Morgunblaðið - 10.04.1991, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 1991
Honda 91
Accord
Sedan
2,0 EX
Verð fró 1.360 þúsund.
GREIÐSLUSKILMÁLAR
FYRIR ALLA
UHONDA
VATNAGÖRÐUM 24 RVÍK., SÍMI 689900
VZterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
fHrogttitMtiifrifr
Hreppsnefndarfundur í Málmey.
Morgunblaðið/Silli
Húsavík:
Dandalaveður — nýtt leik-
rit eftir Jónas Arnason
Húsavík.
LEIKFÉLAG Húsavíkur frumsýndi nýtt leikrit í síðustu viku. Það
heitir Dandalaveður og er eftir Jónas Arnason. Leikstjóri var Sigurð-
ur Hallmarsson og með aðalhlutverk fara Asa Gísladóttir, Sigurður
Illugason og Þorkell Björnsson.
Leikrit þetta er samið upp úr
einþáttung sem Jónas samdi fyrir
nokkrum árum og hann nefndi þá
Drottins dýrðar koppalogn og var
þá sýndur í Iðnó við góðar viðtök-
ur. En það mun vera fyrir tilstilli
og beiðni Sigurðar Hallmarssonar
leikstjóra að Jónas fór út í það að
semja upp úr þessum einþáttungi
fullkomið leikverk, sem nú er frum-
sýnt í fyrsta skipti.
Leikritið gerist í þorpi á eyju ein-
■ FINNUR Fróðason, innanhús-
arkitekt kemur á fund Kvenfélags
Hveragerðis sem haldinn verður á
Hótel Ork fimmtudaginn 11. apríl
og hefst hann kl. 20.30. Finnur
mun m.a. ræða um skipulagningu
í eldhúsi og lýsingu innanhúss.
Vafalítið má fmna mikinn fróðleik
í erindi hans. Allir eru velkomnir.
(Fréttatilkynning)
hvers staðar í Norður-Atlantshafi.
Þorpsbúar hafa fengið til sín heið-
ursborgara sem býðst til að greiða
öll þeirra útsvör, gegn því að hann
fái einkaeign á landskika, þar sem
hann geti bannað alla umferð en
því fylgja auðvitað margvíslegir
erfíðleikar þorpsbúa.
Persónur í verkinu eru margar
skrítnar og skemmtilegar og mjög
íslenskar, svo sem hreppstjóri, odd-
viti, klerkur svo nokkuð sé nefnt.
Auk áðurnefndra leikara má nefna
Guðnýju Þorgeirsdóttur, Hrefnu
Jónsdóttur, Regínu Sigurðardóttur,
Jóhannes Einarsson, Bjarna Sigur-
jónsson, Hörð Harðarson, Jón Guð-
laugsson og Vigfús Sigurðsson.
Frumsýningunni var mjög vel
tekið og má búast við góðri aðsókn
að þessu verki eins og öllum verkum
Jónasar Ámasonar, sem hér hafa
verið sýnd áður.
- Fréttaritari
Gerir samning við
óperustúdíóið í Míinchen
HAUKUR Páll Haraldsson,
óperusöngvari, undirritaði ný-
verið samning við stúdíó ríkis-
óperunnar í Miinchen. I óper-
ustúdíóið eru ráðnir til starfa
ungir og efnilegir söngvarar,
sem þar eru gerðir fullnuma í
grein sinni jafnframt því sem að
þeir syngja smærri hlutverk í
sýningum ríkisóperunnar.
Operustúdíóið setur einnig upp
eigin sýningar. Ríkisóperan í
MUnchen er eitt af stærstu
óperuhúsum Þýskalands.
Haukur Páll hóf söngnám hjá
Snæbjörgu Snæbjarnardóttur við
Tónlistarskólann í Garðabæ, jafn-
framt því sem hann söng í mörg
ár með Karlakór Reykjavíkur. Und-
anfarin ár hefur Haukur stundað
nám við Tónlistarháskólnn í Vínar-
borg undir handleiðslu Helene Kar-
usso. Kamsso þessi er mörgum ís-
lendingum að góðu kunn af söngn-
ámskeiðum sem hún hefur haldið
hérlendis. Hún hefur einnig kennt,
í Vínarborg, mörgum af okkar
fremstu söngvumm.
Haukur Páll hefur sungið í ýms-
um óperusýningum á vegum tónlist-
arháskólans í Vínarborg, janframt
Haukur Páll Haraldsson
sem hann hefur starfað með óperu-
flokknum Junge Oper Wien. Hauk-
ur söng einnig 3 ár í kór tónlistar-
hátíðarinnar í Bayreuth í Þýska-
landi.
Fyrirlestur um plasmatækni
PRÓFESSOR Jon Ame Bakken frá NTH í Þrándheimi heldur fimmtu-
daginn 11. apríl nk. fyrirlestur um plasmatækni í málmverkfræði.
Fyrirlesturinn verður haldinn í stofu 158 i VRII, byggingu Háskóla
íslands, og hefst kl. 17.00.
Plasmatækni ryður sér nú æ
meira til rúms í hvers kyns orkufrek-
um efna- og efnisiðnaði. Þessi tækni
eykur hráefnis- og orkunýtingu og
er m.a. notuð til þess að eyða um-
hverfisskaðlegum efnum. Prófessor
Bakken stjórnar rannsóknahóp í
plasmatækni við Tækniháskólann í
Þrándheimi. íslenska járnblendifé-
lagið og Háskóli íslands hafa verið
í samvinnu við rannsóknahópinn og
þar stundar nú íslenskur stúdent
doktorsnám.
Fyrirlesturinn er á vegum sam-
starfshóps Háskólans um orkufrek-
an iðnað SAMOF og er öllum opinn.
SJÁLFSTIEDISPLOKKURINN
F É I. A (', S S T A R F
Kópavogur - Kópavogur
Kosningaskrifstofa Sjáflstæðisflokksins í Hamraborg 1, 3. hæð, er
opin frá kl. 9.00-20.00. Kosningasímar: 40708, 40805.
Sjálfstæðisflokkurinn.
Reyknesingar
Síðdegishóf sjálfstæðismanna í
Reykjaneskjördæmi nk. laugardag
kl. 17-19
Laugardaginn 13. apríl nk. kl. 17.00-19.00 efna sjálfstæðismenn í
Reykjaneskjördæmi til síðdegishófs í Skútunni, Dalshrauni, Hafnar-
firði. Heiðursgestir verða þau Sigrún og Matthías Á. Mathiesen, alþm.
Sjálfstæðisfólk velkomið.
Þátttaka tilkynnist Ernu Nielsen á kosningaskrifstofu Reykjaneskjör-
dæmis í simum 651055 og 651078.
Kjördæmisráð.
Suðurland
Samráðsfundur stjórnarfélaga ungra sjálf-
stæðismanna á Suðurlandi verður haldinn
í Hverageröi laugardaginn 13. apríl kl.
17.00.
Gestur fundarins verður Davíð Stefánsson,
formaður SUS.
Sameiginlegur kvöldverður á eftir.
FÉLAGSLÍF
Q GLITNIR 59914107 - 1
□ HELGAFELL 59914107 VI 2
FRL
I.O.O.F. 9 = 1724108'A =
I.O.O.F. 7 = 1724108V2 = 9.O.
I.O.O.F. 8=1724108'/2 = 9III
Aðalfundur
Sálarrannsóknarfélagins í Hafn-
arfirði verur haldinn á morgun
fimmtudaginn 11. april í Góð-
templarahúsinu í Hafnarfirði og
hefst kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Enski miðillínn Sheila Kemp
kemur í heimsókn og les í
blóm.
Stjórnin.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma i kvöld
kl. 20.00.
Tilkynning frá
Skíðafélagi Reykjavíkur
Reykjavíkurmeistaramótið í
3x10 km boðgöngu fer fram í
Bláfjöllum næstkomandi laugar-
dag, 13. april, kl. 14.00. Skráning
kl. 13.00 við gamla Borgarskál-
ann. Ef veður verður óhagstætt
kemur tilkynning í Ríkisútvarpingu
kl. 10.00 keppnisdaginn. Móts-
stjórar verða Pálmi Guðmunds-
son og Erlendur Björnsson.
Upplýsingar í síma 12371.
Skíðafélag Reykjavíkur.
Svigmót IR
í barnaflokki 11-12 ára og 9-10
ára fer fram í Hamragili nk. laug-
ardag 13. apríl.
Dagskrá:
Kl. 10.30 Brautarskoðun 11-12
ára flokkar.
Kl. 11.00 Keppni í 11-12 ára
flokkum.
Kl. 13.30 Brautarskoðun 9-10
ára flokkar.
Kl. 14.00 Keppni i 9-10 ára
flokkum.
Fararstjórafundur í Skíðaráðs-
herberginu í Laugardal á föstu-
dag kl. 18.30. Þátttökutilkynn-
ingar berist til Auðar Ólafsdóttur
(s. 37392) fyrir kl. 20.00 mið-
vikud. 10. april.
Mótsstjórn.
FERÐAFELAG
ÍSIANDS
ÖLDUGÖTU 3 S 11798 19533
Raðgangan1991,
gönguferð um gosbeltið (Atl-
antshafshrygginn) hefst sunnu-
daginn 14. apríl.
Veriö með frá byrjun i þessari
skemmtilegu raðgöngu í 12
áföngum um Reykjanes - Lang-
jökulgosbeltið frá Reykjanesi að
Skjaldbreið. Kynningarverð.
Brottför á sunnudaginn kl. 13
frá Umferðarmiðstöðinni, aust-
anmegín. Hægt að taka rútuna
á leiðinni t.d. á Kópavogshálsi
og v/kirkjug., Hafnarfirði. Suður-
nesjamenn og aðrir, sem það
kjósa, geta komið á eigin bilum
að Reykjanesvita. í sunnudags-
ferðinni verður gengið frá vitan-
um að Reykjanestá um
Krossavíkurbjarg -á Háleyja-
bungu. Einnig verður styttri fjöl-
skylduganga í boði. Getraun í
hverri ferð: Spurning þessarar
1. ferðar: Hvaða tegund eld-
stöðvar er Háleyjabunga? Fjöl-
mennið.
Ferðafélag islands.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 & 11798 19533
Helgarferð íTindafjöll
12.-14. apríl
Skiðagönguferð i Tindafjöll -
spennandi ferð í stórbrotnu
landslagi. Ekið eins langt og
unnt er í átt að skála Alpaklúbbs-
ins, en þar verður gist. Takmark-
aður fjöldi - tryggið ykkur pláss
tímanlega.
Fararstjóri: Árni Tryggvason.
Farmiðar og upplýsingar á skrif-
stofu Ferðafélagsins, Öldu-
götu 3.
Ferðafélag islands.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Bibliulestur i kvöld kl. 20.30.
Ræðumaður: Hafliði Kristins-
son. Allir hjartanlega velkomnir.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 1953Í
Myndakvöld F.í.
Ferðafélagið efnir til myndasýn-
ingar í dag, miðvikudaginn 10.
apríl, í Sóknarsalnum, Skipholti
50a. Sýningin hefst stundvíslega
kl. 20.30.
Efni: Bergþóra Sigurðardóttir
sýnir myndir og segir frá ferðum
sínum í Borgarfjörð eystri,
Lónsöræfi og víðar á Norðaust-
urlandi. (Feröir nr. 9, 10 og 14
í áætlun 91).
Eftir kaffihlé verða sýndar mynd-
ir frá Reykjanes-Langjökulsgos-
beltinu tengdar raðgöngu
Ferðafélagsins, sem hefst
sunnudaginn 14. apríl.
Komið, fræðist og skemmtið
ykkur á myndakvöldi hjá Ferða-
félaginu. Veglegar kaffiveitingar.
Allir velkomnir, félagar og aðrir.
Aðgangur kr. 500,- (kaffi og
meðlæti innifalið).
Munið Ferðafélagsspilin.
Ferðaáætlun 1991 liggurframmi
- fjölbreytnin er mikil í innan-
landsferðum F.í.
Myndatökur með myndbandi.
Nokkur pláss laus á námskeiði
þann 11. og 13. apríl. Áhersla
lögð á ferðamyndatökur.
Ferðafélag íslands.
ÉSAMBANO ÍSLENZKRA
> KRISTTNIBOÐSFÉLAGA
Kristniboðssamkoma á Háaleit-
isbraut 58 í kvöld kl. 20.30.
Ræöumenn: Gísli H. Friðgeirs-
son og Guðbjartur Andrésson.
Hildur, Kristín og Rúna syngja.
Allir velkomnir.
Stúkan Einingin nr. 14
Fundur í Templarahöllinni i
kvöld, miðvikudag 10. aprl, kl.
20.30. Dagskrá í umsjón Hall-
dórs Kristjánssonar og Einars
Hannessonar.
Æðstitemplar.
ÚTIVIST
GRÓFINHI1 • REYKJAVÍK • SÍMIAÍMSVARI14601
Vorferð 12.-14. apríl
Spennandi ferð á suðurströnd-
ina og í Þórsmörk. Reynishverfið
verður sótt heim og skoðaður
hellir þar sem Jón Steingríms-
son, eldklerkur, bjó um tíma.
Strandganga. Dyrhólaey og
Reynisdrangar. Komið við i
Byggðasafninu á Skógum. Sund
í Seljavallalaug. Gist í Útivistar-
skálunum í Básum. Kvöldvaka.
Varðeldur. Árdegisganga um
mörkina á sunnudag.
Útivist.