Morgunblaðið - 24.03.1991, Side 6

Morgunblaðið - 24.03.1991, Side 6
6 FRETTIR/INNLENT MOEGUNBLAÐIÐ SUNNUÐAGUR 24. MARZ 1991 Stefán Aðalsteinsson ráðinn framk væmdastj óri norræna genabankans: „Island er einn merkileg- asti genabanki heimsins“ STEFÁN Aðalsteinsson búfjárfræðingur hefur verið ráðinn fram- kvæmdastjóri norræna genabankans fyrir búfé. Stefán hefur verið fulltrúi íslands í stjórn genabankans frá því hann var stofnaður 1979. Starf framkvæmdastjóra er nýtt og var Stefán valinn úr hópi 8 umsækjenda. Með ráðningu framkvæmdastjóra er ætlunin að festa þetta starf í sessi. Stefán verður með aðstöðu í landbúnaðarhá- skólanum í Ási í Noregi. Hann tekur til starfa í næsta mánuði. „Starfíð er fólgið í því að safna saman upplýsingum og setja upp gagnabanka um allar tegundur og kynstofna norræns búfjár og hreindýra," sagði Stefán. „Einnig að hvetja til átaks Norðurlanda- þjóðanna til að vernda búfjárkyn sem eru í útrýmingarhættu. Fylgj- ast með framförum í rannsóknum og vemdun erfðaefnis. Kynna þetta fagsvið á vísindalegum grunni og fyrir almenning.“ Stefán á líka að taka þátt í samvinnu við alþjóðlegan gagnabanka sem Bú- fjárræktarsamband Evrópu og FAO hafa stofnað til að vernda erfðaefni í dýrum og vinna með ýmsum öðrum alþjóðlegum stofn- unum, m.a. að taka þátt í verndun erfðaefna í dýrum í þróunarlönd- unum. Upplýsingar um búfjárkyn í útrýmingarhættu Stefán sagði að genabankinn væri ekki eiginlegur banki þar sem menn gætu lagt inn gen eða tekið út. Hann væri fyrst og fremst gagnabanki þar sem upplýsingar um norrænu búfjárkynin væru allt- af tiltækar. Stjómamefndin ákvæði hvemig þær upplýsingar yrðu notaðar. „Við söfnum upplýsingum um hvort einhver búíjárkyn séu í út- rýmingarhættu og hvetjum ein- stakar þjóðir Norðurlandanna til að vemda þá stofna sem þannig er ástatt fyrir. Ábyrgð á verndun- inni hvílir á viðkomandi þjóðum. Rök fyrir verndun geta verið marg- vísleg. Ástæða getur verið til að viðhalda stofninum vegna vísinda- legra sjónarmiða, vegna ræktunar- sjónarmiða, vegna menningarverð- mæta eða til skemmtunar. Vemd- unin getur verið í því fólgin að halda lifandi dýrum af þeim stofn- um sem í hættu eru, hægt er að djúpfrysta sæði og geyma frjóvguð egg. Varðandi djúpfrysta sæðið er rétt að benda á að ekki er vitað hvað út úr því kemur fyrr en sæð- ið er notað.“ Morgunbiaðið/Ámi Sæberg Að frumkvæði norræna gena- Stefán Aðalsteinsson „banka- bankans hefur íslenski hænsna- stióri“ norræna genabankans. stofninn verið varðveittur. Vestur-íslendingar vilja fá íslensk hænsni Stefán sagði að íslendingar hefðu verið framarlega í verndun búfjár. Nefndi hann sem dæmi að verndun íslenska geitastofnsins hefði verið ákveðin áður en norr- æni genabankinn var stofnaður. Það hefði verið gert með lögum frá Alþingi þar sem Búnaðarfélagi íslands var falið að varðveita stofn- inn og hefði það verið gert með prýði. Síðar hefði Ieifum íslenska hænsnastofnsins verið safnað sam- an og hefði Rannsóknastofnun landbúnaðarins séð um að halda honum við. Sagði Stefán að áhugi væri á að fá fijóvguð egg af þess- um stofni til Kanada. Fólk af ís-’ lensku bergi brotið vildi fá hænsni sem minningu frá heimalandinu. Sem dæmi um verndun gena hér nefndi Stefán einnig að geymdir væru skammtar úr öllum sæðinga- nautum. Þá hefðu laxasvil verið djúpfryst undanfarin ár og geymd vegna hættunnar á að stofnar ein- stakra laxveiðiáa biðu tjón af að- kömulaxi. „Við íslendingar erum með einn merkilegasta genabanka heimsins. Landnámsmennirnir söfnuðu dýr- um á skip sín fyrir 1100 árum og fluttu hingað. Þessir stofnar hafa verið varðveittir lítið breyttir allan þennan tíma. Hugsanlegt er að í þessum stofnum séu mikil verð- mæti sem gætu komið öðrum þjóð- um til góða síðar,“ sagði Stefán. Stefán Aðalsteinsson er fæddur á Vaðbrekku á Jökuldal 30. desem- ber 1928 og er því 62 ára gamall. Hann er búfræðikandídai frá land- búnaðarháskólanum í Ási í Nor- egi, stundaði síðan framhaldsnám í ullarrannsóknum, erfðafræði og tilraunastærðfræði í Bretlandi. Á árunum 1966-68 var hann í Edin- borgarháskóla við rannsóknir á erfðum lita í íslensku sauðfé og tók þar doktorsgráðu 1969. Stefán hefur verið sérfræðingur í ullar- rannsóknum og erfðafræði við Búnaðardeild Atvinnudeildar Há- skóla íslands, síðar Rannsókna- stofnun landbúnaðarins, frá árinu 1957. Deildarstjóri búfjárræktar- deildar RALA frá 1970. Stefán er kvæntur norskri konu, Ellen Sæ- tre, og eiga þau fimm syni. Morgunblaðið/Sverrir Július Hafstein, Óli Jón Hertervig, Davíð Oddsson og Ómar Einars- son virða fyrir sér af líkan sundlauginni. Arbæjarhverfi: Fyrsta skóflustunga að nýrri útisundlaug DAVÍÐ Oddsson borgarsiyóri tók fyrstu skóflustunguna vegna bygg- ingar sundlaugar við Fylkisveg í Árbæjarhverfi á föstudag. Á lóð- inni verður 25 metra útilaug ásamt iðulaug, heitum pottum og vatns- rennibraut. Heildarflatarmál laugarhússins verður 1.655 fermetrar, þar af 500 fermetrar í kjallara. í húsinu verða böð, búningsklefar, gufubað, að- staða fyrir starfsfólk, 10 metra inni- laug og stórt miðrými undir gegn- sæju hvolfþaki. Áætlaður heildarkostnaður við byggingu sundlaugarinnar með búnaði og lóðarfrágangi er um 440 milljónir króna. Jarðvinna hefur verið boðin út og lægstbjóðandi var jarðvinnufyr- irtækið Völur hf. Hljóðaði tilboðið upp á tæpar 14,9 milljónir kr. sem er um 80% af áætluðu kostnaðar- verði. Steypuvinna við laugina hefst í sumar. Árkitektar eru Björn S. Hallsson og Jón Þór Þorvaldsson en Verkfræðistofa Sigurðar Thor- oddsen sér um hönnun burðarþols og raflagna. Leiðrétting Heimilisfang Árnýjar Guðrúnar Guðfinnsdóttur, sem fermist frá Neskirkju kl. 11 í dag, misritaðist í blaðinu í gær. Hún býr á Ásbraut 7 í Kópavogi. Arsfundur Iðnlánasjóðs ÁRSFUNDUR Iðnlánasjóðs verð- ur haldinn á morgun, mánudag- inn 25. marz, í Hvammi á Hótel Holiday Inn. Fundurinn hefst kl. 13. Jón Magnússon, stjórnarformað- ur Iðnlánasjóðs, setur fundinn. Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra, flytur ávarp. Bragi Hannesson forstjóri mælir fyrir ársskýrslu og reikning- um sjóðsins. Að síðustu flytur Jónas H. Har- alz, bankastjóri við Alþjóðabankann í Washington, erindi með yfirskrift- inni „Velferð og hagvöxtur. Horft til nýs áratugar“. Jónas H. Haralz. Tekjur togarasjómanna: Hækkun á síðasta árí um 25% að meðaltali MEÐALLAUN sjómanna á togurum hækkuðu um 25% á síðasta ári miðað við aflahlut þeirra á árinu 1989. Hækkunin er mismun- andi eftir landsvæðum og er mest suðvestanlands, þar sem mest er um sölu á fiskmörkuðum og skipin sigla meira með aflann á erlenda markaði. Skiptaprósenta vegna olíuverðshækkana lækkaði á árinu úr 75% í 70% sem hefur áhrif á kjörin en á síðasta ári var meðalhásetahlutur, að meðtöldu orlofi, um 2S5 milljónir kr. Þetta kemur fram í útreikningum hagfræðings LÍU sem unnir eru upp úr togaraskýrslum landsambandsins. Frá gerð þjóðarsáttarsamning- anna í febrúar á síðasta ári hafa samningsbundin laun ann- arra stétta hækkað um tæp 6% á árinu en þrátt fyrir að endan- legar tölur um fískverðshækk- anir liggi ekki fyrir er talið víst að sjómenn hafi að lágmarki notið ríflega 20% launahækkunar sem hefur veitt þeim kaupmáttaraukn- ingu umfram aðra launþega sem hafa flestir staðið í stað. Verðmyndunar- og tekjuskipt- ingarkerfið í sjávarútvegi sætir margháttaðri gagnrýni þessa dag- ana og er af mörgum talið úr sér gengið. Ekki hefur þó verið bent á raunhæf- ar útgönguleiðir en umræðan hefur ekki síst glæðst að undanfömu í ljósi sívax- andi ójöfnuðar í tekjum sjómanna og landverkafólks. Sjómenn hafa notið mikilla hækkana á fiskverði á síðasta ári og fískverðshækkan- ir hafa verið verulegar að undanf- örnu. Hafa þær valdið óróa meðal fískverkafólks sem hefur lítið fengið í sinn hlut af verðmæta- aukningunni. Þratt fyrir síbreytilegt mark- aðsverð er talið að það hafí hækk- að um 30-49% á síðasta ári en það skilar sér í hærri tekjum sjó- manna vegna aflahlutdeildar. Áf- urðaverð á erlendum mörkuðum hækkaði um a.m.k. 30% á síðasta ári. Til að rétta hlut sjómanna sem fá lægra verð í heimahöfnum hef- ur svo héimalöndunarálag víða verið hækkað að undanfömu og er nú á mörgum stöðum á bilinu 30-40%. Hólmgeir Jónsson, fram- kvæmdastjóri Sjómannasam- bandsins, tekur undir, að þegar miðað er við markaðsverð á botn- físktegundum hafi hlutur sjó- manna batnað verulega en hafa verði mikla fyrirvara á saman- burði við aðra launþega. Sjómenn róa upp á hlut og taka jafnt á sig verðhækkanir afurða sem lækk- anir auk þess sem kjör þeirra ráð- ast af úthlutun afla, samsetningu og ráðstöfun hans hveiju sinni. Þá má ekki gleyma „sérveiðun- um“, sem hafa lýrt afkomu margra sjómanna þegar litið er á aflabrest loðnunnar, verðlækkun rækjunnar og minni síldarsölu. Hlutfall annarra físktegunda í launum sjómanna er gróft áætlað á bilinu 20%-30%. Mismunur á kjörum sjómanna innbyrðis er slíkur að engin heild- armynd verður dregin af kjörum stéttarinnar. Um gagnrýni þá sem sett hefur verið fram á tekjuhækkanir sjó- manna að undanförnu segir Hólm- geir: „Menn vilja gleyma því að árið 1988 var sjómönnum sagt að fiskverð mætti ekki hækka vegna fallandi markaðsverðs á fiskafurðum og lög sem sett voru um launahækkanir náðu ekki til sjómanna með þeirri skýringu að laun þeirra réðust af fiskverði. Nú þegar verið er að tala um að laun sjómanna bijóti þjóðarsátt eiga sjómenn allt í einu ekki að vera á hlutaskiptum heldur að fylgja launaþróun í landi. Ég get ekki sett jafnaðarmerki á milli launa sjómanna og þjóðarsáttar," segir Hómgeir. Kjaramál sjómannastéttarinnar hafa einnig blandast umræðu um tekjujöfnunaráhrif skattkerfísins. Sjómannaafslátturinn tekur mið af lögskráningardögum og er 104.860 krónur miðað við 30 daga. Þessi upphæð er hins vegar 57.379 krónur hjá öðrum stéttum. Þykir óhæfa að sjómenn um borð í frystiskipum, sem í raun eru fljótandi fískverkunarhús, skuli njóta þessara skattfríðinda. Þetta er þyrnir í augum fiskverkunar- fólksins sem krefst hækkaðra skattleysismarka sér til handa. í raun er sjómannafslátturinn upp- haflega hluti af kjarasamningum sjómanna og hugsaður á sínum tíma sem nokkurskonar umbun þeim til handa fyrir að þurfa að vinna langtímum saman fjarri fjölskyldu og heimili og hafði þann tilgang að laða menn að sjó- mennsku. En þeir eru fleiri sem geta nýtt sér sjómannaafslátt af skattálögum. Farmenn kaupskip- aflotans fengu þennan rétt í kjara- samningum fyrir mörgum árum. Beitingamenn í landi, sem ráðnir eru upp á hlut, njóta einnig sjó- mannaafsláttar, svo og áhafnir feijuskipa og fiskifræðingar Ha- frannsóknastofnunar í leitarsigl- ingum þeirra með rannsóknaskip- um stofnunarinnar. BAKSVMÐ Ómar Fridriksson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.