Morgunblaðið - 24.03.1991, Qupperneq 42
áL
MflftGUJ'jBIrAÐIÐ SUbjNUDAGUR. £4, -MARZ .19,91.
VEGAAÆTLUN TIL FJÖGURRA ÁRA
MESTAR
FRAMKVÆMMR Á
VEST-OG
••
AUSTFJORM
eftir Guðjón Guðmundsson
VEGAAÆTLUN til næstu fjögurra ára var samþykkt sem lög frá Alþingi í vik
unni. Samkvæmt henni á að leggja bundið slitlag á 462 km á þessum fjórum
árum. Á þessu ári verður lagt bundið slitlag á 71 km. í vegaáætlun er einnig
gert ráð fyrir stórtækum framkvæmdum í brúargerð og jarðgangagerð. Kosti
ur framkvæmda næstu fjögurra ára eru áætluð 25.197 milljónir kr..
Stærsti hluti fram-
kvæmda vegna bund-
ins slitlags verður á
Austurlandi eða alls
um 23 km, 14,7 km á
Suðurlandi, 12 km á
Norðurlandi eystra,
9,6 km á Vesturlandi, 7,8 km á
Vestfjörðum og 4,1 km á Reykja-
nesi. Þegar litið er til næstu fjög-
urra ára verður einnig mest um
framkvæmdir við bundið slitlag á
Austfjörðum eða alls 129,7 km,
88,6 km á Suðurlandi, 86 km á
Norðurlandi eystra, 71,8 km á Vest-
urlandi, 38 km á Vestfjörðum, 26,9
km á Norðurlandi vestra og 20,8
km á Reykjanesi.
Bundið slitlag er ekki lengur sér-
greint í fjárveitingum á vegaáætlun
heldur fellur liðurinn „sérstök verk-
efni“, (vegagerð, brúarsmíði og
rannsóknir), einnig undir fjárveit-
inguna. Til lagningu bundins slit-
lags og sérverkefna verða veittar
1.187 millj. kr. á þessu ári og 5.165
millj. kr. á þessari vegaáætlun.
Stórbrýr
Samkvæmt vegaáætlun eiga 579
milljónir kr. að renna til bygginga
stórbrúa á næstu fjórum árum, og
að auki bætast við 32% af þeirri
upphæð frá kjördæmunum sjö,
þannig að heildarfjármagns £il
þessa liðar hljóðar upp á 764,3
millj. kr. I þeim fjárhæðum sem á
eftir fara er aðeins tekið mið af
fjárveitingu á vegaáætlun, ekki
framlagi kjördæmanna.
Smíði brúar yfir Markarfljót
hefst á þessu ári bg ráðgert að því
verki verði lokið 1994. 196 milljón-
ir kr. renna til þessa verkefnis, þar
af 132 millj. kr. á næsta ári. Þá
verður hafist handa við undirbúning
og byijunarframkvæmdir við brú-
arsmíði yfír Gilsfjörð á þessari
vegaáætlun og verða veittar 60
millj. kr. til þess, en áætlað er að
heildarkostnaður nemi 700 millj.,
kr. Að sögn Jóns Rögnvaldssonar,
tækniforstjóra Vegagerðarinnar,
verður verkið að líkindum boðið út
1994 og það unnið á 2-3 árum. 97
millj. kr. renna til smíði brúar yfír
Dýrafjörð, en áætlað er að því verki
ljúki á þessu ári. 78 millj. kr. fara
í brú yfir Vesturós í Héraðsvötnum
sem smíðuð verður 1993-1994.
Loks renna 80 miITj. kr. til smíði
brúar yfír Breiðdalsá á Austfjörðum
sem áætlað er að verði lokið á árinu
1993. Þá verður hafíst handa við
smíði brúar yfír Kúðafljót á árinu
1994 og renna 56 millj. kr. til þess
verkefnis, en framkvæmdir verða
mestar þar 1995. 12 millj. kr. er
óráðstafað í þénnan lið.
Jarðgöng .
Tæpir tveir milljarðar kr., 1.924
Kvikmyndin Hvíti víkingurinn;
SÍCILD FERMINCARCJÖF
Fagurt tákn heilagrar þrenningar,
íslenskur verndargripur, sem er
seldur til styrktar blindum.
Hönnuður: Asgeir Gunnarsson.
<
^ FÆST HJÁ GULLSMIÐUM UM LAND ALLT
cl Hcildsöludreifing: Biindrafélagið, Hamrahlíð 17, Reykjavík.
Frumsýning samtímis á öllum
Norðurlöndum 20. september
KVIKMYNDIN Hvíti víkingurinn eftir Hrafn Gunnlaugsson, sem jafn-
framt er leikstjóri, verður frumsýnd samtímis á öllum Norðurlöndum
20. september nk., en fjórir 70 mínútna sjónvarpsþættir verða frumsýnd-
ir snemma á næsta ári. Norrænu sjónvarpsstöðvarnar sameinuðust um
verkið og er upptökum lokið, en unnið cr að klippingu og verið er að
semja tónlist.
Undirbúningur að Hvíta víkingn-
um hófst fyrir um þremur árum,
þegar leiklistarstjórar norrænu sjón-
varpsstöðvanna ákváðu að fela
Hrafni Gunnlaugssyni að skrifa
handrit að þáttaröð, sem byggðist á
íslenskum sögum um kristnitökuna
á Norðurlöndum. Jafnframt var
ákveðið að Lars Bjalkeskog hjá
sænska sjónvarpinu tæki að sér
stjórn undirbúnings verklegra fram-
kvæmda.
Heildarkostnaður er áætlaður um
35 milljónir sænskra króna eða rúm-
lega 340 milljónir íslenskar. Norrænu
sjónvarpsstöðvarnar leggja fram
ákveðinn hlut, norræni sjónvarps-
sjóðurinn styrkir verkið og það er
að hluta til fjármagnað af einkafyrir-
tækjum og sjónvarpsstöðvum utan
Norðurlanda.
Fjöldi leikara kemur fram í verk-
inu og í stærstu senum eru um 600
þátttakendur. Aðalhlutverkin, Askur
og Embla, _ eru í höndum tveggja
unglinga, íslendingsins Gottskálks
Dags Sigurðarsonar og norsku stúlk-
unnar Maríu Bonnevie. Egill Ólafs-
son leikur Ólaf Tryggvason Noregs-
konung og Helgi Skúlason leikur
Þorgeir Ljósvetningagoða. Svíinn
Thomas Nordström leikur Þang-
brand biskup og Þorsteinn Hannes-
son Goðbrand jarl. Bríet Héðinsdótt-
ir, Thorgils Moe, Róbert Arnfinns-
son, Ami Tryggvason, Flosi Ólafs-
son, Jón Tryggvason, Þráinn Karls-
son og Sveinn M. Eiðsson fara einn-
ig með stór hlutverk.
Listamenn frá öllum Norðurlönd-
um hafa unnið að verkinu. Ensio
Suominen, þekktasti leikmynda-
teiknari Finna, sem hefur m.a. gert
leikmyndir við flestar myndir Rajne
Molberg, teiknaði leikmyndina. Karl
Júlíusson teiknaði og framleiddi bún-
inga. Kvikmyndatökumaður er
Svíinn Tony Forsberg, stjómandi
hljóðvinnslu er Norðmaðurinn Jan
Lindvik og landi hans, Dag Alve-
berg, er framleiðandi. Svíinn Silvia
Ingimarsson, sem hefur m.a. klippt
verk Ingmars Bergmans, vinnur að
klippingu og danska tónskáldið
Hans-Erik Phillip er að semja tónlist-
ina, sem verður leikin af norsku sin-
fóníuhljómsveitinni.
Hvíti víkingurinn segir frá ungu
fólki á tímum mikilla þjóðfélags-
breytinga. Leikurinn hefst í Noregi
á dögum Ólafs Tryggvasonar og
berst síðan til íslands og víða um
Norðurlönd. Þetta er ekki sagnfræði-
legt verk heldur skáldverk um ein-
staklinga og örlög þeirra í ölduróti
tímans.