Morgunblaðið - 24.03.1991, Síða 36
36
m'orgúnblaðið
ATVINNA/RAÐ/SMÁ sunnuda
utT/T
SUNNUDAGUR 24. MARZ 1991
ATVINNUA UGL YSINGAR
Héraðssjúkrahúsið
á Blönduósi
Óskum að ráða í eftirtaldar stöður:
★ Deildarstjóra á blandaða deild.
★ Hjúkrunarfræðinga í fastar stöður og til
sumarafleysinga.
★ Sjúkraliða til sumarafleysinga.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
95-24206.
129
Uppeldisfulltrúi
með 7 ára nemanda, óskast í hálft starf ár-
degis í Hjallaskóla í Kópavogi, frá 3. apríl til
maíloka.
Uppeldisfræðileg þekking nauðsynleg.
Upplýsingar gefur Stella Guðmundsdóttir
skólastjóri, í síma 34101 (heimasími).
Selfosskaupstaður
auglýsir laus til umsóknar eftirtalin
störf:
• Starf verkstjóra Áhaldahúss Sel-
foss sem hefur yfirumsjón með og ber
ábyrgð á allri almennri verkstjórn við fram-
kvæmdir sem unnar eru af áhaldahúsi og
annast daglegan rekstur þess. Um framtíðar-
starf er að ræða. Næsti yfirmaður verkstjóra
er forstöðumaður tæknideildar.
• Starf umsjónarmanns Áhalda-
húss Selfoss sem annast m.a. tengsl
áhaldahúss við stofnanir og íbúa bæjarins,
umsjón með vörslu tækja áhaldahúss og við-
hald verkfæra, umsjón með innkaupum og
lagerhaldi og gerð vinnuskýrslna. Um er að
ræða framtíðarstarf. Næsti yfirmaður um-
sjónarmanns er verkstjóri áhaldahúss.
• Starf garðyrkjustjóra sem hefur
m.a. umsjón með uppbyggingu og viðhaldi
opinna svæða og leikvalla, yfirumsjón með
skipulagningu og framkvæmd unglingavinnu
og skólagarða. Umsjón með skógrækt og
uppgcæðslu á vegum bæjarins og aðstoðar
við undirbúning og framkvæmd ýmissa verk-
efna á vegum tæknideildar bæjarins. Um
framtíðarstarf er að ræða. Næsti yfirmaður
garðyrkjustjóra er forstöðumaður tækni-
deildar.
• Starf verkstjóra unglingavinnu í
sumar sem hefur umsjón með allri útplöntun
innan bæjarmarkanna vegna trjáræktarátaks
sem fyrirhugað er að hrinda í framkvæmd.
Yfirmaður verkstjóra er garðyrkjustjóri.
• Störf tveggja verkstjóra ungl-
ingavinnu í sumar sem felast í almennri
verkstjórn og skipulagningu framkvæmda á
vegum einstakra flokka unglingavinnunnar.
Æskilegt er að væntanlegir umsækjendur
hafi menntun eða reynslu á sviði þeirra starfa
sem sótt er um en slíkt er ekki skilyrði. Laun
eru skv. samningum Starfsmannafélags Sel-
fosskaupstaðar.
Nánari upplýsingar um framangreind störf
veita bæjarstjóri og Jón Guðbjörnsson, for-
stöðumaður tæknideildar á bæjarskrifstofu
Selfoss, Austurvegi 10, þar sem skriflegum
umsóknum skal skilað eigi síðar en 12. apríl nk.
Umsóknareyðublöð afhendast á bæjarskrif-
stofunni fyrir þá sem þess óska.
Bæjarstjórinn á Selfossi,
_______ Karl Biörnsson.
* s « xmmw *.•»*. r « x *s* m sr ; íu*íí, v*. í. í. í., a « s,
Einkaritari
Útflutningsfyrirtæki í miðborginni óskar að
ráða vel menntaðan einkaritara sem fyrst.
Umsækjendur þurfa að hafa góða kunnáttu
í vélritun/ritvinnslu, ensku og a.m.k. einu
Norðurlandamáli. Agæt vinnuaðstaða og
reyklaus vinnustaður. Góð iaun í boði fyrir
hæfan einkaritara.
Handskrifaðar umsóknir, ásamt upplýsingum
um aldur, menntun og fyrri störf og með-
mæli ef til eru, sendist auglýsingadeild Mbl.
merktar: „Einkaritari - 11801“.
Sölumannsstarf
Vanur sölumaður óskar eftir vel launuðu
starfi. Verktakavinna kemur til greina ef um
seljanlega vöru er að ræða. Hef bíl til um-
ráða. Get byrjað mjög fljótlega.
Upplýsingar í síma 74082.
LANDSPÍTALINN
Reyklaus vinnustaður
Sjúkraliði - dagvinna.
Sjúkraliða vantar á deild 32-A tauga-
lækningadeild á morgunvaktir.
Upplýsingar gefur Hrund Sch. Thorsteins-
son, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í sírria
601290 eða 601300.
Bókasafnsfræðingar - nemi
í bókasaf nsf ræðum.
Bókasafnsfræðingur óskast á Bókasafn
Landspítalans í afleysingar frá 1. júní 1991
til 1. september 1992. Viðkomandi hafi um-
sjón með tímaritahaldi, sjái um afgreiðslu
pg inslátt í tölvu. Háskólapróf frá Háskóla
íslands eða sambærileg menntun í bóka-
safnsfræðum frá erlendum háskóla.
Vinnutími frá kl. 08.00 til 16.00. Umsóknar-
frestur er til 15. apríl.
Allar nánari upplýsingar gefur Sólveig Þor-
steinsdóttir í síma 601583.
Öldrunarlækningadeild Landspítalans
f Hátúni 10b.
óskar eftir starfsfólki í sumarafleysingar og
föst störf:
Hjúkrunarfræðingar
Vinnuhlutfall og vaktafyrirkomulag eftir sam-
komulagi. Ýmsir möguleikar koma til greina.
Sjúkraliðar
Möguleiki á föstum næturvöktum, föstum
morgunvöktum, vöktum frá kl. 08.00 til 13.00
og einnig að taka allar vaktir. Vinnuhlutfall
getur verið allt frá 40% og upp í 100%.
Sjúkraliðar athugið: Laun eru tveim launa-
flokkum hærri á öldrunarlækningadeild en á
öðrum deildum.
Aðstoðardeildarstjóri
Aðstoðardeildarstjóri óskast í 80% eða
100% starf sem allra fyrst.
Upplýsingar gefur Guðrún Karlsdóttir, hjúkr-
unarframkvæmdastjóri, í síma 602266 eða
601000.
Læknaritari/læknafulltrúi
Læknaritari eða læknafulltrúi óskast í afleys-
ingar á Barnaspítala Hringsins. Umsækjendi
þarf að hafa löggildingu sem læknaritari.
Starfsreynsla æskileg.
Upplýsingar gefur Ásdís Sveinsdóttir í síma
601051.
Starfsmaður
Starfsmaður óskast til starfa við almenn
störf í borðstofu starfsmanna á Vífilstaða-
sprtala. Um er að ræða afleysingar vegna
vetrar- og sumarfría. Vinnutími er frá kl.
07.45 til 14.15 og frá kl. 07.45 til 16.15.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 602805.
1. flokks ritari
Fyrirtækið er virt og rótgróið innflutningsfyrir-
tæki í Reykjavík.
Starfið felst í almennum ritarastörfum, gagna-
grunnsvinnslu og umsjón með pöntunum.
Hæfniskröfur eru að viðkomandi sé leikinn
í ritvinnslu og hafi mjög góða íslensku- og
enskukunnáttu. Æskilegt er að umsækjendur
þekki til gagnagrunnsvinnslu og töflureikna.
Umsóknarfrestur ertil og með 27. mars nk.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9.00-15.00.
Skóla>'ordustig la - 101 Fteykiavik - Simi 621355
Hlutastarf-
kokkur - sölustarf
Heildverslun óskar að ráða kokk til sölu-
starfa. Um er að ræða hlutastarf.
Vinnutími samkomulag.
Umsóknir óskast sendar til auglýsingadeildar
Mbl. fyrir 27. mars merktar: „GV - 11802“.
ST. JÓSEFSSPÍTALI,bLANDAKOTI
Dagheimilið Öldukot
Dagheimilið Öldukot óskar eftir áhugasöm-
um fóstrum eða öðru starfsfólki með uppeld-
islega menntun. Um er að ræða hlutavinnu
fyrir hádegi og eftir hádegi og/eða allan dag-
inn á 1 —3ja ára deild. Dagheimilið er tveggja
deilda heimili, sem býður upp á góða vinnu-
aðstöðu og góða starfsemi.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Steinunn
Bragadóttir, forstöðumaður, í síma 604365
milli kl. 10.00-14.00.
HAflMAGERÐIN
Ferðamanna- og minjagripaverslun,
Hafnarstræti 19, vill ráða
verslunarstjóra
til starfa. Verslunin mun opna fljótlega eftir
gagngerar breytingar.
Verslunin í Hafnarstræti er höfðuðstöðvar
fyrirtækisins, sem rekur fjórar verslanir í dag.
Leitað er að drífandi einstaklingi með góða
tungumálakunnáttu, reynslu ísölu- eða versl-
unarstörfum, ásamt þekkingu á ferðamanna-
þjónustu. Innsýn eða þekking á ullarvörum
er æskileg.
Ferðamannaþjónusta er vaxandi atvinnu-
grein og í starfi verslunarstjóra reynir mikið
á markaðs- og söluskipulag og framsetningu
vöru, ásamt því að reyna að finna út hvað
ferðamenn vilja og leita leiða til að verða við
óskum þeirra. Launakjör samningsatriði.
Farið verður með allar umsóknir og fyrir-
spurnir sem algjört trúnaðarmál.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu okkar.
Umsóknarfrestur er til 10. aprfl nk.
^GuðnlJqnsson
RÁÐCJÖF & RÁÐN 1 NCARBJÓN U5TA
TIARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22
íiœ::::!'.
‘ ^rTn.’