Morgunblaðið - 08.06.1991, Page 16

Morgunblaðið - 08.06.1991, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1991 Af virðingu við leiklist eftir Kristínu Waage Laugardaginn 1. júní sl. birtist í Morgunblaðinu listi með nöfnum 166 „leiklistarunnenda" undirfyrir- sögninni „í þágu leiklistarinnar“. Fyrir ofan nafnalistann er stuttur texti, en þar segir m.a.: „Við undir- rituð viljum styðja og hvetja Stefán Baldursson þjóðleikhússtjóra til þess að rækja embættisskyldur sín- ar samkvæmt sinni bestu vitund og samvisku.“ Það má augljóst vera, að ein- staklingar þeir, sem fylla undir- skriftarlista „í þágu leiklistarinn- ar“, hljóti að vilja veg og vegsemd hennar sem mesta. Undirrituð telur sig líka leikhúsunnanda og tekur heilshugar undir hvatningarorð þess efnis að embættisskyldur séu ræktar, en vill bæta við ofangreind- an texta: lögum samkvæmt, og á þann hátt, að réttur, reisn og virð- ing starfsfólks og stofnunar sé ekki fyrir borð borin. Listamennirnir 166 kveðast „harma það moldviðri rangfærslna, rógs og persónulegs níðs, sem þyri- að hefur verið upp og er til þess eins fallið að byrgja mönnum sýn á aðalatriði málsins". Hver eru aðalatriði þessa máls? Hver eða hveijir hafa orðið fyrir rógi og persónulegu níði? Lista- mennirnir 166 tilgreina Stefán Baldursson og fjölskyldu hans, svo ekki fer á milli mála hvert samúð- inni er beint. Hún nær með öðrum orðum ekki til þeirra fastráðnu starfsmanna, þ.e. listamanna og markaðsstjóra, sem árum og jafn- vel áratugum saman hafa helgað Þjóðleikhúsinu starfskrafta sína, en eru fyrirvaralaust sviptir starfsæru og atvinnuöryggi. Hlutverk leikara er að túlka mannlegt eðli, setja sig í annarra spor. Þykir mér furðu sæta, hversu skilningsvana á ann- arra hagi þeir leikarar eru, sem kvitta sem samþykkir undir texta eins og þann, sem fylgir fyrirsögn- inni „í þágu leiklistarinnar“. Svo mikið er víst, áð óleiklistarlærðu fólki er ljóst, að atvinnumissir er mikið áfall. Hvað þá heldur, þegar hann verður að uppsláttarefni allra helztu íjölmiðla. Víkjum þá að moldviðrinu. Hvað fékk moldina til að ijúka? Auðvitað er það umfjöllunarefni, þegar heil starfsstétt er svipt atvinnuöryggi. Mætti raunar margt rita um það viðhorf, sem því miður virðist njóta vaxandi fylgis, að atvinnuöryggi sé ekki bara listamönnum hættulegt, heldur öllum launþegum. Hug- myndafræðin að baki þessarar stað- hæfíngar er sú, að fólk vinni bezt, þegar það er í heljargreipum yfir- vofandi atvinnumissis. Starfsörygg- ið hefur ekki verið svo ýkja mikið til umfjöllunar. Blaðaskrifin hófust þá fyrst, þegar ljóst var, að Stefán Baldursson hafði tekið sér vald í hendur, án þess að það væri óve- fengjanlega hans. Bæði hann og listamennirnir vísa í 13. grein laga um Þjóðleikhús frá 12. maí 1978, og segja þeir lögfróða menn hafa greint á um túlkun hennar. Stefán segir enn fremur í grein, er birtist í Morgunblaðinu 31. maí sl.: „Ríkis- lögmaður tjáði mér það álit sitt, að hann teldi, að Gísli Alfreðsson þyrfti að undirrita þessar uppsagnir og bar ég honum þau boð.“ (Letur- breyting greinarhöfundar.) Gísli Alfreðsson neitaði að undirrita upp- sagnarbréfin og þykja mér forsend- ur Gísla ekki skipta nokkru máli hér. Aðalatriðið er, að Stefán sendi út uppsagnarbréf, sem hann vissi, að ríkislögmaður taldi ólögleg. Þyk- ir mér slík embættisfærsla til lítils vegsauka fyrir Stefán og þá stofn- un, sem honum er ætlað að veita fulla forstöðu frá og með 1. sept- ember nk. „Abyrgðin er Þjóðleik- hússtjóra og einskis annars og hluti þeirrar ábyrgðar, sem hann axlar er að taka ákvarðanir sem líklegar eru til að valda deilum" segja „lista- mennirnir". Rétt er það, ábyrgð ber Stefán. Ekki virðist Stefán sam- mála því, svo vitnað sé aftur í grein hans, er hann segir að Gísli hafí átt „frumkvæðið að því að leita annars lögfræðiálits, þ.e. hjá Sig- urði Líndal, lagaprófessor. Sjgurður EES - eftir Kjartan Norðdahl Eitthvað er nú málið viðkvæmt og það meir en lítið, varð mér á að hugsa er ég leit í Mbl. í dag 5. júní, og sá þar grein Björns Bjarna- sonar, alþingismanns, undir yfir- skriftinni „Engin feimnismál í Evr- ópumálum". „Almennt er sú skoðun viðurkennd ...“, segir þar á einum stað og ætli sú skoðun sé ekki al- mennt viðurkennd, að séu menn gripnir í feimnismálum bregðist þeir oft einkennilega við, því ef þetta á að vera einhvers konar svar- grein við þeim spurningum, er ég bar fram í Mbl. 4. júní sl., þá er ég ekki læs á íslenzku. Ég legg það í dóm lesenda, hvort svo sé eða ekki. Það var spurt um fjórfrelsið, sem Björn Bjarnason upplýsir núna, að taldi fullnægjandi, að undirritaður skrifaði einn undir uppsagnarbréf- in. Það var því fyrir milligöngu Gísla Alfreðssonar, að undirrit- aður gekk þannig frá uppsagnar- bréfunum." (Leturbreyting grein- arhöfundar.) Ábyrgðin hvílir raunar á fleirum en verðandi Þjóðleikhússtjóra. Þjóð- leikhúsráð er lögformlegur um- sagnaraðili um embættisfærslur Þjóðleikhússtjóra. Því ber að ganga úr skugga um, að rétt og löglega sé að málum staðið. Þjóðleikhúsráð, að Haraldi Ólafssyni lektor undan- skildum, virðist sammála Stefáni um það, að Gísli Alfreðsson sé sá, sem eigi alla sök. í grein ráðsins, sem birtist í Morgunblaðinu 29. maí sl. segir svo: „Þjóðleikhúsráð telur Gísla Alfreðsson samábyrgan um stjórnun leikhússins svo lengi, sem hann er í starfi Þjóðleikhús- stjóra og vísar athugasemd hans um aðgerðarleysi þjóðleikhúsráðs á bug, enda er hann sá einn aðili sem hefði getað gripið inn í fram- kvæmd þessa máls hefði hann kært sig um að láta vita af and- stöðu sinni í tíma.“ (Leturbreyting greinarhöfundar.) Slíkt viðhorf sem þama birtist hefur löngum heitið á góðri íslenzku að firra sig ábyrgð, og getur hver maður séð þá reisn, sem birtist í slíkri afstöðu. í þessari sömu grein segir enn'- fremur: „Vinnubrögð þau sem Þjóð- leikhúsráð hefur viðhaft í þessu máli hafa helgast af þeim skilningi að ákvarðanir nýs Þjóðleikhússtjóra samningaviðræðumar hafi frá upphafi byggst á. En undarlegt er þettá þá, því hafi menn fylgst með málunum í fjölmiðlum undan- farna mánuði þá eru fiskveiðimál nánast eina umræðuefnið í þessu sambandi. í grein minni var varpað fram þeirri spurningu eftir hveiju útlend- ingar gætu verið að slægjast hér, ef þeir mættu ekki veiða fiskinn okkar — finnið þið eitthvert svar við þessu í grein Björns? Það var einnig spurt hveijir hefðu lokaorðið kæmi til ágreinings — Hæstiréttur íslands eða dómstóll EES, — fínnið þið svar við þessu í „svargreininni“, sem þið skiljið? Það var spurt hvernig við Islend- ingar gætum tryggt okkur gegn þeim ógnvænlegu áhrifum, sem al- gerlega frjálst flæði fólks og fjár- magns af 350 milljóna manna svæði gætu haft á þetta litla þjóðfélag okkar — fínnið þið eitthvert svar við þessu í grein Bjöms, sem léttir áhyggjurnar — jú, bíðum við, þama birtist svar, og það er svona: „í slíkum samningum er þó aldrei unnt að létta ótta af þeim, sem bera kvíðboga fyrir framtíð íslensku þjóðarinnar andspænis þeim mann- fjölda sem býr annars staðar í ver- öldinni." Þarna hafíð þið það! íslenzku samningamennirnir hafa haft almenna fyrirvara, seg- ir í greininni, en það er ekki útlist- að neitt nánar, hvernig sá almenni fyrirvari á að virka, reyni á hann. Nú finnst e.t.v. einhveijum að það sé óraunhæft af mér að minn- ast á þann möguleika, að hingað vildu flytjast „svona 100 þúsund manns...“, en þá vil ég minna á að ég var ekki sá fyrsti sem nefndi þetta. Það gerði próf. Stefán Már Stefánsson, sem ég ber mikla virð- ingu fyrir sem fræðimanni, en hann hefur starfað í laganefnd EFTA í EES-viðræðunum og nýlega gefíð út bókina Evrópurétt, sem fjallar um réttarreglur og stofnanir Evr- ópubandalagsins, svo að eitthvað ætti hann nú að vita um hvað mál- in snúast, en hann segir aðspurður um vernd Islendinga sem minni- hlutahóps í Evrópusamfélaginu: „Þetta er flókið mál í raun og veru. Þarna erum við komnir inn á spurn- Kristín Waage „Hlutverk leikara er að túlka mannlegt eðli, selja sig í annarra spor. Þykir mér furðu sæta, hversu skilningsvana á annarra hagi þeir leik- arar eru, sem kvitta sem samþykkir undir texta eins og þann, sem fylgir fyrirsögninni „í þágu leiklistarinnar“.“ stæðust að lögum.“ í greinargerð Haraldar Ólafssonar, fulltrúa í Þjóðleikhúsráði, sem birtist í Morg- ingu sem ég vík mér venjulega undan að svara. Ég veit auðvitað ekkert meir um þetta heldur en aðrir, hvort við getum staðið þetta af okkur gagnvart svona stóru bandalagi, hvort við getum gert eitthvað í raun ef hundrað þúsund Þjóðverjar vilja setjast hérna að sem launþegar og svo framvegis" (Leturbr. mín, KN.). Björn Bjarnason segir í grein sinni, að EÉS sé eitthvert flóknasta viðfangsefnið sem nú sé á döfinni í íslenzkum stjórnmálum, og er það eflaust rétt hjá honum, því svo flók- ið virðist það vera að jafnvel valda- mestu forystumenn fyrri ríkis- stjórnar virðast nánast ekkert hafa vitað um hvað þeir ætluðu eiginlega að fara að semja, sbr. orð hans sjálfs í Sameinuðu þingi 16.-17. maí sl., er heitar umræður fóru fram um skýrslu utanríkisráðherra (sem hefði átt að útvarpa eða sjón- varpa, en það er nú annað mál). Um það, hvernig þessum málum hefur verið haldið að almenningi, segir Björn, að íslendingum hafi verið gerð ítarleg grein fyrir framvindu mála og vísar til skýrslna Alþingis (síðan hvenær fór íslenzkur almenningur að lesa slíkar skýrslur?), en síðan segir í grein- inni, að enn hafi ekki verið unnt að lýsa í heild reglunum sem gilda um evrópska efnahagssvæðið, af því þær liggi ekki fyrir! 1 Ég verð nú að segja alveg eins og er, að ekki væri að undra þótt menn, sem ekki væru gjörkunnugir málavöxtum, misstu stundum þráð- inn í umræðum stjórnmálamanna um þetta — flókna viðfangsefni. Svo virðist a.m.k. hafa orðið raunin á hjá forsvarsmönnum bænda, ef marka má frétt, sem birt- ist á baksíðu Tímans 4. júní sl., en þar komast þeir að þeirri niður- stöðu, að verði skrifað undir þennan samning verði annaðhvort að styrkja íslenzkan landbúnað til mótvægis við tollfijálsar, niður- greiddar og útflutningsbættar land- búnaðarafurðir frá Evrópu — ella þurfi að leggja hann af með öllu. Það munar ekki um það. Hvað skyldu íslenzkir bændur hafa hugs- að, er þeir lásu þessa frétt í Tíman- um? Afkomendur Brynjólfs Einarssonar, hreppstjóra á Sóleyjarbakka, tilkynni þátttöku sína í ættarmótinu, sem haldið verður á Flúðum 22.-23. júní, fyrir 15. júní nk. til eftirtaldraaðila: Brynjólfur Pálsson, sími 98-66649 Guðjón Sigurðsson, sími 98-63324 Ester Steindórsdóttir, sími 91-676018 Gísli Gíslason, sími 91-36207 Eiríkur Brynjólfsson, sími 91-78896 Bryndís Brynjólfsdóttir, sími 98-21624/21022 Hjá ANDRÉSI fæst úrval af vönduðum karlmannafötum í öllum stærðum. Nýkomnar flauelsbuxur í miklu úrvali, verð 1.580-4.250. ANDRÉS, Skólavörðustíg 22a, sími 18250. Samfestingar í vinnuna og sportið. ANDRÉS FATAVAL, Höfðabakka 9c, sími 673755. Viðkvæmt mál unblaðinu 31. maí sl. segist hann hafa varað formann Þjóðleikhús- ráðs við því að samþykkja aðgerðir, sem vafí léki á að væru löglegar. Ef til vill hefur ráðið sér það til málsbóta, að flestir sæmilegir menn hefðu farið sér varlega á vett- vangi, þar sem nokkur minnsti vafí léki á lögmæti aðgerða þeirra. En ekki Stefán Baldursson. Auðsýni- lega tók bráðlæti hans að beija fótastokkinn svo hann gat ekki beðið eftir fullu löglegu valdi, mér liggur við að segja alvaldi, sem yrði hans 1. september nk. Það er dapurlegt að sjá áskorun frá Þjóðleikhúsráði, að Haraldi und- anskildum, til menntamálaráðherra þess efnis, að starfsáætlun og verk- efnaskrá, sem þegar liggi fyrir standist. Verða þau orð ekki skilin öðruvísi en svo, að fulltrúarnir mælist til þess, að menntamálaráð- herra löggildi ólöglegar uppsagnir verðandi Þjóðleikhússtjóra. Þessir sömu fulltrúar, allir fastráðnir starfsmenn Þjóðleikhússins, geta ekki unnt félögum sínum, ávirðing- arlausum í starfi, smá aðlögun- artíma áður en atvinnumissirinn skellur á. Þeir bera hins vegar, ásamt Stefáni Baldurssyni, ábyrgð á að hafa vegið að reisn, trausti og virðingu Þjóðleikhúss íslendinga og starfsfólks þess. í ljósi atburða og þess hvernig á málum hefur verið haldið, hljóta menn að spyija hvort listamennirn- ir á listanum langa telji málsmeð- ferð sem þessa leiklist á íslandi til framdráttar. Vandséð er hvernig slíkt mætti verða. Höfundur er félagsfræðingur og tíður leikhúsgestur. Kjartan Norðdahl „Það var spurt hvernig við Islendingar gætum tryggt okkur gegn þeim ógnvænlegu áhrifum, sem algerlega frjálst flæði fólks og fjármagns af 350 millj- óna manna svæði gætu haft á þetta litla þjóðfé- lag okkar.“ Nei, þessi svargrein Björns Bjarnasonar ber merki þeirrar freistni, sem alltof margir stjórn- málamenn falla fyrir, er þeir eru beðnir að svara ákveðnum spurn- ingum — þeir víkjast undan að svara þeim beint og undanbragða- laust, eða svara einhveiju öðru en spurt var um. Mér er það hins vegar ljóst, af þeim viðbrögðum er ég varð var við, eftir að grein mín birtist þann 4. júní sl., að menn eru mun betur vakandi yfír þessum málum heldur en ég hafði þó gert mér grein fyr- ir, og undiraldan er þung. Iíöfundur er flugstjóri og lögfræðingur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.