Morgunblaðið - 08.06.1991, Síða 15

Morgunblaðið - 08.06.1991, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1991 15 Upprisa á Þingvöllum eftirHeimi Steinsson Þriðjudaginn 4. júní birtist í Morgunblaðinu grein eftir Friðrik Erlingsson undir yfirskriftinni „Dauði á Þingvöllum". Með því að mér er málið að hluta til skylt læt ég ekki hjá líða að stinga niður penna og fara fáeinum orðum um nokkuð það, sem höfundi liggur á hjarta. Sennilega er fæstum ljósara en mér, hve Þingvöllum er í mörgu áfátt, að því er varðar fræðslu um sögu staðarins, helgi hans, náttúru og eðli allt. Þó er tæpast svo að skilja, að engu sé til að dreifa af þessu tagi, eins og ætla mætti af lýsingu greinarhöfundar. Raunar hefur ýmsu verið áleiðis snúið á Þingvöllum undanfarin ár, almennt talað. Þau verk hafa að mestu farið af hljóði. Ástæðulaust er að tíunda slíkt hér, enda er í flestum tilvikum um að ræða þjón- ustu, sem enginn tekur eftir, nema hún sé vanrækt. Rétt mun þó að geta þess, að Þingvallanefnd hefur nýlega geng- ið frá hvoru tveggja stefnumörkun í skipulagsmálum þjóðgarðsins alls og deiliskipulagi Þinghelginnar sjálfrar. Þetta skipulagsstarf hefur verið kynnt í fjölmiðlum jafnóðum og því fleytti fram. Þar er m.a. að finna áform um að koma á fót hvers konar kynningu alþingis- staðarins foma og grenndarinnar þar. Ætla má, að áformin komi til framkvæmda á næstu árum. Lítils háttar kynning er gestum innan seilingar nú þegar, ef þeir leita hennar: Þegar ekið er um þjóðgarðinn, ber alla fyrr eða síðar að einum og sömu krossgötum. Þar stendur dálítið hús og gengur undir nafninu „Þjónustumiðstöð". Við þjónustumiðstöðina er nothæft merki, sem gefur til kynna, hvaða fyrirgreiðslu þar er að finna sum- arlangt. Ekki verður hún rakin á þessu blaði, en ég ráðlegg gestum að kanna málið á eigin spýtur. í þjónustumiðstöðinni eru jafnan veittar upplýsingar, sem um er beðið, ef þær liggja á lausu yfir- leitt. Þar er einnig til sölu við afar vægu verði litprentaður blöðungur um þjóðargarðinn^ reyndar á fímm tungumálum nú. I blöðungnum er að fínna tvo uppdrætti og furðu margt, sem ætti að geta svalað sárasta þorsta komumanna, m.a. um þau efni, sem Friðrik Erlings- son nefnir í grein sinni. Gagnlegt er að hafa blaðið í hendi, þegar gengið er á Lögberg. í sömu heimild getur að líta svolátandi málsgrein: „Nánari upplýsingar um staði, gönguleiðir og sögu eru ætíð fáan- legar hjá stöðvarstjóra þjóðgarðs- ins í Þjónustumiðstöðinni eða hjá Þjóðgarðsverði í skrifstofu hans hjá Þingvallarkirkju.“. Síðast nefnd klausa vísar til þungamiðju þeirrar fábrotnu kynn- ingar, sem að staðaldri stendur frammi á Þingvöllum: Þjóðgarður- inn leyfír sér að halda því fram, að svonefnd „lifandi leiðsögn“ sé í boði hveijum þeim til handa, sem hennar óskar. Hún felst í því, að gengið er með stórum og smáum hópum - og einstaklingum - um staðinn ellegar spjallað við þá, þar sem heimamanni og gestum kemur saman um að nema staðar og líta yfir landið. Satt að segja hafa margir hagnýtt sér þessa þjónustu fyrr eða síðar, böm og aldraðir og fólk á besta aldri. Svo má enn „Hver getur fullyrt af- dráttarlaust, að betur hæfi „helgistað allra Islendinga“ stórbrotnir leikar en kyrrlát ganga komumanns, sem hefur lítils háttar fróðleik í höndum og les sér til í þögn?“ verða, meðan betri hluta er beðið. Nú þykist ég hafa aukið við, sem vantaði í grein Friðriks Erlingsson- ar. Þar með væri mér sæmst að fella talið. Ég hef ekki trú á lang- hundum í blöðum. Betra að bæta öðrum stúfí við síðar, ef efni standa til. Þó get ég með engu móti stillt mig um að fagna heils hugar þeirri hugmyndaauðgi, sem einkennir allan síðari hluta títtnefndrar greinar. Ekki skal ég fullyrða, að „söguleikar á Þingvöllum" verði nokkru sinni nákvæmlega með þeim hætti, sem greinarhöfundur dregur upp í mynd sinni. Enda er h'onum vonandi annara um heildar- sýnina en smærri framkvæmdarat- riði. Margir hafa leikið sér að áþekkum litum fyrr. En hér er rösklega riðið í hlað. Guð láti gott á vita. Eiginlega er ég ekki að ráði hissa á einu einasta orði í grein Friðriks Erlingssonar, nema yfir- skriftinni sjálfri. En e.t.v. læsu færri, ef fyrirsögnin væri fátæk- legri. Þess vegna fellst ég á fyrir- sögnina, að svo miklu leyti sem ég er aðili máls. Greinina alla þakka ég. Hún Heimir Steinsson hefur ýtt við mér. Nú hef ég starf- að hér á Þingvöllum því nær einn tug ára. Langt fram eftir hafði ég uppi útvarpsþætti og blaðaskrif um Þingvelli öllum stundum, vetur, sumar, vor og haust. Ég staðhæfi engan veginn, að þetta brambolt mitt hafi valdið neinni vakningu. En ýmsum þótti víst nóg um. Og engan heyrði ég á þeim tíma tala um, að Þingvellir væru í andarslitr- unum. Seinni árin hef ég verið bæði pennalatur og orðfár út á við. Þessu sinni hefur góður drengur orðið til að minna mig á einfalda nútímastaðreynd: Maður, sem þeg- ir, er ekki til. Staður, sem hefur hljótt, er dauður. „Sól skín á tinda. Sofið hafa lengi dróttir og dvalið draumþingum á. Vaki vaskir menn!“ Það skyldi þó aldrei vera, að „dauði á Þingvöllum“ eigi eftir að snúast í „upprisu á Þingvöllum"? Ef allir þeir aðilar, sem Friðrik nefnir í hugvekju sinni, taka hönd- um saman, er „upprisan" vís. Þá væri ekki til einskis skrafað. Og þó: Hver getur fullyrt af- dráttarlaust, að betur hæfi „helgi- stað allra íslendinga“ stórbrotnir leikar en kyrrlát ganga komu- manns, sem hefur lítils háttar fróð- leik í höndum og les sér til í þögn? Ég býð Friðrik Erlingsson vel- kominn heim á Þingvallabæ til skrafs og ráðagerða um „hugmynd þeirra í Félagi fomkappa“, og hvaðeina annað. Með vinsamlegri kveðju. Höfundur er þjóðgarðsvörður og sóknarprestur á Þingvöllum. Trjáplöntiir og runnar í mjög fjölbreyttu úrvali Sérstakur afsláttur, 35-40%, á öllum sígrænum plöntum svo sem furu, gerni, eini, ývið og sígrænum garðskálaplöntum ásamt fleiri tegundum. Gerið góð kaup meðan birgðir endast. Ennfremur mjög gott úrval trjáa og runna á sértilboði. Dæmi um verð: Birkikvistur f pottum kr. 190. Gljávfðir i pokum kr. 190. Alaskavíðir, brekkuvíðir og viðja frá kr. 60. Hansarós kr. 390. Dornrós og fleiri tegundir á kr 410. Tilboð þetta stendur frá föstudeginum 7. júní til 14. júní meðan birgðir endast. Sendum plöntulista. TRJÁPLÖNTUSALAN NÚPUM, ÖLFUSI, (beygt til hægri frá Hveragerði) simi 98-34388. Opið frá kl. 10-21 alla daga. Y K O BREID

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.