Morgunblaðið - 01.02.1991, Síða 22
TII1Á.GUR' 1: FÉBRÚÁR ÍÖ9Í7
FYRIR BQTNI
PERSAFLOA
Olíumengunin á Persaflóa:
Saudi-Arabar
gætu neyðst til að
skammta vatn
Dhahran. Reuter.
FLOTGIRÐINGAR, sem Saudi-Arabar hafa notað til að hefta út-
breiðslu olíumengunar á Persaflóa frá lindum í Kúveit, eru ekki örugg
vörn gegn umhverfisspjöllum, að sögn framleiðenda búnaðarins í Jap-
an. Aðstoðarframkvæmdastjóri Hitachi Zozen-fyrirtækisins segir að
þótt girðingarnar stöðvi útbreiðsluna á yfirborðinu muni olían smám
saman sökkva og setjast í inntaksop á stöðvum sem vinna ferskvatn
úr sjó. Fari svo getur þurft að skammta vatn í landinu.
Japanskur vísindamaður, Yasu-
hiro Sugimori, sem kannað hefur
skaðann af völdum olíunnar, telur
að mengunin geti borist alla leið inn
á Bengal-flóann takist ekki að stöðva
flekkinn við Hormuz-sundið. Stað-
vindar myndu með tímanum, líklega
á næsta ári, beina olíunni í austurátt
en fyrst myndu strendur Omans á
Arabíuskaganum og Sómalíu í Norð-
austur-Afríku verða fyrir barðinu á
menguninni. Vísindamennimir taka
fram að þetta geti því aðeins gerst
að allt leggist á eitt til að auka skað-
ann.
Tsutomu Fukui, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Hitachi Zozen, sagði
að kæmist olían í inntaksopin yrði
að hægja á framleiðslu ferskvatnsins
eða jafnvel stöðva hana með öllu
vegna þess að hreinsitækin gætu
ekki fjarlægt olíuna. Tvö mikil vatns-
ver af þessu tagi eru í hafnarborg-
inni Jubail við flóann. Þau framleiða
samanlagt rúmlega milljarð lítra af
drykkjarvatni á dag er fullnægja um
Lík flug-
manns dreg-
ið um götur
París. Reuter.
ANDSPYRNUHREYFING
Kúrda segir að íraskar örygg-
issveitir hafi tekið af lífi
bandarískan flugmann sem
var skotinn niður yfir borg-
inni Mosul í írak i síðustu viku.
Líkið hafi svo verið dregið um
götur borgarinnar bundið aft-
an í bifreið.
Ahmed Barmani, talsmaður
Föðurlandssambands Kúrdistan,
sem hefur aðsetur í París segist
ekki vita af hvaða þjóðemi flug-
maðurinn var. En aðrar hreyf-
ingar Kúrda sem ffeutere-frétta-
stofan hafði samband við stað-
festu að flugmaðurinn hefði ver-
ið bandarískur. Hann hefði verið
stunginn á hol og líkið síðan
dregið um götur Mosul á meðan
fólk hrópaði: „Lengi lifi hinn
staðfasti Baath-flokkur.“
Barmani sagði ennfremur að
129.000 íraskir hermenn og
150.000 óbreyttir borgarar
hefðu flúið til Kúrdistans síðan
stríðið hófst. Kúrdistan nær yfir
nokkum hluta íraks, Tyrklands
og írans. Aðrir kúrdískir heim-
ildarmenn sögðust hins vegar
ekki vita hversu margir óbreytt-
ir borgarar hefðu flúið til Kúrd-
istans en þeir töldu að 80.000
liðhlaupar og menn sem neituðu
að gegna herþjónustu hefðu flú-
ið til Kúrdistans.
75% af þörfum höfuðborgar Saudi-
Arabíu, Riyadh, sem er langt inni í
landi.
Flekkurinn stækkar enn
Olíuflekkurinn er nú kominn inn
á vík sem er aðeins um 20 km norð-
an við Jubail. Þar eru auk vatnsver-
anna gífurlegar olíuhreinsistöðvar og
mengunin getur einnig valdið erfið-
leikum í þeim. í gær var hraðað fram-
kvæmdum við að leggja tvöfalda flot-
girðingu umhverfis inntaksop vatns-
veranna. Sérfræðingar telja að olían
muni ná til Jubail í dag, föstudag.
Tilraunir eru hafnar til að dæla olí-
unni upp í skip en talsmenn olíufé-
laga hafa litla trú að þær beri mik-
inn árangur. Olíumengunin á fióan-
um er sú langmesta í sögunni.
Loftmyndir gefa til kynna að
flekkurinn stækki sífellt enda þótt
flugvélar bandamanna hafi stöðvað
lekann frá einni olíulindinni í Kúveit
sl. laugardag. Bandamenn saka ír-
aka um að dæla olíunni af ásettu
ráði út í hafíð til að valda mengunar-
slysi. írakar hafa vísað þessu á bug,
sagt að loftárásir bandamannaá olíu-
skip eigi sök á skaðanum. í sjón-
varpsviðtali CNN-stöðvarinnar við
Saddam Hussein íraksforseta varði
hann hins vegar rétt sinn til að nota
„olíuna sem vopn“.
Liðsafli íraka í Kúveit ræðst inn í Saudi-Arabíu:
Saddam styrkir áróð-
ursstöðu sína með því
að fóma mannslífum
ÁRSARFERÐIR íraska liðsaflans í Kúveit inn yfir landamæri
Saudi-Arabíu hafa litla sem enga hernaðarlega þýðingu að mati
vestrænna hernaðarsérfræðinga. Mat manna er almennt það að
árásin á Khafji, mannlausan landamærabæ í Saudi-Arabíu, hafi
einkum verið til þess fallin að efla baráttuþrek írösku hermann-
anna auk þess sem Saddam Hussein íraksforseta hafi verið mjög
í mun að sýna fram á að því fari fjarri að íraska vígvélin hafi
verið lömuð. Þá hafa menn og nefnt að með þessu hyggist Saddam
freista þess að draga liðsafla bandamanna út í blóðugar landor-
ustur eftir að hafa mátt sæta linnulausum loftárásum í hálfan
mánuð.
Þegar þetta er ritað er það eitt
vitað að 12 bandarískir landgöngu-
liðar féllu í árásinni á Khafji, sem
hrundið var í gærdag. Áreiðanlegar
fréttir af mannfalli í herliði Saudi-
Araba og Qatara höfðu ekki borist
og sagt var að hundruð íraka lægju
í valnum.
Pólitískt vægi mannslífa
Sú staðreynd að hersveitum ír-
aka tókst að fella 12 Bandaríkja-
menn vegur vafalaust þyngra í
huga Saddams en mannfallið í röð-
um íraka. Það hefur margoft kom-
ið fram í málflutningi forsetans að
hann telur að almenningur í Banda-
ríkjunum muni snúast gegn hem-
aðaraðgerðum bandamanna þegar
landorustan hefst og tala fallinna
tekur að hækka. Raunar eru sumir
fréttaskýrendur vestra á sama máli
og Saddam hvað þetta varðar.
Á það hefur verið bent að árásin
á Khafji og skæmr á landamærun-
um undanfama daga kunni að vera
til þess fallnar að kanna styrk og
viðbúnað fjölþjóðaherliðsins. Er því
þá jafnframt spáð að Saddam kunni
að blása til stórsóknar inn í Saudi-
Arabíu í von um að geta gert undir-
búning fjölþjóðaherliðsins fyrir
innrásina í Kúveit að engu. Fréttir
í gærdag hermdu að írakar hefðu
nú safnað saman um 50.000 her-
mönnum við landamærin og virðist
það vera í ágætu samræmi við þessa
túlkun á rás atburða undanfarna
daga.
Landhernaður og styrkur
íraka
Norman Schwarzkopf, yfírmaður
herliðs bandamanna í Saudi-Arabíu,
sagði á fundi með fréttamönnum
að ef til vill vonaðist Saddam til
þess að geta flýtt landorustum með
þessum hætti. Af hálfu banda-
manna liggur fyrir að ekki verður
ráðist inn í Kúveit fyrr en sýnt
þykir að tekist hafí að draga vera-
lega úr slagkrafti íraska heraflans
einkum Lýðveldisvarðarins, úrvals-
sveita Íraksforseta. Tilgangurinn
með þessu er einkum sá að draga
verulega úr mannfalli. Styrkur Ir-
aka liggur í landhemum og al-
mennt er talið að Saddam muni
gefast tækifæri til að beita efna-
og sýklavopnum í slíkum bardögum.
Robert McFarlane, fyrrum öryggis-
ráðgjafi Bandaríkjaforseta, tók í
sama streng og Schwarzkopf og
kvaðst telja að Saddam vildi með
þessu móti þrýsta á bandamenn um
að hraða mnrásinni í Kúveit. Blóð-
: ugar landorustur kynnu að reynast
mikilvægar fyrir forsetann sem
skapa vildi þá ímynd af sjálfum sér
að hann væri í senn hetja og píslar-
vottur.
Khafli lá að ýmsu leyti vel við
höggi. Bærinn hefur verið mann-
laus vikum saman og við blasti að
írösku hermennimir gætu varist
lengi í byggingum næðu þeir að
koma sér þar fyrir. Þá þekkja vest-
rænir blaðamenn Khafji vel og til-
tölulega auðvelt hefur verið að kom-
ast þangað. Saddam, sem sagður
er hafa skipulagt árásina, gat því
vænst þess að viðbrögð fjölmiðla
yrðu í samræmi við það.
Saddam virðist því hafa ályktað
sem svo að með því að ráðast á
landamærabæinn tækist honum að
ná ákveðnu framkvæði og að höfða
beint til almennings í mörgum Ara-
baríkjum. Þetta virðist honum hafa
tekist að einhveiju leyti, alltjent
sagði í fréttaskeytum Reuters-
fréttastofunnar síðdegis í gær að
hamslaus fögnuður hefði brotist út
á meðal aðdáenda forsetans bæði í
Jórdaníu og Alsír.
Áróður og herfræði
í raun sýnir árásin á Khafji ljós-
lega að Persaflóastyijöldin er háð
á gjörólíkum forsendum. í herfræði-
legu tilliti var þetta fáránleg aðgerð
og dæmd til að mistakast. Saddam
virðist hafa verið öldungis sama um
mannfall í röðum íraka, _sem hann
gat vitað að yrði mikið. Árásarliðið
beitti sovéskum T-55 skriðdrekum,
gjörsamlega úreltum dauðagildrum,
gegn fullkomnum vopnabúnaði
bandamanna sem fylgst gátu
grannt með ferðum liðsaflans í
nætursjónaukum. Útvarpið í
Bagdad lýsti yfír því að „stórkost-
legur sigur“ hefði unnist. Sú stað-
hæfíng stenst engan veginn. Á hinn
bóginn hefur Saddam vafalaust tek-
ist að auka baráttuþrek hermanna
sinna sem hafa mátt þola ægilegar
loftárásir dag eftir dag án þess að
koma nokkrum vömum við. Að
auki hefur hann vafalítið styrkt
áróðursstöðu sína í Arabaheimin-
um, þótt Vesturlandabúar fái tæp-
ast skilið hvemig það megi vera.
Engu að síður má heita ólíklegt að
bandamenn breyti áætlunum sínum
um innrásina í Kúveit og hraði
henni. Nú hefur forseti íraks tvíveg-
is freistað þess að hleypa af stað
blóðugum bardögum; fyrst með því
að dæla olíu út í Persaflóa í von
um að bandamenn hæfu hemaðar-
aðgerðir til að koma í veg fyrir stór-
felld umhverfísspjöll og nú með
árásinni á Khafji. Fullvíst má heita
að Saddam haldi þessum tilraunum
áfram.
Byggt á The Daily Telegraph,
Reuter ofl.
ísraelar svara hörðum flugskeyta-
árásum skæruliða í S-Líbanon:
Arafat sagðuí vilja
breiða út stríðið
Tyre í Líbanon, Jerúsalem. Reuter.
ÍSRAELSKIR hermenn og stuðningsmenn þeirra í Líbanon gerðu í gær
árásir á búðir Palestínumanna í suðurhluta landsins til að svara flug-
skeytaárásum palestínskra skæruliða á öryggissvæði Israela við landa-
mæri ríkjanna. Var þetta mesta flugskeytaárás á svæðið í tæpan ára-
tug. ísraelar sökuðu skæruliðana og Yasser Arafat, leiðtoga Frelsissam-
taka Palestínumanna (PLO), sem styður Iraka, um að hafa reynt að
breiða út stríðið fyrir botni Persaflóa og skapa „aðra víglínu" við
norðurlandamæri ísraels.
Reuter
Embættismenn í Líbanon sögðu
að ísraelar og liðsmenn Suður-Líban-
onshers (SLA) hefðu gert stórskota-
árásir á Rashidiyeh-flóttamannabúð-
irnar, um 20 km norðan við ísrael.
Einnig var skotið á fjallaþorp í Iqlim
al-Toufa, 40 km sunnan við Beirút
og skammt norðan við öryggissvæði
ísraela við suðurlandamæri landsins.
Að minnsta kosti tveir menn særðust
í árásinni og um 6.000 manns flúðu
frá Rashidiyeh, eða um helmingur
íbúa búðanna.
Útvarpsstöð sunní-múslima í Beir-
út, Rödd þjóðarinnar, sagði að árásir
ísreala í vikunni væra þær mestu frá
1982 er ísraelsher réðist inn í landið
til að afstýra árásum Palestínu-
manna.
Heimildarmenn innan ísraelshers
sögðu að tugum Katjusha-flugskeyta
hefði verið skotið á öryggissvæðið í
gær. Ekkert manntjón varð í árásun-
um. Heimildarmennimir sögðu að
liðsmenn Suður-Líbananshers hefðu
drepið þijá palestínska skæruliða
skammt frá öryggissvæðinu í fyrra-
kvöld.
Talsmaður Lýðræðisfylkingar fyr-
ir frelsun Palestínu (DELP) sagði að
skæraliðar hennar hefðu orðið þrem-
ur ísraelskum hermönnum að bana
ísraelskir hermenn í eftirlitsstöð við norðurlandamæri ísraels í gær
eftir árás palestínskra skæruliða á ísraelsk skotmörk í suðurhluta
Líbanons.
í umsátri innan landamæra ísraels.
Palestínskir heimildarmenn sögðu
að flugskeytaárásin á ísrael væri lið-
ur í tilraunum til að breiða út stríðið
við Persaflóa og koma af stað átök-
um milli ísraela og allra araba. Þeir
sögðu að Yasser Arafat hefði fyrir-
skipað árásina. Embættismenn ísra-
elska varnarmálaráðuneytisins tóku
í sama streng og sögðu að Yasser
Arafat hefði hér sýnt í verki stuðning
sinn við Saddam Hussein íraksfor-
seta. Talsmenn PLO í Túnis vísuðu
þessum ásökunum á bug.
Ríkisstjórn Líbanons fordæmdi
árás Palestínumanna á ísrael og
sagði hana leiða hörmungar yfir
landið, sem er í sáram eftir fímmtán
ára borgarastyijöld.
George Habash, leiðtogi Alþýðu-
fylkingarinnar fyrir frelsun Pal-
estínu, sem aðhyllist marxisma,
sagði að skæruliðar hans myndu ráð-
ast á ísraela frá Líbanon. Þeir kynnu
einnig að gera árásir á hernaðar-
mannvirki vestrænna ríkja til að sýna
samstöðu með írökum.