Morgunblaðið - 24.03.1991, Page 1
112 SIÐUR B/C
70. tbl. 79. árg.
Breska þingið;
25 herbergja
íbúð sem eng-
inn vissi um
Starfsmenn neðri deildar breska þings-
ins urðu ekki lítið undrandi þegar þeir
opnuðu dyr sem verið höfðu læstar um
árabil og fundu 25 herbergja svítu sem
enginn vissi um. íbúðarhúsnæði þetta
er fyrir ofan þingsal deildarinnar og
er talið að það hafi verið notað kynslóð-
um saman til að hýsa þjónustulið þing-
forsetans. Síðast var búið þar árið 1945.
Ibúðin fannst þegar gerð var saumnál-
arleit að tiltæku skrifstofurými í þing-
húsbákninu. Húsnæðisskorturinn er
mikill og hefur herbergjunum 25 þegar
verið úthlutað þingmönnum neðri
deildarinnar sem búið hafa við frum-
stæð vinnuskilyrði í húsakynnum sem
miðuð voru við allt aðra og rólegri tíma
en nú eru.
Svíar hræðast
atvinnuleysi
Atvinnumálastofnun Svíþjóðar spáði
því í vikunni að atvinnuleysi yrði kom-
ið í 4,5% árið 1992 en það hefur ekki
verið svo mikið síðan í seinni heims-
styrjöldinni. Spá stofnunarinnar hefur
vakið upp minningar um atvinnubóta-
vinnu í kreppunni á fjórða áratugnum.
Flestir hagfræðingar telja atvinnuleysi,
sem var 2,3% í febrúar miðað við 1,4%
á sama tíma í fyrra, óumflýjanlegt ef
takast á að rjúfa vítahring hækkaðra
launa og aukinnar verðbólgu. Fyrri
ríkisstjórnir, jafnt jafnaðarmanna sem
hægri manna, hafa reynt að halda at-
vinnuleysi niðri, hvað sem það kostar,
og er mikill vilji fyrir því að viðhalda
þeirri hefð.
Lifði af þrjá-
tíu hæða fall
Barbara, gulbröndóttur högni sem var
vitlaust kyngreindur sem kettlingur og
hlaut þess vegna nafn sem betur hefði
hæft læðu, féll ofan af þaki skýjakljúfs
í Hong Kong í síðustu viku og lenti á
blikkþaki þrjátíu hæðum neðar. Bar-
bara fór úr kjálkalið og braut einn
fótlegg — að öðru leyti er hann heill á
húfi eftir fallið.
STOFNAÐ 1913
SUNNUDAGUR 24. MARZ 1991 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/Ami Sæberg
FRÁ SIGLUFIRÐI
Saksóknarar í Nurnberg-réttarhöldunum:
„Sekt Saddams Husseins jafn
auðsönnuð og Adolfs Hitlers“
Washington. Reuter.
BANDARÍKJAMENN, sem sóttu þýska
nasista til saka í Niirnberg-réttarhöldun-
um eftir heimsstyrjöldina síðari, sögðu
á föstudag að jafn auðvelt yrði að sanná
stríðsglæpi á Saddam Hussein íraksför-
seta og á helstu samstarfsmenn Adolfs-
Hitlers.
Saksóknararnir sögðu að nægar sannanir
væru fyrir stríðsglæpum Iraka. Þeir hefðu
■ráðist inn í Kúveit að tilefnislausu; her-
námsliðið hefði nauðgað, pyntað og myrt
óbreytta borgara í landinu; kveikt hefði
verið í kúveiskum olíulindum; mikil verð-
mæti tekin herfangi; óbreyttir borgarar
teknir í gíslingu; stríðsföngum misþyrmt og
þeir auðmýktir. „Sekt Saddams er jafn auð-
sönnuð og Adolfs Hitlers," sagði einn af
saksóknurunum, Benjamin Ferencz.
Hins vegar er ljóst að vandkvæði eru á
því að höfða mál gegn írösku ráðamönnun-
um þar sem þeir eru enn við völd.
„Það væru hörmuleg mistök ef Saddam
Hussein tæki ekki út refsingu fyrir
stríðsglæpi Iraka,“ sagði einn af saksóknur-
unum fyrrverandi er þeir komu saman til
að minnast þess að 45 ár eru liðin frá réttar-
höldunum í Núrnberg. Þeir undirrituðft
ályktun þar sem þeir hvöttu Sameinuðu
þjóðirnar, Bandaríkjastjórn og bandamenn
í stríðinu fyrir botni Persaflóa til að leiða
Saddarn og samstarfsmenn hans í Bylting-
arráði Iraks, helsta valdatæki forsetans,
fyrir rétt vegna glæpa sem írakar frömdu
eftir hernám Kúveits.
Pólverjar heiðra
Reagan
Lech Walesa, forseti Póllands, sem er í
opinberri heimsókn í Bandaríkjunum,
sæmir hér Ronald Reagan, fyn-verandi
Bandaríkjaforseta, æðstu orðu pólska lýð-
veldisins í gær. Walesa iét þau orð falla
við þetta tækifæri að pólska verkalýðs-
hreyfingin Samstaða hefði ekki getað
komið stjórn kommúnista frá völdum án
stuðnings Bandaríkjamanna og Reagans.
Reuter
Júflöslavia:
HARDSKEYTT
VALDATAFL
20 I
Mannbjörg
varð... 24
Palestfnumenn
í Jerúsalem
VID EIGUM
/ESKUDÝRKUN
QG ELLIKVfDI