Morgunblaðið - 01.02.1991, Qupperneq 2
2
-MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1991
Nesfiskur hf. í Garði:
Vinna geir-
nyt í til-
raunaskyni
Keflavík.
„ÞETTA er algjör tilrauna-
starfsemi á þessu stigi og það
á eftir að koma í ljós hvort
mönnum líkar þessi vara,“
sagði Baldvin Njálsson hjá Nes-
fiski hf. í Garði sem var að
vinna 10 tonn af geirnyt sem
fékkst við Reykjanes. Ekki er
vitað til að þessi fisktegund
hafi verið veidd til manneldis
hér við land áður.
í Fiskabókinni segir að nytsemi
geimytar, öðru nafni rottufisks,
sé engin og að fiskurinn sé talinn
eitraður. Matreiðslumaður mat-
reiddi nokkra fiska í tilraunaskyni
og reyndist geimytin, sem var
elduð á 5 mismunandi vegu, vera
hinn ágætasti matur og var líkt
við skötusel, humar, rauðsprettu
og lúðu og sagði Baldvin Njálsson
að engum hefði orðið meint af svo
hann vissi.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Handflakarar hjá Nesfiski hf. í Garði flaka geirnyt, en þessi fisk-
tegund hefur ekki fyrr verið unnin til manneldis hér á landi svo
vitað sé. »
Geimytin hefur verið unnin á
marga mismunandi vegu hjá Nes-
fiski og sagði Guðrún Gunnars-
dóttir verkstjóri að hún nýttist
frekar illa í vinnslunni miðað við
aðrar fisktegundir. Um helgina
voru unnin 12 tonn af geimyt hjá
Nesfiski og er það Steindór GK
101, sem er nýr bátur í eigu fyrir-
tækisins, sem hefur veitt fískinn
í troll.
BB
Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðar:
Mikíll samdráttur
staðfestir gagnrýni
sjálfstæðismanna
- segir Jóhann Bergþórsson, bæjarfulltrúi
FYRRI umræða um fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar fór fram á
þriðjudag og í gær stóð yfir löng umræða í bæjarráði um ýmsa
þætti áætlunarinnar. Jóhann Bergþórsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins, segir greinilegt að mikill samdráttur einkenni áætlunina,
sem staðfesti orð sjálfstæðismanna um að boginn hafi verið spennt-
ur allt of hátt á undanförnum árum. Nú sé stórum fjárhæðum varið
í að greiða niður fjármagnskostnað en framkvæmdir verði nánast
engar á árinu. Jóna Ósk Guðjónsdóttir, forseti bæjarstjórnar, segir
rétt að afborganir lána verði miklar á árinu, enda hafi verið staðið
í ýmsum nauðsynlegum framkvæmdum á undanförnum árum, sem
nú sé flestum lokið.
Jóhann sagði að áætlunin gerði
ráð fýrir að sameiginlegar tekjur
bæjarsjóðs næmu um 1.400 milljón-
um króna en 425 milljónir færu í
afborganir lána og ijármagnskostn-
að. Hann benti á að á árinu 1989
hafi eignfærð ijárfesting numið um
500 milljónum króna en nú sé áætl-
Bankar og sparisjóðir;
Vextir óverðtryggðra inn- og
útlána hækka um 0,5%-l,5%
VEXTIR af óverðtryggðum inn-
og útlánum hækka I dag hjá
bönkum og sparisjóðum um
0,5-1,5% að jafnaði. Vextir af
verðtryggðum útlánum 'lækka
hins vegar um 0,15-0,25%, ef
Spurt og
svarað um
skattamál
MORGUNBLAÐIÐ mun að
venju aðstoða lesendur sína
við gerð skattframtala með
þeim hætti að leita svara við
spurningum þeirra um það
efni.
Lesendur geta hringt í síma
Morgunblaðsins, 691100, milli
klukkan 11 og 12 á morgnana
og spurt um umsjónarmann
þáttarins „Spurt og svarað" um
skattamál". Hann tekur spum-
ingarnar niður og kemur þeim
til embættis ríkisskattstjóra.
Svör við spumingunum birtast
síðan í blaðinu.
undan er skilinn Búnaðarbank-
inn. Auk þess lækkar álag á
kjörvexti hjá íslandsbanka og
sparisjóðum um 0,25% miðað við
algenga tegund verðtryggðra
lána.
Forvextir af víxlum hækka úr
13,75% í 15,25% hjá bönkunum en
í 15% hjá sparisjóðum. Þá hækka
kjörvextir óverðtryggðra skulda-
bréfa úr 12,5-12,25% í 13,75-14%.
Vextir af almennum sparisjóðsbók-
um og sértékkareikningum hækka
hjá Islandsbanka og Búnaðar-
banka úr 3% í 4,5% en úr 3,25%
í 4% hjá sparisjóðunum. Lands-
bankinnohafði þegar hækkað inn-
lánsvexti sína.
í frétt frá íslandsbanka um
vaxtabreytingamar kemur fram
að Seðlabankinn hefur að undan-
fömu átt í viðræðum við bankana
um horfur í vaxtamálum. Þar seg-
ir að ljóst sé að vaxtamunur hafí
lækkað umtalsvert í bönkunum á
síðasta ári. Þá bendi allar spár til
þess að verðbólga næstu mánuði
verði nokkru hærri en síðari hluta
árs 1990.
Lækkun á vaxtaálagi á kjör-
vexti verðtryggðra útlána ásamt
Hækkun á gjald-
skrá Landsbankans
HÆKKUN varð á ýmsum liðum
í gjaidskrá Landsbankans um
síðustu áramót þegar bókhalds-
legur samruni við Samvinnu-
bankann átti sér stað og gjald-
skrár bankanna voru samræmd-
ar. Eftir hækkunina gætir auk-
ins samræmis milli gjaldtöku
Landsbankans og annarra inn-
Verðfall á erlend-
um fiskmörkuðum
Meðalverð í Bremerhaven ór 170 kr. í 67 kr.
VERÐFALL varð á fiskmörkuðum í Þýskalandi og Bretlandi í
þessari viku vegna góðra aflabragða í Barentshafi og Norðursjó
undanfarið.
Sléttanes ÍS fékk einungis 67,05
króna meðalverð fyrir 151 tonn,
sem selt var í Bremerhaven í
Þýskalandi á miðvikudag en aflinn
var nær eingöngu karfí. í Bremer-
haven var meðalverð á karfa hins
vegar um 170 krónur fyrir verðfall-
ið.
Verð á þorski hefur einnig fallið
í Bretlandi. Þar fékkst 129,10
króna meðalverð fyrir rúm 232
tonn af þorski, sem seld voru úr
gámum frá mánudegi til miðviku-
dags í þessari viku. Meðalverð á
þorski á breskum fískmörkuðum
var aftur á móti um 190 krónur
fyrir verðfallið.
lánsstofnana. T.d. hækkuðu
tékkhefti úr 200 kr. í 220 kr.
og útlagður kostnaður vegna
innstæðulausra ávísana hækk-
aði úr 360 kr. í 400 kr. Til sam-
anburðar má nefna að tékkhefti
kosta nú einnig 220 kr. hjá Bún-
aðarbanka, og íslandsbanka en
250 kr. hjá sparisjóðum.
Lántökukostnaður hækkaði
einnig nokkuð hjá Landsbankanum
um síðustu áramót. Þannig hækk-
aði þóknun vegna keyptra víxla
úr 0,7% í 0,75% og útlagður kostn-
aður hækkaði úr 100 kr. í 140 kr.
Lántökugjald vegna skuldabréfa
hækkaði úr 1,2% í 1,8% ef lánstím-
inn er skemmri en 5 ár. Þá hækk-
aði tilkynningar- og greiðslugjald
úr 100 kr. í 120 kr. en þar er um
lækkun að ræða fyrir viðskiptavini
Samvinnubankans sem þurftu áður
að greiða 200 kr.
Viðbótargjald vegna vanskila
hækkaði úr 220-kr. í 300 kr. og
ítrekanir vegna vanskila kosta nú
600 kr. í stað 440 kr. áður. Dæmi
eru einnig um lækkun kostnaðar-
liða um áramót. Útlagður kostnað-
ur vegna útvegunar veðbókarvott-
orðs og umsjón með þinglýsingu
kostaði áður 110 kr. en lækkaði í
100 kr. um áramótin.
0,25% lækkun vaxta hefur þau
áhrif í heild að vextir af algeng-
ustu tegund verðtiyggra lána
lækka um 0,5% hjá íslandsbanka.
Til samræmis verða vextir af flest-
um tegundum verðtryggðra innl-
ána lækkaðir um 0,25%. Hjá ís-
landsbanka er lögð áhersla á að
hér sé um tilraun að ræða. í frétt
bankans er bent á að ríkissjóður
hafi undanfarna daga auglýst
hækkun á vöxtum spariskírteina
til áskrifenda og þeirra sem inn-
leysa eldri spariskírteini, úr 6,2%
í 6,6%. Verði þessi vaxtahækkun
á spariskírteinum varanleg þurfi
að endurskoða ákvörðun bankans.
Þá segir að með vaxtabreytingum
hjá íslandsbanka nú sé stefnt að
því að unnt verði að halda vöxtum
að mestu óbreyttum næstu mán-
uðL Með 0,5-1,5% hækkun á nafn-
vöxtum á óverðtryggðum inn- og
útlánum sé lokið aðlögun nafn-
vaxta að hærra verðbólgustigi.
Þessar breytingar muni hins vegar
ekki valda auknum vaxtamun frá
því sem hann hefur verið undan-
famar vikur.
að að veija 85 milljónum til fram-
kvæmda á vegum bæjarins. „Við
teljum að þessi áætlun staðfesti það
sem við höfum sagt að boginn hafí
verið of hátt spenntur og búið væri
að framkvæma á kostnað framtíð-
arinnar. Við bentum á fyrir kosn-
ingar að með sömu stefnu yrði ekki
um neinar framkvæmdir að ræða á
næstu árum heldur færi allt í að
greiða afborganir og vexti af lán-
um,“ sagði Jóhann.
„Það hefur verið staðið í miklum
verkefnum á undanfömum árum.
Þetta voru allt nauðsynlegar fram-
kvæmdir. Við lukum til dæmis við
nýja sundlaug, íþróttahúsið í Kapla-
krika, Setbergsskóla og fyrsta
áfanga Hvaleyrarskóla, dagvistar-
heimili og svo mætti áfram telja.
Nú eru ákveðin þáttaskil og við
stöldrum við og hugum að fram-
tíðinni, auk þess að greiða niður
lánin. Boginn var spenntur hátt en
alls ekki um of,“ sagði Jóna.
Jóhann sagði að bæjarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins ’hefðu óskað
eftir bráðabirgðauppgjöri á rekstri
bæjarins fyrir síðasta ár en fengið
þau svör að það verði ekki tilbúið
íyrr en á fímmtudag í næstu viku.
Aætlað er að síðari umræða um
fjárhagsáætlunina fari fram 12.
febrúar.
Fékkraflost
heima í stofu
KONA fékk raflost og brenndist
þegar hún hugðist kveikja á
lampa í íbúð í Fossvogi í fyrra-
dag.
Vatn hafði lekið um gólf íbúðar-
innar og stóð konan í bleytunni og
hugðist kveikja ljós til að átta sig
betur á skaðanum en þá reyndist
lampinn leiða út.
Konan brenndist á hendi og
kenndi til í handlegg. Hún var flutt
á sjúkrahús til aðhlynningar.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Bólusettgegn heilahimnubólgu
Bólusetning gegn heilahimnubólgu hófst í Vestmannaeyjum síðastlið-
inn miðvikudag, en þar verða bólusett um tvö þúsund börn og ung-
menni á aldrinum 2 til 20 ára. Myndin var tekin þegar verið var
að bólusetja börn í Bamaskóla Vestmannaeyja.