi aðvörunarorð:
„Elsku Sigga, passaðu þig að detta
ekki af hjólinu og meiða þig.“
Heidi var góð manneskja. Oft tók
hún mig afsíðjs á félagsfundum og
þá ævinlega til að vekja athygli
mína á bágindum annarra. Hún sá
oft hluti, sem fóru fram hjá mér
ára afmæli Gústa afa. 2. ágúst var
fjölmennt á Langavelli, margir
gestir komnir að á bátum og stóð
veislan fram á nótt.
Gústi afi á eina dóttur, Dúddý,
og hún á þijú börn, þau Hjört
Ágúst, Þór Ólaf og Sigurrósu
Emmu. Langafabörnin eru orðin
sex; Helgi, Hilmar Skúli og Heimir
Ólafur en þeir eru synir Hjartar.
Þórunn Ágústa og Guðný osk eru
dætur Þórs og Ólafur Valdimar er
sonur Sigurrósar.
Elsku Gústa afa þakka ég þau
fáu ár sem ég átti hann að. Guð
geymi afa.
Álfhildur Jónsdóttir
Flýt þér vinur í fegra heim.
Kijúptu að fótum friðarböðans,
og fljúgðu á vængjum morgunroðans.
Meira að starfa guðs um geim.
(Sálmur)
Blessuð sé minning um góðan
dreng.
Jakob V. Þorsteinsson
en ástæða var til að gefa gaum og
veita athygli.
Ég þakka Heidi góða og lær-
dómsríka samfylgd. Foreldrum
hennar, þeim Jónínu og Alfreð,
sendi ég innilegar samúðarkveðjur.
Sigríður Eyþórsdóttir
Grindavík:
Minnisvarði um Odd
Gíslason afhjúpaður
MYNDASTYTTA af sr. Oddi
Gíslasyni, fyrrum sóknarpresti í
Grindavík og Höfnum, verður
afhjúpuð í dag, laugardag, í
kirkjugarðinum að Stað í
Grindavík.
um til kaffisamsætis í félagsheimil-
inu Festi.
FÓ
Styttan er gerð af myndhöggvar-
anum Gesti Þorgrímssyni frá Laug-
arnesi en reist af sóknunum í
Grindavík og Höfnum ásamt ætt-
ingjum séra Odds og Slysavarnafé-
lagi íslands.
Athöfnin hefst kl. 14.00 með
helgistund í Staðarkirkjugarði með
söng kirkjukórsins undir stjórn
Siguróla Geirssonar og síðan flytur
sr. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir bæn.
Ekkja Odds Ólafssonar læknis á
Reykjalundi afhjúpar styttuna og
að lokum flytur biskupinn yfir ís-
landi, hr. Ólafur Skúlason, ávarp.
Að lokinni athöfn býður bæjar-
stjórn Grindavíkur öllum viðstödd-
■ PIANOLEIKARINN Vaido
Runimessen frá Eistlandi heldur
tónleika sunnudaginn 23. septem-
ber
kl. 17.00
Norræna hús-
inu og leikur þar
verk eftir tón-
skáld frá
Eystrasalt-
slöndunum.
Með heimsókn
Vardo Rumess-
ens lýkur einnig eistnesku grafík-
sýningunni sem hefur verið til sýn-
is í anddyri Norræna hússins und-
anfarið.
Eskiljarðarkirkja
Hátíðahöld í tilefni 90 ára
afmælis Eski fj arðar kirkj u
SUNNUDAGINN 23. september nk. verður safnaðarhátíð á Eski-
firði. Tilefnið er tvíþætt. Aldamótaárið fyrir þá réttum 90 árum var
Þjóðkirkjuhús vígt á Eskifirði. I sama mund er horft fram á við eins
og gert var í þessum efnum fyrir árhundraði. Hápunktur hátíðarinn-
ar verður í svonefndu Bleiksárgili, sem er utan við kirkjugarðinn
og innan við Bleiksána, en þar verður tekin, að lokinni hátíðar-
messu, skóflustunga að safnaðarheimili, þar sem verður aðstaða
fyrir kirkjulegt starf og annað það sem efla mætti menningu og
almannaheill.
Biskup, herra Ólafur Skúlason,
og frú Ebba G. B. Sigurðardóttir,
munu heiðra hátíðina með nærveru
sinni. Árdegis klukkan 10.30 verður
barnastund í kirkjunni. Sérstakir
gestir í þeirri barnastund verða
reyðfirsk börn. Síðan verður há-
tíðarguðsþjónusta klukkan 14. Þar
munu kórar Eskiijarðar- og Reyð-
arfjarðarsafnaða syngja. Sóknar-
prestur mun þjóna fyrir altari og
biskup prédika. Eftir að skóflu-
stunga hefur farið fram í Bleiksár-
gili býður kirkjufélagið Geislinn og
sóknarnefnd til kirkjukaffis í fé-
lagsheimilinu Valhöll. Þar mun
meðal annars kór Norðfjarðarkirkju
syngja, ásamt hljómsveit, undir
stjórn Ágústar Ármanns Þorláks-
sonar, Missa Brevis í B-dúr e. J.
Haydn. Einsöngvari með kórnum
verður Margrét Bóasdótti, söng-
kona. Þá munu koma þar fram
Aðalsteinn Valdimarsson og Georg
Halldórsson og taka lagið.
Þökkum öllum þeim fjölmörgu sem á einn eða annan hátt sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
ÖiMNU GUÐMUIMDSDÓTTUR,
Nóatúni 32,
Reykjavfk.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki gjörgæsludeildar Borg-
arspítalans í Reykjavík.
Erla Einarsdóttir,
Magnús Einarsson,
Gylfi Einarsson,
Guðmundur Einarsson,
Sigrún Einarsdóttir,
barnabörn og
Þormóður Einarsson,
Ólöf Erla Hjaltadóttir,
Ólöf Cooper,
Svana Guðjónsdóttir,
Kristinn Jóhannsson,
barnabarnabörn.