Morgunblaðið - 03.05.1991, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 03.05.1991, Blaðsíða 30
30 mmsíi MOKGUNBLAÐfD FÖS3UDAGUR 3. MAÍ 1991 ^ÓkGU^BLADÍÐ kÖSTUDAdÚR k MAÍ ÍÖSÚ £i Útgefandi Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannssori, MagnúsFinnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Atak gegii hjarta- og kransæðasjúkdómum Dánartíðni vegna hjarta- og kransæðasjúkdóma hefur verið há hér á landi sem víðar á Vesturlöndum. Það eru því góð tíðindi, sem fram koma hjá Guðmundi Þorgeirssyni yfir- lækni hér í blaðinu, að dregið hafí úr dauðsföllum af völdum hjartasjúkdóma um 30-40 pró- sent síðan 1967, er rannsóknir Hjartaverndar hófust. Árang- urinn felst að hluta til í breytt- um lífsvenjum fólks, sem vax- andi almenn þekking á áhættu- þáttum hefur leitt til. Þar koma til sögunnar minni reykingar, hollari fæða og líkamsrækt [meiri hreyfíng og útivist]. Árangurinn rekur ekki síður og rætur til rannsókna og framfara í læknisfræði. í grein Sigurðar Helgasonar, formanns Landssamtaka hjartasjúklinga hér í blaðinu fyrir skömmu, er vakin athygli á átaki Finna til ná niður dán- artíðni vegna kransæðasjúk- dóma í héraðinu Norður-Kar- elíu, sem var þar mjög há fyrir um það bil 20 árum. Barátt- unni var beint sérstaklega gegn skaðsemi reykinga og röngu fæðuvali — um leið og hvatt var til líkamsræktar. Skólar og fjölmiðlar voru nýttir til að koma upplýsingum á framfæri. Dreifing ávaxta og grænmetis var bætt. í grein Sigurðar seg- ir: „Fimm árum síðar kom strax mikill árangur í Ijós. Kransæða- tilfellum fækkaði um 40% og einnig kom í ljós almenn lækk- un kólesteróls í blóði og lækkun blóðþrýstings hjá íbúum. Þann- ig varð héraðshreyfíng fljótlega að hreyfingu sem snerti alla þjóðina.“ í grein Sigurðar er og sett fram tillaga Landssamtaka hjartasjúklinga, þess efnis, „að Islendingar verði fyrstir þjóða til að láta fram fara heildar- rannsókn allra landsmanna, eldri en 30 ára, þar sem fram kæmu niðurstöður um kólester- ólmagn í blóði og blóðþrýsting viðkomandi. Sérhver yrði látinn svara spumingum um matar- æði, reykingar og lifnaðar- hætti. í grein Sigurðar segir að vissar tegundir hjartasjúkdóma kunni að ganga í erfðir. Heild- arrannsókn af því tagi, sem samtökin gera tillögu um, hefðu mikið upplýsingagildi um það efni. Guðmundur Þorgeirs- son yfirlæknir segir og í tilvitn- uðu viðtali: „Ef bornar eru saman þjóðir eins og Japanir og íslendingar þá er kólesterólið mun hærra hjá íslendingum en Japönum. Æðakölkun er sjaldgæf í Japan en algeng hér og virðist kól- esterólið vera beinn orsaka- valdur. Þessi mismunur á þjóð- unum byggist á mataræði. Sá mismunur sem finnst milli ein- staklinga einhvers tiltekins þjóðfélags, t.d. hins íslenzka, ræðst fyrst og fremst af erfð- um. Sumir virðast þola feitan mat án þess að hækka verulega í kólesteróli, en hjá öðrum hækkar það við slíka neyzlu ... Þetta þýðir að sjálfsögðu ekki að maður geti ekki haft stórtæk áhrif á eigið kólesteról með mataræði.“ Enginn vafi er á því að hægt er að fækka hjarta- og krans- æðatilfellum hér á landi með heilbrigðari almennum lífsmáta. Það sýnir reynslan, bæði hérlendis og erlendis. Að því ber að keppa. En það skipt- ir jafnframt miklu máli að byggja upp eins góða aðstöðu til rannsókna og lækninga og aðstæður frekast leyfa. Stórt spor var stigið í þessu efni þeg- ar Landspítali hóf mikilvægar hjartaskurðlækningar fyrir nokkrum misserum, sem skilað hafa góðum árangri. Styrkja þarf starfsaðstöðu þeirra sem kostur er. Guðmundur Þorgeirsson sagði i viðtali við Morgunblaðið fyrir skömmu: „Þjóðin er mjög heilbrigð og lifir að mörgu leyti heilbrigðu lífí. Lífsstíllinn er að breytast til hins betra, fólk virðist vera farið að hugsa meira um að borða næringarríkan mat og sneiða hjá því sem hefur minni hollustu. Það hugsar einnig um aðra heilsufarsþætti eins og hreyfmgu og áhættu reykinga. Áhættuþættir kransæðasjúk- dóma skipta máli. Sömu áhættuþættir skipta máli hjá konum og körlum en vægi þeirra er misþungt". Mergurinn málsins er með öðrum orðum forvamarstartlð; að breyta lífsstílnum til að varðveita betur heilbrigði ein- staklingsins. En heilsan er dýr- mætasta eign hvers einstakl- ings. í annan stað þarf að búa þann veg að rannsóknum og lækningum, ekki sízt á þeim sviðum sem þyngst hvíla á heil- brigðiskerfinu, sem hæfir nútíma samfélagi. Rauði krossinn: Landssöfnun til styrkt- ar Kúrdum og* Afgönum RAUÐI kross íslands mun standa fyrir margvíslegum uppákomum dagana 4. til 12. maí næstkomandi í tilefni af alheimsátaki Rauða krossins, sem hlotið hefur nafnið „Sól úr sorta“. Sunnudaginn 12. maí efna samtökin til landssöfnunar, annars vegar til styrktar kúrdískum flóttamönnum í Irak, Iran og Tyrklandi og hins vegar til að byggja gervilimasmiðju í Kabúl í Afganistan. Morgunblaðið/Sverrir Efri röð f.v.: Gunnar Guðmundsson yfirlæknir, Elías Olafsson sérfræðingur í heila- og taugasjúkdómum og Pétur Lúðvíksson sérfræðingur í heila- og taugasjúkdómum barna. Neðri röð f.v. Ólafur Haukur Símon- arson meðlimur í LAUF, Landssamtökum áhugafólks um flogaveiki, Þorkell Hermannsson formaður LAUF og Guðlaug María Bjarnadóttir meðlimur í LAUF. Dagskrá Rauðakrossdaganna hefst laugardaginn 4. maí með opnun ljósmyndasýningar í Kringl- unni sem nefnist Börn og stríð. Þar verða sýndar 105 ljósmyndir sem tengjast stríði og stríðsátökum á þessari öld. Sýningin hefur und- anfarin misseri verið á Rauða- krosssafninu í Genf og fara mynd- irnar héðan í maílok á sýningu í Frakklandi. 4. maí verður einnig málþing á vegum Rauða krossins í Há- skólabíói undir yfirskriftinni Mannréttindi koma þér við. Þar verða fluttir fyrirlestrar, þar sem fjallað er um styrjaldir og mann- réttindi frá ýmsum sjónarhornum. Alþjóðadagur Rauða krossins er hinn 8. maí og gengst Ungliða- hreyfing Rauða krossins þá fyrir Safnað fyrir heilasírita: Tækið hefur valdið byltiiigu í rannsóknum á flogaveiki LANDSSAMTÖK áhugafólks um flogaveiki (LAUF), Rás 2 og Kiwanis- klúbburinn Viðey standa fyrir landssöfnun á Rás 2 í dag til kaupa á heilasírita. Tækið hefur á undanförnum árum valdið byltingu í rann- sóknum á flogaveiki, einkum alvarlegri tegundum hennar en um það bil 1.500 íslendingar eru haldnir þessum sjúkdómi, þar af 500 börn. Morgunblaðið ræddi við nokkra aðstandendur söfnunarinnar og lækna á Landspítalanum um söfnunina og flogaveiki. Að sögn Elíasar Ólafssonar, sér- fræðings á taugalækningadeild Landspítalans, byggir heilasíriti á því að skrá einkenni krampa og heilarit sjúklingsins samtímis á myndband. „Greiningin á flogaveiki byggist fýrst og fremst á þvi sem fólk lýsir en það er tiltölulega sjald- gæft að læknar sjái flogin sjálf. Með lýsingum fólks má oft fá mjög góða hugmynd um það hvort um flogaveiki eða einhvern annan sjúk- dóm sé að ræða. Það hefur hins vegar komið í ljós á seinni árum að lykillinn að greiningunni er að sjá hvernig sjálft flogið lítur út og taka samtímis upp heilarit. Þetta tæki gerir slíkt mögulegt," sagði Elías í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði tilganginn með notk- un tækisins vera þríþættan. í fyrsta lagi að sjá hvort um flogaveiki væri að ræða. í öðru lagi að flokka krampana, því flogaveiki væri ekki aðeins einn sjúkdómur heldur marg- ir og mismunandi tegundir af krömpum svöruðu mismunandi lyfj- um. I þriðja lagi væri heilasíritun ein af forsendum þess að hægt væri að beita skurðaðgerðum við lækningu flogaveiki. Rannsókninni er, að sögn Péturs Lúðvíkssonar sérfræðings í heila- og taugasjúkdómum barna, einkum beitt við erfíðari tegundir flogaveiki og gerir það meðferð markvissari. Heilasíritinn hefur rutt sér til rúms á Vesturlöndum á síðasta ára- tug, en tækjabúnaður af þessari gerð er ekki til hér á landi enn sem komið er. Áætlað er að heilasíritinn muni kosta um 6 milljónir króna og verður tækið sett upp á tauga- lækningadeild Landspítalans. „Ástæðan fyrir því að tækið þarf að vera á sjúkradeild er sú að það þarf yfirleitt að leggja fólk inn til rannsóknar. Venjulegt heilarit tek- ur um hálfa klukkustund en þessi rannsókn getur tekið daga eða jafn- vel vikur,“ sagði Pétur. Að sögn Gunnars Guðmundsson- ar, yfirlæknis á taugalækningadeild Landspítalans, þjást um 1.500 ís- lendingar af flogaveiki. „Sjúkdómurinn er mun algengari en fólk gerir sér grein fyrir en í gegnum árin hefur hann verið sveipaður dulúð og fólk er hrætt við að viðurkenna að það sé haldið honum, ekki síst vegna þess að þá fær það oft ekki vinnu. Áður fyrr var litið á flogaveiki sem eitt stig af fávitahætti og því miður eru enn miklir fordómar í sambandi við flogaveiki í þjóðfélaginu," sagði Gunnar. Að sögn Ólafs Hauks Símonar- sonar eru meðlimir í LAUF ýmist fólk sem haldið er flogaveiki eða á börn sem eru með sjúkdóminn. „Það ríkir mikil bjartsýni innan þessa hóps nú, því undanfarið hefur mik- ið verið að gerast í þessum efnum, bæði varðandi þróun lyfya og með- höndlun á sjúkdómnum og bata- horfur eru miklu meiri en þær voru fyrir nokkrum árum,“ sagði Ólafur Haukur. Þorkell Hermannsson, formaður LAUF, bætti því við að fólk sem haldið væri flogaveiki væri auk þess farið að krefjast réttar síns meira en það gerði. „Það vill ekki þurfa að vera í felum með sinn sjúk- dóm og fordómar eru á undan- haldi,“ sagði Þorkell. Guðlaug María Bjarnadóttir tók undir þetta og nefndi sem dæmi að allt fram til ársins 1969 hefði það verið bundið í lög að flogaveikt fólk mætti ekki giftast. „Fordóm: arnir eru sem betur fer á undan- haldi en þó er enn nokkuð í land,“ sagði Guðlaug María. Söfnunin á Rás 2 í dag stendur yfir frá kl. 9 til 19 og verður tekið við framlögum í beinni útsendingu auk þess sem hægt er að leggja inn á söfnunarreikning LAUF nr. 5774, í Sparisjóði Reykjavíkur og ná- grennis á Skólavörðustíg. fjölskylduhlaupi og samkomu í miðborg Reykjavíkur. Hlaupið hefst klukkan 19 og að því loknu hefjast útitónleikar þar sem fjöldi hljómsveita og skemmtikrafta kemur fram. Síðar um kvöldið munu tónleikagestir mynda keðju umhverfis Tjörnina og bera lifandi ljós. Rauðakrossdögunum lýkur þann 12. maí, en þá er fyrirhuguð lands- söfnun til hjálpar fórnarlömbum stytjalda. Sjálfboðaliðar munu ganga í öll hús í landinu og verður heimningi þess fjár sem safnast verða varið til aðstoðar kúrdískum flóttamönnum í íran, írak og Tyrklandi og helmingi til að byggja gervilimasmiðju í Kabúl í Afganist- an, þar sem þúsundir óbreyttra borgara hafa misst útlimi, meðal annars af völdum jarðsprengja. Þennan sama dag verður sjónvarp- að tónleikum í London, þar sem kunnar popp- og rokkhljómsveitir koma fram til styrktar Kúrdum. Evrópusöngvakeppnin: Vildi að Nína værí mín - segir höfundur Ein bischen Frieden Róm. Frá Sveini Guðjónssyni, blaðamanni Morgunblaðsins. „EG FÉLL fyrir jaginu um leið og ég heyrði það. Eg vildi að Nína væri mín tónsmíð," sagði þýski lagasmiðurinn Ralph Siegel, en hann er höfundur verðlaunalags- ins Ein bischen Frieden, sem sigr- aði í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva fyrir nokkrum árum. Hann hefur níu sinnum sigrað í undankeppninni heima í Þýskalandi og auk verðlaunalags- ins þrívegis átt lag í öðru sæti Söngvakeppninnar. Á fundi með fréttamönnum sem þýska hljómplötufyrirtækið Jupiter Records hélt á Sheraton hótelinu í Róm í gær til heiðurs íslensku þátt- takendunum kom fram að lag Ey- jólfs Kristjánssonar, Nína, hefur ver- ið gefið út í nokkrum Evrópulöndum, auk þess sem fyrirhuguð er útgáfa á breiðskífu með lögum eftir Eyjólf með enskum textum í sumar. Það er Ralph Siegel sem stendur á bak við Jupiter Records og kvaðst hann hafa tröllatrú á Eyjólfi sem laga- smiði. „Nína er eitt af bestu lögum sem ég hef heyrt. Uppbygging þess er afar fagmannleg, útsetningin frá- bær, auk þess sem það er vel flutt. En hvort það dugi til sigurs i keppn- inni er allt annað mál. Eg hef heyrt að sumum þyki lagið fullþungt en aðrir eru sama sinnis og ég og mitt fólk,“ sagði hann. Samtök áhugamanna um áfengisvandamálið: „Álfur“ seldur til að fjár- magna eftirmeðferðarstöð FÉLAGAR í SÁÁ munu dagana 17. og 18. maí ganga í hús um land allt og selja svokallaðan „álf“ til styrktar byggingu endurmeðferðar- stöðvarinnar Víkur, sem verður í landi Saltvíkur á Kjalarnesi. Álfur- inn er lítill brúðukarl, nokkrir sentimetrar á hæð, og undir hatti hans er að finna birki- og Iúpínufræ frá Landgræðslu íslands. Theodór Halldórsson, fram- kvæmdastjóri SÁÁ, segir að fram- kvæmdir við Vík séu nú í þann mun að hefjast. Fyrsta skófl- ustungan hafi verið tekin um síðustu helgi og stefnt sé að því að þeim verði að fullu lokið í nóv- ember á þessu ari. Starfsemi SÁÁ fer nú fram á fjórum stöðum á landinu. í Síðu- múla er rekin fræðslu- og leiðbein- ingarstöð og þar er jafnframt skrif- stofa samtakanna. Þá rekur SÁA sjúkrastöðina Vog, sem er afvötn- unarstöð. Þar geta dvalist allt að 60 manns í einu og er meðallengd dvalar 10-12 dagar. Af þeim 1.800 einstaklingum sem árlega fara í afvötnun hjá SÁA fara tæplega þúsund í eftirmeðferð að henni lok- inni. Hefur hún verið annars vegar að Sogni og hins vegar að Staðar- felli en á hvorum staðnum fyrir sig eru rúm fyrir 30 manns. Eftirmeð- ferð tekur 28 daga. Ætlunin er að nýja eftirmeðferð- arstöðin Vík leysi Sogn af hólmi en þá stöð hefur SÁÁ rekið í þrett- án ár í leiguhúsnæði frá Náttúru- lækningafélaginu. Theodór sagði að fyrst hefði verið leitað að hentugu leiguhús- næði fyrir nýja eftirmeðferðarstöð en þar sem það hafi ekki fundist hafi verið ákveðið að byggja. Var því keypt land frá Reykjavíkurborg og ákveðið að halda útboð. Að lo- knu forvali var fimm stofum gefinn kostur á að gera heildartilboð í verkið. Dómnefnd skipuð þeim Theodór Halldórsson, fram- kvæmdastjóri SÁÁ. Garðari Halldórssyni, arkitekt, Gunnari Kvaran, formanni stjórnar Sogns, Gunnari Torfasyni, verk- fræðingi, Tryggva Sigurbjarnar- syni, vet'kfræðingi og formanni byggingamefndar, Sigurði Gunn- steinssyni, dagskárstjóra á Sogni og Theodóri Halldórssyni, mat að lokum þær tillögur sem bárust. Varð tillaga arkitektanna Hall- dórs Guðmundssonar og Ragnars Bogasonar frá Teiknistofunni hf. fyrir valinu. Húsið er einlyft steinhús á 13 hektara landi. Það er 850 fermetr- ar af stærð og þar af er 380 fer- metra svefnskáli með 30 rúmum. Kostnaður við byggingu Víkur er áætlaður 61,35 m.kr. en heildar- kostnaður við Vík, að meðtöldum kostnaði við lóð og allar lagnir, er áætlaður um 75 m.kr. „Við fengum fimm mjög góðar tillögur til umfjöllunar," sagði Theodór Halldórsson. „Það sem þessi hafði frarn yfir aðrar var að þarna fáum við hlýlegt hús sem einnig er mjög hagkvæmt jafnt rekstrarlega séð sem fyrir meðferð- ina.“ Islendingarnir eru dálítið einangr- aður á hóteli í norðurhluta Rómar ásamt fulitrúum Grikkja, Kýpur og Möltubúa, en flestir þátttakendur búa á Sheraton-hótelinu í suðurhlut- anum. Samskipti við aðra þátttak- endur eru því nánast engin auk þess sem greinilegt er að ítalir leggja sig lítið fram um að greiða götu þátttak- enda. Menn hafa orðið að fara í skoð- unarferðar á eigin kostnað. íslensku þátttakendurnir hafa far- ið á tvær æfingar og kvaðst Jón vera þokkalega ánægður með hljóm- sveitina. „Maður hefur þó heyrt í þeim betri, sérstaklega sakna ég þeirra Gulla Briem og Jóhanns Ás- mundssonar, því það vantar töluvert upp á að trommu- og bassagrunnur- inn sé jafnþéttur og í upprunalegu útgáfunni. En strengjasveitin er frá- Akraborg flytur að Ingólfsgarði Við Sætún er unnið að uppfyllingu fyrir veg sem leggja á að Ingólfs- garði, en þangað flyst aðstaða Akraborgar. Sigurður Skarphéðinsson, aðstoðargatnamálastjóri, segir að aðkoman verði á ljósum við ný gatna- mót á Sætúni. Búið er að lengja tvö ræsi og byijað að fylla í undir- stöður. Framkvæmdum við vegarlagninguna á að ljúka í haust og er kostnaður um 36,5 milljónir. Eyjólfur og Stefán á blaðmannafundinum í gær. Reuter bær og í heild held ég að þetta verði í lagi á laugardaginn," sagði Jón. Þegar nokkuð var liðið á frétta- mannafundinn birtist góður gestur, Eiríkur Hauksson, sem er fulltrúi Norðmanna að þessu sinni. Hann sagði að það væri einkennileg tilfinn- ing fyrir sig að keppa fyrir hönd Norðmanna og hitta svo hér í miðri Rómarborg marga af sínum bestu vinum af íslandi. Eiríkur sagði að hugur sinn væri heima og að sumu leyti liti hann á sjálfan sig sem ann- an fulltrúa íslendinga í keppninni. Oli Þ. Guðbjartsson: Náðaði fimm gegn tillööii fullnustumatsnefndar ÓLI Þ. Guðbjartsson, fyrrverandi dómsmálaráðherra, náðaði í síðustu viku fjóra menn og I lok marsmánaðar náðaði hann einn mann til. All- ai' náðanirnar gengu í berhögg við tillögur fullnustumatsnefndar sem er ráðgefandi nefnd um náðanir afbrotamanna. Að sögn Þorsteins A. Jónssonar, sem sæti á í fullnustumatsnefnd, hefur ekki tíðkast að starf- andi dómsmálaráðherra gangi gegn umsögnum fullnustumatsnefndar í jafnmörgum málum. Einn þeirra, er fyrrverandi dómsmálaráðherra náðaði, hafði hlotið dóm fyrir alvarlega líkamsárás en áður hafði hann afplánað sex ár af tólf ára dómi fyrir manndráp. Þorsteinn sagði að náðanir Óla Þ. Guðbjartssonar gegn tillögum fullnustumatsnefndar væru fímm á þessu ári og auk þess fleiri frá síðasta ári. „Þetta hefur tíðkast hjá flestum dómsmálaráðherrum en sem algjör undantekning og sumir ráðherrar fóru alfarið eftir tillögum nefndar- innar,“ sagði Þorstemn. Einn þeirra, sem Óli náðaði, hafði hlotið tíu mánaða fangelsisdóm fyrir alvarlega líkamsárás og áður hafði hann afplánað sex ár af tólf ára dómi fyrir manndráp að yfirlögðu ráði, þrír höfðu hlotið 6-15 mánaða fangelsisdóma fyrir skjalafals og þjófnaði og sá fimmti hafði hlotið 6 mánaða fangelsi fyrir síendurtekin umferðarlagabrot. „Þessar fimm náðanir munu allar hafa verið gegn tillögum fullnustu- matsnefndar en þetta eru svo sem ekki allar þær náðanir sem hafa ver- ið í minni tíð. Þetta mun ekki hafa verið einsdæmi með ráðherra. Mér skilst að það hafi gerst í tíð nær allra ráðherra frá því að fullnustu- matsnefnd var skipuð. Það kann að vera að það hafi ekki gerst jafnoft á svo stuttum tíma, annars hef ég ekki yfirlit yfir það. Ég geri ráð fyr- ir því að það hafi verið svo með okk- ur alla að við höfum lagt á þetta mat eins og hver fulltrúi í fullnustu- matsnefnd," sagði Óli. Aðspurður hvort það teldist eðlileg afgreiðsla að náða mann sem hefði hlotið dóm fyrir alvarlega líkamsárás og áður verið dæmdur fyrir mann- dráp sagði Óli: „Ég ræði ekki við fjölmiðla um einstök efnisatriði sem liggja til grundvallar. Mitt hlutverk var að taka afstöðu til náðunarbeiðn- ar og það gerði ég á eins vandaðan hátt og mér var unnt og ég komst að ákveðinni niðurstöðu eftir grand- skoðun og verulega athugun," sagði Óli. Aðspurður hvort hann efaðist um þæt niðurstöður sem dómstólar hefðu komist að í fyrrgreindum mál- um sagði hann: „Auðvitað ekki. Hins vegar er þessari sérstöku úrlausn, náðun og reynslulausn, beitt nánast á hveiju ári eftir ákveðnum reglum, reikna ég með. Ég geri ráð fyrir þvi að það sé alltaf svo í öllum tilfellum að ferill viðkomandi aðila er hafður í huga, en það er verið að taka af- stöðu til þess brots sem ijallað er um hvetju sinni, en ekki einstakra atriða á ferli mannsins," sagði Óli. Óli sagði að fréttir um að tveimur tillögum hans um frekari náðanir hafi verið hafnað á síðasta ríkis- ráðsfundi fráfarandi ríkisstjórnar væru úr lausu lofti gripnar. Óli hefur á síðustu dögum sínum í ráðherraembætti verið gagnrýndur fyrir pólitískar stöðuveitingar. Hann réð Hilmar Þorbjörnsson flokksbróð- ^ ur sinn í stöðu aðstoðaryfirlögreglu- þjóns gegn vilja lögreglustjóra og blaðið hefur heimildir fyrir því að hann hafi ráðið hjúkrunarfræðing í heila stöðu við Litla-Hraun, sem áður var hálft stöðugildi, og fangelsisyfir- völd töldu ekki ástæðu til að breyta. Þá hefur hann ráðið í stöðu sérstaks aðstoðarmanns fanga á Litla-Hrauni en samkvæmt heimildum blaðsins verður honum ekki heimilað að hefja þar störf. Á síðasta ári beitti Óli sér fyrir ráðningu manns í stöðu forstöðu- manns Bifreiðaprófa ríkisins. „Það er alveg rétt að það kom fram kæra á þennan mann í starfí sem send var til Rannsóknarlögreglu ríkisins. Rannsóknarlögreglan sendi málið aftur til ráðuneytisins án þess að lagt væri til að til aðgerða yrði grip- ið. Ráðuneytið fór fram á embættis- könnun sem nú stendur yfir. Það sem hefur gerst er að ráðningartími mannsins hefur verið framlengdur. Það er ranghermi sem hefur komið fram í fjölmiðlum að ég hafi skipað þennan mann. Varðandi pólitísk tengsl í því sem ég hef gert í ráðherraembætti vil ég segja þetta: Þrátt fyrir stutta ráð- herratíð var mikill fjöldi stöðu- og embættaveitinga í minni tíð. Ég þori að fullyrða að mikill hluti þeirra stöðuveitinga er algeriega án póli- tískra tengsla við þann stjórnmála- flokk sem ég starfaði fyrir á þeim tíma. Fjölmiðlafár af þessu tagi sem yfir mig hefur gengið í gær og í dag tek ég eins og það er og læt mér að sumu leyti fátt um finnast. Aðal- atriðið er það að þolendur í þessu _ máli verði ekki fyrir tjóni — á mér hrín ekkert,“ sagði Óli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.