Morgunblaðið - 10.04.1991, Síða 56
— svo vel
sétryggt
ALMENNAR
Láttu Lotus 1-2-3
gefa þér rétta mynd
af rekstrinum!
MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 1991
VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR.
Loðnubætur
sendar aftur
til fjárveit-
inganefndar
SAMÞYKKT var á fundi ríkis-
stjórnarinnar í gær að vísa aftur
til fjárveitinganefndar Alþingis
ákvörðun nefndarinnar um skipt-
ingu 100 milljóna króna aukafjár-
veitingar vegna loðnubrests.
Jón Sveinsson, aðstoðarmaður
forsætisráðherra, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að ríkisstjórnin
hefði tekið undir sjónármið sam-
gönguráðherra í málinu, en jafn-
framt að engin endanleg niðurstaða
væri fengin í því. „Þetta þýðir nán-
ast það að málið er í biðstöðu á
þessari stundu," sagði Jón Sveins-
son.
Morgunblaðið/llAX
Ferðamenn ísnjómokstri
Þessi þýski ferðamaður hamaðist við að moka sig í gegnum snjóskafl við Dyrhólaey þegar ljósmyndara Morgunblaðsins bar að í gær. Skammt
undan beið full rúta af löndum hans þess að hann lyki verkinu. Víða um land, m.a. á Suðurlandi, Snæfellsnesi og í Húnavatnssýslum lenti fólk
í hrakningum vegna áhlaupsins, sem gekk yfir mikinn hluta landsins í gær.
2 V2 árs fang--
elsi fyrir
að smyg'la
amfetamíni
33 ÁRA gamall maður, Gunnlaug-
ur Örn Þórhallsson, hefur verið
dæmdur til 2Vi árs fangelsisvistar
fyrir innflutning og dreifingu á
amfetamíni og hassi, meðal ann-
ars fyrir að hafa flutt inn rúmlega
eitt kíló af amfetamíni falið í
borði, sem lögreglan lagði hald á
i febrúarmánuði síðastliðnum.
Maðurinn var handtekinn á heim-
ili sínu í miðbæ Reykjavíkur eftir
að hafa sótt á flugfragt Flugleiða
borð, sem tollverðir höfðu fundið í
eitt kíló af amfetamíni. Borðið hafði
Jóhannes Nordal á ársfundi Seðlabanka íslands:
maðurinn smíðað heima hjá sér og
tekið með sér til Amsterdam þar sem
hann fyllti það af amfetamíni og
sendi flugleiðis um Lúxemborg til
Reykjavíkur.
Maðurinn játaði brot sitt og einn-
ig að hafa í nóvember og desember
með sama hætti smyglað til landsins
500 grömmum af hassi, sem hann
seldi í Reykjavík á 1.000-1.500 krón-
ur grammið, eða 500-750 þúsund
krónur alls. Þá var hann ákærður
og sakfelldur fyrir að hafa selt
ákveðnum manni amfetamín í nokk-
ur skipti á tímabilinu maí-júní 1988,
samtals 35-40 grömm.
Ásgeir Friðjónsson sakadómari í
ávana- og fíkniefnamálum kvað upp
dóm yfir manninum, sem einnig var
gert að greiða 400 þúsund króna
fésekt til ríkissjóðs innan fjögurra
vikna en sæta ella fjögurra mánaða
fangelsi til viðbótar. Þá voru gerð
upptæk til eyðingar 1.052 grömm
af amfetamíni.
Hætta á þenslu vegna skulda-
söfnunar ríkisins við ba.nka.nn
VEXTIR af nýjum spariskírteinum og ríkisvíxlum hafa dregist
aftur úr öðrum vaxtakjörum og sala þeirra frá áramótum því
orðið minni en ella. Hefur Iánsfjárþörf ríkissjóðs frá áramótum
verið að mestu mætt með skuldasöfnun við Seðlabankann og hef-
ur það mikla þensluhættu í för með sér. Aukin sala ríkisbréfa
síðar á árinu mun væntanlega hafa áhrif til enn frekari hækkun-
ar markaðsvaxta en varð á síðasta ári. Þetta kom fram í ræðu
Jóhannesar Nordals seðlabankastjóra á ársfundi bankans í gær.
Jóhannes sagði í ræðu sinni að
þótt framboð innlends framboðs á
vegum lífeyrissjóða, banka og verð-
bréfamarkaðs ykist mikið á síðasta
ári og verulega drægi úr lánsfjáreft-
irspurn atvinnuveganna, hefði
markaðnum reynst erfitt að melta
mikla innlenda lánsfjáreftirspurn
opinberra aðila. Raunvextir hafi því
farið hækkandi eftir því sem á árið
Skipverjar á Norðfjarðar-
tognrum segja upp störfum
ÁHAFNIR allra þriggja togara Síldarvinnslunnar hf. á Neskaupstað
hafa sagt upp og taka uppsagnirnar gildi eftir hálfan mánuð. For-
svarsmenn Síldarvinnslunnar ætla þó ekki að auglýsa laus pláss á
togurunum og vonast til að málin leysist næstu tvær vikurnar.
Síldarvinnslunni bárust skeyti frá
áhöfnum Bjarts NK og Birtings
NK í fyrrakvöld og gærmorgun þar
sem allir, nema skipstjórinn, segja
upp störfum. Áhöfn Barðans NK,
sem var að landa í Neskaupstað í
gær, fylgdi í kjölfarið og sagði upp.
Jóhann K. Sigurðsson, útgerðar-
stjóri Síldarvinnslunnar hf., segir
að sjómenn hafi hafnað báðum til-
boðum Síldarvinnslunnar. Fyrst
höfnuðu þeir Akureyrarsamkomu-
laginu og síðan tilboði um aðild í
ísfiskútflutningi, eins og þeir hafa
haft undanfarin ár, auk 30% heima-
löndunarálags, en það hefur verið
20% í Neskaupstað frá því í október.
„Þeir virðast bara vilja meira en
aðrir,“ sagði Jóhann í gær og bætti
við að í fyrra hefðu um 40-50% af
verðmæti aflans legið í ísfiskút-
flutningi og taldi hann að Síldar-
vinnslan hefði ekki gert illa við sinn
mannskap.
„Við reiknum fastlega með að
þetta mál leysist áður en uppsagn-
irnar taka gildi eftir hálfan mánuð
og við ætlum ekki að rjúka upp og
auglýsa laus pláss á togurunum,"
sagði Jóhann.
I gær var gengið frá samningum
Þormóðs ramma á Siglufirði og sjó-
manna á togurunum Sigluvík og
Stálvík. Fá þeir 41% heimalöndun-
arálag.
Sjá Úr verinu um breytta verð-
lagningu á fiski; bls, C3.
leið, fyrst vegna mikils framboðs á
spariskírteinum ríkissjóðs, en á
síðasta ársfjórðungi vegna aukinn-
ar sölu húsbréfa. Einnig hefði auk-
in sala hlutabréfa haft sín áhrif.
Sagði Jóhannes að miðað við láns-
kjaravísitölu hafi markaðsraun-
vextir af opinberum verðbréfum,
spariskírteinum og húsbréfum, ver-
ið frá 7 til 7 'h % í lok síðasta árs.
Sagði seðlabankastjóri að það
sem af er þessu ári hafi þrýstingur-
inn á lánsfjármarkaðinn farið enn
vaxandi og virtist þar vera að verki
samdráttur í sparnaði heimila og
meiri lánsfjáreftirspurn. Vextir á
verðbréfamarkaði hafi því haldið
áfram að þokast upp á við, og
ávöxtun húsbréfa verið leiðandi í
hækkuninni. „Þetta hefur einnig
gerst þrátt fyrir það, að vextir af
nýjum spariskírteinum og ríkisvíxl-
um hafa dregist aftur úr öðrum
vaxtakjörum og sala þeirra því orð-
ið minni en ella. Hefur því lánsfjár-
þörf ríkissjóðs frá áramótum verið
að mestu mætt með skuldasöfnun
við Seðlabankann, sem hefur mikla
þensluhættu í för með sér. Þar sem
hér getur ekki verið nema um tíma-
bundið ástand að ræða, verður að
reikna með verulega aukinni sölu
ríkisbréfa síðar á árinu, sem vænt-
anlega mun hafa áhrif til enn frek-
ari hækkunar markaðsvaxta,"
sagði Jóhannes.
Sjá ræðu seðlabankastjóra á
miðopnu.
TVcg-gja kvenna
saknað úr fangelsi
LÖGREGLAN í Hafnarfirði fann um hádegisbilið í gær fangana
þijá sem struku af Litla-Hrauni síðdegis á mánudag. Tveggja
kvenna er saknað úr fangelsinu við Kópavogsbraut.
Konurnar tvær, sem saknað er sátu í rjóðri í sumarbústaðalandinu
úr fangelsinu við Kópavogsbraut,
komu ekki fram þegar daglegum
útivistartíma þeirra lauk. Leit lög-
reglu að þeim hafði ekki borið ár-
angur seint í gærkvöldi.
Fangarnir sem fundúst í gær
Sléttuhlíð þegar lögreglumenn i
eftirlitsferð óku fram á þá. Að
sögn lögreglunnar í Hafnarfirði
voru mennirnir, sem eru um
tvítugt, undir áhrifum áfengis.