Morgunblaðið - 11.04.1991, Síða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1991
STJORNUSPA
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Hugboð hrútsins leiðir hann á
rétta leið í starfi sínu. Honum
finnst einhver fullstjórnsamur
í peningamálum. Hann ætti að
gæta þess að reyna ekki að
koma sér undan skylduverk-
um.
Naut
(20. apríl - 20. mai)
Nautið heyrir stórfréttir hjá
vini sínum. Það fær boð um
að ferðast. Óvæntur gestur
kemur í heimsókn.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) 5»
Nýstárlegar hugmyndir
tvíburans koma honum vel í
viðskiptum. Einhver reynir að
notfæra sér stöðu hans í pen-
ingamálum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Krabbinn er á sömu bylgju-
lengd og vinur hans í dag, en
• getur lent í vandræðum út af
barninu sínu. Ferðaáætlanir
hans ganga upp. '
Ljón
(23. júlf - 22. ágúst)
Ljónið á erfitt með að iáta
undan í deilu við nákominn
aðila. Það ætti að hafa
langtímasjónarmið í huga þeg-
ar það hugleiðir stöðu sína.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Meyjunni finnst kunningi
hennar hafa öfgafullar skoð-
anir. Það er spennandi tíma
framundan hjá henni í róm-
antíkinni.
v*i "7
(23. sept. - 22. október) %%
Vogin ætti að vara sig á skúrk-
unum í viðskiptalífínu. Ýmis
smáverkefni bíða hennar
heima fyrir.
Sþoródreki
(23. okt. - 21. nóvember) fíjjS
Sporðdrekinn ætti að forðast
árekstra við nákomna ættíngja
eða vini. Hann hefur ánægju
af iðkun áhugamála sinna og
ferðalögum um næsta ná-
grenni.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember) $)
Bogmaðurinn vinnur að því að
prýða heimili sitt og Ijúka
ýmsum smáverkefnum heima
fyrir. Viðskiptatilboð sem hon-
um berst jaðrar við að vera
ólöglegt.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar) &
Steingeitin heyrir talað um við-
skipti sem henni þykir lítið til
koma. Hún á auðvelt með að
tjá skoðanir sínar og gneistar
af frumleika.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Vatnsberinn rekst á eitthvað
áhugavert þegar hann fer út
að versla í dag. Honum fínnst
eitthvað hindra sig í að leysa
ákveðið verkefni, en væri ráð-
legra að halda áfram fremur
en gefast upp.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Fisknum gengur allt í haginn
í félagslífinu núna og hann
eignast nýja vini. Hann tekur
þátt í hópstarfi! frítíma sínum,
en ætti að gæta þess vandlega
að láta annað ekki reka á reið-
anum.
Stjörnuspána á að lesa sem
dœgradvól. Spár af pessu tagi
byggjast ekki á truustum grunni
i iiiúdaksm staðKomdíL---------«■
DYRAGLENS
stm vm<o 2-i6
TOMMI OG JENNI
I |ÁOI/A
LJOSKA
y* p CCDVMM A Mr>
rbRDINAND
SMAFOLK
Zambóhibílstjórar ættu ekki að taka vinnuna heim með sér
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Um 60 ára skeið hefur Lee
Hazen verið einn af mest áber-
andi mönnum í bandarísku
bridslífi. Hann er nú fallinn frá,
85 ára að aldri. Auk þess að
vera góður spilari, starfaði Haz-
en geysilega mikið að bridsmál-
um og var meðal annars einn
af stofnendum bandaríska brids-
sambandsins. Hazen markaði
sjálfur upphaf spilaferils síns við
vörnina í slemmu suðúrs hér að
neðan. Hann var þá 25 ára gam-
all.
Vestur gefur; enginn á hættu.
Norður
♦ 974
¥KD4
♦ 87542
♦ 96
Vestur Austur
*- llim *G83
V 10983 VG7642
♦ DG63 ♦ ÁK109
♦ G10875 +2
Suður
♦ ÁKD10652
VÁ
♦ -
♦ ÁKD43
Vestur Norður Austur Suöur
Pass Pass 1 hjarta 2 hjörtu
4 hjörtu Pass Pass 6 spaðar
Pass Pass Pass
Utspil: hjartátía.
Suður var (að eigin áliti) besti
spilarinn í hópnum enda sá eini
sem átti bridsbók. Hann lagði
niður spaðaás í öðrum slag, sá
leguna, hugsaði sig um í nokkra
stund og spilaði svo spaðatíunni!
Hazen hélt á spilum austurs.
Hann leit á sagnhafa. Svipurinn
benti ekki til að hann hefði tek-
ið vitlaust spil, svo Hazen gaf.
Suður leit reiðilega á þann og
spilaði ÁK í laufi. Enn neitaði
Hazen sér um trompslaginn og
eftir það var spilið glatað.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á öflugu alþjóðamóti í Pampl-
ona á Spáni fyrir áramótin kom
þessi staða upp i skák sovézku
stórmeistaranna Elizar Ubilava
(2.535) og Vyecheslav Eingorn
(2.575), sem hafði svart og átti
leik.
35. - Hdl! 36. Hxdl - Re2+,
37. Kfl - Rxg3+, 38. Kel (Hvíti
kóngurinn verður að reyna að
bjarga sér á flótta, því 38. Kgl
er svarað með 38. - Dxh4) 38. -
Dxe7, 39. Kd2 - Hd8+, 40. Kel
- Dxh4, 41. Hxd8 - Rfl+! og
hvítur gafst upp, því 42. Kdl -
Dxd8+ er alveg vonlaust. Sovézki
stórmeistarinn Leonid Judasin
sigraði á mótinu með 6'A v. af 9
mögulegum á undan Korchnoi
sem hlaut 6 v. Sigurinn reyndist
Judasin þó ekki gott veganesti í
áskorendaeinvígið við Ivanchuk
þár sem liann tapaði fjórum fyrstu
skákunum.