Morgunblaðið - 30.12.1990, Side 42

Morgunblaðið - 30.12.1990, Side 42
■> PK 42 morgunbláðíð —/,- -r g _ .ÍWIgT"31*” 1 M 103 ,cir„a,u. FOLK I FRETTUm súnnudagur 30. desember 1990 H SYNING Koparbrúsar, kafarabúningar og gamlar auglýsingamyndir All athyglisverð sýning er nú í gangi á annarri hæð verslun arinnar Geysis á horni Aðalstrætis og Vesturgötu þessa dagana. Hún var opnuð fyrir jól, en að sögn umsjónarmanns hennar, Einars Egilssonar, var lítið hægt að sinna henni í jólaösinni, en nú hefði hægst um og allt kapp yrði lagt á að gera veg hennar sem mest- an. Hér er verið að sýna gamla muni frá stofnunum og fyrirtækj- um í miðbænum. Þegar talað er um „gamla“ muni er átt við hluti sem eiga uppruna allt aftur til aldamóta og svo alveg fram undir 1950 eða svo. Einar Egilsson er framkvæmdastjóri „Félagsins í Miðbænum" sem stendur að sýn- ingunni og Morgunblaðið bað hann að lýsa uppákomunni nánar. „Það má segja að þetta sé nokk- urs konar „opin sýning“ að því leyti að fyrirtæki og stofnanir lána okkur gamla muni og æ fleiri bætast í hópinn. Þessu hefur sem sagt verið vel tekið. Meðal þess sem þarna má sjá má nefna gaml- ar auglýsingamyndir úr „raf- skinnu“, gamlir búðarkassar og reiknivélar, gamlir mjólkurbrúsar, símar, símaskrár og pósttöskur. Fleira mætti nefna, hér er til dæm- is heljar mikill koparsleginn brúsi upprunalega ættaður frá barónin- um á Hvítárvöllum. Þá má geta þess að ýmislegt er að koma inn. Ég á til dæmis von á því að fá á Sýningarmunir... næstu dögum einn elsta kafara- búning landsins, mikið ferlíki með tilheyrandi hjálmi og blýskóm. Ætli þetta séu ekki svona milli 20 og 30 munir sem komnir eru á sýninguna og þeim fjölgar stöð- ugt,“ sagði Einar Egilsson. Einar sagði að auk þess sem hann hefði nefnt væri mjög for- vitnilegt fyrir sýningargesti að skoða líkan sem Borgarskipulag hefði nýlega sent frá sér og sýndi hugmyndir um ýfirbyggt Austur- stræti. „Það er gaman að skoða það og velta möguleikunum fyrir sér,“ sagði Einar. Félagið í Miðbænum hefur gengist fyrir ýmsum uppákomum að undanförnu í því skyni að gæða umræddan bæjarhluta auknu lífi á nýjan leik, en verslun í miðbæn- um fékk heldur slæma útreið er Kringlan opnaði á sínum tíma. Miðbærinn hefur þó hægt og bítandi rétt úr kútnum á nýjan leik og jafnvægi verið að komast á að nýju eftir erfiðan tíma þar sem sumir verslunarmenn urðu undir. Einar sagði að margt væri á döfinni, þetta væri bara rétt að byija og hann vonaði að vegur „opnu“ sýningarinnar yrði sem mestur. Barry Manilow ásamt einkajólasveini sínum. Manilow fyrirmynd Dylans? að eru ekki einungis íslenskir rithöfundar, kaupmenn og tónlistarmenn, sem raka saman fé í tilefni jóla, erlendis tíðkast einnig alls konar útgáfa í tilefni hátíðar ljóssins. Einn þeirra sem steypti sér í jólaflóðið í fyrsta sinn var söngvar- inn dúnmjúki, Barry Manilow, sem hljóðritaði jólalög og gerði strand- högg í Los Angeles í tilefni plötunn- ar og hafði með sér sinn eigin per- sónulega jólasvein sem sá um að skipuleggja útgáfuveislu af stærstu gerð og leysa alla gesti út með gjöf- um. Eins og allar plötu Bárðar til þessa var jólaplatan rifin út og lof- uð í hástert. Annars var Manilow eigi alls fyrir löngu í gríðarmikilli veislu fyrir vestan þar sem margt hljómlistarmanna var samankomið. Einn í hópnum var Bob Dylan og einhveiju sinni mættust þeir í einum ganginum. Dylan horfði fast í augu Manilows og sagði án þess að blikna að Manilow heillaði sig ög fyllti sig andagift! Þar sem ætla hefði mátt hið gagnstæða varð Manilow heldur klumsa og segir hann að fyrstu við- brögð sín hafi verið þau að hér hafi verið um skefjalaust háð og spott að ræða af hálfu Dylans. „Ég ætlaði eiginlega að rjúka burt í fússi, en hugsaði málið þó ögn leng- ur. Ef til vill var eitthvað til í þéssu. Kannski meinti hann þetta! Allt um það hef ég um fátt annað hugsað meira allar götur síðan,“ segir Barry Manilow. LAXVEIÐI 2.000 manns rýna nú í lítinn gulan bækling Rúmlega 2.000 Reykvíkingar og nærsveitamenn eru fé- lagar í Stangaveiðifé- lagi Reykjavíkur. Ein af stóru stundunum hjá þessum veiðidellumönn- um er þegar þeim berst verðskráin fyrir kom- andi vertíð. Þá sjá þeir hvað pyngjan muni létt- ast mikið fyrir komandi vertíð. Þeir bera saman verðið frá síðastliðnu ári og velta fyrir sér nýjum veiðisvæðum sem kunna að vera í boði. Verðskrá þessi er annars býsna merkileg- ur bæklingur, því þar má sjá þverskurð af hinu margumtalaða verðlagi laxveiðinnar á íslandi. Oft er um það talað að verð laxveiði- leyfa sé hátt og ekki á færi nema auðmanna að stunda íþróttina. Að þessu sinni bregður svo Friðrik með tvo stórlaxa úr Norðurá. við að flestar árnar standa í stað hvað verðlag snertir og aðrar jafn vel lækka. Eina áin sem hækkar er Norðurá í Borgarfirði en þó ekki meira en sem nemur vísitölu sem var gefin eftir í leigu á liðnu sumri og þeirrar útgjaldaaukningar sem nemur uppkaupum neta úr Hvítá, atburður sem talið er að muni stór- auka veiðina í Borgarfjarðaránum. Morgunblaðið ræddi-við Friðrik Þ. Stefánsson varaformann Stanga- veiðifélags Reykjavíkur og 'innti hann eftir þessari nýju þróun. „Við höfum verið að vinna að þessu jafnt og þétt og erum nokkuð ánægðir með árangurinn. Flestar árnar hækka ekki og sumar lækka jafn vel, eins og til dæmis Flekku- dalsáin. Þá gengum við nú nýlega frá samningum um Svartá í Húna- vatnssýslu og þar náum við einnig verulegri lækkun. Svartáin hefur ekki verið gjöful tvö síðustu sumrin og við ákváðum að bjóða lægri leigu í hana og láta slag standa. Auk okkar tilboðs komu fleiri boð, en þeim var hafnað og samið var við okkur. Þetta var góður samningur, við bjóðum verulega verðlækkun, förum til dæmis með dýrasta tímann úr 23.500 krónur á dag í 19.800 krónur. Þetta er svona að meðaltali 20 prósent verðlækkun." En Norðurá hækkar? „Já, við neyddumst til að teygja okkur til að halda ánni. En við dekkum það með því að selja mánuð á erlendan markað og hækkum verðið verulega á þeim tíma. Sá tími er einnig falur fyrir íslendinga og ég veit til þess að ýmsir munu nýta það. Þá er góð hreyfing á erlenda markaðnum. Það spyrst að netin hafi verið keypt upp og boð- ið verður upp á ger- breytta og betri vöru fyrir vikið. Sá tími sem við getum kallað íslend- ingatímann verður að- eins um 20 prósentum dýrari en í fyrra, en stór hluti þeirrar hækk- unar stafar af auknum útgjöldum vegna neta- upptökunnar." Af framanskráðu má sjá að engu er líkara en að þró- unin í verðlagningu laxveiða sé að snúast við og auk þess verðs sem gefið er upp má sjá ýmsar nýjung- ar. Eins og til dæmis möguleikann á því að leigja veiðihús austur við Tungufljót utan hins besta veið- itíma, fyrir lágt gjald og fylgja þó allar dagsstangirnar í pakkanum. Friðrik segir að sams konar tilboð séu einnig í undirbúingi fyrir „Fjal- lið“ í Langá. Veiðimenn munu liggja yfir verðskránni yfir áramótin og velta fyrir sér hvað næsta sumar ber í skauti sér.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.