Morgunblaðið - 01.02.1991, Side 42

Morgunblaðið - 01.02.1991, Side 42
MÖROL'NBIÍAÍMÐ FÖSTUlÖÁGUR'Í. FÉÍBRÖAR lðSl1- 42 fclk í fréttum Michael Ontkean að leik við yngri dóttur sína, Sadie, í sundlauginni heima á Malibuströnd. segja að hann sé nýtt andlit. Hann hefur leikið í mörgum sjónvarpsþáttum og nokkrum kvikmynd- um. Hann kom fyrst fram á sviði 4 ára gamall og á breiðtjaldi 8 ára. 14 ára var hann kominn með töluverða reynslu, en þá freistaði ísknattleikur meira. Hann ákvað að gefa sig allan í ísknattleik- inn, en ári seinna horfði hann á æskuvin sinn láta lífíð í kappleik er hann rann stjórnlaust á miklum hraða á marksúlu. Hann skoðaði hug sinn eftir það áfall og komst að þeirri niðurstöðu að vænlegra myndi að freista gæfunnar í leiklistinni en ísknattleik. í dag, 25 árum síðar, skoðar hann hug sinn að nýju og kemst að þeirri niðurstöðu að hann hafi valið rétt. J Michael ásamt leikkonunni Madchen Amick. Myndir af þessu tagi hafa komið á fót gróusögum um framhjáhald leikarans ... BJÖRGUN Lögreglustjóri Tvídranga -var að sálast úr leiðindum Ein aðalstjama sjónvarpsþátt- anna um Tvídranga er Micha el Ontkean, fertugur þrautreyndur sjónvarpsleikari sem þó segir að hlutverkið hafi bjargað ferli sínum þar sem hann fékk orðið ekkert annað en smáhlutverk og „rusl“. Þegar honum bauðst hlutverk Harry S. Traman, lögreglustjórans í Tvídröngum, hafi hann ekki ver- ið í vafa um að þar hafi hann lan- dað þeim stóra. „Það er kannski ekki stærsta hlutverkið í þáttun- um, en þetta er karakterhlutverk ^jpg reynir á hæfileikana. Það hefði verið hægur vandi að klúðra því. Satt að segja var ég að deyja úr leiðindum, en þetta hlutverk bjarg- aði ferli mínum,“ segir Ontkean um leið og hann hleður lofí á leik- stjórann David Lynch. Ontkean segir raunar að það hæfí sér betur að fara ekki með stærsta hlutverkið í Tvídröngum þar sem hann hafí aldrei verið fyrir að stela senunni. Hann hafí ævinlega kunnað -ffest við að vera í góðum aukahlut- verkum og því væri hlutverk Tru- mans í Tvídröngum sem sniðið fyrir sig. Ontkean hefur verið milli tanna slúðurdálkahöfunda eftir að frægðarljómann af Tvídröngum lagði yfir hann. Sagt er að hann haldi við eina af aðalleikkonum þáttanna, Madchen Amick. Ontkean segir þetta kj aftæði sem stafí af því að þeim hafí oft verið stillt upp saman í myndatök- um og þau hafi auk þess nokkram sinnum komið fram opinberlega sem fulltrúar Tvídranga. Ekkert sé hæft í gróusögunni, þvert á móti sé hann jafn skotinn í eiginkonu sinni, Jamie Smith Jackson, og fyrram. Fjölskyldan sé sér allt, en hann á auk eiginkonu tvær litlar dætur. „Konan mín þolir ekki sviðsljósið og vill ekki fylgja mér ef hætta er á myndatökum. Það virði ég og þess vegna hefur Madchen stund- um slegist í för við slík tækifæri," segir Ontkean. Þótt segja megi að Kanadamað- urinn Michael Ontkean hafí nú loks slegið i gegn er af og frá að COSPER — Hann eyðilagði eitt af málverkunum minum með því að setja blett á það. KLÍKUSKAPUR Feðgar á ferð í Dallas Platrick Duffy, sá er leikur hjartamilda harðjaxlinn Bobby Ewing í sjónvarpsþátt- aröðinni Dallas hefur komið eldri syni sínum að í þáttun- um. Sonurinn Padraic Duffy, 15 ára, lék reiðhjólakeppnis- ungling í nokkram þáttum og Patrick viðurkennir fúslega að klíkuskapur hafí ráðið ráðningu Padraics. „Já, það þýðir ekkert að neita því að drengurinn fékk hlutverkið alfarið út á mig. Ég mun gera slíkt hið sama fyrir yngri strákinn minn ef hann hefur áhuga á því að komast í bransann í fyllingu ‘tímans. Hins vegar verða menn að verðskulda að ráða strákana ef þeir ættu ekkert erindi í leiklist- ina,“ segir Patrick. Hann segist gera þetta vegna þess að það sé skylda foreldra að hjálpa börnum sínum í hví- vetna að komast áfram í líf- inu og hann reikni með því að foreldrar sínir hefðu gert slíkt hið sama ef þeir hefðu haft aðstöðu til. Um eigin framtíð í Dallas sagði Patrick Duffy, að hann myndi leika Bobba uns þætt- irnir rynnu sitt skeið á enda. „Ég hætti einu sinni og það er ekki hægt að leika þann leik aftur og halda reisn sinni," segir Patrick. Feðgarnir á skjánum í Dallas tækifærið, hafa hæfíleika til að bera. Ég myndi aldrei fylgja þessu eftir með þeim hætti að ýta á menn HARRY CONNVICK IR We're In Love Þessl ungi jasspoppari hefur slegið i gegn í heimalandi siou) Bandaríkjunum og berst hróður hans til íslands. Frábær létt sveifla sem fellur öllum i geð. Þar sem músíkin fæst! M ÚSÍK h I j ó m p I ö t u v ersjan i r Painkiller Aldrei betri -hefur verið sagt um marga hluti en það er fyrst nú sem þvi er treystandi. Hér er að tinna allt sem skrýða á atvöru þungarokkplötu i Mv i idin Sænskættuðu tvlb'urarnir Gunnar og Mathew föru á toppinn (Bandarikjunum'með lagið "Love And Affection',. ‘After The Rain' gefur því ekkert cftlr og nú aðeins spurning um hvenær þeir slá endanlega I gegn hér i Fróni. ’SfSím ¥s* ln The Heart Of Young Kip Winger fyrrverandi bassaleikari i hljómsveit Alice Cooper hefur leitt félaga sfna á toppinn, og þeir fara ekki þaðan i bráð. Wertu Wiss - Weldu Winger AUSTURSTRÆTI 22 ® 28319, RAUÐARÁRSTÍGUR 16 ® 11620 • GLÆSIBÆR © 33528 • l.AUGAVEGUR 24 ® 18670 ■ STRANDGATA 37 © 53762 • ÁLFABAKKA 14 MJÓDD ® 74848 ■ LAUGAVEGUR 9,1 © 29290 |TGrænt % i >* JUDAS PRIEST NEISON

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.