Morgunblaðið - 08.06.1991, Side 1

Morgunblaðið - 08.06.1991, Side 1
64 SIÐUR B/LESBOK 127. tbl. 79. árg. LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1991 Prentsmiðja Morgunblaðsins Hersýningí Washington Reuter Gríðarlega mikil hersýning verður haldin í Washing- ton D.C., höfuðborg Bandaríkjanna, í dag í tilefni sigurs bandamanna í Persaflóastríðinu. Þúsundir manna hafa notað tækifærið síðustu daga til að komast í snertingu við hertól og tæki sem notuð voru í stríðinu og komið hefur verið fyrir í nágrenni þinghússins. Stendur hér hópur hermanna og óbreyttra borgara ofan á MlAl-Abrams skriðdreka. Samkomulag um sjálfstjóm í augsýn Bagdad. Daily Telegraph. MASOUD Barzani leiðtogi íraskra Kúrda sagði í gær að samkomu- lag við stjórn Saddam Husseins íraksforseta um sjálfstjórn Kúrda í Irak kynni að verða undirritað um miðjan mánuðinn. Barzani sagði að stjórnvöld í Bagdad hefðu fallist á að Kúrdar gætu snúið til þorpa sinna við írönsku landamærin sem stjórnar- herinn hefði hrakið þá frá og jafnað við jörðu. Enn væri óleystur ágrein- ingur um hvort olíuborgin Kirkuk og nágrenni hennar yrði á sjálf- stjórnarsvæðinu en Barzani sagði að lausn myndi finnast þar á. Hugs- anlega yrði borgarsvæðið undir sameiginlegri stjóm Kúrda og full- trúa Bagdad-stjórnarinnar. Yfirlýsingar annars Kúrdaleið- toga, Jalals Talabani, stönguðust á við ummæli Barzanis. Hann sagði að „alvarleg vandamál" væru óleyst í samningunum. Aðila greindi mjög á hvernig skilgreina bæri sjálf- stjórnarsvæðið og Bagdad-stjómin væri treg til þess að afhenda öðram umráð yfir landamæranum. Barzani hafði ekki sést opinber- James Baker utanríkisráðherra Bandaríkjanna: Hagsmunir Yesturlanda ad umbætur Gorbatsjovs takist Kaupmannahöfn, London, Moskvu. Reuter. JAMES Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði á blaðamanna- fundi í Kaupmannahöfn í gær, að það myndi taka langan tima og yrði ny'ög sársaukafullt að breyta hagkerfi Sovétríkjanna yfir í frjálst markaðskerfi. Baker sagði það vera hagsmunamál vestrænna rikja að Míkhail Gorbatsjov, forseta Sovétríkjanna, tækist ætlunarverk sitt varðandi umbætur. Sú kvöð hvíldi því á herðum þeirra að aðstoða hann. Aðstoðin ætti hins vegar að koma skref fyrir skref. Fjölniargir vestrænir leiðtogar hafa á undanförnum dögum lýst því yfir að vestræn ríki ætli sér ekki að veita Sovétmönnum mjög um- fangsmikla efnahagsaðstoð á fundi leiðtoga sjö stærstu iðnríkja heims í London í næsta mánuði. lagt til að rætt verði við Gorbatsjov um leið og honum lýkur. Það ætti að koma í veg fyrir að beiðni Sovét- manna um fjárhagsaðstoð skyggði á önnur mál á fundinum. Embættis- mennirnir sögðu að Major hefði, eft- ir samráð við hina leiðtogana sex, fallist á að stórfelld fjárhagsaðstoð við Sovétmenn yrði ekki samþykkt á fundinum. ■Stanislav Shatalín, fyrrum efna- hagsráðgjafi Gorbatsjovs, ritaði í gær grein í breska dagblaðið Inde- pendent þar sem hann segir sovéskt efnahagskerfi vera „hugmynda- fræðilega gjaldþrota". Telur hann að efnahagskerfið muni hrynja ef ekki verði horfið frá kreddum komm- únismans og sveigt inn á braut hins frjálsa markaðar. Segir Shatalín að áður en pólitískum stöðugleika hafi veríð komið á geti menn ekki búist við erlendum fjárfestingum að neinu ráði. Jevgeníj Prímakov, ráðgjafi Gorb- atsjovs, sagði að Sovétforsetinn myndi falast eftir fjárhagsaðstoð í Lundúnum vegna ákveðinna umbóta í efnahagsmálum en „ekki rétta fram lófana og búast við reiðufé þegar í stað“. Hann varaði leiðtoga Vestur- landa við því að ef aðstoð við Sovét- menn yrði hafnað tæki við stjórn- leysi í Sovétríkjunum og friði í heim- inum yrði stefnt í hættu. lega í tvær vikur og var talið að hann hefði verið handtekinn í Bagdad. Vísaði hann slíkum fregn- um á bug í gær, sagðist búa í gesta- íbúð stjórnar Saddams Husseins forseta og sagðist með öllu frjáls maður. Kosning- ar boðað- ar í Aisír Algeirsborg. Reuter. SID Ahmed Ghozali, nýskipaður forsætisráðherra Alsírs, sagði í gærkvöldi, að þing- og forseta- kosningar myndu fara fram í landinu fyrir árslok, að sögn alsír- sku fréttastofunnar APS. Þær færu þó ekki fram samtímis. Fulltrúar strangtrúarmanna sögð- ust fyrr um daginn hafa náð sam- komulagi við yfirvöld um kosningar til þings og beinar forsetakosningar innan hálfs árs og aflýstu því alls- heijarverkfalli. Stjórnarflokkurinn neitaði að nokkuð væri hæft í fullyrðingum þeirra en síðar birti APS yfirlýsingu frá Ghozali. Þar sagði að megin- hlutverk nýju ríkisstjórnarinnar, sem honum var falið að mynda, yrði að koma á ró og spekt í landinu og undirbúa hinar tvennu kosningar. Þingkosningar voru ráðgerðar í Alsír 27. júní en samtök öfgasinna sögðu kosningalöggjöfina óréttláta og kröfðust þess að forsetakosningar færu fram samtímis, en Chadli Benjedid var endurkjörinn forseti til fímm ára 1988. Til að knýja á um það boðuðu samtökin til allsheijar- verkfalls 25. maí. Verkfallið þróaðist upp í óeirðir og ofbeldisaðgerðir og var kosningunum aflýst er Benjedid forseti greip til neyðarlaga sl. mið- vikudag. Masoud Barzani leiðtogi Kúrda: NATO áfram helsti vettvang- ur vestrænnar vamarsamvinnu Kaupmnnnahofn. Reutcr. TVEGGJA daga fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Kaupmannahöfn lauk í gær. Mikill tími fór í umræður um framtíðarskipulag bandalagsins og hvernig auka mætti evrópskar áherslur í varnarmálum án þess að ijúfa varnartengsl Evrópu og Bandaríkjanna og Kanada. f lokayfirlýsingu ráðherranna kemur fram að NATO verður .ófram mikilvægasti vettvangur vestrænnar varnar- samvinnu þó að Evrópuríki hafi rétt á að móta sína eigin stefnu. Ákveðið var að halda leiðtogafund NATO-ríkja í Róm í nóvember til að samþykkja tillögur um hernaðarlega og pólitíska framtíðarskipan bandalagsins. Háttsettur bandarískur embættis- maður sagði við Reuíers-fréttastof- una að reynsla Bandaríkjamanna i Mið- dg Suður-Ameríku hefði kennt mönmím að ekki væri hægt að flýta efnahagsþróun. í tilviki Sovétríkj- anna væru málin jafnvel enn flókn- ari þar sem landið hefði enga hefð fyrir fijálsum markaðsbúskap. Gorbatsjov mun að öllum líkindum hitta leiðtoga stærstu iðnríkjanna á fundi þeirra í London og er talið að hann muni þar falast eftir íjárhags- legum stuðningi. Einn af aðstoðar- mönnum Sovétforsetans sagði hins vegar í gær að forsetinn hygðist ekki biðja um peninga, heldur aðstoð við að koma á ákveðnum skrefum í átt að markaðshagkerfi. Breskir embættismenn sögðu í gær að John Major, forsætisráðherra Bretlands, gerði ráð fyrir að snemma í næstu viku yrði Míkhaíl Gorbatsjov sent formlegt boð um að hitta leið- togana sjö að máli í London. Major stjómar leiðtogafundinum og hefur Nokkur bandalagsríki, sér í lagi Frakkar, eru þeirrar skoðunar að Evrópubandalagið (EB) eða Vestur- Evrópusambandið (WEU) eigi að taka aukið frumkvæði í varnarmál- um. Bandaríkjamenn óttast hins vegar að slíkt gæti orðið til þess að minnka vægi NATO. Urðu ráðherr- arnir sammála um að aukið evrópskt frumkvæði í varnarmálum mætti ekki verða til þess. í yfirlýsingu Norður-Atlants- hafsráðsins, sem kom saman í tengslum við fund utanríkisráðherr- anna, er lögð mikil áhersla á mikil- vægi varnartengsla Bandaríkjanna og Evrópu innan ramma NATO. Þá hafi evrópskar stofnanir s.s. Evrópu- bandalagið, Vestur-Evrópusam- bandið, og Ráðstefnan um öryggi og samvinnu í Evrópu (RÖSE) hlut- verki að gegna. Skýrari evrópskar áherslur í varnarmálum myndu und- irstrika vilja Evrópuríkja til að bera aukna ábyrgð á öryggi sínu og verða til þess að treysta samstöðu Atlants- hafsbandalagsríkjanna. NATO hafi hins vegar sérstöðu vegna þess hversu víðfeðm aðild að bandalaginu sé og hversu víðtækir möguleikar aðildarríkjanna til að takast á við hin ýmsu úrlausnarefni séu. NATO sé því mikilvægasti vettvangur bandalagsríkjanna til að ná sam- stöðu um stefnumörkun í öryggis- og varnarmálum þeirra í samræmi við stofnsáttmála NATO.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.