Morgunblaðið - 03.05.1991, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 03.05.1991, Blaðsíða 33
MÓábtmfel^ÐIÐ' FöSTIÍDÁgM1 • IWÍ1 ALMANNATRYGGIIMGAR, helstu bótaflokkar 1. maí 1991 Mánaðargreiðslur Elli / örorkulífeyrir (grunnlífeyrir) ................. 11.819 '/2 hjónalffeyrir ...................................... 10.637 Full tekjutrygging ..................................... 21.746 Heimilisuppbót .......................................... 7.392 Sérstök heimilisuppbót .................................. 5.084 Barnalífeyrirv/1 barns .................................. 7.239 Meðlag v/1 barns ........................................ 7.239 Mæðralaun/feðralaun v/1 barns ............................4.536 Mæðralaun/feðralaun v/ 2ja barna ...................... 11.886 Mæðralaun/feðralaunv/3jabarnaeðafleiri ................. 21.081 Ekkjubætur/ekkilsbætur6 mánaða ......................... 14.809 Ekkjubætur/ekkilsbætur 12 mánaða ....................... 11.104 Fullur ekkjulífeyrir ................................... 11.819 Dánarbæturí8ár(v/slysa) ................................ 14.809 Fæðingarstyrkur ........................................ 24.053 Vasapeningar vistmanna .................................. 7.287 Vasapeningarv/sjúkratrygginga ........................... 6.124 Daggreiðslur Sjúkradagpeningareinstaklings .......................... 504,40 Sjúkradagpeningarfyrir hvert barn á framfæri ........... 136,90 Slysadagpeningareinstaklings ........................... 638,20 Slysadagpeningar fyrir hvert barn á framfæri ........... 136,90 Unglingar á sýningu í Reiðhöllinni. FISKVERÐ AUPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA 2. maí. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur (sl.) 120,00 80,00 96,66 27,021 2.611.900 Þorskur (ósl.) 87,00 50,00 71,04 6,318 448.810 Þorskur smár 79,00 74,00 76,48 5,368 410.562 Ýsa (sl.) 110,00 95,00 100,02 » 34,717 3.472.552 Ýsa (ósl.) 101,00 90,00 95,76 0,502 48.073 Blandað 20,00 20,00 20,00 0,124 2.480 Hrogn 110,00 30,00 104,23 1,522 158.635 Karfi 40,00 39,00 39,05 0,816 31.866 Keila 37,00 26,00 28,57 0,274 7.828 Langa 60,00 39,00 42,83 2,438 104.450 Lúða 255,00 160,00 214,28 0,278 59.570 Lýsa 45,00 45,00 45,00 0,046 2.070 Skata 105,00 105,00 105,00 0,021 2.205 Skarkoli 70,00 62,00 62,72 0,367 23.018 Steinbítur 55,00 39,00 45,37 4,253 192.956 Ufsi 57,00 50,00 56,36 11,467 646.332 Ufsi (ósl.) 43,00 43,00 43,00 0,132 5.676 Undirmál 70,00 39,00 66,22 0,755 49.998 Samtals 85,86 96,419 8.278.980 FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf, Þorskur (dbl.) 69,00 ■50,00 61,26 17,964 1.100.522 Þorskur (sl.) 117,00 50,00 91,36 70,013 6.393.169 Þorskur (ósl.) 110,00 45,00 78,37 96,056 7.528.148 Þorskur 117.00 45,00 81,34 185,833 15.114.869 Ýsa (sl.) 100,00 80,00 95,46 20,468 1.953.974 Ýsa (ósl.) 99,00 75,00 86,58 73,309 6.346.927 Ýsa 100,00 75,00 88,52 93,777 8.300.901 Svartfugl 65,00 65,00 65,00 0,134 8.710 Koli 40,00 40,00 40,00 0,309 12.360 Undirmál 63,00 53,00 56,23 6,500 365.500 Skötuselur 455,00 130,00 177,37 0,226 40.255 Lúða 305,00 100,00 193,950 1,315 234.950 Blálanga 48,00 48,00 48,00 1,125 54.000 Keila 30,00 21,00 28,07 4,406 123.659 Skarkoli 44,00 20,00 42,61 0,637 27.140 Blandað 10,00 10,00 10,00 0,146 1.460 Ufsi 54,00 15,00 42,59 35,933 1.530.327 Steinbítur 37,00 15,00 30,30 0,207 6.273 Langa 60,00 15,00 48,34 0,957 46.262 Karfi 40,00 15,00 37,07 14,857 550.766 Sam- tals 76,33 346,365 26.437.432 Selt var m.a. úr Hauki GK, Alberti GK og dagróðrabátum. Olíuverð á Rotterdam-markaði, síðustu tíu vikur, 19. feb. - 30. apríl, dollarar hvert tonn ■+—I----1---1-----1----1---1-----1----1----1----1—h 22F 1M 8. 15. 22. 29. 5.A 12. 19. 26. 22F 1M 8. 15. 22. 29. 5.A 12. 19. 26. fH imgtmjtyl co co tfj °0 Metsölublaó á hverjum degi! Hestadagar í Reiðhöllinni HINIR árlegu Hestadagar verða haldnir í Reiðhöllinni í Víðidal um helgina og verður að venju mikið um að vera. daginn með sýningu klukkan 21. Á laugardag verður sýning á sama tíma en á sunnudaginn verða sýn- ingar klukkan 15 og 21. Á fyrri sýningu sunnudagsins mætir Tóti trúður og skemmtir börnunum. Tveir af aðalleikurum myndarinnar, þau James Caan og Kathy Bates. Bíóborgin hefur sýning- ar á myndinni „Eymd“ Glæsilegir gæðingar og kyn- bótahryssur verða til sýnis og bestu stóðhestar landsins einnig. Félag tamningamanna heldur sýn- ingu, Hallbjörn Hjartarson skemmtir, stærsti og minnsti hest- ur landsins verða til sýnis og ýmis- legt fleira verður á boðstólum. Hestadagarnir hefjast á föstu- ■ OPNUN á sýningu í sýningarsöl- um Norræna hússins á málverkum eftir norska málarann Sverre Wyll- er. Listamaðurinn verður viðstaddur opnun sýningarinnar. Sverre Wyller er fæddur í Osló. Hann stundaði nám við Arkitektaskólann í Ósló en lauk ekki námi. Síðan lá leiðin í Handíða- og listiðnaðarskólann og Norsku aka- demíuna. Að loknu námi hélt Wyller til Vestur-Berlínar þar sem hann bjó í fimm ár, en frá 1987 hefur hann verið búsettur í New York. Myndirn- ar á sýningunni í Norræna húsinu eru frá árunum 1983 til 1989 og sýna þær breytingar sem hafa orðið í myndsköpun listamannsins á þess- um ámm. Sverre Wyller hefur haldið margar einkasýningar í Þýskalandi og á Norðurlöndum, en einnig hefur hann tekið þátt í mörgum samsýn- ingum. Norræna húsið naut góðrar samvinnu við Gallerí Riis í Ósló við undirbúning sýningarinnar. Sýningin í Norræna húsinu verður opin dag- lega frá kl. 14-19 fram til 26. maí. Jakusho Kwong-roshi ■ JAKUSHO Kwong-roshi mun verða með kynningu á Zen-iðkun laugardaginn 4. maí kl. 14.00. Kynn- ingin verður í húsi Guðspekifélags- ins í Ingólfsstræti 22 og er á vegum Zen-hópsins. Jakusho Kwong-roshi er kínverskættaður Bandaríkjamað- ur, en hann fæddist í Santa Rosa árið 1935. Hann byrjaði að iðka Zen undir handleiðslu Shunryu Suzuki- roshi árið 1959. Árið 1973 keypti hann ásamt sjö nemendum sínum sveitasetur í Sonomafjöllunum í Kali- forníu til að þróa hið hefðbundna Zen í anda kennara síns. Jakusho Kwong er nú staddur á íslandi í boði Zen-hópsins, en hann er jafn- framt kennari hópsins. Héðan fer hann til Þýskalands og Póllands,, þar sem hann leiðir Zen-hópa. Kynningin á Zen er öllum opin og er aðgangur ókeypis,....... ..... BÍÓBORGIN hefur tekið til sýn- ingar myndina „Eymd“. Með að- alhlutverk fara James Caan og Kathy Bates. Leiksljóri er Rob Reiner. Paul Sheldon er vinsæll rithöf- undur og hefur einkum öðlast vin- sældir sínar af söguröð sinni um Misery Chastain. Hann er búsettur í New York en hefur það fyrir vana að lokinni sögu að fara vestur til Colorado. í einni slíkri för skellur á stórhríð og missir hann stjórn á bílnum. Það er ung kona sem kem- ur honum til hjálpar og flytur hún hann heim til sín, en hún á einmitt heima skammt frá. Þetta er hjúkr- unarkona að mennt og heitir Annie. Hún tjáir honum þegar hann vakn- ar úr rotinu að hún hafi búið um brot hans en hann brotnaði á báðum fótum. Hún segir honum einnig að hún sé mesti aðdáandi hans og að hún hafi lesið allt sem hann hafí skrifað og að hún geti ekki komið honum á sptala því að síminn sé slitinn og vegir tepptir. Jafnframt biður hún leyfis til að lesa söguna sem hann hafí í handriti í farangri sínum. Þegar hún hefur lesið hand- ritið, umhverfist hún alveg, því Paul hafði látið Misery deyja undir lokin. Kemur þá í Ijós að Ánnie er trufluð á geðsmunum og ætlar að halda honum nauðugum meðan hann skrifar nýja sögu sem verði henni að skapi. %-k Ábendingar frá LÖGREGLUNNI: Um búnað eftirvagna Ef eftirvagn er meira en 500 kg að eigin þyngd er hann skráningarskyldur. Frá 1. janúar 1991 þurfa allir eftirvagnar að hafa ljósabúnað í lagi. Á alla eftirvagna gerða til hraðari aksturs en 30 km/klst þarf eftirfarandi ljós og glitaugu: — a. m. k. tvö hvít glitaugu að framan. — a. m. k. tvö rauðgul stefnuljós að aftan. — a. m. k. tvö rauð afturljós. — a. m. k. tvö rauð hemlaljós. — a. m. k. tvö rauð þríhyrnd E-merkt glitaugu að aftan. (hæð að grunnlínu a.m.k. 400 mm og minna en 900 að topp- horni.) — a. m. k. eitt hvítt ljós sem lýsir skráningarmerki. Á skráningarskyldan eftirvagn þarf einnig gul ferhyrnd ljós á báðar hliðar. Ef heildarþyngd eftirvagns er yfir 1.500 kg þarf að vera sjálfvirkt hemlakerfi sem verður virkt ef loftþrýstingur í hemlabúnaði fellur. Ef eftirvagn undir 1.500 kg heildarþyngd er ekki búinn sjálfvirku hemlakerfi skal vera traust öryggi- skeðja eða vír tengt við bifreiðina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.