Morgunblaðið - 24.03.1991, Síða 4

Morgunblaðið - 24.03.1991, Síða 4
4 FRÉTTIR/YFIRUT ERLEIMT ININILENT Kosninga- baráttan er hafin Kosningabaráttan fyrir þing- kosningamar 20. apríl hófst með þingslitum á miðvikudag. Málþóf og einkennilegar uppákomur settu svip sinn á síðstu daga þingsins. Meðal annars töfðust þingslit vegna deilna um stjómarsetu í Landsvirkjun. Tveggja manna leitað TVeggja ungra manna var leitað á Steingrímsfjarðarheiði eftir að bíll þeirra fannst mannlaus. Annar maðurinn fannst látinn, en hins er enn leitað. VerkfaU fiskvinnslufólks Meirihluti fískverkafólks í landinu Iagði niður vinnu á mið- vikudag til að knýja á um hækkun skattieysismarka. Á mörgum stöð- um mætti fólk þó til vinnu. Smyglaður vodki úr sjó Sex skipverjar á Laxfossi hafa játað að eiga 600 lítra af smygluð- um vodka, sem tollgæzlan gerði ERLENT Þjóðarat- kvæði um ný- skipan Sovét- ríkjanna Fyrsta þjóð- aratkvæða- greiðslan í sögu Sovétrilg- anna var hald- in síðastliðinn sunnudag. Spurt var hvort kjósendur væru fylgjandi nýskipan Sovétríkjanna. Kjörsókn var 80% en fimm lýðveldi af fímmtán auk Litháens tóku ekki þátt. Samkvæmt opinberum nið- urstöðum vora 76% kjósenda fylgjandi tillögu stjómvalda. Æðsta ráð Sovétríkjanna hefur ákveðið að niðurstaðan hafi leið- beiningargildi fyrir stjómvöld en ekki var samþykkt tillaga þingfor- setans um að úrslitin væru bind- andi fyrir öll Sovétríkin. Finnska stjómin missir meirihluta Talið er að stjómarmyndun verði erfið í Finnlandi eftir að ríkisstjómarflokkamir þrír, Jafn- aðarmannaflokkurinn, Hægri- flokkurinn og Sænski þjóðarflokk- urinn misstu meirihluta sinn á þingi í kosningum á sunnudag. Miðflokkurinn vann mikinn sigur og hefur nú 55 þingmenn í stað 40 áður og er nú stærsti flokkur landsins. Vangaveltur eru um samsteypustjóm Hægriflokksins og Miðflokksins en saman hafa þessir flokkar 95 þingsæti af 200 og þyrftu því liðsinni einhvers reersMM .ts auoAauviviua QiöAjaviuoHOM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MARZ 1991 Golfkylfur fyrir eitthundrað millj ónir íslenskra króna á uppboði St. Andrews. Frá Guðmundi H. Frímannssvni, fréttaritara Morgnnbiaðsins. SOTHEBY’S uppboðshaldaramir í Lundúnum búast við að fá 100 upptæka. í bílaeltingaleik við einn smygiaranna skemmdust bæði flóttabíll hans og bíll tollgæzlunn- ar. Með 51 milljón í aukatekjur Ríkisendurskoðun gerði athuga- semd við að sérfræðingur á Ríkisspítulum fékk 51 milljón króna í verktakagreiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins. Sér- fræðingar á spítulunum fá veruleg- ar greiðslur af þessu tagi utan fastra launa. Vonzkuveður fyrir norðan Vonzkuveður með mikilli snjó- komu gekk yfír Norðurland. í Grímsey þurfti fólk að flýja hús vegna rafmagnsleysis. Vélar Lax- árvirkjunar skemmdust vegna krapa og gijóts og á Tjömesi fékk 120 metra breitt snjóflóð og lokaði þjóðveginum.. Þjóðleikhúsið opnað á ný Þjóðleikhúsið var opnað á ný eftir breytíngar og endurbætur. Kostnaður við viðgerðimar var um 500 milljónir króna. Gagnrýni á eignarhlut Eimskips Fráfarandi stjómarformaður Flugleiða, Sigurður Helgason, gagnrýndi stóran hlut Eimskips í félaginu á aðalfundi þess. Þar var Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskips, kjörinn stjómarformað- ur. BHMR áfrýjar til Hæstaréttar BHMR hefur áfrýjað dómi í próf- máli gegn ríkinu tfl Hæstaréttar. Flugmannadeila tíl Félagsdóms Vinnuveitendur hafa ákveðið að vísa boðuðu verkfalli flugmanna til Félagsdóms. Flugmenn hafa boðað verkfall á föstudaginn langa og -eftir það dagsverkföll í hverri viku á öllum leiðum félagsins, takist samningar ekki. þriðja flokksins til að hafa meiri- hluta á þingi. Nefskattur afnuminn Ríkisstjóm íhaldsflokksins í Bretlandi hefur ákveðið að aflétta nefskattmum umdeilda, sem Margaret Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra, lagði á í fyrra. Nefskatturinn hefur verið jafnhár á hvem einstakling óháð tekjum og hefur hann runnið til sveitarfé- laga. í hans stað á að koma nýtt gjald sem byggist á fasteignamati en einnig verður tekið tillit til fjölda fullorðinna er búa í viðkom- andi húsnæði. Havel í höfuðstöðvum NATO Vaclav Havel, forseti Tékkó- slóvakíu, sagði í opinberri heim- sókn í höfuðstöðvum Atlantshafs- bandalagsins í Bmssel í gær að sér væri það ánægja að geta bo- rið fram afsökunarbeiðni fyrir hönd Tékka og Slóvaka vegna þeirra lyga sem fyrrverandi leið- togar landsins hefðu látið frá sér fara um NATO. Hann kvað aðild Tékkóslóvakíu að bandalaginu ekki tímabæra en vel kæmi til greina að opna upplýsingaskrif- stofu um NATO í Prag og jafnvel Bratislava. Saddam sakaður um að nota sýruíhernaði Kúrdar segjast nú hafa náð norðurhluta Iraks á sitt vald. Uppreisnarmenn í írak hafa sakað íraska stjómarherinn um að dreifa brennisteinssýra yfir óbreytta borgara í olíub*mum Kirkuk í norðurhluta landsins. Bandaríkja- stjóm hyggst Ieggja fram tillögu um friðarskilmála fyrir öryggisráð Sameinuðu þjóðanna þar sem þess verður krafist að írakar eyði öllum eldflaugum sínum og gjöreyðing- arvopnum. milljónir íslenskra króna fyrir 23 golfkylfur, sem þeir hyggjast bjóða upp í sumar. Willie og sonur hans, Laurie, Auchterlonie voru báðir atvinnugolf- leikarar og golfkylfusmiðir í Si. Andrews í Skotlandi, miðstöð golf- leiksins. Þeir söfnuðu báðir golfkylf- um sigurvegara Opna breska meist- aramótsins á árabilinu 1860 til 1930. I safni þeirra eru 23 kylfur, sem sagðar eru hafa tilheyrt ýmsum sig- urvegurum þessarar frægu golf- keppni. Feðgamir fóru að lokinni keppni tíl sigurvegarans og báðu um eina kylfu, sem hann hafði leikið með. Willie Auchterlonie sigraði sjálfur í þessari keppni árið 1893 og ein kylfan í safninu var í eigu hans. Nú hafa Sotheby’s uppboðshaldar- amir í Lundúnum ákveðið að efna til uppboðs á ýmsum merkilegum gripum úr sögu golfsins í sumar, þegar opna breska meistaramótið verður haMið á Royal Birkdale vellin- um í Southport. Þeir_ eiga von á að fá um 100 milljónir ÍSK fyrir þetta kylfusafn Auchterlonie-feðganna. Sotheby’s hyggst einnig selja gamla golfbolta á uppboðinu. Einn þeirra frá fímmta áratug síðustu ald- ar, sem Allan Robertson í St. Andrews gerði, er talinn munu selj- ast á um eina milljón íslenskra króna. „Lýðveldisflótti“ Honeckers, mannúðin og réttarríkið ÞAÐ vakti almenna kátinu í þýska Sambandsþinginu þegar Helm- ut Kohl kanslara varð það á í umræðum um fjárlög á miðvikudag í síðustu viku að ávarpa Hans-Jochen Vogel, formann Jafnaðar- mannaflokksins, sem „Hr. kollega Honecker“. Kohl áttaði sig á mistökunum þegar hláturrokur þingmanna hristu salinn, leiðrétti þau, og hélt ræðu sinni um efnahagsmál áfram. Mönnum hug- kvæmdist ekki að leggja neina dýpri merkingu í þessi sérkenni- legu mistök kanslarans enda hann ekki þekktur sem orðheppn- asti máður Þýskalands. Það var ekki fyrr en daginn eftir að það var gert opin- bert að lítil tveggja hreyfla skrúfuvél í eigu Rauða hersins hafði um hádegi á miðvikudag lagtaf stað til Moskvu frá sovésk- um herflugvelli í austurhluta Þýskalands. Farþegar í vélinni voru Erich Honecker, fyrrverandi leiðtogi Austur-Þýskalands, og eiginkona hans, Margot, sem gegnt hafði ráðherrastöðum í Austur-Þýskalandi. Hafði Kohl verið sagt frá þessum flutningum rétt áður en hann steig upp í ræðustólinn í Sambandsþinginu. Tilkynning um Moskvuför Honeckers var ekki gefín út fyrr en daginn eftir og kom hún eins og þruma úr heiðskíru lofti. Eng- an hafði grunað neitt. Sama dag og flótti Honec- kers var gerður opinber birti til að mynda dag- blaðið Die Welt forsíðufrétt þar semhaft vareftir mönnum hjá sak- sóknaraembættinu í Berlín að þeir væru bjartsýnir á að hægt yrði að draga Honecker fyrir dóm- stól síðar á þessu ári. Það eina sem á skorti væri smá samstarfs- vilji af hálfu Sovétmanna! Flótti Honeckers hefur vakið upp gífurlega reiði í Þýskalandi, ekki síst austurhluta landsms. Honecker er í hugum flestra Þjóð- veija persónugerving hins kom- múnfska Austur-Þýskalands. Hann var maðurinn á bak við Beriínarmúrinn og það var hann sem skrifaði undir tilskipun sem heimilaði austur-þýskum landa- mæravörðum að beita skötvopn- um gegn þeim sem reyndu að flýja landið. Hét það Republikílucht — eða lýðveldisflótti — á austur- þýsku lagamáli og varðaði margra ára fangelsi næðust ménn lifandi. Bundu -margir fyrrverandi Aust- ur-Þjóðveijar vonir við að réttað yrði í máli Honeckers og litu á það-sem tákn um áreiðanleika hins þýska réttarríkis. Saksóknaraembættið í Berlín gaf í fyrra út handtökuskipun á hendur Honecker vegna þeirra manndrápa sem framin voru við þýsk-þýsku landamærin að til- skipun hans. Hann á einnig fjöl- margar kærar til viðbótar yfir höfði sér, m.a. vegna stuðnings við hryðjuverkasamtökin Rauðu herdeildina (RAF). Fór heilsan batnandi? Einungis heilsubrestur Honeck- ers hefur fram að þessu komið í veg fyrir að hann verði sóttur til saka. Sovétmenn gáfu líka ört hrakandi heilsu kommúnistaleið- togans fyrrverandi upp sem ástæðu fyrir því að þeir hefðu flutt hann til Moskvu. Þetta hefði verið gert af „mannúðarástæðum". Dagblaðið Die Welt segist hins vegar hafa heimildir fyrir því hjá lækni á sovéska hersjúkrahúsinu, þar sem Honecker dvaldi síðastlið- ið ár, að heilsa hans hafí þvert á mótí farið batnandi dagana áður en hann var fluttur austur. Viðbrögð þýskra stjómmála- manna voru mjög hörð við þessu atviki. Sovéski sendiherrann var kallaður inn á teppið (þó ekki fyrr en einum og hálfum sólarhring eftir að vél Honeckers fór í loftið) og Hans-Dietrich Genscher, ut- anríkisráðherra, lagði fram hörð mótmæli þegar hann var í Moskvu fyrr í þessari viku. Þó að sovéskar herflugvélar hafí rétt til að taka á loft og lenda í Þýskalandi án sérstaks leyfis er það óneitan- lega óvirðing við fullveldi Þýskalands að flylja mann úr landi sem stendur til að draga fyrir dómstóla. Samband Sovétríkjanna og Þýskalands hefur orðið sífellt nán- ara undanfarin ár og er þetta atvik ekki talið eiga eftir að hafa veraleg áhrif þó að það kunni að „kasta ákveðnum skugga" á sam- skipti ríkjanna „í einhvem tíma“, svo notuð séu orð talsmanns þýsku ríkissljómarinnar. Talað er um að ekki megi gera Honecker þann síðasta greiða að láta hann verða þess valdandi að slettist upp á samskipti Sam- bandslýðveldisins og Sovétríkj- anna og Sovétmenn leggja mikla áherslu á að þetta atvik hafí ver- ið „einstætt“. Harðlínumennimir og fullveldissamningurinn Ekki er alveg ljóst hvaða ástæður liggja að baki því að Sovétmenn ákváðu að grípa til þessarar „einstöku" aðgerðar. Því hefur verið haldið fram að Honec- ker hafi hótað að draga Sovétrík- in með sér niður í svaðið yrði rétt- að í máli hans og ætlað að leggja fram gögn um afskipti Sovét- manna af austur-þýskum málum sem gætu verið þeim óþægileg. Míkhaíl Gorbatsjov Sovétleiðtogi hefur líka verið gagmýndur harð- lega innan Kremlarmúra fyrir að skilja „gömlu félagana“ eftir í súpunni. Það hefði reynst honum mjög erfitt að réttlæta það að gamall félagi, sem sat tíu ár í fangelsi hjá nasistum og komm- únistar í Sovétríkjunum settu í háa valdastöðu þegar Austur- Þýskaland var stofnað 1949, ætti að enda líf sitt í þýsku fangelsis- Honecker á gangi í garði so- véska hersjúkrahússins í Bee- litz, skammt frá Berlín, þar sem hann dvaldist mánuðina áður en hann flúði til Moskvu. Mynd- in, sem tekin var í febrúar, er sú síðasta sem tíl er af Honec- ker í Þýskalandi. sjúkrahúsi. Þá er athyglisvert að nákvæmlega tveimur sólarhring- um eftir að Honecker kom til Moskvu fór Vladimír Terekov, sendiherra Sovétríkjanna í Bonn, í þýska utanríkisráðuneytið og afhenti Genscher samning ijór- veldanna við þýsku ríkin undirrit- aðan og staðfestan af Æðsta ráði Sovétrikjanna. Við afhendinguna sagði hann m.a.: „Hið sameinaða Þýskaland hlýtur óskorað full- veldi“. Miklar deilur stóðu innan sovésku stjómarinnar um þennan samning og telja margir frétta- skýrendur í Þýskalandi að Gor- batsjov hafí gefíð harðlínumönn- um Honecker sem dúsu gegn því að þeir féllust á samninginn við Þýskaland. Þrátt fyrir öll stóra orðin er mörgum þýskum stjómmála- mönnum það líka eflaust töluverð- ur léttir að ekki verður af réttar- höldum yfir Honecker, að minnsta kosti ekki að honum viðstöddum. Þótt fáir dragi í efa grimmdarverk hans og ómannúðlega stjómar- hætti gætu réttarhöldin orðið lög- fræðilega erfið. Veijendur Honec- kers hefðu eflaust byggt vöm sína á því að lög viðkomandi ríkis, Austur-Þýskalands, hefðu ekki verið brotin. Þá eru heldur ekki mörg ár síðan vestur-þýskir stjómmálamenn tóku á móti Honecker með pomp og prakt þó að stjómarhættir austan múrsins væm þeim að fullu ljósir. Honec- ker var heldur ekki sá eini sem framdi myrkraverk. Fastir starfs- menn öryggislögreglunnar Stasi voru eitt hundrað þúsund og laus- ráðnir um þijú hundruð þúsund. Réttarhöld yfir Honecker hefðu fyrst og fremst verið táknrænt en um leið sársaukafullt uppgjör við fortíðina og austur-þýska stjómarhætti. Maðurinn á saka- bekknum hefði hins vegar verið 78 ára gamall og dauðvona. Ekki mjög spennandi tílhugsun fyrir flesta stjómmálamenn. BAKSVIÐ eftir Steingrím Sigurgeirsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.