Morgunblaðið - 24.03.1991, Page 17
! jtíOÉGUNBLÁÐto’ ‘SUíslNUDAGim 24. MARZ 1991
Ásgeir Smári Einarsson myndlistarmaður.
En sá er einn, sem í mörg ár
hefur sótt innblástur í borgarlífíð
og borgarlandslagið, eins og það
birtist honum sem mynd og sál, og
er ekki annað að sjá, en að honum
aukist stöðugt ásmegin, og að hann
haldi ótrauður áfram á sömu braut
enn um sinn.
Ásgeir Smári Einarsson hefur
þegar skapað sér nafn sem sérstæð-
ur málari borgarlandslagsins og
sýning hans í Listhúsinu Borg um
þessar mundir, sem stendur til 26.
marz, ber því ótvírætt vitni að hér
sé vaxandi listamaður á ferð.
Það eru einkum nokkrir dúkar,
sem skera sig úr sem renna stoðum
undir þessa fullyrðingu, eins og hin-
ar litrænu myndir „Borgarlandslag
11“ (3) og „Framtíðin“ (11), sem
báðar eru málaðar af næmri tilfinn-
ingu fyrir örfínum litbrigðum og
ljósrænum blæbrigðum. Þá er hin
stóra aflanga mynd „Tjörnin" (2),
sem byggð er upp á ótal smáum
húsaeiningum, með tjömina sem
útgangspunkt, ákaflega vel máluð
og hugvitsamlega upp byggð, og
svo staðfestir málverkið „Brími"
(20), að listamaðurinn getur ef vill
brugðið upp sannfærandi mynd-
heild í fáum og frjálslegum pensil-
dráttumv
Styrkur Ásgeirs Smára felst að
mínu mati í þessum þrennskonar
og innbyrðis ólíku vinnubrögðum,
en veikleiki hans kemur sem fyrr
fram í lausformuðum myndum, sem
fullmikið er af á sýningunni. í þeim
er sem liturinn og formin nái ekki
að festast við myndflötinn og út-
færslan er óákveðin og hikandi.
Þetta nefnist á fagmáli, að vinnu-
brögðin og meðferð myndefnisins
tengist ekki innri lífæðum mál-
verksins.
Af slíkum myndum hefur of mik-
ið og of víða óspart verið framleitt
um dagana, enda vinsæll söluvam-
ingur, og gerandinn ætti að forðast
slík vinnubrögð sem heitan eld, því
að hann þarf ekki á þeim að halda
og hefur svo margt verðmætara til
brunns að bera.
En dregið saman í hnotskurn,
þá er þetta ótvírætt þróttmesta
framlag Ásgeirs Smára Einarsson-
ar á myndlistarsviði til þessa, og
vonandi vex honum enn ásmegin
til svipmikilla átaka.
Vmnupallar - Sölutilboð
Gefum 20—30% af slátt af
nokkrum vinnupöllum í mars
Álhjólapallar
Pallar hf.
Dalvegi 16, Kópavogi,
sfmar 641020 - 42322.
Veggjapallar
Innivinnupallar
Gómsæt súkkulaðiskel frá NÓA - SÍRÍUS bíður þín
- úr besta hráefni,
fyllt Ijúffengu sælgæti og málshættinum þínum.
NÓA-NÝJUNG:
LÍMMIÐAR MEÐ DÝRUNUM HANS NÓA FYLGJA HVERJU EGGI
HÉRÍ.NÚ AUCLÝStNCASTOFA