Morgunblaðið - 01.02.1991, Side 18

Morgunblaðið - 01.02.1991, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1991 Leitið tíí okkar: SMITH&NORLAND NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300 UTSALAN hefst í dag. Opnum kl. 10. Laugaveg 45 Víkveij i ver bruðlið eftir Sigrúnu Magn úsdóttur Föstudaginn 25. janúar 1991 gerði Víkverji Morgunblaðsins kostnað við útsýnishúsið á Öskjuhlíð að umtalsefni. Upphafleg kostn- aðaráætlun hússins var 500 milljón- ir en nú er sýnt að kostnaður verð- ur a.m.k. 1.200 milljónir, eins og ég upplýsti á síðasta borgarstjórnar- fundi. Allar áætlanir varðandi húsið hafa staðist mjög illa og hef ég gagnrýnt sérstaklega undanfarið að farið var tæpar 70 milljónir framúr íjárhagsáætlun síðasta árs og áætl- un fyrir lokafrágang hefur hækkað úr 45 milljónum í 230 milljónir á tíu mánuðum eða fimmfaldast. Ég hef sem stjórnarmaður veitustofn- ana beðið um að fá nákvæmlega sundurliðaðan þennan mikla um- framkostnað. Víkveiji átelur mig og félaga mína í minnihlutanum (stjórnarandstöðunni) fyrir að agnú- ast út í þetta mannvirki frá upp- hafi. Þetta tek ég ekki til mín vegna þess að ég hef alltaf verið sannfærð um að hér væri um fallegt mann- virki að ræða sem yrði borgarbúum til yndisauka. Fyrrverandi borgar- fulltrúi Framsóknarflokksins, Guð- mundur G. Þórarinsson, flutti tillögu í borgarstjórn fyrir tæpum tuttugu árum um byggingu ofan á Öskju- hlíðartankana. Eitt stórvirki í einu Ég hef alltaf talið eðlilegt að borg á stærð við Reykjavík og þar að auki höfuðborg hafi alltaf eitt- hvað stórverkefni í gangi til fegr- unar borginni. Ég tel hins vegar rangt að hafa mörg slík verkefni í gangi í einu. Þess vegna taldi ég ekki rétt að ráðast í byggingu Öskjuhlíðarhússins samhliða Ráð- húsinu og það á meðan við værum að ljúka við Borgarleikhús og end- urbyggingu Viðeyjarstofu. Veit Vík- veiji hvað við eyddum bara á síð- asta ári í Ráðhúsið og Öskjuhlíðar- húsið? Heilum milljarði (þúsund milljónum), eða 3 milljónum hvern og einn einasta dag á síðasta ári. Skyldur sveitarstjórnarmanna Eitt meginhlutverk sveitarstjórn- armanna er að sjá til þess að fjár- munum almennings sé vel varið og skipulega. Þess vegna þarf að leggja mikla vinnu í áætlanir og hafa þær sem raunhæfastar og fylgjast með að farið sé eftir þeim. Einnig þurfa sveitarstjórnarmenn að raða verk- efnum í skynsamlega forgangsröð og meta hvar þörfin er mest. Þess vegna er ég ekki sammála sjálfstæð- ismönnum með þeirra áherslur. Mér finnst t.d. skammarlegt að í öld- runarmálum var ekki framkvæmt fyrir þá fjármuni sem til þess voru ætlaðar á síðasta ári. Þar var ekki framkvæmdahraðanum fyrir að fara. 60 milljónir vantaði á að fram- kvæmt væri fyrir aldraða sam- kvæmt fjárhagsáætlun en það er > ■ Sigrún Magnúsdóttir næstum jafphá upphæð og Öskju- hlíðarhúsið fór fram úr áætlun. Mér finnst ein mesta þörfin í borginni að flýta byggingu hjúkrunarheimilis aldraðra og leiguíbúðum fyrir aldr- aða. Hlutverk Hitaveitu Reykjavíkur Mér finnst að meginhlutverk Hitaveitu Reykjavíkur eigi að vera að sjá borgarbúum fyrir heitu vatni í híbýli sín og þar verði að hafa forgang fram yfir byggingu veit- ingahúsa á hennar vegum. Eins og borgarbúar og nágrannar hafa áþreifanlega orðið varir við urðu mistök þegar Nesjavallavatnið var tengt inn á veitukerfið. Sennilega hefði verið skynsamlegra að láta nauðsynlegar lagfæringar á veitu- kerfinu hafa forgang eins og t.d. fara fyrr í lagningu Suðuræðar. Tákn Reykjavíkurborgar Víkveiji telur að Öskjuhlíðarhúsið eigi eftir að verða tákn borgarinnar og má það rétt vera að það verði eitt af táknum borgarinnar. Sem betur fer eigum við margar fallegar og sögufrægar byggingar sem ein- kenna borgina eins og t.d. Hall- grímskirkju og Höfða. Athygli mína vekur að Víkveiji nefnir ekki Ráðhú- sið í þessu sambandi. Vafalaust verður Öskjuhlíðarhúsið vinsæll veitingastaður, þar sem við komum til með að njóta dýrlegs útsýnis yfir okkar fögru borg á meðan við snæð- um. Hefðum við þó ekki getað beð- ið með það í eitt til tvö ár? Eitt ár í lífi lasburða gamalmennis er ógn- arlangt þegar óvissan um framtíðina nagar og kvelur. Bruðl er ekki hægt að réttlæta sama hvort maður er hrifinn af framkvæmdinni eða ekki. Höfuadur er borgarfuHtrúi Framsóknarflokksins í Reykjavík. Málþing um umhverfis- ímynd og hagsæld á íslandi ÍSLANDSNEFND Norræna uin- hverfisársins efnir til opins mál- þings í Norræna húsinu laugar- daginn 2. febrúar 1991 kl. 14.00 undir yfirskriftinni Umhverfisí- mynd og hagsæld á íslandi. Júlús Sólnes umhverfisráðherra setur málþingið og málshefjendur verða: Kristín Halldórsdóttir formað- ur Ferðamálaráðs, „Móðgum ekki móður Jörð — meir en orðið er“, Haukur Halldórsson formaður Stétt- asambands bænda, „Umhverfisí- mynd, hagsæld og íslenskur land- búnaður", Dr. Alda Möller matvæla- fræðingur hjá Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna, „Fiskur í réttu um- hverfi", Jakob Björnsson prkumála- stjóri, „Umhverfisímynd íslands — að skoða hlutina í samhengi“, Dr. Þóra Ellen Þórhallsdóttir prófessor við Háskóla íslands, „Óbyggðir og allsnægtir", Sigrþrúður Gunnars- dóttir menntaskólanemi, „Sjónarmið fyrir 21. öldina". Fundarstjóri verður Ingvi Þorsteinsson náttúrufræðing- ur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.