Morgunblaðið - 30.12.1990, Page 15

Morgunblaðið - 30.12.1990, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 1990 15 Á þreföld- um hljóð- hraða Andrés Magnússon Bootlegs er ein fárra hrein- ræktaðra þungarokkshljóm- sveita á íslandi. Þeir eru jafn- framt meðal óhreinu barnanna í íslenskri popptónlist — meðal þeirra, sem ekki hljóta náð fyr- ir eyrum útvarpsplötusnúða lítilla sanda og lítilla sæva. Hins vegar bregður svo við að platan Bootlegs (önnur skífa hljómsveitarinnar) er gefin út af Steinum, sem afsannar þá kenningu að öllum íslenskum útgefendum sé alls varnað þeg- ar frumleg tónlist er annars vegar. Bootlegs hafa tekið nokkrum breytingum frá síðustu plötu, en til liðs við sveitina er geng- inn söngvarinn Júníor (Jón Símonarson). Fyrir vikið hefur gítarfóstbræðralag þeirra Kristjáns Ástvaldssonar, Guð- mundar Hannes Hannessonar, Jóns Ö. Sigurðssonar og Ingi- mundar E. Þorkelssonar styrkst til muna og er nú sem einn órofa veggur. Gagnrýnandi er ekki frá því að tónlist Bootlegs hafi færst nær hinni „nýju bylgju bresks þungarokks" (NWBHM), en það kann þó fremur af stafa af auknum samleik gítarleikar- anna í líkingu við það sem ger- ist hjá Iron Maiden. Tónlistin telst þó enn til brotajárnsrokks- ins (thrash) og gætir áhrifa frá sveitum á borð við Metallica, Anthrax ogjafnvel Celtic Frost. Fyrst og fremst eru Bootlegs þó eigin herrar (í mótsögn við nafn sveitarinnar!) og skilgetið afkvæmi Reykjavíkur. Text- arnir væru vafalaust harla lé- legir aflestrar, en þeir falla fullkomlega að tónlistinni, fullir uppreisnar og fyrirlitningar á stöðnun meðalmennskunnar. Þá er einnig vikið að atburðum líðandi stundar, svo sem eins og í Mesti & besti, sem tileink- að er Saddam Hussein. Þrátt fyrir að tónlistin sé í hraðari og hrárri kantinum er að finna lög á plötunni, sem eru í raun býsna hefðbundin rokklög. Til dæmis um það má nefna Tippikal. En það er ávallt grunnt á kímninni hjá Boot- legs, þó á stundum sé gamanið grátt, jafnvel svart. Þeir ein- skorða sig þó síst við svartnæt- tið. Útgáfa sveitarinnar af Gamla Nóa, sem verið hefur fastur liður á tónleikadagskrá þeirra um langt skeið, gefur góða mynd af þeim „flipp- húmpr“, sem ríkir hjá sveitinni. Annar hljómleika-„standard“, Fuck Off, er af sama tagi að ógleymdri jólasyrpunni, sem undirrituðum skilst að sé lo- katilraun hljómsveitarinnar til þess að vera söluvænlegir! Hljóðfæraleikur er prýðileg- ur á plötunni, sérstaklega þó gítarleikurinn. Bassa- og trommuleikur heldur uppi góðri keyrslu og söngurinn hæfir þessari tónlistartegund full- komlega. Sérstök ástæða er til þess að minnast á útsetningar, sem eru öldungis pottþéttar. Bootlegs er ekki hljómsveit fyrir viðkvæmar eða taugavei- klaðar sálir. Þetta er kröftugt rokk, sem rúllar yfir áheyrend- ur á þreföldum hljóðhraða. Hafi menn á annað borð áhuga á kynna sér hvað er að gerast í íslenska rokkinu er Bootlegs nauðsynlegur viðkomustaður í þeirri för. TRYLLT AST TEENAGEMUTANTNINJATURTIES* smkJUDHHHOAG ELIASKOTEAS ““""SSSSKEVINEASTMAN««PETERIA1RD “ÍJOHNDUfHEZ "SlliOYFORGESMITH ““S5SSSTH0MASK.GRAY K3RAYM0NDCH0W ,«™GRAHAMC0JTlE ”B0BBYHERBECK "*!IODDW.LANGENanoBOBBYHEIIBECK “SKIMdawson,simon FIELDS,DAVID CHAN “TSTEVEBARRON SKJALDBOKURNAR BeforeSam wosmurdefed hetoIdMolIy hed love and protect herforevet ■11«™ iimiIllllraiBrfflilMWHBIWH IB IIHM w a Wl SMHh ÍÖE.Í.BÖ “«ll«l DRAUGAR PARADÍSARBÍÓ GLÆPIR OG AFBROT HINRIK V Allir geta fundið myndir við sitt hæfi í stærsta og best búna kvikmyndahúsi landsins. SIMI 2 21 40 ÞAR SEM GÆDIN SKIPTA MALI RAPHAEL HASKOLABIO SYNIR NIKITA Sýnd á næstunni PAPPÍRS-PÉSI ítr ár SKJALDBOKUÆÐID ER BYRJAD

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.