Morgunblaðið - 08.06.1991, Page 18

Morgunblaðið - 08.06.1991, Page 18
flUDAGflAöU/ rfgggm 4 km HLAUP----------' Skágmmó - Vatnsmyrarvegur - Hringbrgut umhveriisstyttu viö Sæmundargotu ■ Hring bmut - Vatnsmýmrvagur - Flugvattarbrnut - Flugvallarvegur - Skágarhllö 2 kmHLAUP---------- Stógarhltö- Fiugvallarbraut Fhjgvaltarvegur- Skógarhlfr RÁSMARK við hús Krabba- KRABBAMEINSFELAGSINS I _____ ,___- _________________________________________________ u 18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1991 Björgólfur Guðmundsson, fyrrum forstjóri Hafskips: Ein galdrabrenna nóg fyrir hveija kynslóð BJÖRGÓLFUR Guðmundsson, fyrrum forstjóri Hafskips, segir að dóm- ur Hæstaréttar í Hafskipsmálinu staðfesti að hæstaréttardómarar séu fyrst og fremst hagsmunagæslumenn ríkisvaldsins og þeir hafi reynt að fyrirbyggja frekari gagnmáisókn sakborninganna. Hann segir að meðalmennska sé ríkjandi í Hæstarétti, hann sé skipaður mönnum sem þori ekki að rísa upp. Hann segir að sér þætti forvitnilegt að sjá eitt- hvert af þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem gerð hafa verið gjaldþrota á síðustu árum fara i gegnum jafnnákvæma skoðun og Hafskip, en svo virðist sem ein galdrabrenna sé nóg fyrir hverja kynslóð. „Út af fyrir sig er ég feginn að þessu er lokið og ég verð að sætta mig við niðurstöðuna. Við vorum sakfelldir af fjölmiðlum fyrir sex árum og við höfum þurft að taka út refsingu fjölmiðla í sex ár. Sjálf- sagt hefur þetta verið erfiðari tími fyrir fjölskyldu mína en sjálfan mig en vonandi hefur maður eitthvað lært áf þessu öllu. Ég er staðráðinn í að láta þessa reynslu verða mér til góðs. Nú get ég einbeitt mér að full- um.krafti að einhveiju uppbyggilegu. Ég er undrandi og óánægður með dóm Hæstaréttar. Það hefur því mið- ur komið í ljós í þessu máli að þegar á reynir er Hæstiréttur hagsmuna- gæsluaðili fyrir ríkisvaldið og fyrir félaga sína í kerfinu. Það er hrika- legt að lenda í svona gjörningum til að kynnast því. Dómur Hæstaréttar staðfestir að dómaramir líta á ríkið fyrst og síðan einstaklingana. Dómur þeirra gekk út á það að reyna að fyrirbyggja frekari gagnmálsókn af okkar hálfu. Menn verða að muna að hæstaréttardómaramir hafa hagsmuna að gæta, því að þeir voru ábyrgir fyrir því að við sátum vikum saman í einangrun. Það er lífsins ómögulegt að hæsta- réttardómararnir hafi getað lesið þau gögn sem komu frá sakadómi, allar vitnaleiðslur og annað, á þeim tíma sem þeir eyddu í þetta mál. Það er ekki hægt. Dómurinn er líka áminning til rík- isvaldsins um að í dóminn vanti til- finnanlega menn með reynslu af við- skiptaiífinu. í dómnum var enginn dómari til dæmis með reynslu frá sakadómi. Aðeins einn utanaðkom- andi dómari var með nokkra reynslu af atvinnulífinu, Jón G. Tómasson, enda skilaði hann sératkvæði um að sýkna bæri af öllum ákæruatriðum varðandi reikningsskilin. Það grát- lega við að lesa dóminn er þó það hve hæstaréttardómaramir marg- bijóta þá grundvallarreglu að allur efí skuli vera sakbomingi í hag. Þá vekur það auðvitað athygli að við skulum þurfa að greiða um 60% af sakarkostnaði þegar sakfellt er í aðeins nokkrum atriðum, eða um 2-5% af upphaflegri ákæru. Við þurf- um eftir sex ára þóf við ríkið að borga hver um sig milljónir í viðbót við það sem við höfum þegar greitt. Ummæli Páls Arnórs Pálssonar sak- sóknara i Morgunblaðinu að greiðsla hærri sakarkostnaðar af okkar hálfu sé dulin niðurstaða dómsins og aðrar bollaleggingar hans um dóminn er ömurlegt dæmi um hve menn geta veri$* á rangri hillu í lífínu. Það sem vekur mestan óhug hjá mér er hversu tilviljanakennt það er hvernig lögin eru túlkuð. Að þessu máli hafa komið meðal annars þrír saksóknarar, þrír sakadómarar og fimm hæstaréttardómarar og ákæru- atriði og niðurstöður meira eða minna á skjön hjá þeim - þrjár til fímm túlkanir á hveiju atriði. Þaá segir að það er lífsnauðsynlegt þegn- um þessa lands að reynsluheimur hæstaréttardómara, sem hafa síð- asta orðið, sé í takt við tímann. Það er ekki nóg að gera þá kröfu til hæstaréttardómara að þeir hafi fyrstu einkunn í lögfræði. Mín skoð- un er sú að það sé frekar til trafala. Fyrst hægt er að túlka hvert lagaat- riði á marga vegu þá get ég vel hugsað mér að þar sitji frekar glögg- ir og farsælir sjómenn eða trésmiðir en þægir embættismenn frá ríkinu með fyrstu einkunn í lögfræði og ca. 20 fermetra lífsreynslu. Síðan Hafskip var sett í gjaldþrot hafa þúsundir fyrirtækja orðið gjald- þrota en aldrei hefur verið athugað hve mörg þeirra myndu þola slíka skoðun sem Hafskip fór í gegnum. Fulltrúar frá Rússlandi kynna sér íslenskan landbúnað: En það skiptir engu máli. Ein galdra- brenna er nóg fyrir hveija kynslóð. Auðvitað hefur þetta mál sínar björtu hliðar því trúlega hafa bústjór- ar Hafskips, sakadómararnir Jóna- tan Þórmundsson og Páll Arnór Páls- son og fleiri fengið á annað hundrað miiljónir kr. fyrir ómakið og mest greitt af Hafskipsbúinu. Geri svo aðrar starfsgreinar betur en lögfræð- ingar.“ Morgunblaðið/Bjarni Eyvindur Erlendsson, túlkur, Þorsteinn Tómasson, forsljóri Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins, Natal- ia Zagorovneva, Nicolay Michailov, forstjóri Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins í Magadan, Jónas Jónsson, búnaðarmálastjóri og Gunnlaugur Júlíusson, hagfræðingur Stéttarsambands bænda. Islensk fjölskyldubú verða fyrir- mynd væntanlegrar einkavæðingar FORSVARSMENN landbúnaðarmála í Magadan, sem er í sjálfstjórn- arhérað austast í Rússlandi, hafa hug á að taka íslenskan landbúnað til fyrirmyndar varðandi áætlaða einkavæðingu Iandbúnaðar þar. Tveir fulltrúar frá Rannsóknarstofnun landbúnaðarins í Magadan, þau Nicolay Mikhailov forstjóri stofnunarinnar og Natalya Zag- orodneva vísindaritari hafa dvalið hér á landi undanfarið til að kynna sér íslenskan landbúnað og rannsóknir honum tengdar, en þau hafa dvalist hér i boði Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins. Magadan er um 1.200 þúsund ferkílómetrar að stærð, eða um 12 sinnum stærra en ísland, og þar af er ræktað land um 30 þúsund hektarar. Landbúnaður hófst þar ekki að ráði fyrr en eftir 1933, en þá fannst gull og aðrir góðmálmar í Magadan og mikil námavinnsla hófst. Þar eru nú um 20 þúsund kýr, og kartöflurækt er stunduð á um tvö þúsund hekturum, en einnig er búið með hænsni, svín, loðdýr, og um 600 þúsund hreindýr. Enginn sauðfjárbúskapur er í Magadan, en að sögn Nicolay Mikhailov er áhugi fyrir þvi að kaupa þangað íslenskt sauðfé, og yrðu jafnvel keypt 10-20 líflömb á næsta ári til þess að gera tilraunir með. Þau Nicolay Mikhailov og Na- talya Zagorodneva hafa undan- fama daga dvalist á íslenskum sveitabæjum og kynnt sér búskap- arhætti bænda, og einnig hafa þau kynnt sér stfnanir landbúnaðarins, en meðal annars hafa þau kynnt sér starfsemi Búnaðarfélags íslands og Stéttarsambands bænda. Nic- olay Mikhailov sagði á fundi með Jjlaðamönnum að áhuginn á íslensk- um landbúnaði stafaði fyrst og fremst af því að náttúruskilyrði í löndunum væru mjög lík, og jafn- framt teldi hann að búskapur í lík- ingu við íslenskan fjölskyldubúskap væri auðveldasta leiðin til að auka framleiðni í tengslum við fyrirhug- aða einkavæðingu landbúnaðar í Magadan. Hann sagði að gert hefði verið bráðabirgðasamkomulag um að 2-3 bændur sem fengju jarðir kæmu hingað til lands að afla sér menntunar, og jafnframt að ís- lenskir bændur færu til Magadan og kenndu starfsbræðmm sínum þar. Hann sagði kerfisbreytingar í landbúnaði ganga hægt í Rússl- andi, en helst væri það skrifveldið sem þvældist fyrir, og jafnframt væri vélakostur fyrir fjölskyldubú- stærð ekki fyrir hendi. Að sögn Þorsteins Tómassonar, forstjóra Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins, má rekja aðdrag- andann að komu fulltrúanna frá Magadan hingað til lands til ráð- stefnu sem haldin var í Leningrad 1988 um samskipti á sviði vísinda og tækni á norðurhjara, en á þessa ráðstefnu mættu nokkrir einstakl- ingar frá íslandi. Það leiddi til þess að samkomulag var gert um sam- . skipti stofnana í Magadan og á ís- landi, en þrír íslenski fulltrúar fóru þangað 1989. Hann sagði að gagn- kvæmur áhugi væri á að halda þess- um samskiptum áfram, en íslenskir vísindamenn hefðu sérstakan áhuga á gróðurfari í Magadan og meðal annars væri sérstaklega áhugavert að skoða það í þeim tigangi að sækja þangað erfðaefni til land- græðslu. Landsvirkjun: Orkuverð til ÍS AL er nú 15,8 mill ÍSAL greiðir nú 15,306 mill fyrir raforku frá Landsvirkjun. Alverð á skyndimörkuðum hefur farið lækkandi undanfarið, en að sögn Jóhanns Más Maríussonar aðstoð- arforstjóra Landsvirkjunar hafa þær sveiflur ekki áhrif á það verð sem ISAL greiðir fyrir raforku nú. Raforkuverðið verður endur- skoðað um næstu mánaðamót og reiknað út frá meðalverði á áli síðustu þijá mánuði. Raforkuverð það sem ÍSAL greiðir Landsvirkjun er samkvæmt orku- sölusamningi háð heimsmarkaðs- verði á áli. Þegar álverð er lágt lækk- ar orkuverðið og getur orðið lægst 12,5 mill ef meðalverð á áli er 1.250 dollarar eða lægra. Hæst getur orku- verðið orðið 18,5 mill, þegar álverðið fer yfír 2.200 dollara. Orkuverðið til ÍSAL miðast við meðaltal ijögurra þátta, sem eru ál- verð sem ísal fær greitt og álverð eins og það er skráð hjá þremur al- þjóðlegum mörkuðum. Hver þáttur vegur jafnt. Á einum þessara mark- aða, LME, hefur verð tækkað niður í 1.228 dollara tonnið. Jóhann Már segir að væri raforkuverð til ÍSAL reiknað miðað við þetta álverð, væri það í lágmarki, eða 12,5 mill. Raforkuverðið til ÍSAL er hins vegar ekki háð slíkum skammtíma- sveiflum og sagði Jóhann Már að sölusamningar ISAL væru til langs tíma, sem þýddi að álverðið væri yfirleitt hærra en skyndiverð á heimsmörkuðum og hækkaði því meðaltal verðþáttanna fjögurra. Það verð sem nú er greitt til Landsvirkj- unar er 15,306 mill og um næstu mánaðamót verður það reiknað á ný og þá miðað við meðalverð á áli mánuðina apríl, maí og júní. Það verð sem þá fæst samkvæmt þeim útreikningum gildir síðan í júlí, ágúst og september. Af þessum sökum sagði Jóhann Már að skammtímasveiflur á einstök- um mörkuðum hefðu ekki áhrif á raforkuverðið sem greitt er í dag. 10 km HLAUP ; Skogartilið - Vatnsmýrarvegur - Hringbraut - Kaplaskjólsvegur IFrostaskjól - Keilugrandi - Eðsgrandi - Ananaust - Mýrargata - Tryggvagata - Kalkofnsvegur - Skulagata - Rauðarárstigur - Miklabraut - Langahlið - Skógarhlið Heilsuhlaup Krabbameinsfélags Islands/Ölympíuhlaupið verður háð í dag og er búist við metþátttöku en í fyrra hlupu um 600 manns. Hlaupið er í Reykjavík, Akureyri og Egilsstöðum. Hefst hlaupið klukkan 12 á hádegi og ræsir Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra þátttakendur samtímis af stað með aðstoð útvarps. Kortið sýnir hlaupaleiðina í Reykjavík en þar býðst þátttakendum ýmist að hlaupa 2, 4 eða 10 km.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.