Morgunblaðið - 08.06.1991, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JUNI 1991
Um hlutverk lífeyrissjóðanna
eftir Hrafn
Magnússon
í síðustu Reykjavíkurbréfum
Morgunblaðsins hefur verið vikið
að lífeyrissjóðunum með þeim
hætti að nauðsynlegt er að fram
komi önnur sjónarmið, en þar eru
viðruð.
Lánskjör lífeyrissjóðanna
í íyrra Reykjavíkurbréfi frá 26.
maí sl. er einkum fjallað um nýleg-
ar vaxtahækkanir hjá Húsnæðis-
stofnun ríkisins. í lok bréfsins
varpar höfundur fram þeirri
spurningu, hvort ekki væri hugs-
anlegt að lífeyrissjóðirnir lánuðu
húsnæðiskerfinu fé á föstum vöxt-
um til langs tíma, jafnvel þó að
það kostaði sjóðina einhverjar
krónur á minni lífeyri á efri árum.
Þá er jafnframt í bréfinu vikið að
nýlegum ummælum fjármálaráð-
herra að afstaða lífeyrissjóðanna
gæti ráðið úrslitum um vaxtastig
í húsnæðiskerfinu.
Ég tel mjög mikilvægt að and-
mæla þessum hugmyndum strax,
þar sem þær ganga þvert á öll
grundvallaratriði í samskiptum líf-
eyrissjóðanna við stjómvöld. Það
er ekki hlutverk lífeyrissjóðanna
að greiða niður vexti af húsnæðis-
lánum. Ef stjórnvöld vilja aðstoða
húsbyggjendur með niðurgreidd-
um vöxtum, þá er það einfaldlega
pólitísk ákvörðun, sem tekin er á
hveijum tíma og þá væntanlega í
tengslum við aðra stefnumörkun
í húsnæðismálum, þar sem ýmsir
aðrir þættir koma við sögu, s.s.
húsnæðisbætur og skattalækkanir
af ýmsum toga.
Hlutverk lífeyrissjóðanna er
fyrst og síðast það að greiða
sjóðfélögum, eftirlifandi mökum
þeirra og börnum viðunandi líf-
eyri. Til þess að svo megi verða
er nauðsynlegt fyrir sjóðsstjórnir
lífeyrissjóðanna að ávaxta eignirn-
ar með sem arðvænlegustum
hætti. Að vísu verður þó að gera
nokkurn greinarmun á lífeyrissjóð-
um opinberra starfsmanna, sem
eru á framfærslu ríkis og bæjarfé-
laga, annars vegar og hins vegar
á lífeyrissjóðum innan Alþýðusam-
bands íslands, sem bókstaflega
þuifa á sem bestri ávöxtum að
halda á hveijum tíma, svo hægt
verði að standa undir lífeyrisskuld-
bindingum í framtíðinni.
Samkvæmt lögum eru lánskjör
lífeyrissjóðanna hjá Húsnæðis-
stofnun miðuð við þau vaxtakjör
sem stjómvöld bjóða almennt á
SYNING UM HELGINA
ISLENSKIR OG AMERISKIR
NUDDPOnAR
Sýning laugardag og sunnudag frá kl. 13.00 -17.00
Allur búnaður fyrir vatns og loftnudd, auk annara fylgihluta:
* Hreinsitæki og hringrósardælur
* Liós og dælurofar
* Yfirbreiðslur
* Vatns og loftnudd
* Allur fittings og tengihlufar
* Klórtöflur og hreinsiefni
* Leiktæki f. sundlaugar
Við bjóðum einungis AKRYL nuddpotta því AKRYL stenst
íslenska veðróttu og vatn.
10 óra þekking - sala - og þjónusta.
1A0/ STAQGREIÐSLUAFSLÁTTUR
IV /0 SYNINGARDAGANA
Gerið gæða og verðsamanburð - Leitið tilboða !
K.AUÐUNSSON HF.
Sérverslun meö hreinlætistæki
Grensásvegi 8 - Sími: 686088
fjármagnsmarkaðinum. í samn-
ingum lífeyrissjóðanna við Hús-
næðisstofnuh um lánskjörin eru
það því stjórnvöld á hveijum tíma,
sem beinlínis ákvarða vaxtakjörin.
Lífeyrissjóðirnir eru þess vegna
ekki gerendur á sviði vaxtamála,
heldur miklu frekar þolendur, eins
og dæmin sanna.
Nú þegar alda vaxtahækkana
ríður yfir þjóðfélagið hefur hins
vegar vakið athygli að lífeyrissjóð-
irnir hafa almennt ekki fylgt í kjöl-
farið með vaxtahækkanir á lánum
til sjóðfélaga. Slíka afstöðu má
að vísu gagnrýna, en sú skoðun
virðist vera almennt ríkjandi hjá
lífeyrissjóðunum að doka við fram
eftir sumri og sjá hvort vaxta-
hækkanimar verða viðvarandi
næstu mánuði eða hvort vænta
megi vaxtalækkana aftur næsta
haust. Þó að lán til sjóðfélaga séu
á hagstæðum kjörum um þessar
mundir er þó rétt að undirstrika
að það ástand hvorki má eða get-
ur verið viðvarandi í langan tíma.
í tilefni Reykjavíkurbréfsins er
þó nauðsynlegt að ítreka þá skoð-
un ,að ekki kemur til mála hjá líf-
eyrissjóðunum að niðurgreiða
vexti í húsnæðiskerfinu og upp-
skera þar með lakari lífeyri fyrir
sjóðfélagana. Þá er fráleit sú skoð-
un, sem fjármálaráðherra hefur
viðrað, að afstaða lífeyrissjóðanna
í samningum við Húsnæðisstofnun
ríkisins eigi að ráða úrslitum um
vaxtastig í húsnæðiskerfinu. Með
hliðsjón af því sem ég hef áður
sagt er það bæði ósanngjarnt og
órökrétt að gera lífeyrissjóðina að
einhveijum blóraböggli vaxta-
hækkana, þó að illa gangi hjá
stjórnvöldum að afla innlends láns-
íjármagns, m.a. vegna þess. að
umsvif hins opinbera eru langtum
meiri en góðu hófi gegnir miðað
við skatttekjur ríkisins og almenn-
an innlendan spamað.
PRESSU
SOLUBARNA
Tekjutenging ellilífeyris
í Reykjavíkurbréfi frá 2. júní
sl. fjallar höfundur um tekjuteng-
ingu ellilífeyris. Þar kemur fram
sú skoðun að óeðlilegt sé að þeir
sem m.a. fái greiðslur úr lífeyris-
sjóðum fái einnig greiddan ellilíf-
eyri úr ríkissjóði. Hér er tekið
undir sjónarmið meirihluta nefnd-
ar, sem skipuð var til að íjalla um
endurskoðun á lögum um almann-
atryggingar og skilaði áliti á sl.
vetri. Rétt ér að fram komi að
fulltrúar Alþýðusambands íslands
og Vinnuveitendasambands ís-
lands í nefndinni skiluðu mjög ítar-
legu séráliti, þar sem fram kom
að þeir geti með engu móti fallist
á tillögur meirihluta nefndarinnar
um tekjutengingu ellilífeyris. í áliti
aðila vinnumarkaðarins er sérs-
taklega undirstrikað að verði líf-
eyrir almannatrygginga tekju-
tengdur gjörbreytast allar for-
sendur fyrir starfsemi lífeyrissjóð-
anna. Að draga á þann hátt úr
tryggingarvernd, af því að fólk
hafi tekið þátt í skyldusparnaði til
lífeyrissjóðs, sé einungis til þess
fallið að kollvarpa lífeyrissjóða-
kerfinu. Slíkt dragi auk þess enn
frekar en nú er, úr áhuga fólks á
að taka þátt í skipulögðum lífeyris-
spamaði. Eðlilegra væri hins veg-
ar að gera ráðstafanir til að auka
vilja fólks til slíks spamaðar, frek-
ar en að draga úr honum, eins og
stefnt sé að með tillögum nefndar-
innar. Fleiri hagsmunaaðilar en
ASÍ og VSÍ mótmæltu harðlega
framangreindum hugmyndum
enda hafa þær sem betur fer ekki
náð fram að ganga á Alþingi.
Sú skoðun að tekjutengja
grunnlífeyri almannatiygginga við
bætur úr lífeyrissjóðunum lýsir í
reynd ótrúlegri vanþekkingu á
hlutverki lífeyrissjóðanna, sem
mörkuð var með stofnun þeima á
sínum tíma. Hugmyndin að baki
tvöföldu kerfi lífeyristrygginga
byggist m.a. á því að almanna-
tryggingakerfíð annist grann-
tryggingar, sem eru hinar sömu
til allra, en lífeyrissjóðirnir annist
síðan viðbótartiyggingu, sem sé
háð iðgjaldagreiðslum og tekjum
manna á starfsævinni. Þess vegna
er nauðsynlegt að sú staðreynd
verði viðurkennd að hlutverk líf-
eyrissjóðanna sé fyrst og síðast
að greiða viðbótarlífeyri við þann
almenna lífeyri, sem Trygginga-
stofnun greiðir.
Ljóst er að samspil lífeyris frá
lífeyrissjóðum við lífeyri frá al-
mannatryggingum er óviðunandi
af ýmsum ástæðum, m.a. vegna
þess að vægi grannlífeyris hefur
Hrafn Magnússon
„Hlutverk lífeyrissjóð-
anna er fyrst og síðast
það að greiða sjóðfélög-
um, eftirlifandi mökum
þeirra o g börnum við-
unandi lífeyri. Til þess
að svo megi verða er
nauðsynlegt fyrir sjóðs-
stjórnir lífeyrissjóð-
anna að ávaxta eignirn-
ar með sem arðvæn-
legustum hætti.“
minnkað mikið á undanfömum
áram með sérstökum tekjutrygg-
ingarákvæðum, sem í reynd eru
andstæð hinu tvöfalda kerfí lífey-
ristrygginga. Með tvísköttun ið-
gjalds og lífeyris og með óviðun-
andi tekjutryggingarákvæðum er
í rauninni verið að grafa undan
starfsemi lífeyrissjóðanna. Ekki
bætir svo úr skák, ef síðan á að
nota sparnað sjóðfélaganna gegn-
um lífeyrissjóðakerfið til að niður-
greiða vexti í húsnæðiskerfinu.
Þess vegna er þessi grein skrifuð
til vamar lífeyrissjóðunum. Al-
menningur á þá kröfu að lífeyris-
sjóðirnir séu traustar og hag-
kvæmar stofnanir, sem í framt-
íðinni geti staðið við gefín lífeyris-
loforð. Mjög brýnt er að skapa þá
jákvæðu ímynd að lífeyrissjóðirnir
séu nauðsynlegur hlekkur í trygg-
ingakerfinu. Fyrir því era ýmsar
forsendur að svo geti orðið en þá
þurfa menn að hafa heildaryfirsýn
yfir allt sviðið og skapa þær að-
stæður, sem nauðsynlegar eru fyr-
ir sjóðina.
Höfundur er framkvæmdustjóri
Sambands almennra lífeyrissjóða,
SAL.
Kjalarnes - Glæsilegar sjávarlóðir við Búagrund
Til úthlutunar eru
núlóðirnr. 7-15
við Búagrund,
Kjalarnesi.
Upplýsingar
á skrifstof u
Kjalarneshrepps
í síma
66 60 76.
Sveitarstjóri.