Morgunblaðið - 01.02.1991, Page 27

Morgunblaðið - 01.02.1991, Page 27
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRUAR 1991 Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, -. Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 100 kr. eintakið. Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúarritstjóra Fréttastjórar Skipbrot í ríkisfjármálum Fjárlög eru að jafnaði þýð- ingarmesta verkefni Al- þingis, með og ásamt tengdri lagasmíð, skattalögum og.láns- fjárlögum. Ríkis stjórnin, sem hefur á hendi framkvæmd þess- ara laga, auk þess að ráða mestu um gerð þeirra í krafti þingmeirihluta síns, ber síðan pólitíska ábyrgð á framkvæmd- inni, bæði gagnvart þjóðþinginu og síðast en ekki sízt hinum almennu borgurum, kjósendum. Það veltur á miklu, hvern veg til tekst í þessum efnum, hveiju fram vindur í ríkisbúskapnum, enda „hefur hann víðtæk áhrif á flesta þætti efnahagsmála, kjaramála og atvinnumála, en einnig beint á hagsmuni ein- staklinga, fyrirtækja og sveit- arfélaga", eins og Pálmi Jóns- son, sem sæti á í fjárveitinga- nefnd Alþingis, kemst að orði hér í blaðinu í gær. Þegar dreg- ur að lokum þessa kjörtímabils blasir við hrikaleg staða í ríkis- búskapnum. Stefna ríkisstjóm- arinnar í þessu viðamesta verk- efni sínu hefur gjörsamlega brugðizt. Pálmi Jónsson segir að stefna ríkisstjórnarinnar hafi í megindráttum komið fram í stórauknum ríkisumsvifum, viðvarandi skattahækkunum og vaxandi ríkissjóðshalla. Orðrétt segir hann: „Samkvæmt fjárlögum nema tekjur ríkissjóðs 1991 28,1% af landsframleiðslu, en á árinu 1987 var þetta hlutfall 23,6%. Útgjöld A-hluta ríkissjóðs nema á þessu ári, samkvæmt fjárlög- um, 29,1% af landsframleiðslu en 24,9% 1987.“ Á sama tíma sem störfum fækkar á almennum vinnu- markaði, yfirvinna dregst um- talsvert saman og atvinnuleysi er meira en verið hefur síðast- liðin tuttugu ár, fjölgar ríkis- starfsmönnum jafnt og þétt. „Frá árinu 1988,“ segir Pálmi í grein sinni, „hefur fjölgun ríkisstarfsmanna orðið um 1.100 stöðugildi, sem svarar til 2,8% aukningar í þijú ár. Á sama tíma hafa rekstrargjöld aukizt um og yfír 2% á ári að raungildi.“ Á sama tíma sem kaupmátt- ur almennra launa hefur lækk^ að verulega, að hluta til vegna skattahækkana, aukast ríkisumsvif, einkum í starfs- mannahaldi og rekstri. Á sama tíma sem fólki og fyrirtækjum er gert að rifa útgjaldasegl sín, í nafni þjóðarsáttar, færist ríkisbúskapurinn allur í aukana: í eyðslu, skattheimtu, ríkis- sjóðshalla og skuldasöfnun. Pálmi Jónsson færir fyrir því rökstuddar líkur, að þrátt fyrir nýtt skattamet ríkisstjórnarinn- ar á hveiju og einu starfsári hennar, sem samtals hafi leitt til 16 milljarða hækkunar skatta á fjórum árum, 1988— 1991, nemi samansafnaður halli ríkissjóðs á þessu árabili um 30 milljörðum króna. Viðvarandi halli ríkissjóðs hefur síðan leitt til skuldasöfn- unar ríkisins, sem og þess, að nú fer nálega tíunda hver króna af útgjöldum ríkissjóðs í að greiða vexti. Vaxandi ásókn ríkisins á takmarkaðan innlend- an lánsfjármarkað hefur síðan áhrif á vaxtastigið í landinu. En fleira kemur til. Pálmi Jóns- son kemst svo að orði: „Gífurlegum byrðum til við- bótar við hinn samansafnaða ríkissjóðshalla er velt yfir á herðar skattborgaranna í framtíðinni með ríkisábyrgðum, útgáfu skuldabréfa og annarra skuldbindinga ríkissjóðs, sem falla í gjalddaga á næstu árum, og einnig með því að eta upp eigið fé samfélagslegra sjóða, sem sækja styrk sinn til ríkis- sjóðs og ríkissjóður stendur ábyrgur fyrir. Fjármálaráð- herra telur sjálfur að það taki tvö til þijú kjörtímabil að vinna bug á því síðasttalda, af þeim drápsklyfjum, sem þjóðin tekur í arf eftir núverandi ríkis- stjórn.“ Fjármálaráðherra og aðrir ráðherrar eru í senn höfundar, framkvæmdastjórar og pólit- ískir ábyrgðarmenn fjárlaga, skattalaga og lánsfjárlaga. Fyr- ir liggur, svo hafið er yfir allan vafa, að stjórnarstefnan í ríkis- fjármálum hefur brugðizt í höf- uðatriðum. Ríkisstjórnin hefur hvergi nærri axlað sinn samdráttar- hlut í þjóðarsáttinni. Á sama tíma og fólki og fyrirtækjum er gert að herða sultarólina hefur ríkisstjómin haldið sig við heygarðshorn sífelldra skatta- hækkana. Og enn ýja bæði for- sætisráðherra og fjármálaráð- herra að frekari skattahækkun- um. Það er tími til kominn að þjóðin kveði upp sinn dóm yfir óráðsíunni. Til þess gefst tæki- færi eftir tæpa þijá mánuði. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRUAR 1991 27 AF INNLENDUM VETTVANGI AGNES BRAGADÓTTIR 'S' Liðin tíð í pólitík að uppskera eins og maður sáir? AÐEINS sjö mínútur voru til miðnættis að kvöldi 21. janúar, þegar Jóhanna Sigurðardóttir, varaformaður Alþýðuflokksins, skilaði framboði sínu á skrifstofu Alþýðuflokksins í Reykjavík, en frestur- inn rann út á miðnætti. Prófkjör Alþýðuflokksins í Reykjavík verður á morgun og sunnudag. Það var engin tilviljun að Jóhanna lét það dragast eins lengi og henni var unnt að skila framboði sínu — I þessari bið hennar fólust hljóðlát mótmæli, ásamt dulbúinni hótun um að hún myndi bjóða sig fram í 1.-2. sæti listans, sem einhverjir töldu að hefði getað kostað formanninn 1. sætið og þar af leiðandi þingsætið. Jón Baldvin bauð sig aðeins fram í 1. sæti listans að þessu sinni — skipaði að eigin vilja þriðja sætið í alþingiskosningun- um fyrir fjórum árum, en Jón Sigurðsson það fyrsta og Jóhanna annað. Mikið vatn hefur runnið til sjáv- ar á þeim fjórum árum sem liðin eru frá því síðast var kosið til Al- þingis. Jón Baldvin lék þá pólitísku leikfléttu fyrir fjórum árum að færa nafna sínum Sigurðssyni þingsætið á silfurfati, með því áð eftirláta honum fyrsta sæti listans — aðeins þannig var þáverandi for- stjóri Þjóðhagsstofnunar reiðubú- inn að hella sér út í pólitík fyrir Alþýðuflokkinn. Jón Sigurðsson hefur eins og kunnugt er flutt sig um set og skipar nú efsta sætið á lista Al-. þýðuflokksins í Reykjaneskjördæmi — aftur í fyrsta sæti framboðslista, án þess að hafa þurft að beijast fyrir því sæti. Formaðurinn taldi sig ekki þurfa að leysa sérstakan framboðsvanda forystumanna flokksins í Reykjavík og bauð sig fram í fyrsta sæti listans. Þótt hann hafi greint Jóhönnu frá þess- ari ákvörðun sinni fyrir allnokkru, við hóflega hrifningu varafor- mannsins, mun Jón Baldvin hafa verið þess fullviss eftir þeirra fund að Jóhanna tæki ákvörðun um að bjóða sig aðeins fram í 2. sætið. Loksins, loksins Vel má vera að skoðun for- mannsins hafi þá þegar verið á rökum reist, en Jóhanna kaus að halda krötum í óvissu fram á síðustu stundu og skilaði framboði sínu nokkrum mínútum áður en framboðsfresturinn rann út. „Það var náttúrlega ágætt að hún loks- ins, loksins ákvað að hjóla ekki í formanninn," sagði krati um þessa ákvörðun Jóhönnu. Hann kvaðst þó telja að það hefði litlu breytt hefði Jóhanna boðið sig fram í tvö efstu sætin. Hún hefði tryggt sér annað sætið, en ekki hróflað við formanninum. Þetta er mat margra annarra, en þeir telja, að út á við, fyrir eininguna og friðinn hjá for- ystunni, sé mun sléttara og áferð- arfallegra að formaður og varafor- maður Alþýðuflokksins fari ekki út í opinber slagsmál um sæti á framboðslista flokksins. Slíkt hefði bæði verið óskynsamlegt og óþarft. Tilgangurinn með prófkjöri sé eink- um sá að gefa ungu fólki kost á að kynna sig og leita eftir stuðn- ingi. Hvorki formaður né varafor- maður flokksins þurfi á kynningu að halda. Flokksþing hafi kosið þau til forystu og falið þeim að vinna saman að framgangi Alþýðuflokks- ins og það sé þeirra hlutverk, en ekki að takast á um sæti á fram- boðslista flokksins. Enda sé slíkt með öllu óþarft — flokkurinn fái örugglega tvö þingsæti í Reykjavík, og stefni að þremur. Frágengið hveijir skipa tvö efstu sætin Það er þannig frágengið áður en prófkjörið hefst á morgun að þau Jón Baldvin og Jóhanna skipi efstu sætin á listanum, en öllu meiri vafí er á hvernig raðast í sætin þar fyrir neðan, þriðja til sjötta sæti. Þar eru ellefu manns um hituna og kennir ýmissa grasa. Birgir Árnason býður sig fram í 3.-6. sæti, Guðmundur Haraldsson í 3.-6. sæti, Gunnar Ingi Gunnars- son í 3.-6. sæti,_ Helgi Daníelsson í 3.-6.sæti, Jón Ármann Héðinsson í 1.-4. sæti, Magnús Jónsson í 1.-6. sæti, Ragnheiður Davíðsdóttir í 3.-5. sæti, Valgerður Gunnarsdóttir í 3.-6. sæti, Þorlákur Helgason í 1.-3. sæti, Þröstur Ólafsson í 3.-4. sæti og Össur Skarphéðinsson í 3.-6. Almennt er ekki búist við að þremenningarnir Jón Ármann Héð- insson (1.-4. sæti), Magnús Jónsson (1.-6. sæti) og Þorlákur Helgason (1.-3. sæti) fái mikið fylgi í tvö efstu sætin. En vitað er að Jón Baldvin er nokkuð umdeildur innan flokksins og að ákveðinn fjöldi mun ekki kjósa hann. Affallið sem verð- ur mun því að líkindum dreifast á þessa þrjá frambjóðendur, og sam- kvæmt reglum prófkjörsins nýtast þeim neðar á listanum. Sömu sögu er að segja um þau atkvæði sem þessir frambjóðendur fá í 2. sæti listans, en þar sem Jóhanna er ekki jafnumdeild og formaðurinn er líklegt að hennar kosning í 2. sætið verði glæsilegri en kosning formannsins í 1. sætið. Slagurinn milli Þrastar og Ossurar Áhugi manna á þessu prófkjöri virðist einkum beinast að þriðja sæti listans og vangaveltum um hver muni hljóta það sæti. Þar eru þeir Þröstur Ólafsson og Össur Skarphéðinsson einkum nefndir til sögunnar, þótt ótrúlegt kunni að virðast, vegna skammrar veru þeirra í Alþýðuflokknum. Báðir eru tiltölulega nýgengnir til liðs við Alþýðuflokkinn úr Alþýðubanda- laginu, þó Össur hafí ákveðið for- skot á Þröst í þeim efnum, með viðkomu í Nýjum vettvangi í fyrra. Ekki svo að skilja að eitthvert elskuvinasamband hafí verið með þeim er þeir voru í Alþýðubanda- laginu — síður en svo. Þröstur, framkvæmdastjóri Dagsbrúnar í fimm ár og góðvinur Guðmundar J. Guðmundssonar, tilheyrði þar svonefndum verkalýðsarmi, sem Össur beitti sér af mikilli hörku gegn í ritstjóratíð sinni á Þjóðviljan- um undir skjaldarmerki „lýðræðis- kynslóðarinnar“, en þannig skil- greindu fylgism'enn Ólafs Ragnars Grímssonar eigin fylkingu innan Alþýðubandalagsins. Báðir stefna þeir á þriðja sæti listans, en óvíst er að öðrum þeirra takist að ná bindandi kosningu í sætið, þar sem dreifíng atkvæða verður örugglega mjög mikil — slíkt er óhjákvæmi- legt þegar ellefu manns keppa um sama sætið. Hver er duglegastur? Jafnlíklegt er að dreifingin á atkvæðum í fjórða sætið verði mik- il. Þeir Magnús Jónsson og Birgir Árnason munu ugglaust einnig blanda sér í baráttuna um þriðja sætið. Magnús er talinn líklegri til fylgisöflunar en Birgir, þótt Birgir sé fyrrum formaður Sambands ungra jafnaðarmanna og aðstoðar- maður Jóns Sigurðssonar, iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Ugglaust mun miklu ráða um það hver hlýt- ur mestan stuðning í þriðja sæti listans, hver duglegastur er að smala, auglýsa og vekja á sér at- hygli. Össur stendur þar líklega best að vígi, þegar þetta er skrifað. Þó að Jón Baldvin hafi ekki lýst yfir stuðningi sínum við ákveðna ' frambjóðendur, herma heimildir að hann sé þess fýsandi að sjá Þröst Ólafsson í þriðja sæti listans. Hann hafí mikið álit á .Þresti og telji að starfskraftar hans geti reynst Al- þýðuflokknum dýrmætir. Jón Bald- vin er reyndar einnig sagður Öss- uri hliðhollur, þótt hann vilji að Þröstur verði ofar á listanum. Hann telji Össur hafa til að bera persónu- töfra og hnyttni, sem geti skilað Alþýðuflokknum ákveðinni fylgis- aukningu. Raunar er talið að það geti reynst Þresti afdrifaríkt að hafa beðið jafnlengi og hann gerði með að tilkynna þátttöku sína í prófkjör- inu á*meðan aðrir nýir frambjóð- endur eins og Ragnheiður, V algerð- ur og Össur sem tengjast Nýjum vettvangi frá því í borgarstjórnar- kosningunum í fyrra hafa verið á fullum skrið í pólitísku kynningar- starfi innan Álþýðuflokksins. Því er þess vænst að Þröstur muni fyrst og fremst þurfa að reiða sig á stuðning sem hann hefur afiað sér í gegnum sín fyrri störf, eins og innan Dagsbrúnar og KRON. Jakinn styður Þröst Vitað er að Guðmundur J. Guð- mundsson vill hag Þrastar sem bestan í prófkjörinu, en ekki er þar með sagt að Jakinn geti beitt sér að nokkru gagni í því að virkja Dagsbrúnarmenn til þátttöku í prófkjöri Alþýðuflokksins. Hann fékk ekki nema 38% Dagsbrúnar- manna til þess að koma og kjósa í stjórnarkjöri Dagsbrúnar um síðustu helgi, þrátt fyrir miklar brýningar. Kosningastjóri A-lista Guðmundar J., sem var endurkjör- inn með 62,5% atkvæða, var Þröst- ur Ólafsson. Guðmundur J. hefur takmarkað- ar mætur á Össuri, að ekki sé meira sagt. Hann hefur aldrei fyrir- gefið Össuri á hvaða hátt hann skrifaði í Þjóðviljann um Guðmund í tengslum við Hafskipsmálið á sínum tíma. Öruggt má telja að andúð hans á Össuri sé það megn, hljóti Össur góða kosningu í próf- kjöri Alþýðuflokksins en ekki Þröstur, að Guðmundur muni beita sér af afli gegn lista Alþýðuflokks- ins í Reykjavík. Fái Þröstur aftur á móti góða kosningu í prófkjörinu er jafnvel talið að Guðmundur muni lýsa velþóknun sinni á þann hátt að skipa sæti neðarlega á lista kratanna í Reykjavík. Slíkt hefur reyndar þegar verið fært í tal við Guðmund, en hann hefur engin svör gefíð enn og gerir væntánlega ekki fyrr en hann hefur séð niður- stöður prófkjörsins. Það má því vel vera að það séu ekki annir einar sem koma í veg fyrir að Jón Baldvin hefur ekki afskipti af prófkjöri síns flokks í eigin kjördæmi — pólitísk kænska kann þar einnig að eiga hlut að máli. Mögulega þarf hann að starfa náið með báðum þessum fyrrum alþýðubandalagsmönnum í fram- tíðinni, hugsanlega aðeins með öðr- um. Þá er jafngott fyrir hann að hafa ekki veðjað á rangan hest og því kýs hann að uppgjör þessara fornu fjenda fari fram án hans af- skipta. Það verður ekki sagt að mikil harka eða hörð barátta hafi sett svip sinn á undirbúning þessa próf- kjörs — miklu fremur áhugaleysi forystunnar. Jón Baldvin hefur-ver- ið svo önnum kafinn við að sinna skyldum sínum sem utanríkisráð- herra að hann hefur ekki beitt sér neitt í baráttunni, nema hvað hann á fyrri stigum hringdi í ýmsa menn sem eru í eða hafa verið í öðrum flokkum, að vonum þá sem hann telur öánægða og leitaði eftir því að þeir gæfu kost á sér í prófkjör Alþýðuflokksins. Þar má nefna menn eins og Ellert B. Sehram og Jón Magnússon. Formaðurinn hef- ur ekki haft erindi sem erfiði í umleitunum sínum til hægri, eins og hann hefur haft í samskonar þreifingum til vinstri. Uppstillingarnefnd kann að ákveða röð 3. til 6. sætis Það er ekki útilokað að enginn frambjóðenda, að þeim Jóni Báld- vin og Jóhönnu undanskildum, nái að tryggja sér bindandi kosningu, sem þýddi að uppstillingarnefnd Alþýðuflokksins í Reykjavík hefði það í hendi sér að raða í öll sæti listans nema þau tvö efstu. Stjóm- inni væri þannig ákveðinn vandi á höndum, en hún hefði samt sem áður einhverjar vísbendingar úr niðurstöðum prófkjörsins til þess að fara eftir, þótt menn næðu ekki bindandi kosningu. Konunum tveimur sem taka þátt í baráttunni um 3.-6. sæti listans er spáð góðri útkomu, og reynist sú spá sönn kann svo að fara að kynin skipti jafnt með sér sex efstu sætunum. Valgerður Gunnarsdóttir (dóttir Gunnars G. Schram, laga- prófessors) kom til liðs við Alþýðu- flokkinn frá Nýjum vettvangi og sömu sögu er að segja um Ragn- heiði Davíðsdóttur. Þrátt fyrir skamma veru í Alþýðuflokknum er því haldið fram við mig, að báðar konumar hafi tekið virkan þátt í flokksstarfinu og hafi þegar verið samþykktar af krötum sem „góðar og gegnar kratakonur". Hvorug konan virðist umdeild svo heitið geti innan flokksins, en þó er að heyra sem kratar hafí meiri trú á því að Valgerður eigi eftir að spjara sig í stjórnmálabaráttunni en Ragnheiður. Valgerði er alltént spáð meira fylgi í prófkjörinu en Ragnheiði og oft orðuð við fjórða sæti listans. Konunum er þó spáð lélegri út- komu í prófkjörinu en þeim Óssuri og Þresti og virðast kratar hafa styrkst í þeirri skoðun eftir kynn- ingarfund frambjóðenda sem hald- inn var í Reykjavík síðastliðið þriðjudagskvöld. Kratar sem vora á þeim fundi hafa sagt að þar hafi komið berlega í ljós hversu dýrmæt reynslan af fyrri stjórnmálaþátt- töku sé. Þröstur og Össur hafi á þann hátt haft forskot á aðra fram- bjóðendur á fundinum, en þar eins og endranær eru þau Jóhanna og Jón Baldvin að sjálfsögðu undan- skilin. Nánast galopið prófkjör Prófkjör Alþýðuflokksins hér í Reykjavík á morgun, laugardag og sunnudag er opið prófkjör, þar sem Reykvíkingar 18 ára og eldri sem ekki eru flokksbundnir í öðrum stjórnmálaflokkum mega kjósa. Kosið verður í Ármúlaskóla frá kl. 10-19 báða dagana, en samkvæmt upplýsingum flokksskrifstofunnar var horfíð frá því að hafa fleiri kjörstaði. Samkvæmt prófkjörsreglum Al- þýðuflokksins ræður einfaldur meirihluti atkvæða úrslitum og eru niðurstöður prófkjörsins bindandi fyrir uppstillingarnefnd, svo fremi sem frambjóðandi hefur a.m.k. hlotið fimmtung greiddra atkvæða. Til þess að hljóta bindandi kosníngu í prófkjöri Alþýðuflokksins þarf því frambjóðandi að fá 20% greiddra atkvæða eða meira í það sæti sem hann býður sig fram í. Hafi fram- bjóðandinn boðið sig fram í fleiri sæti, nýtast honum þau atkvæði sem hann fær í þau sæti sem eru fyrir ofan-það sæti sem hann hlýt- ur kosningu í. Dæml: frambjóðandi býður sig fram í 3.-6. sæti. Hann hlýtur bindandi kosningu í fimmta sætið og þannig nýtast honum þau atkvæði sem hann hefur fengið í 3.-5. sæti, en þau atkvæði sem hann fékk í 6. sætið eru ekki talin með. Skrautleg pólitísk fortíð þvælist ekki fyrir krötum Það sem er einna foi-vitnilegast við prófkjör kratanna er að skraut- leg pólitísk fortíð frambjóðenda þvælist greinilega ekki fyrir al- þýðuflokksmönnum nú, því þeir, sem spáð er hvað bestri útkomu, eru ýmist fyrrverandi alþýðubanda- lagsmenn eða úr Nýjum vettvangi, sem var sameiginlegt framboð Birt- ingar og Alþýðuflokksins. Vel má vera, þegar upp verður staðið, að kratar, sem hlotið hafa sitt pólitíska uppeldi innan Alþýðuflokksins, eins og Jón Ármann Héðinsson (þing- maður krata 1967-1978), Magnús Jónsson og Birgir Árnason hljóti samskonar útreið og Bjarni P. Magnússon, fyrrum borgarfulltrúi Alþýðuflokksins, hlaut í borgar- stjórnarkosningunum í fyrra. Kratar benda réttilega á að þeir verða ekki einir sakaðir um að leita að nýjum andlitum — nýju blóði, til þess að „skreyta" framboðslista sina með. Framsókn í Reykjavík rýkur til og býður Ásgeiri Hannesi Eiríkssyni, sem nú situr á Alþingi fyrir Borgaraflokkinn, sæti á lista, sem hann reyndar ákvað að af- þakka í fyrradag. Þá hefur Fram- sókn leitað til Lindu Pétursdóttur, alheimsfegurðardrottningar, og boðið henni sæti á listanum. Feg- urð Lindu er að sönnu þekkt líklega langt út fyrir landsteinana, en eng- um sögum fer af stjórnmálaafrek- um hennar, hvorki á vegum Fram- sóknar né annarra. Ingi Björn Al- bertsson, sem gekk í fyrra í Sjálf- stæðisflokkinn, fékk að launum 6. sæti í prófkjöri flokksins í Reykjavík og færðist upp í 5. sæt- ið, eftir að Birgir ísleifur Gunnars- son færðist niður í heiðurssæti á listanum. Pólitísku barnsskórnir sem Guðmundur Magnússon sleit er hann fyrir margt löngu hóf af- skipti af stjórnmálum voru afar rauðleitir, gagnstætt heiðbláum fijálshyggjuskónum sem hann nú gengur á. Guðmundur, sem hlaut 13. sætið í prófkjörinu, var færður upp í 11. sætið af kjörnefnd, þótt hann hafnaði á endanum í 12. sæti samkvæmt ákvörðun aðal- fundar fulltrúaráðs sjálfstæðisfé- laganna í Reykjavík, sl. þriðjudags- kvöld. Þetta er eðlileg þróun og end- urnýjun segja talsmenn svona breytinga. Telja þeir það bera vott um mikla afturhaldssemi og alvar- legan skort á umburðarlyndi ef núa eigi mönnum um nasir pólitískri fortíð þeirra um aldur og ævi. Allir eigi leiðréttingu orða sinna, skoð- ana og gjörða. Eða eins og gamall kratakarl orðaði það, sem fagnaði nýjum liðsauka ættuðum úr Al- þýðubandalaginu: „Ég treysti þess- um mönnum. Þeir sem hafa kynnst kommúnismanum af eigin raun og snúið frá villu síns vegar munu aldrei nokkurn tíma hverfa aftur til villu sinnar.“ Óeðlileg uppdráttarsýki segja gagnrýnendur og telja það ekki vænlegt fyrir flokkshollustu og flokksanda að hampa nýjabrumi eða pólitískum umskiptingum á kostnað dyggra flokksmanna. „Með sama áframhaldi verður það að öfugmæli innan stjórnmála- flokkanna að maður uppskeri eins og maður sáir,“ voru orð eins gagn- rýnandans. Trúfélög: 1 ° Fækkar í fríkirkjum og þjóðkirkju TRÚFÉLÖG utan þjóðkirkjunn- ar hafa farið stækkandi hér á landi á undanfömum 10 árum. Árið 1990 tilheyrðu 92,6% lands- manna þjóðkirkjunni en árið 1980 voru það 93,2%. Á þessum tíma hefur líka orðið hlutfallsleg fækkun í fríkirkjusöfnuðunum í landinu úr 3,8% í 3,2%. í öðrum trúfélögum vom 2,9% lands- manna í fyrra samanborið við 1,8% árið 1988. Einstaklingum utan trúfélaga hefur einnig''' fjölgað lítillega. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu íslands tilheyrðu 236.959 einstaklingar þjóðkirkjunni þann 1. desember 1990. Það eru 92,6% landsmanna en fyrir 10 árum var þetta hlutfall 93,2%, þannig að fjölgun þjóðkirkjumanna á þessu tímabili hefur ekki haldið í við fjölg- un landsmanna. Frá árinu 1980 hefur líka orðið hlutfallsleg fækkun í fríkirkjusöfn- uðunum; úr 3,8% í 3,2%. í fríkirkju- söfnuðinum í Reykjavík vora 5.018 manns 1. desember í fyrra, en 1. desember 1980 vora þar 5.777 manns. í Óháða söfnuðinum Reykjavík hefur Iíka fækkað á þessu tímabili; úr 1.247 árið 1980 í 1.053 í fyrra. Hins vegar hefur orðið nokkur fjölgun í fríkirkjusöfn- uðinum í Hafnarfirði, eða úr 1.676 í 2.141. • í öðrum trúfélögum voru 1,8% landsmanna árið 1980 en voru 1. desember sl. 2,9%. Þar er kaþólska kirkjan fjölmennust með 2.396 manns, hvítasunnusöfnuðurinn með 898 manns og aðventistar með 769. Vottar Jehóva voru 517, Ba*t háíar 378, félagar í Veginum 297, í Krossinum 242 og í kirkju Jesú Krists hinna síðari daga heilögu var 161. Ásatrúarmenn voru 98 þann 1. desember, í Sjónarhæðar- söfnuðinum 50 og í öðram trúfélög- um eða ótilgreindum voru alls 1.505. Árið 1980 vora 1,2% lands- manna utan trúfélaga. 1. desember hafði hlutfall þeirra aukist í 1,3% og vora þá 3.373 einstaklingar sem kusu að skrá sig með þeim hætti. Búist við litlum eða engum haf- ís í vor BÚAST má við því að hafís verði lítill eða jafnvel enginn við landið í vor, og samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar um horfur á þessu ári eru mestar líkur á því að hlýtt verði hér á landi svipað og var á síðasta ári, og heyfeng- ur verði meiri en í meðalári. Lofthiti á Jan Mayen frá ágúst^ byijun og út janúar bendir eindreg- ið til þess að hafið kringum eyjuna hafi verið með hlýjasta móti í haust, en frá Jan Mayen tekur það haf- strauma yfírleitt um hálft ár að ná til Norðurlands. Reynslan undan- farin 68 ár hefur sýnt að dvalartími hafíss við ísland á hverju ári fer mikið eftir hitanum á Jan Mayen í undanfarandi ágúst til janúar. Árs- hitinn á íslandi er einnig nokkuð tengdur hitanum á Jan Mayen haus- tið á undan, en þó er talið að haust- hitinn þar á næstsíðasta ári eigijiav,. líka nokkurn hlut að máli. Árií 1990 var ekki aðeins hlýtt á Jan Mayen, því að á Spitzbergen og Bjarnareyju lengra norðaustur í hafi vora líka mikil hlýindi, og sam- kvæmt upplýsingum Veðurstofunn- ar má líka telja það til stuðnings spánni um hitafar oh hafís hér við land. . x X

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.