Morgunblaðið - 08.06.1991, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JUNI 1991
19
Stefnir Olafsson bóndi í Laugardal:
Kemur ekki til
greina að ég eða
dýrin fari héðan
„ÞAÐ er ljót framkoma sem búið er að sýna mér hér á unda-
förnum árum. Margsinnis hefur verið reynt að flæma mig í
burtu en ég er þrásetumaður og það kemur ekki til greina að
ég eða dýrin mín fari héðan,“ sagði Stefnir Ólafsson bóndi á
Reykjaborg í Laugardal, í samtali við Morgunblaðið. I bréfi sem
Stefni barst frá Skrifstofu borgarverkfræðings í vikunni er
mælst til þess að hann virði ákvæði samnings sem gerður var
við hann árið 1984 um bann við búfjárhaldi á býlinu.
„Ég vil fá breytt í samningn-
um ákvæðinu um að hér megi
ekki vera með sauðfé og naut-
gripi en í samningnum stendur
að vilji maður fá breytingar á
honum, þá megi reka málið fyrir
bæjarþingi. Ráðamenn eru hins
vegar svo óforskammaðir að
neita mér um það. Það mega
þeir ekki gera og haldi þeir áfram
hótunum um að stela dýrunum
mínum þá mun ég höfða mál á
hendur þeim. Ég er alveg ákveð-
inn í því og það er hópur manna
sem er búinn að lofa að hjálpa
mér í þessu,“ sagði Stefnir.
„Ég er búinn að vera hér síðan
vorið 1916 þegar foreldrar mínir
fluttu hingað og er því elsti
dalbúinn. Hér vil ég vera til
Sýning Christos opn-
ar á Kjarvalsstöðum
Yfirlitssýning á verkum
bandaríska listamannsins
Christos verður opnuð á Kjarv-
Hvammstangi:
150 milljóna
gjaldþrot
Forgangskröfur í bú Verslun-
ar Sigurðar Pálmasonar á
Hvammstanga, sem tekið var til
gjaldþrotaskipta 1988, greiddust
að fullu, en þær námu 7,4 milljón-
um kr. Skiptalok urðu í búinu í
síðasta mánuði og nam gjaldþrot-
ið tæpum 150 milljónum kr.
Skiptameðferð búsins lauk 6.
nóvember 1990. Forgangskröfur að
upphæð 7,4 milljónum kr. greiddust
að fullu. Upp í veðkröfur greiddust
16,8 milljónir kr. Almennar kröfur
í búið hljóðuðu upp á 125,1 milljón
kr. og greiddust um 3,8 milljónir
upp í þær, eða um 3%.
alsstöðum í dag, laugardaginn
8. júní kl. 16. Kristín Guðnadótt-
ir, safnvörður á Kjarvalsstöð-
um, sagði á blaðamannafundi
er haldinn var vegna sýningar-
innar að verðmætasta verkið,
„Innpakkaðar olíutunnur"
kæmi úr einkasafni listamanns-
ins en öll önnur verk á sýning-
unni væru í eigu Torstens Lilja,
sænsks milljónamærings, og
yrði hann viðstaddur opnun sýn-
ingarinnar.
Torsten Lilja er sagður eiga um
150 verk eftir Christo en það eru
aðallega undirbúningsteikningar,
klippimyndir og módel af hinum
raunverulegu verkum Christos.
Umsjónamaður listasafns Lilja,
Josy Kraft, sér um uppsetningu
verkanna á Kjarvalsstöðum. Flest
verk Christos lifa í skamman tíma
þar sem listamaðurinn fær ein-
göngu leyfisveitingar til þess að
pakka inn brúm eða vefja efni
umhverfis eyjar að því tilskildu
að umbúðirnar verði teknar aftur
niður. Christo kostar alfarið sjálfur
John Nasbitt í Borgarleikhúsinu:
íslenskir meginstraiim-
ar meðal umræðuefnis
Morgunblaðið/BJE
Stefnir Ólafsson bóndi á
Reykjaborg í Laugardal
æviloka og hafa dýrin mín hjá
mér,“ sagði Stefnir.
BANDARÍSKI fyrirlesarinn John Naisbitt verður á ráðstefnu Sljórn-
unarfélags Islands og Amerísk-íslenska verslunarráðsins í Borgarleik-
húsinu nk. mánudag 10. júní. Síðdegis í gær höfðu milli 430 og 440
manns skráð sig á ráðstefnuna, samkvæmt upplýsingum frá Stjórnun-
arfélaginu.
í fréttatilkynningu frá Stjórnun-
arfélaginu segir, að John Naisbitt
sé heimsþekktur fyrir bókina Mega-
trends, sem út kom fyrir 10 árum.
Þar hafi hann spáð fyrir um þá
meginstrauma sem myndu einkenna
liðinn áratug. í tilkynningunni segir
að Naisbitt hafi reynst sannspár og
hafi því hin nýja bók hans og eigin-
konu hans, Patriciu Aburdene,
Megatrends 2000, ekki síður vakið
heimsathygli. í bókinni séu boðaðir
meginstraumar þjóðfélagsins til
næstu aldamóta.
Umfjöllunin í Borgarleikhúsinu
hefst á kynningu Gunnars M. Hans-
sonar forstjóra IBM á íslandi á John
Naisbitt. Að henni lokinni fylgir
erindi Naisbitts. í kjölfar þess munu
fréttamenn leggja spurningar fyrir
Naisbitt, en einnig er gert ráð fyrir
að þátttakendur geti lagt fram skrif-
legar fyrirspurnir úr sal.
Að loknu kaffihléi verða pall-
borðsumræður með John Naisbitt.
Umfjöllunarefnið er að sjálfsögðu
erindi hans, en einnig verður glímt
við að kanna íslenska megin-
strauma. Umræðustjóri er Sig-
mundur Guðbjarnason, fráfarandi
háskólarektor. Þórður Sverrisson,
formaður stjórnar Stjórnunarfélags
íslands, mun slíta ráðstefnunni um
kl. 16.30.
-------------
Islenskur
læknir hlýt-
ur dönsk
verðlaun
GÍSLI Einarsson orku- og endur-
hæfingarlæknir hefur hlotið
dönsk rannsóknarverðlaun fyrir
doktorsritgerð sína um aðlögum
vöðva að langvarandi sköddun en
hún byggist á rannsóknum á
mænuveikisjúklingum sem lamast
hafa á mismunandi aldri og áttu
það sameiginlegt að hafa búið við
langvarandi lömun.
Verðlaun þesi veita Landssamtök
mænuveikisjúklinga og fórnarlamba
umferðarslysa (Landsforeningen af
Polio-, Trafík- og Ulykkeskadede).
Verðlaunin verða afhent Gísia
sunnudaginn 9. júní á ársfundi sam-
takanna í Danmörku.
Doktorsritgerð Gísla Einarssonar
sem hann varði við læknadeild
Gautaborgarháskóla fyrir rúmu ári
fjallar bæði um aðlögunarhæfni
skaddaðra vöðva við athöfnum dag-
lega lífs og svörun vöðva við skipu-
lagðri styrktarþjálfun. Hefur þessi
vitneskja mikla þýðingu fyrir þá sem
búa vð langvarandi lömun, t.d.
mænusóttarsjúklinga og þá sem
lamast hafa af öðrum orsökum.
Gísli Einarsson er lektor í endur-
hæfingafræðum við læknadeild Há-
skóla Islands og var til skamms tíma
yfirlæknir við Heilsuhæli Náttúru-
lækningafélags íslands í Hveragerði.
' Morgunblaðið/KGA
Kristín Guðnadóttir, safnvörður á Kjarvalsstöðum, og Josy Kraft,
umsjónarmaður listasafns Lilja.
þessi viðamiklu verkefni með sölu
á skissum sínum og undirbúnings-
teikningum. Hann vill ekki taka
við opinberum styrkjum þar sem
að hans áliti myndi það skerða
frelsi hans sem listamanns.
KOMDU OG PRÓFAÐU HANN JSTOM]
Mífaouífý
HÖFDABAKKA 9
11Í RtYKJAVÍK SlMl 9! 670000 ou 67430Ö