Morgunblaðið - 01.02.1991, Page 50
50
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1991
Leikup np. 2,
Chelsea - flnsenal,
ep í beinni útsendingu
á laugapdaginn kl. 15.
ekki bara heppni
Upplýsingar um úrslit leikja: Lukkulínan, s. 99-1002
SKIÐI / HM I SAALBACH
Boumissen vann
önnurgull-
verðlaun Sviss
CHANTAL Bournissen vann
önnur gullverðlaunin fyrir Sviss
á heimsmeistaramótinu í Sa-
albach er hún sigrað í alpa-
tvíkeppni kvenna ígær. Ingrid
Stöckl frá Austurríki varð önn-
ur og Vreni Schneider, Sviss,
þriðja eftir að hafa náð lang
besta tfmanum í svigi tvíkeppn-
innar ígær.
Bournissen var með þriðja besta
tímann í bruninu og keyrði
svigið af miklu öryggi, náði fimmta
besta tímanum og það nægði henni
til sigur þar sem Sabine Ginther frá
Austurríki, sem var með besta
tímann í bruninu, fór út- úr braut-
inni í síðari umferð í gær.
„Ég hafði mikla heppni með
mér. Mér hefur aldrei gengið eins
vel í svigi og í dag,“ sagði Bourniss-
en eftir sigurinn. Hún hlaut sam-
tals 26,45 stig. Ingrid Stöckl varð
önnur með 33,76 stig og Schneider
þriðja með 42,13 stig, þrátt fyrir
að hafa verið aðeins með 26. besta
tímann í bruninu.
Schneider, sem hefur ekki átt
mikilli velgengni að fagna í vetur,
náði sér vel á strik í sviginu og var
með lang besta tímann í báðum
umferðum og vann með 2,37 sek
mun. Hún verður því að teljast sig-
urstrangleg í sviginu sem fram fer
í dag. „Ég fann mig vel í sviginu
í dag, en það er ekki þar með sagt
Reuter
Chantal Bournissen frá Sviss
fagnar hér sigri í alpatvíkeppni
kvenna.
að allt gangi upp á morgun,“ sagði
Schneider um sigurmöguleika
hennar í sviginu.
Kronberger úr leik
Petrar Kronberger var ekki með
í gær og hún verður ekki meira
með á heimsmeistaramótinu vegna
hnémeiðsla sem hún hlaut í risa-
sviginu.
HANDBOLTI
Rögnvald og Stefán dæma
í Svíþjóð og Danmörku
Rögnvald Erlingsson og Stef-
án Arnaldsson, handknatt-
leiksdómarar, dæma - landsleiki
Dana og Svía í bæði karla og
kvennaflokki 12. og 13. febrúar.
Síðan dæma þeir Evrópuleik Saab
og Milbertshofen í Linköping 17.
febrúar.
Rögnvald og Stefán dæma fyrst
landsleik Dana og Svía í kvenna-
flokki 12. febrúar í Árhus í Dan-
mörku. Daginn eftir fara þeir yfir
til Karlstad í Svíþjóð og dæma
þar landsleik sömu þjóða í karla-
flokki. Þessir leikir eru árlegur
viðburður og hefur Rögnvald einu
sinni áður dæmt í þessu móti,
með Gunnari Kjartanssyni 1989.
1.DEILD KV
Selfoss féll
í 2. deild
Selfoss féll í 2. deild kvenna er í
fyrrakvöld er liðið tapaði fyrir
Stjörnunni, 18:28, í 1. deild kvenna.
Staðan í hálfleik var 6:12. Selfoss hefur
aðeins 5 stig og á eftir sex leiki og
getur því ekki náð þriðja neðsta liðinu
að stigum. En tvö lið falla í 2. deild.
Valsstúlkur léku á als oddi í fyrri
hálfleik gegn FH og gerðu hvert mark-
ið á fætur öðru. Valur lék sterka vörn
og skoraði mikið úr hraðaupphlaupum.
Lokastaðan var 19:20. Markahæstar
hjá Val voru Hanna Katrín Friðriksen
6/3 og Ragnheiður Júlíusdóttir með 5
mörk. Hjá FIl var Hildur Harðardóttir
markahæst með 6/4 mörk.
Fram vann Gróttu auðveldlega,
29:14. Sigrún Blomsterberg var marka-
hæst Framara með 6 mörk. Laufey Sig-
valdadóttir var markahæst í liði Gróttu
með 5 mörk.
■Staðan í 1. deild kvenna var ekki rétt
í blaðinu í gær og birtum við hana því
aftur rétta hér fyrir neðan.
Stjarnan.........24 20 0 4 549:409 40
Fram.............20 17 1 2 420:329 35
Víkingur.........22 12 3 7 439:382 27
FH...............23 11 2 10 434:425'24
Valur............24 10 1 13 460:486 21
Grótta.......... 23 7 3 13 401:429 17
ÍBV..............24 6 1 17 435:519 13
Selfoss..........22 2 1 19 382:541 5
HANDBOLTI
Ystadá
sigur-
braut
Gunnar Gunnarsson og sam-
heijar í Ystad eru í fjórða
sæti með 27 stig í úrslitakeppni
sænsku deildarinnar í hand-
knattleik eftir leikina í fyrra-
kvöld. Þá vann Ystad Sevehov
20:17 og var sigurinn aldrei í
hættu, en um síðustu helgi vann
Ystad Söder á útivelli, 26:21.
„Þetta er allt á uppleið hjá
okkur og með sama áframhaldi
eigum við alla möguleika á að
verða í hóþi sex efstu liða og
keppa um titilinn eins og að er
stefnt,“ sagði Gunnar við Morg-
unblaðið eftir sigurinn gegn
Sevehov.
Drott vann Lugi 31:22 og er
með 37 stig, en Lugi er í þriðja
sæfi með 27 stig og Yrstad í
öðru með 30 stig.