Morgunblaðið - 24.03.1991, Page 21

Morgunblaðið - 24.03.1991, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MARZ 1991 21 um það mjög gott fyrir fimm árum en nú eigum við varla ofan í okk- ur,“ sagði hún. Þau voru í Komm- únistaflokknum og komust vel áfram en nú hjálpar það ekki leng- ur. Svipaða sögu var að heyra í Sarajevo, höfuðborg Bosníu-Her- segóvínu. Ellilífeyrir er greiddur tveimur tii þremur mánuðum of seint og vinnandi fólk fær laun með höppum og glöppum. Ný ríkisstjórn tók við í byijun febrúar. Fulltrúar múslíma, Serba og Króata eiga sæti í henni og eru byijaðir að raða sínum mönnum í góð störf, nefndir og ráð. Amira Kapetanovic í upplýs- ingaráðuneytinu sagði að það væri furðulegt að þessir menn hefðu ekki lært það af langri stjómartíð kommúnista að það borgar sig ekki að ráða menn í störf eftir stjórnmál- afiokkum heldur yrði hæfni að fá að ráða. Hún sagði að efnahagserf- iðleikarnir væru helsti vandi ríkis- stjómarinnar. „Mikil félagsleg vandamál og órói em fyrirsjáanleg ef hann verður ekki leystur." Forsætisráðherrann fyrrverandi tukthúslimur Ein stærsta verksmiðja stálfyrir- tæksins Zenica er í Bosníu. 23.000 manns starfa þar. 11.000 gætu annað störfunum og þá væri von um að hún myndi bera sig. Þúsund- ir verkamanna mótmæltu yfirvof- andi uppsögnum fyrr í þessum mánuði og stífluðu alla umferð til Sarajevo úr norðri í heilan dag. Ríkisstjómin hefur ákveðið að 'fresta uppsögnum að sinni. Leikstjóri hjá sjónvarpinu sagði að það væri verst að ráðherramir væru ekki nógu vel valið lið. „Þjóð- emi réð afstöðu fólks í kosningun- um en ekki stefna flokkanna. Menn sem vom reiðubúnir að básúna um þjóðerni sitt komust áfram. Þetta líður hjá og stjórnmálaskoðanir munu ömgglega skipta meira máli í næstu kosningum." Hann sagði að það væru til dæmis miklu snjall- ari hagfræðingar í Bosníu en for- sætisráðherrann, Jure Pelivan, sem er þó fyrrverandi bankastjóri. Hann var fulltrúi Bosníu-Hersegóvínu í bankaráði seðlabanka Júgóslavíu þegar hann lenti í fangelsi fyrir að samþykkja himin há veðskuldabréf sem engin trygging var fyrir af Agrokomerc- landbúnaðarfyrirtæk- inu árið 1987. Nú er hann forsætis- ráðherra og sagði að efnahagsvandi sambandsríkisins væri afleiðing óhagkvæms hagkerfis undir flokks- ræði kommúnista. Hann sagði að það þyrfti að koma á opnu markaðs- kerfi og stuðla að framtaki einstakl- ingsins. En hann sagði að efnahags- vandi Júgóslavíu yrði ekki leystur áður en pólitíski vandinn væri leyst- ur. „Hann hefur aukið efnahags- vandann." Pelivan sagði að atburðimir í Belgrad fyrr í þessum mánuði, þeg- ar lögreglan skarst í leikinn og tveir létust á mótmælafundi og herinn sýndi mátt sinn, sannaði að það þýddi ekki lengur að beita valdi við stjóm landsins. „Fólk kærir sig ekki um ofríki." Hann sagði að leið- togar landsins yrðu að talast við og leysa vanda þjóðarinnar á lýð- ræðislegan hátt. Hann trúði ekki öðm en að sambandsríkin í Júgó- slavíu myndu starfa áfram saman í einhverri mynd og landið myndi hafa sameiginlegan gjaldmiðil og her í framtíðinni. „En það verður að minnka kostnað við sambands- stjórnina, skera herinn niður og staðsetja ríkisstofnanir, eins og seðlabankann, fjármálaráðuneytið og tollskrifstofuna, hvert í sinni borginni. Það verður að koma i veg fyrir að eitt ríki geti haft meiri áhrif en önnur.“ Orðvör af ótta um atvinnuna Serbía er stærsta og fjölmenn- asta ríki Júgóslavíu. Um 42% íbúa landsins búa þar, en Júgóslavar eru alls um 24,5 milljónir. Belgrad er höfuðborg Serbíu og Júgóslavíu. Montenegró stendur með Serbíu í innanríkisdeilum Júgóslavíu en hin ríkin, Slóvenía, Króatía, Bosnía- Hersegóvína og Makedónía, telja Serba hafa of mikil völd í landinu og vilja draga úr þeim. Gamlir kommúnistar, sem nú kalla sig sósí- alista, ríkja enn í Serbíu. Það er undirrót hatrammra deilna undan- farinna vikna. Þeir eru ekki reiðu- búnir að gefa upp völdin og hafa hluta hersins með sér, en Serbar hafa frá fomu fari verið í foringja- stöðum innan hans. Formaður her- foringjaráðsins er hliðhollur Mi- losevic og er reiðubúinn að beita hernum hvenær sem er en varnar- málaráðherrann telur rétt að lýð- ræðislegrar lausnar verði leitað á stjórnmáladeilum landsins án íhlut- unar hersins. Milosevic vann stórsigur, eða tæp 65% atkvæða, i forsetakosningun- um í Serbíu í byijun desember en flokkurinn hlaut aðeins 43% í þing- kosningunum. Vinsældir hans hafa dvínað í framhaldi af versnandi efnahagsástandi. Verkamenn hafa snúist gegn honum, menningarvitar og stúdentar. En það þýðir ekki að þeir hafi mikla trú á stjórnarand- stöðunni. Kona á fimmtugsaldri, sem er mikill íslandsvinur, talaði fyrir hönd margra þegar hún sagðist ekki bera trausttil nokkurs stjórnmálamanns. Hún er ekki lengur flokksbundin. Hún var í Kommúnistaflokknum en skráði sig ekki á ný þegar hann skipti um nafn. Hún starfaði hjá tímariti sem flokkurinn gaf út en missti vinnuna þegar það var lagt niður. Nú er hún hjá útgáfufyrir- tæki og veit ekki hvað framtíðin ber í skauti sér. „Það veit enginn hvað er að gerast. Fréttum ber ekki saman um það og maður veit ekki hverju eða hveijum maður á að trúa. Þetta er hörð valdabarátta. Sjálf er ég ekki hrifin af kerfinu sem ríkir hér.“ Hún bað mig að birta ekki nafnið sitt. „Þú verður að skilja ástandið héma. Ég vil halda vinnunni og verð að vera varkár. Maður veit ekki hvemig þetta fer.“ yfirleitt. 43 til 45% íbúa landsins em Serbar svo að meirihluti óbreyttra hermanna era ekki Serb- ar. Herinn býður upp á atvinnumög- uleika sem Serbar hafa verið knún- ir til að nota vegna fátæktar í rík- inu, auk þess sem það er gömul hermennskuhefð í Serbíu. Þú ert sjálfur frá Montenegró. Hvernig eru íbúamir þar stemmdir í þessum deilum? Já, ég er Serbi frá Montenegró. Ef það kemur til átaka af því að hin ríkin sætta sig ekki við forystu Serbíu, hvort sem heldur er í sám- bandsríkinu eða innan hersins, þá munu Montenegróar standa með Serbum. En íbúar Montenegró era ekki margir, kannski um hálf millj- ón. — Ég skal segja þér skrýtlu. Montenegróar vora nátengdir Rúss- um á 19. öldinni af því að Rússar hjálpuðu þeim í baráttunni gegn Tyrkjum. Þeir voru þá ekki nema um 200.000. Montenegrói var spurður hversu margir ’þeir væra og hann svaraði: „160 milljónir, við og Rússamir!“ Það er eins og þú segðir „tæpar 23 milijónir, við og Norðurlandabúarnir,“ ef þú værir spurð um íjölda íslendinga. Heldur þú að einhverjir herfor- ingjar séu tilbúnir að stofna Júgó- slavfu íhættu með heraðgerðum til að halda völdum? Alla Júgóslava skortir raunsæi og enginn gerir sér grein fyrir því sem er að gerast. Það á sér stað Milovan Djilas Þeoarbræður berjast breytist upplag tólks bylting, hér og í Rússlandi. Það er löng og erfið þróun. Við höfum nú kosið þing lýðræð- islegri kosningu í öllum ríkjunum — með tilheyrandi svindli, eins og vænta má á Balkanskaga. En það er bara yfirborð stjómmálalífsins. Kommúnisminn ríkir enn undir- niðri. Litlar sem engar breytingar hafa orðið á viðskiptalífínu, ríkis- báknið drottnar enn. Það hefur ekk- ert aðhald, almenningsálitið skiptir sama og engu máli. Ríkisstjómin segir fjölmiðlum, sjónvarpi og stærstu dagblöðunum, enn fyrir verkum. Þetta þarf allt að breytast og aðlagast nýjum tímum. Mótmæl- in í Belgrad fyrir hálfum mánuði vora gegn sjónvarpinu, hvergi ann- ars staðar í heiminum hafa svo fjöl- menn mótmæli verið haldin á móti sjónvarpi. Fjölmiðlar skipta nú óhen\jumiklu máli. Sljómarand- staðan kemst ekki af án fijálsrar ijölmiðlunar, hún lognast út af án hennar. Ég á við stjómarandstöð- una í þinginu. Sjónvai-pið vitnaði til dæmis nýlega aðeins í orð stjómar- þingmanna í fréttum af umræðum í þinginu. Það hafði ekki orð eftir stjórnarandstæðingum en gerði í staðinn gys að þeim. Sjónvarpsstjórinn var knúinn til að segja af sér. Skánuðu hlutirnir ekkert við það? Smávegis, en ekki nóg. Dagblöð- in hafa líka batnað eitthvað. En stjórnarflokkur Serbíu og foringja- sveit hans era enn sterk svo að þessar umbætur geta alltaf orðið að engu. Uppbygging samfélagsins og stjórnmálalífsins er ekki orðið lýðræðislegra eða fijálslyndara. Þetta er ekki fijálslynt samfélag. Ekki enn. Byltingin þróast smátt og smátt, enn friðsamlega en það gæti komið til átaka og borgara- styijaldar ef herinn lýsir yfir hern- aðarástandi. Ég held ekki að það yrði löng borgarastyijöld. Og ég tel meiri lík- ur á að það komi til svæðisbundinna átaka en raunveralegrar borgara- styijaldar. Er ekki hugsanlegt að svæðis- bundin átök myndu breiðast út og það kæmi til blóðugra átaka eins og á stríðsárunum? Borgarastyijöld myndi ekki standa 1 tvö eða þijú ár. Ég held að Evrópa myndi blandast inn í hana ef til hennar kæmi. Ekki hem- aðarlega heldur með vopnasölu og tæknilegri aðstoð við Slóveníu og Króatíu. Arabar myndu styðja mú- slíma fjárhagslega, en þeir yrðu með Slóvenum og Króötum. Serbía yrði einangruð, erhugsan- legt að Sovétríkin myndu hjédpa henni? Kannski, en ekki mikið. Moskva á í mikilvægum samningaviðræðum við Evrópu og Bandaríkin og vill ekki stofna þeim í hættu. Serbía yrði mjög einangruð. Serbía er mjög einangruð. Margir telja að sambandsríkið Júgóslavía hljóti að leysast upp. Hvað heldur þú? Ég held ekki. Það er möguleiki en ég tel hann ekki mjög líklegan. Það liggur í augum uppi að stjómar- fyrirkomulag Júgóslavíu verður að vera endurskipulagt frá grunni og sambandsríkjunum veitt meira sjálfræði. En lífið í landinu, stjórn- mála- og efnahagsstefna, siðir og venjur tengja júgóslavnesku þjóðr imar saman. Það mun koma til náins samstarfs jafnvel þótt sam- bandsríkið leysist upp, kannski eins og á Norðurlöndunum. Ég tel ekki að það yrði harmleikur þótt Júgó- slavía leystist upp. Borgarastyijöld yrði hins vegar harmleikur. Og póli- tík nokkurra stjómmálamanna gæti leitt til borgarastyijaldar. Bera Serbar einir ábyrgð á því eða eru aðrar þjóðir samsekar? Ekki bara Serbar heldur einnig Albanir. Og það er hreyfíng í Kró- atíu fyrir Stór-Króatíu. Stór-Kró- atía myndi þýða borgarastyijöld. Þetta fólk segir að hluti Bosníu til- heyri Króatíu. Það eru 1,5 miHjón Serbar í Bosmu. Það yrði borgara- styijöld ef Króatía tæki yfir Bosniu. Er þessi hreyfing beint framhald á Ustasha-fasistunum í Króatfu á stríðsárunum? Hugsunarháttur Ustasha lifir enn en Franjo Tudjman, forseti Króatíu, er enginn Ustasha. Það er óhróður þegar serbnesk blöð full- yrða það. Þú ert einn af fáum samborgur- um þínum sem upplifði borgara- styijöldina og veist hvað stríð er. Borgarastyijöld væri hið allra versta. Frekar vildi ég einræði. Ein- ræði líður hjá en borgarastyijöld breytir öllu. Hún breytir hugsunar- hætti og upplagi fólks. — ab.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.