Morgunblaðið - 30.12.1990, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 30.12.1990, Blaðsíða 34
MtiRGÍÍNB^AÐHy SÚNXUD'A'ÓÚR'HÓ'. DÉSÉMBER'lðÐÓ' Afmæliskveðia: ORÐSENDING TIL KORTHAFA Samið hefur verið við TRYGGINGAMIÐSTÖÐINA HF., Aðalstræti 6, Reykjavík, um að annast korthafa- tryggingar félagsins frá og með 1. janúar 1991 Þetta gildir um allar ferðatryggingar VISA fyrir handhafa Almennra korta, Farkorta og Gullkorta. Nýir é tryggingaskilmálar eru í prentun og munu verða sendir öllum korthöfum innan tíðar. Þá munu skilmálarnir einnig liggja frammi hjá Trygginga- miðstöðinni hf., á skrifstofu VISA ÍSLANDS, í bönkum/sparisjóðum og hjá ferðaskrifstofunum. \ Bótaskyld tjón sem korthafar hafa orðið fyrir á árinu 1990 ber að tilkynna SJÓVÁ-ALMENNUM tryggingum hf, en TRYGGINGAMIÐSTÖÐINNI hf. eftir það. Reykjavík, 29. desember 1991 Höfðabakka 9, 112 Reykjavík s. 91-671700 Kristín Jónsson Smedvig Sjötugsafmæli Kristínar Jónsson Smedvig húsmóður og fiðluleikara í Seattle berupp á 1. janúar 1991. Ung valdi Kristín tónlistina að ævistarfi samhliða húsmóðurhlut- verkinu og hefur verið fíðluléikari við Sinfóníuhljómsveit Seattle- borgar um áratugaskeið. Störf hennar verða ekki rakin í stuttri grein. En frændur hennar og frænkur hér á íslandi hugsa til hennar með þakklæti á þessum tímamótum í ævi hennar. Ég minn- ist hennar sem ágætrar frænku, skemmtilegrar og fjörmikillar. Kristín er gift Egil Smedvig frá Stavanger, prófessor og kennara í tónlist. Börn þeirra eru 3A Jodene, BA í músík frá háskól- anum í Seattle, kennir á flautu; Rolf, BA í músík frá háskólanum í Boston, heimsfrægur trompetleik- ari, Empire Brass er hljómsveit Rolfs; Sirrý, fiðuleikari og húsmóð- ir í Boston. - Heimili Kristínar og Egil er góð- kunnugt fyrir gestrisni og glað- værð, vart er hægt að hugsa sér. glaðara né glæsilegra heimili. Risna þeirra hjóna er kunnari en frá þurfi að segja, þau hafa um langt skeið með tónlist sinni og fjöri gert heim- ilið að menningarmiðstöð. Á óteljandi hátt má sjá ást Kristínar og systkina hennar, Elínar Ingibjargar, húsfreyju og skóla- hjúkrunarkonu, Jóns Marvins, lög- fræðings og aðalræðismanns ís- lands í Seattle, til íslands, ræktar- semi þeirra er á hæsta stigi. Þau fylgjast öll vel með því sem hér gerist, af lífi og sál. Systkinin leggja allt kapp á að vernda tungu sína og þjóðemi, en foreldrar þeirra voru bæði fædd á íslandi, hjónin Bryn- hildur Erlendsdóttir frá Mörk í Lax- árdal, A-Hún. og Þorbjörn Jónsson frá Geldingaá í Melasveit. Helgi Falur Vigfússon DAGVIST BARNA Hraunborg Á leikskólann Hraunborg vantar eftirtalið starfsfólk: Matráðskona eða matartæknir. Starfsstúlka í fullt starf. Fóstra í fullt starf á deild. Þroskaþjálfi eða fóstra í stuðningsstarf. Nánari upplýsingarveitirSigurborg Sveinbjörnsdótt- ir, forstöðumaður, í síma 79770. Miðvikudaginn 2. janúar kl. 9 hef st RYMINGARSALA á báöum hcedum í verslun okkarad Laugavegi 33. Viö bjóöum upp á allsherjar sprengiveislu þarsem þú geturgert ótrúlega góö kaup á plötum, kassettum oggeisladiskum. Þúsundir erlendra titla á sprenghlœgilegu veröi. Allar nýju, íslensku plótumar, kassettumar og geisladiskamir á 25% afslcetti og eldra íslenskt ejnt á veröi, sem hefur ekkiþekkst áöur. Misstu ekki afþessu einstæóa tækifæri. LAUGAVEGI 33

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.