Morgunblaðið - 01.02.1991, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1991
39
Segðu komdu
- en ekki farðu
eftir Hugo Þónsson
Hinn árlegi tannverndardagur er
þann 1. febrúar. í ár er hann helg-
aður ábyrgð uppalenda á tönnum
barna sinna. Það er ekki að ástæðu-
lausu, að nauðsynlegt þykir að
minna foreldra og aðra uppalendur
á að huga að tannvernd barna
sinna.
Undirritaður sem hefur-starfað í
fjölmörg ár með böm og með böm-
um og foreldrum hefur hvað eftir
annað rekið sig á, hvernig margir
þættir í daglegu amstri, m.a. tann-
burstun, getur orðið ásteytingar-
steinn í samskiptum foreldra og
barna.
Foreldrar sem lenda í samskipta-
erfiðleikum við börn sín, nefna oft
háttatíma sem dæmi um dagleg
samskipti sem erfitt er að fram-
kvæma í sátt og samlyndi.
„Það tekur yfirleitt 1-2 klukku-
tíma frá því ég segi þeim fyrst að
fara að bursta tennurnar, þangað
til þau eru komin upp í rúm og ei-
líft stagl og leiðindi þennan tíma.
Svona gengur þetta kvöld eftir
kvöld. “
Eitt af því í samskiptum foreldra
og barna sem foreldrar þurfa að
gera sér grein fyrir, er hve mikil-
vægt er að kenna barninu að axla
ábyrgð á eigin málum. Þetta er
gildra sem margir foreldrar átta sig
ekki á og lenda í því að bera ábyrgð
á mörgu því sem réttilega ber að
vera ábyrgð barna þeirra, svo sem
að börnin borði, bursti tennur, læri,
o.fl.
„ Uppeldi“ er ekki það, að taka á
sig ábyrgð barnanna, heldur að
vera þeim til aðstoðar þannig að
þau læri sjálf að axla ábyrgð, eftir
því sem aldur og þroski gerir mögu-
legt.
Sú ábending að börnin læri að
axla ábyrgð, þýðir ekki að foreldr-
unum komi þessi mál ekki við.
Mataræði, heimanám, tannburstun
bamanna o.þ.h. kemur foreldrum í
hæsta máta við. Ekki þó á _þann
hátt að þeir eigi að bera ábyrgð á
því, heldur að „kenna“ baminu að
bera ábyrgð.
A sumum heimilum getur atriði
eins og tannburstun orðið tog-
streituefni, ef barninu fínnst það
vera að gera þetta fyrir foreldrana
en ekki sjálft sig. Þá hljóma setn-
ingar eins og „þá bursta ég ekkert
í mér tennurnar“, sem hótun á for-
eldrana.
■ PÚLSINN heldur síðustu tón-
leika bandaríska blúslistamannsins
Derrick Big Walker með KK-
band föstudaginn og laugardaginn
1. og 2. febrúar. Derrick er nú á
föram til Svíþjóðar þar sem hann
er búsettur. Sérstakur gestur bæði
kvöldin verður Ellen Kristjáns-
dóttir söngkona. Mánudaginn 4.
febrúar leikur dúettinn Ljúfling-
arnir á Púlsinum en hann skipa;
Sigurður Dagbjartsson söngvari
og gítarleikari hinnar vinsælu
hljómsveitar Upplyftingar og
Kristján Óskarsson hljómborðs-
leikari hljómsveitarinnar Flæking-
arnir. Þriðjudaginn 5. febrúar
leikur KGB djasstríóið. Tríóið
skipa: Steingrímur Steingríms-
son trommuleikari, Kristján Ing-
ólfsson bassaleikari og Kristján
Guðmundsson píanóleikari. Að-
gangur er ókeypis bæði kvöldin.
■ / FEBRÚAR 1981 var ljós-
myndaklúbburinn Hugmynd ’81
stofnaður. í tilefni 10 ára afmælis
huggst Hugmynd ’81 að standa
fyrir ýmsum uppákomum á árinu,
svo sem ljósmyndasamkeppni, sýn-
ingum á verkum félagsmanna og
mörgu fleira. Starfsárið hefst með
afmælisfagnaði er haldinn verður
laugardaginn 2. febrúar nk. frá kl.
17.00-19.30 í húsnæði Hugmynd-
ar ’81, Klapparstíg 26, 3. hæð til
hægri. Öllum þeim sem áhuga hafa
á ljósmyndun er velkomið að koma,
þiggja veitingar og kynna sér starf-
semi klúbbsins. (Fréttatilkynning)
Hugo Þórisson
„Það tekur styttri og
ánægjulegri tíma að
segja „komdu“ þegar
háttatíminn er runninn
upp.“
Tannburstun er einmitt gott
dæmi um samspil á milli þess að
sinna barninu sínu, án þess að bera
ábyrgð á málum þess. Þar þurfa
foreldrar að rata þann veg, að
kenna barninu að bera ábyrgð en
jafnframt að vera sá aðíli sem burst-
ar tennurnar, a.m.k. á yngri börn-
um.
Foreldrar sem eru lentir í þeim
vanda að m.a. tannburstun og
háttatfmi dregst á langinn og þetta
jafnvel orðinn misskilinn farvegur
fyrir sjálfstæðisbaráttu barnanna,
ættu að hafa í huga orð sem ég
heyrði hjá merkum skólastjóra, að
í uppeldi er oft betra að segja
„komdu“ í stað „farðu". Þannig er
reynsla margra foreldra sem eru
lentir í daglegu þrasi við það að
senda börnin í háttinn, að það tekur
styttri og ánægjulegri tíma að segja
„komdu“ þegar háttatíminn er
ranninn upp.
Höfundur er sálfræðingur við
ráðgjafar- og sálfræðideild skóla
í Reykjavík.
WIKA
Allar stæröir og gerðir
Vesturgðtu 16 - Simar 14680-132»
Viðtalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins I Reykjavík %
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
verða til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1,
á laugardögum í vetur frá kl. 10-12.
Er þá tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum
og ábendingum.
Allir borgarbúar velkomnir.
Laugardaginn 2. febrúar verða til viðtals Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður skipulagsnefndar,
í borgarráði, hafnarstjórn, stjórn sjúkrastofnana, stjórn Sorpeyðingar höfuðborgarsvæðisins og
bygginganefnd aldraðra, og Hulda Valtýsdóttir, formaður menningarmálanefndar.
BYLTING!
386 SX FERÐÁTÖLVA A
AÐEINS KR. 209.534™
Nýja HYUNDAI Super LT5 ferðatölvan er
fullkomin 386 SX vél á verði sem á sér
ekki hliðstæðu I
Tæknilýsing:
• 2 Mb innra minni (stækkanlegt í 6 Mb).
• 40 eða 105 Mb harður diskur.
• LCD hágæðaskjár með VGA upplausn.
• Tengi fyrir VGA litaskjá og stórt lyklaborð.
• Raðtengi og hliðtengi.
• Vegur aðeins 5.2 kg. með rafhlöðu og
Straumbreyti. * Staögreiðsluafsláttur er 10%
MTÆKNIVAL
SKEIFUNNI 17 • 108R. • S. 681665
- - ■ ■■ .. -