Morgunblaðið - 08.06.1991, Síða 25
25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR «. JÚNÍ 1001
Morgunblaðið/Magnea Guðmundsdóttir
Guðbjartur Jónsson, Vagnsstjóri, vann kappbeitninguna en það er
árviss viðburður á Sjómannadaginn.
Flateyri:
Mikil hátíðahöld um
sjómannadagshelgina
Flateyri.
MIKIL hátiðahöld voru á Flat-
eyri um sjóinannadagshelgina.
Fjöldi burtfluttra Flateyringa
kom heim bæði með rútu, flug-
vél og á einkabílum, til þess að
taka þátt í hátíðahöldunum sem
stóðu nær linnulaust í fjóra sól-
arhringa.
Segja má að á fímmtudags-
kvöldið 30. maí hafi hátíðin hafist
en þá héldu Kristján Jóhannesson
sveitarstjóri og kona hans Sólveig
Kjartansdóttir upp á fertugsaf-
mæli sitt. Kristján átti afmæli þann
dag en Sólveig er hálfum mánuði
yngri.
Þetta kvöld var Siggi Bjöms
með blúskvöld í Vagninum og á
fostudagskvöld var sannkölluð
kráarstemmning að hætti Sigga.
Hátíðahöld sjómannadagsins
hófust á laugardag með skemmti-
siglingu með togaranum Gylli. Þar
spilaði unglingahljómsveitin Bleik-
ir fílar á dekkinu meðan á sigling-
unni stóð. Á laugardagskvöld var
Búbbólínukvöld í Vagninum, mat-
arveisla og húllumhæ þar sem
Búbbólína var kynnt en þar mun
hafa verið um sjálfan vagnstjórann
Guðbjart Jónsson að ræða.
Þar komu fram Táarinn Hendrik
Tausen gestakokkur kvöldsins,
Bíbborinn Bjöm Ingi Bjarnason,
Danskurinn Siggi Björns, Sigurður
Hafberg og að sjálfsögðu Guð-
bjartur Búbbólína. Að þessari
skemmtun lokinni sem var frábær
að sögn viðstaddra var húsið opnað
almenningi. Þá tóku upp hljóðfærin
hljómsveitin Æfing sem ávallt
skemmti Flateyringum á árum
áður. Hana skipa Kristján sveitar-
stjóri, Ámi Benediktsson nú kaup-
félagsstjóri í Hveragerði og Siggi
Björns trúbador. Þeir tóku létta
æfingu og að mati viðstaddra hafa
þeir engu gleymt, stemmningin var
gífurieg og áttu flestir orðið í
mestu vandræðum með að hemja
útlimina, en ekki er gert ráð fyrir
miklu dansplássi á Vagninum.
Sunnudagsmorgun hófst hefð-
bundin dagskrá sjómmannadags-
ins með guðsþjónustu í Flateyrar-
kirkju, þar var heiðraður sjómaður
og að þessu sinni Hermann B.
Kristjánsson, nú búsettur að Hlíf
á ísafirði.
Þoka og kalsi hijáði fólk mest
allan sunnudaginn en um fimmley-
tið létti þokunni, þá birtist lítil flug-
vél, engu líkara en að hún hefði
ýtt þokunni burt. Úr henni tók að
rigna karamellum yfir mannfjöld-
ann sem þar var saman kominn,
að því loknu komu svífandi fallhlíf-
arstökkvarar.
Karlakórinn Vesturbræður und-
ir stjóm séra Gunnars Björnssonar
sungu í sundhöll Flateyrar og ótal
margt fleira var gert sem ekki er
unnt að nefna. Fertug fermingar-
systkini komu saman á sunnudags-
kvöld og endapunktur gleðinnar
var hörkudansleikur í félagsheimil-
inu þar sem Vanir menn sáu um
fjörið.
Og á mánudag héldu gestimir
til síns heima og við tók að koma
á hefðbundnu lífi bæjarbúa, var
ekki laust' við að margir væru
þreyttir og lúnir eftir úthald helg-
arinnar.
Á næsta sumri á Flateyri stóraf-
mæli og er viðbúið að þá verði
mikið um að vera, þá era allir sem
rætur og hug hafa til Flateyrar
velkomnir. -
- Magnea
Úðun
triá-
gróðurs
Blóm vikunnar
Umsjón: Ágústa Björnsdóttir
207. þáttur
í vetur var skrifað um vetr-
arúðun tijágróðurs. Sú aðferð
er að mörgu leyti heppilegri en
sumarúðun þar sem hún er mun
vinsamlegri umhverfinu. Ekki er
alltaf hægt að vetrarúða vegna
snjóa og svo era fáir svo fyrir-
hyggjusamir að huga að úðun
tijágróðurs þegar allt er í dvala
á veturna. Þess vegna er sumar-
úðun algengasta aðferðin við
eyðingu meindýra í görðum.
Helstu skaðvaldar á tijágróðri
hér á landi eru haustfeti, víði-
feti, skógarvefari og fleiri fiðrild-
alirfur auk blaðlúsa. Fiðrildalifr-
urnar skríða úr eggjunum á vor-
in þegar hlýnar í veðri. Lirfurnar
skríða eftir greinum trjánna þar
til þær fínna lifandi bram. Þar
stinga þær sér inn og éta af blöð-
unum þegar þau springa út. Lirf-
urnar vefja sig inn í blöð tijánna
og veija sig þannig gegn ytri
hættum meðan þær éta sig feitar
og stórar. Lirfumar púpa sig í
jarðveginum um sumarið og fiðr-
ildin klekjast út að haustinu. Þar
með er hringnum lokað. Þau lyf
sem notuð era við sumarúðum
tijágróðurs verða að komast í
snertingu við meindýrin til að
vinna á þeim. Ef litið er á lífsfer-
il fiðrildanna er ljóst að auðveld-
ast er að ná til þeirra á lirfustig-
inu áður en lirfurnar stinga sér
inn í bramin. Því er ráðlegt að
fylgjast vel með greinum tijánna
á vorin. Þegar lirfurnar sjást
skríða á þeim er því rétti tíminn
til að úða. Klak lirfanna er háð
hitastigi og er því breytilegt eft-
ir árferði. Til að ná góðum
árangri þarf að úða fyrr í hlýju
árferði en köldu. Venjulega er
heppilegasti úðunartíminn fyrri
hluta júnímánaðar.
Blaðlýs skríða úr eggjunum á
vorin. Þær sjúga safa úr blöðum
gróðursins og fjölga sér með
meyfæðingu um sumarið. Blað-
lýs valda sjaldan miklu tjóni á
tijágróðri og þess vegna ætti
ekki að þurfa að úða gegn þeim
sérstaklega. Úðun gegn maðki
virkar líka á blaðlúsina og heldur
Maðkur í trjágróðri.
henni í skeíjum. Sitkalús og
furulús heija eins og nöfnin
benda til á greni og fura. Þetta
eru blaðlýs sem eru á kreiki allt
árið. Mest hætta er á skemmdum
ef hlýtt sumar kemur á eftir hlýj-
um vetri. Þá koma lýsnar vel
undan vetrinum og fjölga sér
hratt í sumarhitanum. Þessar lýs
geta valdið miklu tjóni á tijánum
og þess vegna er ráðlegt að fylgj-
ast vel með þeim. Lýsnar era
mjög litlar en skemmdirnar eftir
þær sjást greinilega sem gular
eða brúnar skellur á tijánum þar
sem barrnálar era dauðar. Sum-
arúðun gegn öðram kvillum held-
ur þessum skaðvöldum í skefjum
en þó getur þurft að úða þennan
gróður aftur seinni hluta sumars
ef skemmda verður várt.
Þau efni sem nú era aðallega
notuð við sumarúðun tijágróðurs
era svoköllum pýretrínsambönd.
Þessi efni hafa þann kost að
vera mjög skaðleg skordýram
og því hægt að nota þau í litlum
skömmtum, en tiltölulega skað-
laus æðri dýrum. Dæmi um
verslunarheiti þessara efna eru
Permasect, Permethrin og Cy-
perkill. Þessi efni fást í smásölu
hjá Sölufélagi garðyrkjumanna.
Efnin era fljótandi. Þau eru
þynnt með vatni í ákveðnum
hlutföllum og úðað með fínum
úða á gróðurinn. Árangurinn af
úðuninni næst ekki nema notuð
séu góð úðunartæki sem dreifa
úðanum vel og þekja þannig
stærra svæði á plöntunum. Á
umbúðum efnanna era nákvæm-
ar leiðbeiningar um notkun
þeirra sem ber að lesa vandlega
og fylgja í smáatriðum. Pýretr-
ínsambönd era mjög hættuleg
fiskum og því ber að varast að
efnið lendi í niðurföllum eða
komist eftir öðram leiðum í ár
og vötn.
Eiturúðun er oft framkvæmd
af gömlum vana án tillits til þess
hvort hún er nauðsynleg eða
ekki. Óhætt er að fullyrða að
hægt væri að komast af með
mun minni notkun eiturefna í
görðum en nú er. Öll eiturefni
eru skaðleg umhverfinu og því
ber að draga úr notkun þeirra
eins og mögulegt er. Það má
gera með því að meta alltaf þörf-
ina á úðun áður en hún er fram-
kvæmd. Ef lítið er af lirfum á
vorin getur verið óhætt að
minnka eitumotkunina eða jafn-
vel úða alls ekki. Svolítið af
maðki og blaðlús gerir lítinn
skaða og gerir garðinn meira lif-
andi og skemmtilegri. Við hönn-
un garða má velja tegundir sem
þola vel ágang skordýra en
sleppa þeim sem viðkvæmari era.
Til eru aðrar leiðir við eyðingu
meindýra en notkun eiturefna.
Hér er á markaði hlaupkennt
efni, Aldecyd sem kæfir skordýr
en hefur ekki önnur áhrif á
umhverfíð. Sprautun með köldu
vatni eða úðun með sápulegi
hefur einhver áhrif en þarf að
endurtaka oft til að árangur
náist.
Að lokum þetta: Líta ber á
úðun með eiturefnum sem slæma
nauðsyn þar sem önnur ráð duga
ekki.
Ef úðun garðsins er aðkeypt
leitið þá til fagmanna sem hafa
tilskilin réttindi og ráða yfír
tækjum sem viðurkennd eru af
vinnueftirlitinu.
Lesið leiðbeiningar um með-
höndlun efnanna áður en úðað
er og farið eftir þeim í hvívetna.
Helgi Jóhannesson
Þol — þakmálning
Þekur, vemdar og fegrar
Þarftu að mála þakið? Þá vantar þig Þol
þakmálningu frá Málningu hf. Hún cr
sérstaklega framleidd fyrir bárujám
og aðra utanhússfleti sem r
þarfiiast varanlegrar vamar.
Þol er hálfgljáandi alkýð-
málning sem er auðveld í
'má/ning
m
A O.FL UTANHUil
HAU’OUAANOI AUtÝBMAlNWO
notkun. Þol þakmálningin dregur nafn af
einstöku vcðrunarþoli sínu og litaúrvalið er
ölbreytt. Þol þakmálningin frá
Málningu hf. er punktur-
inn yfir vel málað hús. -
Það segir sig sjálft.
imálninglf
Næst þegar þú sérð fallega málað hús - kynntu þér þá hvaðan málningin er — það segir SÍg sjálft —