Morgunblaðið - 08.06.1991, Page 20

Morgunblaðið - 08.06.1991, Page 20
20 MOJIGUNBLAÐIÐ IJVUGARDAGUR 8. JUNI.1991 Flugslysið í Tælandi: Hreyflar vélarinnar unnu hvor gegn öðrum Seattle. Reuter. BANDARÍSKA flugmálastjórnin (FAA) staðfesti í gær, að loftbrems- ur hefðu verið í gangi á öðrum hreyfli Boeing-767 þotu austunríska flugfélagsins Lauda Air sem fórst í Tælandi í síðasta mánuði með 223 manns. FAA sendi í gær bréf til flug- málayfirvalda í löndum þar sem Boeing-767 þotur búnar Pratt og Whitney 4000 hreyflum eru í rekstri þar sem skýrt var frá gangi rannsóknar á flugslysinu í Tæ- landi. Þar er staðfest að annar hreyfillinn hafí framleitt fullt gagn- afl er þotan fórst. Ekki hafí komið í ljós hvað olli gagnvirkan hreyfl- anna. Of mörgum spurningum væri enn ósvarað og þar sem ekki hefðu komið neinir framleiðslugall- ar í Ijós yrðu samskonar þotur ekki settar í flugbann að svo stöddu. Leiðtogar Sovétríkjanna og lýðveld- anna funda um efnahagsvandann: Refsiaðgerðir fyrirhug- aðar vegna vanefnda á greiðslum í ríkissjóð Moskvu. Reuter. Reuter Berlín - hvað annað? Bresk hjón skrifa hér undir stuðningsyfirlýsingu þess efnis að Berlín eigi að vera aðsetur stjómsýslu í Þýskalandi. Þau standa við hliðina á skilti sem á stendur: „Höfuðborg stjómsýslu BERLÍN! Hvað annað? Bonn er úrelt!“ Undirskriftirnar verða sendar til Bonn. HÁTTSETTIR embættismenn Sovétsljórnarinnar og sovéskra lýð- velda hittust í gær til að ákvarða refsiaðgerðir gagnvart þeim lýðveld- um sem neita að borga sinn skerf í sovéska ríkiskassann. Sovéska fréttastofan Tass greindi frá þessu í gær. Samningur um fækkun langdrægra kjarnorkueldfiauga: Stefnt að því að Ijúka viðræðum sem fyrst Tass sagði að Sovétríkin stæðu frammi fyrir meiriháttar efnahags- vanda og varaði því að ef lýðveldin héldu eftir peningum þá gæti efna- hagshalli Sovétríkjanna orðið 120 milljarðar rúblna (rúmlega 12 þús- und milljarðar ÍSK á opinberu sov- ésku gengi) í staðinn fyrir áætlaðan 30 milljarða rúblna halla (rúmlega 3.000 milljarða ÍSK). Aðstoðarforsætisráðherrar flestra Sovétlýðveldanna 15 komu til Moskvu til að fylgja eftir sam- komulagi sem gert var í apríl og undirritað var af Míkhaíl Gorbatsjov Sovétleiðtoga og forsetum níu lýð- velda um aðgerðir til að bregðast við efnahagsvandanum og um nýjan grundvöll að sovéska ríkjasamband- inu. Tass sagði að embættismenn legðu til að lýðveldunum yrði skipt í tvo flokka. Þau lýðveldi sem vilja áfram vera í sovéska ríkjasamband- inu njóta forgangs meðan litið verði ÚRVALS bón- og hreinsivörur! OHufélagið hf á þau lýðveldi sem vilja segja sig úr því eins og erlend ríki og muni þau þurfa að borga fyrir vöru og þjónustu með vestrænum gjaldmiðl- um. Sum lýðveldi hafa borgað minna en helming tilskilins framlags til ríkiskassans á fyrsta þriðjungi þessa árs. Litháar og Lettar, sem vilja segja sig úr sovéska ríkjasamband- inu, hafa neitað að borga með öllu. Tass sagði að þau lýðveldi sem neituðu að greiða gætu átt á hættu að þeim yrði neitað um allt það, sem miðstýrt er af yfirvöldum í Moskvu, þ.á m. innflutningsvörur og aðgang að náttúruauðlindum. Belgrad. Reuter. VALENTÍN Pavlov, forsætisráð- herra Sovétríkjanna, hóf í gær viðræður við ráðamenn í Belgrad um ástandið í Júgóslavíu og um skuldir Sovétmanna við Júgó- slava. Á fimmtudag samþykktu forsetar lýðveldanna sex, sem mynda ríkjasambandið Júgóslav- íu, málamiðlunartillögu frá for- setum Bosníu og Makedóníu sem grundvöll fyrir viðræður til lausnar þvi ófremdarástandi sem ríkt hefur í Júgóslavíu og jaðrað hefur við borgarastyijöld. Pavlov hóf viðræður við forsæt- isráðherra Júgóslavíu, Ante Markovic, strax eftir að tveggja daga heimsókn hans til Júgóslavíu hófst í Belgrad. Heimildarmenn sögðu að Pavlov og Markovic myndu ræða innanríkisvandamál Júgóslav- íu og svipuð vandamál sem upp hafa komið í Sovétríkjunum þar sem kröfur um minnkaða miðstýringu hafa komið fram í nokkrum lýðveld- um. Þá munu þeir bera saman bæk- ur sínar um vandamál tengd því að leggja niður miðstýrt hagkerfi og taka upp markaðshagkerfi. Embættismennimir sögðu einnig að ráðherramir myndu ræða 2,4 milljarða dala (146 milljarða ÍSK) skuld Sovétmanna við Júgóslava. Míkhaíl Gorbatsjov Sovétleiðtogi lofaði því að skuldin yrði greidd er hann var í heimsókn í Belgrad fyrir um þremur ámm en vegna innanrík- isátaka í Sovétríkjunum og ástands- ins í Austur-Evrópu almennt hefur ekki tekist að efna það. Alexander Bessmertnykh, ut- anríkisráðherra Sovétríkjanna, tók í síðustu viku undir áhyggjur þær Kaujimannahöfn. Reuter. STJORNVÖLD I Bandaríkjunum og Sovétríkjunum gerðu í gær tilraun til að hraða samningavið- ræðum um fækkun langdrægra kjamorkuvopna (START), sem staðið hafa með hléum i níu ár. James Baker, utanríkisráðherra sem talsmenn Bandaríkjanna og Evrópubandalagsins höfðu látið í ljós um að upplausn júgóslavneska ríkjasambandsins hefði áhrif í átt til óstöðugleika í Evrópu. Blaðið segir að Thorvald Stoltenberg utanríkisráðherra hafi greint norska þinginu frá því að stjórnin hafí sent forrnanni Vestur- Evrópusambandsins bréf þar sem óskað er eftir formlegum tengslum við sambandið. Tilgangurinn sé að færa Norðmenn nær þeirri um- ræðu sem á sér stað innan sam- bandsins um öryggis- og vamar- mál í Evrópu. „Við óskum eftir að fá að taka þátt í ráðherrafundum sambandsins og komið verði á reglubundnari upplýsingaskipt- um,“ segir Stoltenberg. Ráðherrann segir að Vestur- Evrópusambandið eigi „að öllum líkindum eftir að gegna meira hlut- verki í umræðunni um skipan varn- armála í Evrópu". Þetta er í fyrsta sinn sem hann lætur þessa skoðun í ljós, en lengi hefur verið óljóst á hvaða atriði norska stjómin hyggst leggja áherslu í umræðunni um Bandaríkjanna, fór í því skyni af fundi utanríkisráðherra Átl- antshafsbandalagsins í Brussel til fundar við Alexander Bess- mertnykh, starfsbróður sinn frá Sovétríkjunum, í Genf en til hans hafði verið boðað í skyndingu. Baker og Bessmertnykh hyggjast ræða START-samninginn, sem kveða mun á um þriðjungs fækkun langdrægra kjarnorkuvopna, öflug- ustu gereyðingarvopna heims. Bak- er sagði á blaðamannafundi í gær að samningurinn væri því sem næst í höfn. Bessmertnykh kvaðst þó ekki búast við því að fundurinn myndi marka tímamót. Náist samkomulag um samning- inn geta George Bush Bandaríkja- forseti og Míkhaíl Gorbatsjov Sovét- forseti efnt til fundar, hugsanlega síðar í mánuðinum ellegar í byijun þessi mál sem nú á sér stað inn- an Atlantshafsbandalagsins og víðar. Stoltenberg segir ennfremur að Norðmenn verði að bregðast við þróuninni innan Vestur-Evrópu- sambandsins. „Það er mikilvægt fyrir Norðmenn að taka sem mestan þátt í umræðunni í Evr- ópu um öryggismál álfunnar," segir hann. Hann telur jafn- framt að Norðmenn eigi að ganga lengra og sækja um aðild að sambandinu. „Ég tel að nokk- ur ríki sambandsins vilji ekki sem stendur fjölga aðildar- ríkjunum ... Þau tengsl sem við höfum óskað eftir eru vissulega takmörkuð, en þau kunna engu að síður að veita okkur reynslu sem við getum byggt á síðar er tekin verður afstaða til aðildar.“ Talsmaður Hægri flokksins í utanríkismálum, Jan Petersen, júlí. Baker og Bessmertnykh hafa reynt að hraða samningaviðræðun- um til að forsetamir geti undirritað samninginn á fundinum. Ríkin greinir nú einkum á um hversu mörgum kjamaoddum hvort þeirra um sig fái að halda og hvort semja eigi um upplýsingaskipti varðandi tilraunir þeirra með kjam- orkueldflaugarnar. Baker er sagður vilja notfæra sér batnandi sam- skipti ríkjanna að undanfömu til að ljúka viðræðunum sem fyrst. Brent Scowcroft, öryggismálaráð- gjafí Bush, er hins vegar sagður vilja fara hægar í sakimar. Bandarískir embættismenn töldu líklegt að Baker og Bessmertnykh ákvæðu að fela sérfræðingum sín- um í afvopnunarmáliim að hefja þegar í stað viðræður af fullum krafti í Genf. sem hefur hvatt til aukinna tengsla Norðmanna við Vestur- Evrópusambandið, er ekki án- ægður með greinargerð utan- ríkisráðherrans. „Við fengum skýrari svör en áður, en það er ekki nóg að viðurkenna vanda- málin, menn verða einnig að leysa þau,“ sagði hann. --------M-t-------- LUGANO - Francois Mitterrand Frakklandsforseti, sem fyrst var kjörinn í embætti 1981 gaf í skyn í gær að hann mundi ekki verða í framboði fyrir næsta sjö ára kjör- tímabil sem hefst árið 1995. Hann verður þá 78 ára gamall. „Tvö kjör- tímabil eru heilmikið, jafnvel of mikið,“ sagði Mitterand á fundi með fréttamönnum í Lugano í Sviss þar sem hann var í heimsókn og átti fund með hinum svissneska starfs- bróður sínum, Flavio Cotti. „Sjö ár voru nóg, en kringumstæðurnar og þrýstingur frá vinum leiddu til þess að ég lagði í annað kjörtímabilið," sagði Mitterrand. Ástandið í Júgóslavíu: Pavlov og Markovic ræðast við í Belgrad Beiðni um nánari tengsl Nor- egs við Y-Evrópusambandið NORSKA dagblaðið Attenposten skýrði frá því á miðvikudag að norska stjórnin hefði óskað eftir nánari tengslum við Vestur-Evr- ópusambandið, öryggisbandalag níu Evrópubandalagsríkja.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.