Morgunblaðið - 30.12.1990, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 1990
1
Strengir
þú ára-
móta
heit?
Stundum
Könnun Hagvangs á áramótasiðum:
Aramótavenjur
Islendinga eru í
föstum skorðum
HINN dæmigerði íslendingur kaupir flugelda fyrir áramót og skýt-
ur þeim upp þegar nýja árið gengur í garð. Hann borðar heima
hjá sér á gamlárskvöld, fer ekki á brennu í ár af því að hann fór
í fyrra með börnin sín. Hann vinnur ekki áramótaheit og sækir
ekki áramótadansleik.
Þetta eru í stórum dráttum nið-
urstöður spurningavagns Hag-
vangs frá því í byrjun desember,
en þar voru íslendingár meðal ann-
ars spurðir um áramótavenjur
sínar. Leitað var til 1.000 manna
á aldrinum 18-67 ára, sem voru
valdir af handahófi úr þjóðskrá, og
bárust svör frá 781.
Fyrsta spumingin var: Kaupið
þið á heimilinu eitthvað af flugeld-
um fyrir áramótin? 608, eða 77,8%,
svöruðu þessari spurningu játandi
en 163, eða 20,9%, neitandi. Aðeins
10, eða l,3%sögðustekki vitaþað.
Einnig kom í ljós, að heldur
færri höfuðborgarbúar en lands-
byggðarbúar kaupa flugelda. Þá
kaupa milli 80 og 90% landsmanna
á aldrinum 18-49 ára flugelda, en
aðeins rúmlega heimingur þeirra
sem komnir eru yfir fimmtugt.
Þetta er einnig í samræmi við þær
niðurstöður að flugeldakaup eru
almennari á heimilum þar sem eru
böm og unglingar.
Þeir sem sögðust kaupa flugelda
fyrir áramót vom síðan spurðir:
Skjótið þið yfírleitt upp rakettum
eða blysum þegar nýja árið gengur
í garð? 94% svömðu þessari spurn-
ingu játandi en 4,3% neitandi. Þar
af svömðu 94% svarenda á aldrin-
um 18-29 ára þessu játandi, 97,6%
á aldrinum 30-49 ára og 84,2% á
aldrinum 50-67 árar
Helmingur landsmanna
fer á brennu
Þriðja spurningin var: Gerir þú
ráð fyrir að fara á brennu á gaml-
árskvöld? Þessu svömðu 50,7% ját-
andi en 44,2% neitandi. 5,1% sagð-
ist ekki vita það. Þeir sem svöruðu
Hverjir fara
á bali?
Aðeins 16,8% ætia o9
stíga dans ó gamlórs-
kvöld. Sá hundraðs-
hluti skiptist svorta
milli aldurshápa og
kynja:
18-24 [
25-29
30-391 1
40-49 □
50-59 0
60-67 Q
játandi voru flestir á aldrinum
18-49 ára. Þá kom einnig í ljós að
þeir sem áttu börn gerðu frekar
ráð fyrir að fara á brennu.
Fjórða spurningin var: Hvar
borðar þú yfírleitt á gamlárskvöld?
Flestir, eða 69,4%, sögðust borða
heima. 18,1% sögðust borða hjá
foreldmm eða tengdaforeldmm.
2,2% sögðust borða hjá börnum eða
tengdabömum, 5,2% sögðust borða
hjá ættingjum og 5% svömðu að
þaað væri misjafnt. Svörin voru
. mjög áþekk frá höfuðborgarbúum
og landsbyggðarbúum.
Þegar svör við þessari spurningu
vom flokkuð eftir aldri svarenda,
kom í ljós að 51,3% á aldrinum
18-29 ára borða heima, en 35,5
hjá foreldrum eða tengdaforeld-
rum. 74,7% á aldrinum 30-49 ára
borða heima en 15,1% hjá foreld-
rum og 81% á aldrinum 50-67 ára
borða heima en 8,5% hjá bömum
eða tengdabömum.
Konur vinna frekar
áramótaheit
Fimmta spurningin var: Hefur
þú það fyrir sið að gera einhverjar
heitstrengingar um áramót. Þessu
svömðu 10% játandi, 86,9% neit-
andi en 3,1% svaraði stundum. Við
aldursgreiningu kom í ljós að heit-
strengingum fækkar með aldrin-
um. Þá strengja fleiri konur en
karlar áramótaheit, eða 11,9% á
móti 7,9%
Sjötta og síðasta spurningin var:
Gerir þú ráð fyrir að fara á ein-
hvem áramóta- eða nýársdansleik
um næstu áramót? Þessu svömðu
16,8% játandi, 78,7% neitandi en
4,5% sögðust ekki vita það. Af
þeim sem svömðu játandi vom
flestir á aldrinum 18-29 ára eða
37,3% svarenda á þeim aldrí, en
aðeins 3,2% svarenda á aldrinum
50-67 ára sögðust ætla á áramóta-
dansleik.
Þetta var eina spurningin, þar
sem marktækur munur var á svör-
um eftir búsetu. Þannig sögðust
25% landsbyggðarbúa ætla á ára-
mótadansleik en 10,6% höfuðborg-
arbúa.
Gunnar Maack framkvæmda-
stjóri Hagvangs sagði við Morgun-
blaðið, að fólk hefði í konnuninni
gefíð fijót og afdráttarlaus svör,
og niðurstöðurnar bentu til að ára-
mótasiðir og venjur íslendinga
væm í mjög föstum skorðum. Þetta
kæmi raunar heim og saman við
niðurstöður kannana Hagvangs á
jólasiðum á undanförnum árum.
Gamlárskvöld?
94,1% svarenda
kvaðust ætia að
skjota flugeldum til
þess að fagna nýju
ári, en aðeins 77,8%
söqðust kaupa flug-
elaa til þess arna!
Fólk úti á landi virð-
ist hafa meiri áhuga
á flugeldum og blys-
um en höfuðborgar-
búar, því þar sögð-
ust 6% fleiri ætla
að festa fé í slíku.
Komum heil heim
Alltof margir vanmeta íslenska vetrarveðráttu. Þeir
telja lítið mál að skreppa í langferð, svo fremi að
veðrið sé gott þegar lagt er af stað.
„Ég ætti að ná á fundinn og til baka áður en veðrið, sem þeir
spáðu, skellur á.“
Skjótt skipast veður í lofti. Aðstæður og veðurfar er
allt annað til íjalla en í byggð.
„Árans vandræði, bfllinn fastur. Það var ekkert sagt um að heið-
in væri ófær. Það er engum að treysta. Ekki þýðir að reyna að
labba af stað á spariskónum. Ég verð að bíða eftir einhverjum,
sem er vel búinn."
Þegar menn eru komnir í vandræði hugsa þeir gjarn-
an um allt það sem gott er að hafa meðferðis.
Skófla keðjur - nesti - teppi - hlífðarföt - kuldaskór, fjarskipta-
tæki - dráttartaug - vasaljós.
Látum ekki veðrið og færðina koma okkur á óvart.
AKSTUR
KREFST ÁBYRGÐAR