Morgunblaðið - 01.02.1991, Side 30

Morgunblaðið - 01.02.1991, Side 30
' '30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1991 Þorvaldur Garðar Kristjánsson: Sóknarstýríng betri en kvótinn Dýrari og verri leið, sagði sjávarútvegsráðherra Tillaga til þingsályktunar um stjórnun fískveiða var til um- ræðu í í sameinuðu þingi í gær. Þorvaldur Garðar Kristjánsson sagði nauðsynlegt að hverfa frá kvótakerfi til sóknarstýringar. Halldór Ásgrímsson sagði tillög- una vera „dæmalaust plagg“. Tillagan gerir ráð fyrir að Al- þingi álykti að kjósa hlutfallskosn- j.- ingu sjö Alþingismenn í milliþinga- nefnd er hafi það hlutverk að endur- skoða fiskveiðistefnuna. „Skal end- urskoðunin hafa að markmiði að komið verði á þeirri skipan sem tryggir verndun fiskstofna og mið- ast við að atgervi þeirra sem sjóinn stunda, fái að njóta sín og sjávarút- vegurinn geti lagað sig sem fijáls atvinnuvegur að landsháttum, fiski- miðum og hagsmunum byggðar- laga svo að gefi sem bestan rekstrargrundvöll til að ná hám- arksafrakstri af auðlindum hafsins. í þessum tilgangi skal nefndin semja frumvarp um stjórn fiskveiða þar sem til komi stjórn á stærð físki- skipastólsins, sóknarstýring á veiði- tíma, veiðisvæðum, gerð skipa, út- búnaði veiðarfæra og meðferð afla eftir því sem heimilaður hámarks- afli á hveija fisktegund leyfír. Nefndin skal haga störfum svo að frumvarp um stjórn fískveiða geti verið lagt fyrir næsta Alþingi." Flutningsmenn með Þorvaldi Garðari Kristjánssyni eru Skúli Alexandersson (Ab-Vl), Eyjólfur Konráð Jónsson (S-Rv), Karvel Pálmasson (A:Vf), Kristinn Péturs- son (S-Al), Ólafur Þ. Þórðarson (F-Vf), Friðjón Þórðarsson (S- VI), Sighvatur Björgvinsson (A-Vf), Pálmi Jónsson (S-Nv), ’Asgeir Hannes Eiríksson (B-Rv), Eggert Haukdal (S-Sl), Ingi Björn Alberts- son (S-Vl), Árni Gunnarsson (A- Na), Geir Gunnarsson (Ab- Rn) og Margrét Frímannsjióttir (Ab- Sl). Kvótakerfið fullkomlega haldlaust Þorvaldur Garðar Kristjáns- son (S-Vf) sagði í upphafí sinnar ræðu að ekki yrði framhjá stað- reyndunum gengið. Kvótakerfið hefði sýnt sig í fullkomnu haldleysi við að ná hinum tvíþætta tilgangi fískveiðistefnu, annars vegar verndun fiskstofnanna og hins veg- ar hámarksafrakstri fiskistofnanna. Réttarvitund íslendinga þyldi held- ur ekki þá ráðstöfun á almannaeign sem fískurinn í sjónum væri. Það væri og staðreynd að kvótaviðskipt- unum fylgdu slík fjörráð við ein- staka byggðir — sem jafnvel hefðu bestu aðstöðuna til sjósóknar — að þeim væri fyrirmunað að njóta hennar sem skyldi svo að sjávarút- vegurinn gæti skilað sem mestum arði í þjóðarbúið. Ræðumaður sagði grundvallar- galla kvótakerfísins vera þann að aflatakmörk væru sett á hvert ein- stakt skip. Á þeirri skipan byggðist sú „forsjá hafta og miðstýringar" '°,sem kvótakerfið væri. Þorvaldur Garðar sagði að þessu kerfi fylgdi kostnaður langt umfram það sem til þyrfti til að bera að landi það aflamagn sem kostur væri á. Af þeim ástæðum væri sjómannahlut- urinn æ rýrari, útgerðin lakar sett en vera þyrfti, og framleiðslukostn- aður fískvinnslunnar meiri en nauð- syn krefði. Af þessu leiddi að út- flutningframleiðslan kallaði á lægra gengi krónunriar. Gengisfelling Ieiddi til hærra vöruverðs. Það væri að Iokum þjóðin í heild sem yrði að axla byrðamar af kvótakerfinu stöðugt lakari lífskjörum en vera þyrfti. Þorvaldur Garðar taldi fram tvo kosti í staðinn fyrir kvótakerfið. Sölu veiðileyfa — sem hann hafn- aði. Fyrir því væri engin trygging að þeir sem réðu yfír fjármagni ræku þá útgerð sem mestum arði . skilaði í þjóðarbúið. Sala veiðileyfa myndi þar að auki opna gáttir fyrir erlent fjármagn til yfírráða yfír mestu auðlind þjóðarinnar. Þorvaldur Garðar lagði til leið sóknarstýringar. í stað þess að físk- veiðistjórnunin væri einstaklings- bundin þar sem veiðitakmarkanirn- ar væru bundanar við hvert ein- stakt skip, kæmi fiskveiðistjórnun almenns eðlis. Hún yrði fólgin tak- mörkunum á heildarafla og sóknar- styringu með alménnum fyrirmæl- um um veiðitíma, veiðisvæði, gerð skipa, útbúnað veiðarfæra og með- ferð afla. Ræðumaður sagði sóknarstýr- ingu gera mögulegt það úrval sem þyrfti til að fækka fiskiskipum. Slíkt gerðist í fijálsri samkeppni þar sem hæfni og arðsemi fengi að ráða. í sóknarstýringu væri beitt reglum um tímabundin og svæðis- bundin veiðibönn, gerð skipa og útbúnað veiðarfæra. Slíkar sóknar- takmarkanir væru almennar og réttlátar og mismunuðu ekki mönn- um. Grisjun fiskiskipastólsins færi þá að lögmálum samkeppninnar en ekki eftir dutlungum stjórnvalda. Úrelt skip og óhagkvæm myndu heltast úr lestinni. Þorvaldur Garðar sagði þessa fijálsu leið sóknarstýringu hafa verið viðhafða við stjórn fiskveiða á árunum 1976-84 og hafi þá vandamál fískveiðistjórnunar verið bamaleikur einn samanborið við þá erfíðleika sem nú fylgdu kvótakerf- inu. Framsögumaður sagði að öllum ætti að vera ljóst að aðalatvinnu- vegur þjóðarinnar yrði ekki til fram- búðar reyrður í þær viðjar miðstýr- ingar, ríkisafskipta og hafta sem kvótakerfíð væri. Að endingu lagði hann til að málinu yrði vísað til atvinnumálanefndar. Dæmalaust plagg ' Halldór Ásgrímsson sjávarút- vegsráðherra sagði það vel að þing- menn hefðu rétt til að leggja „hvað- eina“ fram á Alþingi, en það vildi svo til í núgildandi lögum um stjórn- un fiskveiða væru ákvæði um að sú löggjöf skyldi endurskoðuð og yrði því verki lokið fyrir árslok 1992. Um þessa endurskoðun skyldi haft samráð við sjávarútvegsnefnd- ir Alþingis og helstu hagsmunaaðila í sjávarútvegi. Þessu var ráðher- rann sammála. Hann var hins vegar ekki sammála frumvarpinu sem var til umræðu. Sjávarútvegsráðherra taldi greinargerðina sem fylgdi frumvarpinu vera með þeim endem- um að hann efaðist um að allir Þorvaldur Garðar Kristjánsson. flutningsmenn tækju undir það sem þar stæði. Þóttist vita að ekki hefðu allir sem skrifuðu uppá þetta „dæ- malausa" plagg haft tækifæri til að kynna sér greinargerðina. Ráðherrann sagði að reglur þær sem nú giltu væru almenns eðlis. Fiskveiðiheimildum væri úthlutað eftir almennum reglum sem giltu jafnt fyrir alla. Halldór sagði að auðvitað væri hægt að hafa stjórn á heildarafla með aðferðum sóknar- stýringarinnar, ákvæðum um gerð skipa, útbúnaði og veiðarfærum; meðferð afla og veiðitíma. Sjávarút- vegsráðherra sagði að slíkar tak- markanir væru að hluta til í gildi og hefðu ekki reynst haldgóðar. Því hefði orðið að grípa til þess að skammta aflann á hvert skip. Auð- vitað mætti fara leið sem Þorvaldur Garðar legði til, loka veiðisvæðum og gera skipum svo erfitt fyrir að þau gætu ekki veitt nema eitthvert tiltekið magn. Ráðherrann taldi ljóst að slíkir atvinnuhættir myndu auka mjög kostnað útgerðarinnar og lífskjör í landinu hlytu að versna jafnhliða. Ráðherra sagði að talað væri um byggðaröskun vegna kvótakerfis- ins. Það væri alveg ljóst að einhveij- ir heltust úr lestinni undir sóknar- stýringu og héldu þingmenn ekki að einhver byggðalög lentu í vand- ræðum. Hann vonaði að Alþingi færi aldrei að beita sér fyrir slíkum atvinnuháttum. Sjávarútvegsráðherra sagði töfl- ur og tölur sem fylgdu með frum- varpinu ekki vera réttvísandi, þótt vel mætti vera að þær væru fengn- ar frá Fiskifélagi íslands. T.d. stæði þar að árið 1988 hefði það verið Halldór Ásgrímsson. ákvörðun stjórnvalda að þorskaflinn yrði 315 þús. lestir, en það ár hefði komið fram í reglugerð að ráð hefði verið fyrir því gert að aflinn yrði um 350 þús lestir. en varð 376 þús. lestir. Halldór sagði töflu um fjölda fiskiskipa einnig vera mjög villandi. Hann vísaði til svara sem hann hefði gefið Skúla Alexanders- syni (Ab-Vl) á síðasta þingi. Þá hefði komið fram, að við upphaf kvótakerfisins hefðu verið 673 físki- skip á skrá en í ársbyijun 1990 626, þeim hefði síðan fækkað um fimm. Og trúlega væru 10-20 skip ekki gerð út til veiða en veiðiheim- ildir þeirra nýttar af öðrum. Margir gagnrýndu að veiðiheimildir væru sameinaðar. Ráðherra sagði að það ylli vandkvæðum þegar hætt væri að gera út skip þá væri það hátíð miðað við aðferð Þorvaldar Garð- ars. Og sér hefði komið á óvart hve margir þingmenn vildu taka upp þetta búskaparlag. Ósætti og tortryggni Skúli Alexandersson (Ab-Vl) taldi sjávarútvegráðherra ekki hafa áttað sig á umræðunni í þjóðfélag- inu, það væri gott að ráðherrann áttaði sig á því að stuðingsmönnum kvótakerfis færi fækkandi. Skúli taldi það ekki gagnrýnisvert að leggja til breytingar á kvótakerfinu. Á sama tíma og sjávarútvegsráð- herrann gagnrýndi flutningsmenn þá'væri hann að leggja til stórkost- legar breytingar með Hagræðingar- sjóði sem hefði fylgt kvótalögunum í fylgifrumvarpi, það hefði líka átt að fá á það reynslu. Stefán Valgeirsson (SFJ-Ne) greindi frá því að hann hefði hafn- að því að vera meðflutningsmaður að tillögunni. Einkum vegna þess að ekki hefði verið gert ráð fyrir fiskvinnslustefnu sem vantaði ekki síður en fiskveiðistefnu. Töluverðu réði einnig að í tillögunni væri gert ráð fyrir því að milliþinganefndin yrði kosin hlutfallskosningu sem þýddi t.d. að þeir sem með honum stæðu myndu ekki koma að þessu verki. Nefndinni væri einnig ætlað- ur fullþröngur rammi um þær regl- ur sem ætti að setja. Kristinn Pétursson (S-Al) sagði m.a. að fylgismenn kvótakerfísins vildu að gagnrýnendur bentu á aðr- ar leiðir, en „kvótaklíkan" vildi svo ekki ræða aðrar leiðir, bara „stjórna og ofstjórna". Kristinn gagnrýndi „fijálsa sölu“ á veiðiheimildum þeg- ar leikreglurnar væru mismunandi; sumir fengju að landa erlendis en aðrir yrðu að sæta því að selja inn- anlands á lágmarksverði. Málmfríður Sigurðardóttir (SK-Ne) hafði miklar efasemdir um tillöguna, taldi reynsluna af sóknar- markinu eða skrapdagakerfinu ekki hafa verið góða. Takmarkanir á fiskveiðinni væru því miður nauð- synlegar og rakti hún tillögur Kvennalistans sem m.a. gera ráð fyrir því að veiðiheimildum verði úthlutað til byggðarlaga. Karvel Pálmason (A-Vf) gagnrýndi kvóta- kerfið sem hann sagði Halldór Ás- grímsson sjávarútvegsráðherra og Jón Sigurðsson núverandi iðnaðar- ráðherra vera guðfeður að. Hann taldi að hagsmunaaðilar hefðu ráðið miklu um tilurð kvótakerfís og réðu miklu um framkvæmd þess og end- urskoðun. Taldi það standa þjóð- kjörnum fulltrúum næst að endur- skoða þetta kerfi. Árni Johnsen (S-SI) sagði að sumt hefði tekist í kvótakerfinu, en ekkert kerfi stæðist til lengdar sem ýtti undir ósætti og tortryggni. Tími væri til kominn að spúla dekkið og láta ekki skítinn safnast fyrir. Ólaf- ur Þ. Þórðarson (F-Vf) taldi margt hafa úr lagi gengið í kvótakerfinu. Karl Steinar Guðnason (A-Rn) sagði að þegar fimmtán menn töluðu um þessi mál, kæmu fram 16-17 skoðanir en hann undraðist þó að svona tillaga kæmi fram, með það markmið að hverfa aftur til fortíðar; skrapdagakerfisins. Var- aði við atvinnuleysi í landi þegar heildaraflinn reyndist búinn. Karl Steinar taldi þó að bæta þyrfti nú- verandi kei-fí, sérstaklega þyrfti að efla og styrkja stöðu íslenskra fisk- markaða. Alexander Stefánsson (F-Vl) vildi benda Karveli Pálma- syni og fleirum á, að ekki yrði hjá því komist að hafa samráð við hags- munaaðila, og það yrði þessi milli- þinganefnd líka að gera ef kosin yrði. Alexander taldi það vera einn af stærstu kostum kvótakerfísins að samráð væri haft við alla aðila. Hann hryllti við ef aðferð sóknar- stýringar yrði tekin upp. Tiltölulega fá skip, þau stærstu og fullkomn- ustu, myndu veiða helftina af aflan- um, þegar við þyrftum að dreifa aflanum sem mest. Þorvaldur Garðar Kristjáns- son, Sluili Alexandersson og Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs- ráðherra ítrekuðu fyrri málflutning og skiptust á skoðunum. Sjávarút- vegsráðherra gagnrýndi enn sem fyrr töflur Þorvaldar Garðars Kristjánssonar sem væru mis- vísandi og samanburður þar villandi og rangur. Þorvaldur sagði sjávar- útvegsráðherra reyna að gera töl- urnar tortryggilegar en hann stæði við tölur frá Fiskifélaginu og Sigl- ingamálastofnun ríkisins. Hann sagði að ráðherrann reyndi að snúa út úr en sá „titlingaskítur“ breytti ekki neinu. Þorvaldur Garðar vék að ummælum sjávarútvegsráðherra um að tillagan væri „dæmalaust plagg“ og sagði að þar hefði mátt skrifa enn lengra mál, því að kvóta- kerfið væri dæmalaust.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.