Morgunblaðið - 01.02.1991, Page 16

Morgunblaðið - 01.02.1991, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 1. FEBRUAR 1991 Vegria tveggja bakstra eftir Gunnlaug Þórðarson Bakarameistari, að nafni Hörður Pálsson, hefur af tilefni greinar. minnar í Morgunblaðinu 11. f.m. fundið þörf hjá sér til þess að láta mig vita hér í blaði 16. f.m. að hann hafi „setið margan fjörugan og ánægjulegan mannfagnað þar sem áfengi var ekki haft um hönd“. Slíkt kemur engum á óvart. Mér er fyllilega ljóst að margs konar sértrúar- og vakningasamkomur geta verið þátttakendum þeirra til ánægju og gleði. Það er að vissu leyti gott að fólk geti á slíkum sam- komum glaðst og veitt tilfinningum sínum útrás. Hins vegar vita víðsýnir menn að það sem segir í 52. vísu Háva- mála er sígild speki, en hún hljóðar svo. Mikit eitt skal-a manni gefa; oft kaupir sér i litlu lof: með hálfum hleif ok með höllu keri fekk ek mér félaga. I vísunni er heilræði til manna að gæta hófst í hvívetna. Þjóðskáld- ið Einar Benediktsson orðaði þetta spaklega er hann sagði: „En örlæt- ið glatar frændsemd ogfylgd, fagna skal hófiega kynni og vinum." Þá er hitt ekki síður athyglisvert að með hóflegri drykkju öls og hófi í mat fékk höfundur Hávamála sér félaga. Skrif mín hafa öll miðast við hófsemina í hvívetna og ekki síst í meðferð áfengis. í því sambandi vil ég árétta að „með höllu keri“ hef ég stundum náð ágætum sáttum í deilumálum. Staðreynd er að þeim, sem hefur Bakkus í þjónustu sinni, standa flestar leiðir opnar til sátta, en sé maður ofurseldur honum þá eru öll sund lokuð. Bakarameistaranum hættir til að eigna mér annað og meira en segir í grein minni, þar mæli ég hvergi með ölvunarakstri. Slíkt er víðs ijarri mér. Skrif hans um skorpulif- ur og bjórvambir á Dönum eru út í hött. Líkt og Danir eigi einir þjóða við slík vandkvæði að stríða, því síður að 0,8%o mörkin um leyfilegt áfengismagn í blóði við akstur hjá þeim sé orsök þess vanda. Furðuleg- ast er þó að láta sér detta í hug að skorpulifur og bjórvambir hafi haft áhrif á danskt löggjafarstarf. Þá er ekki síður hæpin sú fullyrð- ing bakarameistarans að drykkja sé helsta orsök ofbeldis og skemmd- ai"verka. Því miður er það of ein- föld skýring, því að margt annað kemur til. Má nefna skort á uppeldi og aga, ístöðuleysi, skapgerðar- bresti o.fl. Bakarameistarinn fagnar því greinilega að lögreglunni verði gef- inn aukinn möguleiki á afskiptum af fólki með þeirri lagabreytingu, sem hið dæmalausa frumvarp miðar að. Ég tel alvarlegast við hið fyrir- hugaða frumvarp, að fólk megi tæpast drekka eina flösku af malt- öli án þess að eiga á hættu að með RYMINGAR SALA BÚTA uggatjaldaefni etratali afsláttur £ m Skipholti 17 a o ca blæstri í blöðru verði réttlætanlegt fyrir lögreglu að fara með mann í blóðtöku vegna gruns um of mikið áfengismagn í blóði. Mer hefur allt- af fundist blóðtaka alvarleg aðför að friðhelgi mannslíkamans. ískyggilegasta afleiðing þess ef frumvarpið yrði að lögum, væri sú að þá myndi blóðtaka allt eins bitna á alsaklausu fólki, enda þótt blóð- taka geti verið óhjákvæmileg í viss- um augljósum tilvikum. Af fyrri reynslu minni af skrifum um áfengismál, gat ég átt von á því að einhveijir ofstækisfullir vandlætarar tækju sér penna í hönd og nú hefur það sannast. Þessir menn skilja ekki að áfengi verður ekki útrýmt, það fylgir mannkyninu og menningunni. Einasta lausnin er að læra að umgangast það og í því efni eru ráð Hávamála heilla- best. Það má vera bakarameistaranum til huggunar að litlar vonir eru til þess að skrif okkar eða annarra hafi áhrif á alþingismenn. í því efni má minna á þá reynslu, sem fyrrv. hæstaréttardómari Sigurgeir Jóns- son varð fyrir af nálfu Alþingis, er hann benti á að í stjórnarfrumvarpi til laga um fangelsismál, sem lagt var fyrir Alþingi 1987 og aftur 1988 fælist stjórnarskrárbrot. Eitt af ákvæðum frumvarpsins var á þá leið að fangelsisstjórum var veitt vald til að lengja refsivist fanga allt að 90 dögum ef um meint aga- brot væri að ræða. Þrátt fyrir ábendingar hæstaréttardómarans í þrígang hér í blaði varð frumvarpið engu að síður óbreytt að lögum og það þótt á þingi sitji nokkrir lög- fræðingar, sem hefðu átt að gera sér þetta ljóst. Fyrst þegar umboðs- maður Alþingis hafði fengið til- mæli um athugun á lögunum og bent-starfsmönnum í dómsmálaráð- uneytínu, sem samið höfðu stjómar- frumvarpið, á stjórnarskrárbrotið sem lögin báru í sér og að breyta þyrfti þeim til meira samræmis við mannhelgi þá, sem stjórnarskráin veitir, var samið nýtt stjórnarfrum- varp til leiðréttingar þessara mis- taka. Væntanlega verður það að lögum á yfirstandandi þingi. Svona Iöggjafarstarf er til hreinnar skammar. Það væri að bíta höfuðið af skömminni, ef Al- Gunnlaugur Þórðarson „Ég tel alvarlegast við hið fyrirhugaða frum- varp, að fólk megi tæp- ast drekka eina flösku af maltöli án þess að eiga á hættu að með blæstri í blöðru verði réttlætanlegt fyrir lög- reglu að fara með mann í blóðtöku vegna gruns um of mikið áfengis- magn í blóði.“ þingi samþykkir hið vanhugsaða frumvarp um breytingu á umferðar- lögum, sem hér er fjallað um; frum- varp sem gefið hefur okkur Þor- steini A. Jónssyni, deildarstjóra í dómsmálaráðuneytinu, ástæðu til þess að vara við. Sú viðvörun og gagnrýni stendur óhögguð. Kveðja til Halldórs Kristjánssonar P.s. Eftir að ég hafði afhent ofanrituð skrif til birtingar rakst ég á kveðjur til mín frá Halldóri Kristjánssyni frá Kirkjubóli í greinarstúf hér í blaði 19. f.m. Það verður að viðurkennast að Halldór hefur stillst mjög frá árinu 1983, er eftir hann birtust hér í blaðinu fimm greinar helgaðar mér vegna skrifa minna um áfengismál. í flestum greinunum fékk þjóð- skáldið Jonas Hallgrímsson líka á baukinn og var sagður hafa verið „ógæfumaður", sem dó „drykkjumannadauða“, en nú kallar hann Jónas Hallgrímsson „ágætt skáld". Staðreyndin er að enginn íslenskur náttúrufræðingur hefur verið jafn afkastamikill og Jónas Hallgrímsson auk þess sem hann var afburða ljóðskáld, þannig að níðið féll dautt um sjálft sig. Ofsóknir Halldórs Kristjánssonar á hendur þjóðskáldinu látnu stöfuðu af því að hann lofsöng vín til mannfagnaðar. í grein sinni 13. júlí 1983 viðurkenndi Halldór töframátt áfengis með þessum orðum: „Það koma fram „áfengisáhrif“ ef menn halda sig hafa drukkið áfengi þó svo hafi ekki verið. “ — Sumir þurfa ekki nema að heyra tappa dreginn úr flösku til þess að komast í stemmningu. í morgunbæn í Ríkisútvarpinu sl. sunnudagsmorgun minnti séra Siguijón Einarsson á Klaustri á að í brúðkaupinu í Kana hefði frelsarinn ekki aðeins breytt vatni í vín, heldur í „eðalvín". Auðvitað hefur frelsaranum verið ljóst að eins og nú á tímum þarf að hrista fólk saman, eins og það er kallað, annars vegar ættmenni og vini brúðarinnar og hins vegar brúðgumans, lítt kunnugt fólk. Auðvitað er vín vænlegast til þess. Ekki er þess getið í Biblíunni að veislufólkið hafi valdið neinum umferðaróhöppum á heimleiðinni, þótt það hefði verið með 0,58%o alkóhólmagn í blóði, hvað þá heldur með 0,8%o eins og hjá Dönum, enda velur það fólk að heita má aldrei tjóni, svo sem rannsóknir sanna. A þann hátt sem skálað'var fyrir brúðhjónunum í Kana fer vel að halda brúðkaupsveislur. Að endingu skal á það lögð áhersla, að eins og við Þorsteinn A. Jónsson höfum rækilega bent á, er lækkun á lögleyfðu áfengismagni í blóði með öllu ástæðulaus og nánast tilræði við almenning. Slík lagabreyting er í ætt við þá löggjöf sem hefur að markmiði að efla lögregluríki á hveijum stað og var { hávegum höfð austan tjalds fram á síðustu tíma. Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Fyrirspurn til fjármálaráðherra: Ónotaður persónuafslátt- ur ungmenna 2 milljarðar FRAMTELJENDUR á aldrinum 16-20 ára nýta aðeins 62% af persónu- afslætti sínum að meðaltali. Ónotaður persónuafláttur þessa hóps er þannig talinn nema um 2 milljörðum króna á árinu 1991. Friðrik Sophusson alþingismaður beindi þeirri fyrirspurn til Ólafs Ragnars Grímssonar fjármálaráð- herra, hvort hefði farið fram gagn- gert mat á áhrifum þess á ríkissjóð ef foreldrar gætu nýtt sér ónotaðan persónuafslátt barna sinna. Fyrir- spyijandi vísaði í greinargerð til frumvarps fjögurra þingmanna Kvennalistans á síðasta þingi en í því frumvarpi var gert ráð fyrir að hægt væri að færa ónotaðan per- sónuaflátt á milli einstæðs foreldris og barns. Að tillögu fjárhags- og viðskiptanefndar var því frumvarpi vísað ríkisstjórnarinnar ásamt tillögu um að gagngert mat færi fram á því hvað breytt skipan myndi kosta ríkis- sjóð. í svari fjármálaráðherra kom m.a. fram að slíkt mat hefur verið fram- kvæmt í fjármálaráðuneytinu. Það mat væri hins vegar mikilli óvissu háð; íjölmörgum spurningum ósvar- að um nánari útfærslu breytingar- innar. Valin hefði verið sú leið að UTSALA Karlmannaföt verð kr. 4.000-6.800,- Stakar buxur verð frá kr. 500-1.900,- Skyrtur verð frá kr. 1.000-2.000,- Peysur verð frá kr. 1.300-1.600,- Hattar verð frá kr. 600-1.600,- o.fl. Andrés, Skólavörðustíg 22, sími 18250. skoða nýtingu persónuafsláttar hjá einstaklingum á aldrinum 16-20 ára, þó ekki einstæðum foreldrum. Niðurstaðan var sú að framtelj- endur á aldrinum 16-20 ára nýta aðeins 62% af persónuafslætti sínum að meðaltali. Ónýttur persónuafslátt- ur þessa hóps er þannig talinn nema um 2 milljörðum króna á árinu 1991. 70% af þeirri fjárhæð, eða um 1 1/2 milljarður króna, tilheyra aldurs- hópnum 16-18 ára. Til samanburðar má nefna að samkvæmt fjárlögum ársins eru heildartekjur ríkissjóðs af tekjuskatti einstaklinga taldar verða tæpir 13 milljarðar króna. í svari fjármálaráðherra er lögð áhersla á, að þær tölur sem nefndar eru, nái til allra ógiftra framteljenda á áðurnefndu aldursbili. Ekki lægju fyrir upplýsingar um hversu stór hluti þeirra tilheyrði einstæðum for- eldrum, enda væri um sjálfstæða skattþega að ræða sem ekki væru tengdir foreldrum sínum í gögnuin skattyfii-valda. Þá væri heldur ekki ljóst hversu stór hluti fyrrgreindrar fjárhæðar myndi nýtast foreldrum til skattfrádráttar. I svari fjármála- ráðherra kemur einnig fram að svo víðtæk millifærsla á persónuafslætti sé nær útilokuð í framkvæmd í gild- andi staðgreiðslukerfi og yrði að gerast við endanlega álagningu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.